Morgunblaðið - 22.12.1994, Qupperneq 46
46 FIMMTUDAGUR 22. DESEMBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
,T ^ _ ___•
yL’jj k 11 k
%x3$iÁí
fm fyrir afa
og ömmu
■
Verð /ró kr. 1.490.
|M m.
SKOVERSLUN K0PAV0GSHSS'
Orbitel GSM SÍMI
á meðan birgðir endast
Rétt verð kr. 69.900
Tilboðsverð kr. 58.900
Sölustaðir:
W VA&tÁS
Dvergholti 16, kjallara
sími 5668144
Mosfellsbær.
Símabær Gjafabær.
Armúla 32, sími 5883840
ÓTVÍRÆÐIR
YFIRBURÐIR
I TÆKNI
-ÞlNN TÍMI MUN KOMA
SEIKO
Hlutabréf
Til sölu eru hlutabréf
í Pharmaco hf.
Nokkrir einstaklingar og hlutafélag bjóða til sölu nokkum
hluta af hlutabréfaeign sinni í Pharmaco hf., sem er eitt af
stærstu fyrirtækjum í innflutningi og heildsölu
á lyfjum, hjúkrunarvörum og snyrtivörum.
Seld verða hlutabréf að nafnvirði um 7 milljónir
á gengi 7.95. 70% kaupverðs lánað vaxtalaust
í allt að 24 mánuði.
Skattafrádráttur nýtist vegna kaupa.
íslandsbanki, Strandgötu 1, Hafnarfirði, mun annast
móttöku greiðslna og frágangs skuldabréfa vegna sölunnar.
Nánari upplýsingar em gefnar daglega frá kl. 9 til 22 í síma
95-13363. Einnig má gera fyrirspumir eða pantanir
með símbréfi 95-13416.
IDAG
VELVAKANDI
Svarað í síma 691100 frá 10-12 og 14-16 frá mánudegi til föstudags
Þakkir til
Naustsins
ELÍSABET Guðmunds-
dóttir vill koma á framfæri
þakklæti til starfsfólks
Nautsins, en það hafði
samband við hana vegna
gullarmbands sem hún
hafði tapað þar. Hún vissi
ekki hvort það var starfs-
fólk Naustsins sem fann
armbandið eða einhver
gestur, en kann hún
finnandanum bestu þakkir
fyrir heiðarleikann.
Um hamborgar-
hryggi
í ÁRAVÍS hef ég fengið
brimsaltan hamborgar-
hrygg fyrir jól. Eg gæti
alveg eins keypt annars
flokks saitkjöt. Er ketið
úldið, eða hvað? Hvar fæ
ég ætan hamborgarhrygg
með vínbragði eins og
maður fékk í Kaupmanna-
höfn?
Ég hlakka til þegar frí-
verslunarbandalagið er
staðreynd.
Anna
Tapað/fundið
Leðurhúfa
tapaðist
RAUÐBRÚN . Ieðurder-
húfa tapaðist sl. sunnudag,
líklega við Háaleiti eða
Fákafen. Finnandi vinsam-
lega hringi í síma
98-22474.
Hringur tapaðist
GULLHRINGUR með
glærum steini tapaðist, lík-
lega á planinu við Heimilis-
tæki, í byijun nóvember.
Finnandi vinsamlega
hringi í síma 870267.
Fundarlaun.
Rúskinnsúlpa
tapaðist
BLÁ vattfóðruð rúskinns-
úlpa með gulum, grænum
og rauðum röndum að
framan og gulfóðraðri
hettu tapaðist fyrir
nokkru. Finnandi vinsam-
lega hringi í síma 680694
(símsvari).
Gleraugu töpuðust
MJÓ gleraugu í brúnleitri
umgjörð töpuðust á veit-
ingastaðnum Fjörunni í
Hafnarfirði fimmtudaginn
8. desember sl. Hafi ein-
hver tekið þau í misgripum
er hann vinsamlega beðinn
að koma þeim þangað. RG.
Gæludýr
Týndur
köttur
GULRAUÐBRÖNDÓTT-
UR högni tapaðist frá
Mánagötu 16. nóvember
sl. Hann er ómerktur, á
heima í Hafnarfirði og
gæti hafa leitað þangað.
Ibúar í nærliggjandi hverf-
um eru beðnir að athuga
í skúra eða geymslur hjá
sér því hann gæti hafa lok-
ast einhvers staðar inni.
Upplýsingar í síma 27214.
Farsi
'Bg-Péfck- Berstót kjðr hja þéim- öLLum-"
O 1994 Farcus Cartoong/Dotnbutsd by Unrvsrtal Prws Syndcata
LJAIS&t-ASS/cooltK4/1T
SKÁK
sóknarstíl og Kínveijar
höfðu fyrir 10-15 árum þeg-
ar þeir voru að byija að tefla.
Þeir gerðu jafntefli, 2-2, við
Úkraínu í fyrstu umferð.
Island og Víetnam háðu
hörku viðureign í tólftu um-
ferð sem lauk með sigri ís-
lands, 2lh-V/i. Um tíma leit
illa út, en í endatöflunum
reyndust Víetnamamir afar
illa lesnir og fengu aðeins
hálfan vinning úr tafllokum
þar sem þeir hefðu hugsan-
lega getað fengið tvo með
allra bestu taflmennsku.
