Morgunblaðið - 22.12.1994, Side 45
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 22. DESEMBER 1994 45
BRÉF TIL BLAÐSINS
Hátekjufólkið
í landinu
- Einstæðar mæður -
Frá Ernu Sigurðardóttur:
„Æ SIFRÉTT AGREIN“ Morgun-
blaðsins sem birtist 6. desember
með feitletraðri yfirskrift „Ráð-
stöfunartekjur mæðranna nærri
tvöfalt hærri“ er tilefni minna
skrifa.
Er ekki raunhæft að bera ein-
stæðar mæður saman við annað
barnafólk? Það er hjón eða fólk I
sambúð með börn.
Einstæð móðir má gjöra svo vel
að lifa á lægri ráðstöfunartekjum
en hjón með börn. Því svo undar-
lega vill til að fyrir launajafnrétti
kynjanna er ekki hægt að hrópa
húrra.
Hver heilvita maðúr hlýtur að
sjá það að barnabætur éinar og
sér hrökkva ekki til fyrir þeim
kostnaði sem er í kringum börn.
Svo taka verður af laununum í það
sem upp á vantar.
Hjá einstæðri móður er ekki
annar möguleiki- en ein fyrirvinna
á heimili. Fær hún með tvö börn
á framfæri undir sjö ára aldri
42.393 kr. ársijórðungslega í
barnabætur. Hjá hjónum eða sam-
býlisfólki er möguleiki á tveimur
fyrirvinnum á heimili. Fá hjón með
fjögur börn á framfæri undir sjö
ára að aldri 52.750 kr. ársfjórð-
ungslega, sem er sami barnafjöldi
á hvern fullorðinn og hjá einstæðri
móður. Á meðlag og mæðralaun
að brúa bilið þarna á milli hjá ein-
stæðri móður? En allir eiga rétt á
barnabótaauka, hann er tekju-
tengdur.
Karlar yfirleitt
með hærri laun
Það er raunhæft að gefa sér að
forræðislaus faðir sé alltaf töluvert
hærra launaður en einstæð móður.
Þó svo að karlar vermi láglauna-
bekkinn með konum, þá hefur for-
ræðislaus faðir lág- eða hálaunaður
alltaf tíma fyrir aukavinnu til að
hækka launin sem einstæð móður
hefur engin tök á, því hún þarf að
gegna jafnt móður- sem föðurhlut-
verki, sem hjón geta t.d. deilt með
sér.
Lífið er einfaldlega meira en
bara þrældómur í launavinnu. Fólk
verður líka að hafa tíma til að sinna
því sem lífíð hefur upp á að bjóða
t.d. umhyggju barnanna. Fólk verð-
ur að hafa efni á því að lifa. Svo
það hlýtur öllu hugsandi fólki að
vera ljóst að einstæð móðir þarf
að sjá fyrir sér og sínum börnum.
Forræðislaus faðir virðist hafa
það val að hafa einungis um sjálf-
an sig að hugsa, ef honum býður
svo við.
Því er fréttagrein Morgunblaðs-
ins algjörlega úr takt við raunveru-
leikann. Það er furðulegt að blaðið
láti fara frá sér slík skrif sem barn
hefði ráðið betur við en illa upplýst-
ur fréttamaður sem hlut átti að
máli.
Er verið að rægja einstæðar
mæður?
Á svona fréttaflutningur að sýna
rétta mynd af kjörum fólksins í
landinu? Eða er markmiðið einung-
is það að rægja einstæðar mæður?
Finna einhveija sem hægt er að
troða endanlega niður í svaðið? Til
hvers? Er verið að slá ryki í augu
láglaunafólks, kvenna í stórum
meirihluta? Er einhver hræðsla
sem liggur að baki svona skrifum?
Því að viðhalda launamisrétti
landsmanna, sem væri efni í aðra
grein.
Gaman hefði verið ef upplýs-
ingar hefðu fylgt með fréttagrein-
inni um hversu margar einstæðar
mæður fá 110.000 kr. í mánaðar-
laun, hvað þá 150.000 kr. Ætli
þær fyrirfinnist í miklum mæli í
velferðarþjóðfélaginu íslandi?
Á meðan launajöfnuður ríkir
ekki er ekki hægt að afgreiða líf
fólks með einföldum reiknings-
dæmum. Það er mjög einfalt að
etja saman láglaunahópum í þjóð-
félagi til þess eins að hóparnir
standi ekki saman og engar úrbæt-
ur verði. Það er skiljanlegt að þeir
geri það sem hafa hagsmuna að
gæta. En að láta slíkt frá sér fara
sem frétt er hræsni.
Það er of auðveld lausn að ráð-
ast á þá sem minnst mega sín.
Hver verður næstur? Hinn almenni
láglaunamaður, ellilífeyrisþegar,
fatlaðir, einstaklingar eða almennt
fjölskyldur? Því eflaust er hægt
að koma með álíka dæmi hvað
fólk hefur það djöfullega gott.
ERNA SIGURÐARDÓTTIR,
Rauðárstíg 7, Reykjavík.
Könnun Félags einstæðra foreldra á framfærslu barna
Kostnaður á bam
386-550 þúsund á ári
KOSTNAÐUR af framfæralu einB
bams í heilt 6r er á bilinu 886
þúsund krónur og upp í tæp 650
þúsund krónur eftir aldri bamsins,
samkvæmt könnun sem Félag ein-
8tæðra foreldra framkvæmdi með-
al félagsmanna sinna 6 órinu 1991.
Tölumar eru framreiknaðar til
verðlags í dag.
og hæstur 549 þúsund í aldure-
flokknum 18-15 óra.
Kðnnunin var þannig fram-
kvæmd að félagar i Félagi ein-
Btæðra forcldra héldu saman
koBtnaði við framfærslu barna
sinna á árinu 1991 og eru þær
tölur sein birtar eru hér til hliðar
meðaltal niðuretaðna af kostnaði^
af einBtökum liðum fn
kostnaður vegna gæslu 1-5 ára
gamals bams vera 126 þúsund
krónur á óri eða 10.500 krónur á
mánuði.
Ekkert opinbert yfirlit til
Samkvæmt upplýsingum
stofu íslands
yfíri
Aths. ritstj.
í KJÖLFAR umræddrar fréttar
birti Morgunblaðið frétt 8. desem-
ber um kostnað af framfærslu
barna samkvæmt könnun sem Fé-
lag einstæðra foreldra fram-
kvæmdi fyrir nokkrum árum og
voru töiulegar upplýsingar sem þar
var safnað saman framreiknaðar
til verðlags í dag. Hvorugur bréf-
ritara getur þessa. -
í umræddri frétt var leitast við
að greina frá tölulegum staðreynd-
um um ráðstöfunartekjur ein-
stæðra foreldra annars vegar og
forsjárlausra foreldra hins vegar
að teknu tilliti til greiðslna úr
skattkerfinu. Ekkert efnisatriði
fréttarinnar hefur verið hrakið og
þar er hvergi lagður dómur á kjör
þeirra sem um er fjallað.
Morgunblaðið vísar á bug bolla-
leggingum um „hræsni“, æsi-
fréttamennsku og ógrunduðum
aðdróttunum um ástæður frétta-
skrifanna og ítrekar að óiíkar hlið-
ar málsins hafa verið reifaðar þótt
greinahöfundum þyki ekki ástæða
til að minnast á það.
Bóm yngri en 7 ára
Ráðstöfunartelqur einstæðra mæðra og forræðislausra feðra með 110 þúsund króna inána ðarlann
Ráðstöfunar-
tekjur mæðr-
anna nærri
Wöfalt kærri
Ýmsar bætur hækka tekjur mæðra
en meðlag dregst frá tekjum feðranna
Bíntttt(«ii7ára i RlT 2 ./ ; V-r'S® H * < . ■ ,i
Launámán. 66.000 110.000 150.000 65.000 110.000 150.000 i
MMMaunámán..; • 6.ooau 6.000 /'1,000-- 0 -.0- ;-l:..;o
Samtals laun 70.000 115.000 151.000 65.000 110.000 150.000 i
■ -S.3JT í , -«*» V É 1 c
t4% lífeyrissj. og
1 % félagsgj. á fbán. -3.500 -5.750 -7.550 -3.250 -5.500 -7.500 ?{
MpðffkrWllRémán .50*» 50.(00 10.30Ö -20.600 -20.600 -10300
i vm W.Ó5Í öiSií BRMMHHBBm ó
Skeröing bli.auka á án -39.456 -106.838 -87.768 0 0 0
fiá&tðftjflBrtefcÍuráárl 1.27030« 1456*16 1.452.419 4M.380 7im 1420215^
Ráðstöfunartekjur á mán. 106.525 121270 121.035 37^85^6178^
Nokkur orð um einstæðar
mæður og forsjárlausa feður
Frá Félagsmálastofnun
Reykjavíkur:
í MORGUNBLAÐINU 6. desember
sl. gaf að líta eftirfarandi fyrir-
sögn: „Ráðstöfunartekjur ein-
stæðra mæðra og forræðislausra
feðra með 110 þús. kr mánaðar-
laun. Ráðstöfunartekjur mæðra
nærri tvöfalt hærri. Ymsar bætur
hækka tekjur mæðra, en meðlag
dregst frá tekjum feðranna“.
Uppistaða greinarinnar er tafla
er sýnir nokkur dæmi um ráðstöf-
unartekjur einstæðra foreldra ann-
ars vegar og forsjárlausra feðra
hinsvegar. Tilgangur greinarinnar
virðist vera að sýna misréttið sem
forsjárlausir feður búa við. Auk
þess læðist að manni sá grunur að
verið sé að sjá ofsjónum yfir þeim
félagslega stuðningi sem einstæðar
mæður fá.