Umsjón Margjeir
Pétursson
ÞESSI staða kom upp á
Ólympíuskákmótinu í
Moskvu í viðureign tveggja
alþjóðlegra meistara. Víet-
naminn A.D. Nguyen
(2.340) hafði hvítt og
átti leik, en Beat s
Ziiger (2.420) var
með svart. 7
sjá stöðumynd
25. Hh7+!! - Kxh7, ,
26. Dhl+ - Kg8, 27.
Dh6 - Rce5, 28. Hhl 7
(Svartur er nú í óveij-
andi mátneti en skák-
aði nokkrum sinnum ,
áður en hann gafst
upp.) 28. - Rxf3+,
29. Kdl - Rxb2+, 30. Kcl
- Rd3+, 31. Kbl og svartur
gaf. Eins og þessi skák sýn-
ir eru Víetnamarnir stór-
hættulegir og hafa svipaðan
Víkveiji skrifar...
AÐALSTÖÐIN byijaði fyrir
nokkru að útvarpa frá fund-
um borgarstjórnar Reykjavíkur.
Ekki telur Víkveiji þetta samkom-
unni til framdráttar. Hann átti satt
að segja von á að umræður í borgar-
stjórn væru á hærra plani. Engu
að síður er þetta framtak Aðal-
stöðvarinnar þakkarvert. Aukahljóð
alls konar trufla hlustandann mjög,
s.s. skijáf í blöðum og þungt fóta-
tak, einkum þó þegar borgarfulltrú-
ar á háhæluðum skóm ganga til og
frá ræðupúlti. Líklega eru það mis-
tök að hafa borgarstjórnarsalinn
ekki teppalagðan en því má auð-
veldlega kippa í liðinn.
xxx
VÍKVER.JI varð undrandi þegar
inn á borð til hans kom frétta-
tilkynning um jólaumferðina í
Reykjavík. í tilkynningunni, sem
er frá bílastæðasjóði Reykjavíkur,
lögreglunni og umferðarnefnd
borgarinnar, er skýrt frá því, að
10.-24. desember verði gjaldskylda
í stöðumæla og miðamæla frá kl.
10-17 virka daga. Bílahúsin og
Alþingisstæðið verði hins vegar
opin í samræmi við almennan af-
greiðslutíma verslana í desember,
gegn 30 króna gjaldi fyrir fyrsta
klukkutímann og 10 króna gjaldi á
hvetjar 12 mínútur þar á eftir.
Ástæða undrunar Víkveija var
sú, að samkvæmt þessu er gjald-
skylda í bílahúsin mun lengri á
degi hveijum en í stöðumæla og
miðamæla. Þannig má vel ímynda
sér, að eftir kl. 17 reyni ökumenn
að leita uppi stöðumæla og miða-
mæla, því þar geta þeir lagt bifreið-
um sínum ókeypis, enda stöðuverð-
ir þá sjálfsagt hættir störfum. Hins
vegar hafa borgaryfirvöld talað oft
og lengi um nauðsyn þess að borg-
arbúar notuðu bílahúsin og því með
ólíkindum að þau skuli ekki gerð
eftirsóknarvérðari í desember en
raun ber vitni. Þrátt fyrir að gjald-
skylda í þau sé að jafnaði lengri á
hveijum degi en í mælana, þá ættu
borgaryfirvöld að nota tækifærið í
desember og láta gjaldskyldu í hús-
in aðeins gilda frá 10-17. Þá
myndu borgarbúar miklu fremur
venjast á að nota húsin, sem skilaði
sér í meiri nýtingu þeirra framveg-
is. Þetta ættu borgaryfirvöld að
athuga fyrir næstu jól.
xxx
VÍKVERJI fékk fyrir skömmu
bréf frá veðdeild Landsbanka
íslands, þar sem honum er boðið
að fylla út eyðublað, óski hann eft-
ir að gjalddögum á húsnæðisláni
hans verði fjölgað úr 4 á ári í 12.
Víkvetji er með tvö húsnæðislán,
nokkurra ára gömul. Þetta væri
auðvitað ekki í frásögur færandi,
en það kom Víkveija hins vegar
spánskt fyrir sjónir að veðdeildin
sendi ekki eitt bréf, heldur tvö og
kunningi Víkveija, sem er með þijú
lán, fékk auðvitað þijú bréf. Þetta
er að sjálfsögðu í samræmi við þá
hætti veðdeildarinnar, að senda tvö
umslög, hvort með sínum greiðslu-
seðlinum, þegar kemur að gjald-
daga.
Auðvitað er um tvö lán að ræða,
en gerir tölvutæknin veðdeildinni
ekki kleift að keyra út greiðsluseðla
eftir kennitölu og stinga þeim seðl-
um í sama umslag sem greiðast
eiga á sama tíma? Nú, þegar ijölga
á gjalddögum og kostnaður eykst
óhjákvæmilega við fleiri greiðslu-
seðla, finnst Víkverja að veðdeildin
ætti að huga að sparnaðaraðgerð-
um á borð við þessa. Svo mikið er
víst, að útfylltu eyðyblöðin tvö, sem
Víkveiji ætlar að senda veðdeild-
inni, fara í sama umslagið.
xxx
*
OHUG SLÆR að Víkveija við
þær fréttir að svartrottur
muni hugsanlega nema hér land,
en þær hafa sem kunnugt er borist
hingað með rússneskum togurum.
Fátt í heimi hér veit Víkveiji ógeðs-
legra en rottur og því vill hann
skora á heilbrigðisyfirvöld að beita
sér að alefli gegn svartrottunni.