Félagsmálastofnun Reykjavíkur
þekkir nokkuð vel til mála þeirra
sem tekjulægstir eru í Reykjavík
enda er það sá hópur sem stofnun-
in má koma til aðstoðar hvað fjár-
hag snertir. Sem dæmi má nefna
að árið 1993 fékk fimmta hver ein-
stæð móðir í Reykjavík fjárhagsað-
stoð hjá stofnuninni, þriðji hver
einstæður faðir og tíundi hver ein-
lileypur karl. Hluti þeirra eru
eflaust forsjárlausir feður. Hátt
hlutfall einstæðra foreldra fær því
fjárhagsaðstoð hjá stofnuninni
þrátt fyrir fullyrðingu þá sem fram
kemur í greininni um „háar ráðstöf-
unartekjur" einstæðra mæðra.
Hvernig má það vera?
Það liggur í því að fjárhagsað-
stoðin sem veitt er, er reiknuð á
grundvelli tekna og útgjalda. Til
þess að hafa möguleika á að fá
fjárhagsaðstoð frá félagsmála-
stofnun þarf að uppfylla ströng
skilyrði um lágar tekjur. Foreldri
með forsjá barns/bama greiðir auk
þess allan kostnað samfara því að
vera með barnið/börnin. Allir sem
hafa haft fyrir börnum að sjá vita
hver kostnaður er því samfara -
við gæslu, ferðir, fatnað, mat og
eftir að skólaaldri er náð, til viðbót-
ar við allt sem lýtur að skólagöngu
og henni samfara, auknar kröfur
barnsins, sem ekki vill skera sig
úr hópnum.
í umræddri grein er m.a. saman-
burður á ráðstöfunartekjum ein-
stæðra mæðra og forsjárlausra
feðra, að gefnum 65.000 kr. grunn-
tekjum. í því dæmi urðu ráðstöfun-
artekjur einstæðu móðurinnar kr.
106.525, en forsjárlausa föðurins
kr. 37.685.
Þar er þó ólíku saman að jafna
þegar ekkert tillit er tekið til þeirra
fjárskuldbindinga sem forsjá og
uppeldi barna óhjákvæmilega hefur
í för með sér. Enginn sem einhveij-
ar fjárhagsskuldbindingar hefur í
okkar samfélagi getur lifað af
65.000 kr. á má.nuði, hvorki ein-
stæðir foreldrar, forsjárlausir feður
né aðrir. Eins og sést á ofangreind-
um ráðstöfunartekjum, hefur sam-
félagið komið til móts við það for-
eldrið sem forsjána hefur með
hagsmuni bamsins í huga.
I umræddri grein gleymdist auk
útgjaldahliðarinnar alveg að geta
þess að einstæðir foreldrar hafa
ekki sömu möguleika og aðrir hóp-
ar samfélagsins til að auka við sig
vinnu og þar með tekjur sínar, sé
einhvetja vinnu að hafa. Auk þessa
eru einstæðir foreldrar oftast konur
(95%) og allar rannsóknir sýna að
konur eru lægra launaðar en karl-
ar. Því er mun hærra hlutfall
kvenna en karla sem fær greidd
laun skv. lægstu launatöxtunum
sem greidd eru í íslensku samfélagi.
Það kemur á óvart að svo virt
blað sem Morgunblaðið, sem vana-
lega er með vandaða og ábyrga
fréttamennsku, slái gagnrýnislaust
upp frétt af þessu tagi. Vissulega
eru margir forsjárlausir feður ekki
ofsælir af kjörum sínum og stöðu,
ekki síst þeir sem stofnað hafa
nýja fjölskyldu og hafa þar fyrir
börnum að sjá. En leiðrétting á
þeirra kjörum má aldrei verða á
kostnað einstæðra foreldra. ís-
lenskt þjóðfélag þarf að huga betur
að kjörum og aðstæðum barna og
fjölskyldna þeirra. Skrif og fréttir
af því tagi sem birtust um ofan-
greint er ekki til þess fallið að vinna
að hagsmunum barna og fjöl-
skyldna þeirra.
F.h. Félagsmálastofnunar
Reykjavíkur,
LÁRA BJÖRNSDÓTTIR.
Hjá okkur er altt á góðu
Hjolavagn fyrir bilaviðgerðir
Verð kr. 1.980
Inni/úti jólasería
40 Ijósa með spennubreyti.
Verð kr.800
Samlokugrill
Verð kr. 2.490
Reiðhjalmur
stærðir31 -60
Verð kr. 2.190
Hnakkur Verð kr. 10.450
Brún
rfslenska Pðstverslunin
Smiðjuvegi 30
Simi 871400
Opið fimmtudag og
föstudag kl. 9-22,
aðfangadag kl. 9-12.