Morgunblaðið - 22.12.1994, Side 53
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 22. DESEMBER 1994 53
I
I
I
I
I
>
9
\
-
'KaSNlNGAR.
jroJtöVFJNV
('RA,MlH.VHAU\;<Ri
KYNSHJKIH'iíWKKSfv
kann iimn,'
KANNSKT A H'AD
FINNASER ANNAD
' STARF?
Ðiana
RIGG
Sean
CONNERY
u)uis
- cl^
FRIELS
, ^ , Jdanne __
WHALIJEY-KILMER
\ J ★★★ [
Ól. H. TorfasorV
★★★ ^Jj
Á. Þ. Dagsljós^^
S&QuXu
STÆRSTA
TJALDIÐ MEÐ
HX
Jólamynd 1994
GÓÐUR GÆI
frá leikstjóra Driving Miss
Daisy, Bruce Beresford.
Frábær grínmynd um
nakta, níræða drottn-
ingarfrænku, mislukk-
aðan, drykkjusjúkan
kvennabósa og spillta
stjórnmálamenn. Valinn
maður í hverri stöðu:
Sean Connery (James
Bond, Hunt for Red
October), John Lithgow
(Raising Cain), Joanne
Whalley Kilmer
(Scandal), Louis Gossett
Jr. (Guardian), Diana
Rigg (Witness for the
Prosecution) og Colin
Friels.
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
mASR
★ ★★ ó.T. Rás 2
★ ★★ G.S.E. Morgun-
pósturinn
★ ★★ D.V. H.K
Komdu og sjaðu THE MASK, skemmtilegustu,
stórkostlegustu, sjúklegustu, brjáluðustu,
bestu, brengluðustu, fyndnustu, fáránlegustu,
ferskustu, mergjuðustu, mögnuðustu og eina
mestu stórmynd allra tíma!
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
Bjartmar snýr aftur
TONUST
Geisladiskur
BJARTMAR
Breiðskífa Bjartmars Guð-
laugssonar, sanutefnd honum.
Bjartmar semur öll lög og
texta, syngur og leikur á
munnhörpu, en honum til að-
stoðar eru helstir Peder af
Ugglas sem leikur á orgel,
slide-gítar og flygil og Johan
Johansson sem leikur á gítar
og slagverk. Einnig kemur
n\jög við sögu sænska h(jóm-
sveitin Bad Liver sem skipuð
er Dan Johansson trommu-
leikara, Lars Tovinger slag-
verksleikara, Leif Jordansson
gítar- og mandólínleikara og
Magnus Stenberg bassaleik-
ara. Útsetningar önnuðust Jo-
han Johansson, Bjartmar, Bad
Liver og Christian Edgren.
Hrypjandi hf. gefur út, Skifan
dreifir. 53,21 mín., 2.199 kr.
BJARTMAR Guðlaugs-
son hefur lítið látið í sér
heyra síðan hann fluttist til
Danmerkur fyrir nokkrum
árum, þó hann hafi reyndar
sent frá sér eina breiðskífu
5 rnillitíðinni. Þó hann hafi
fengið að reyna súrt og
saatt; ýmist selst í bílförmum
eða lítið sem ekkert, hélt
hann sínu striki og eftirsjá
af honum af dægurlaga-
oiarkaðnum, sem er öllu
bragðdaufari fyrir vikið. Það
var því gaman að fá í hend-
urnar breiðskífuna Bjartm-
ar, sem hann hljóðritaði í
Svíþjóð og er víst vísir að
landvinningum hans í
Skandinavíu.
Bjartmar er snjall rokk-
lagasmiður þó hans aðal sé
textagerðin, og fáir standast
honum snúning í
meinhæðnum og
hnitmiðuðum text-
um, þegar sá gállinn
er á honum. Það eru
og á plötunni fjöl-
mörg dæmi um
skemmtilega háðska
og beitta texta, þó
stundum gleymi
Bjartmar sér í lík-
ingaflaumnum og
innihald textans
hverfur um stund
eða gleymist. Það
má viða sjá að
Bjartmar yrkir frá
útlöndum og veltir
fyrir sér landi og
þjóð í mörgum text-
anna, ekki síður en
sjálfum sér og sinni
sögu, þannig að á
köflum hljómar plat-
an eins og uppgjör,
til að mynda í Hvíta
albúminu, Mynd frá
’74, Katli gufu og
Hobbýsál, en aðrir
textar hafa almennari skír-
skotun, til að mynda Til eru
menn og Plott og pólitík.
Aðstoðannenn Bjartmars
eru ekki af verri endanum
og sú tilhögun að taka plöt-
una upp líkt og á tónleikum
hefur skilað skemmtilega
hrárri plötu, án þess þó að
nokkuð sé slakað á kröfum
um fyrsta flokks hljóm og
vandaðar útsetningar. Ró-
legri lög plötunnar ganga þó
ekki öll upp, en það er helst
í hröðum lögum plötunnar
sem sveitin nær vel saman,
til að mynda í Óléttum áður
fyrr og Eingetnu ljóði, þar
sem hljómsveitin fer á kost-
um. Einnig er vert að geta
lagsins Plott og pólitík, þar
skemmtilega háðskur á
nýrri plötu sinni.
sem lipurlega er leikið á gít-
ar, og Hobbýsálar, sem hefur
yfir sér skemmtilega afs-
lappaðan blæ og Mynd frá
’44, en þar eins og víða hafa
menn lagt sig eftir því að
láta útsetninguna undir-
strika textann með góðum
árangri. Lokalag plötunnar
minnir svo mjög á Blonde
on Blonde tímábil Dylans;
undirleikur eins konar
sveitasöngvafyllerí og text-
inn bráðskemmtileg klifun
með hárbeittu ívafi; prýðis
endir á skemmtilegri plötu,
en mikið hefði verið gaman
að fá að sjá Bjartmar og
aðstoðarmenn á sviði hér
heima.
Árni Matthíasson
Morgunblaðið/Sverrir
BJARTMAR Guðlaugsson er
víða
Djassyfirlýsing
í Ronnie Scotts
DJASS
II O t II 0 u s c
JAZZKVARTETT
REYKJAVÍKUR
Upptökur af tónleikum Jazz-
kvartetts Reykjavíkur ásamt
Guy Barker í cjjassklúbbi
Ronnie Scotts i London, febr-
úar 1994. Flytjendur: Sigurð-
ur Flosason saxófónn, Eyþór
Gunnarsson pianó, Tómas R.
Einarsson kontrabassi, Einar
Valur Scheving trommur og
Guy Barker trompet
DJASS er samstarf ein-
staklinga sem sameinast um
að gefa dálítið af sjálfi sinu
í fijálsum spuna og áheyr-
enda sem taka við. Þannig
er líka diskur Jazzkvartetts
Reykjavíkur Hot House. Til
að gefa tónlistinni merkimiða
mætti tala um nýbopp. Hot
House er gefinn út af djass-
klúbbi Ronnie Scotts í Lond-
on. Upptakan fór fram í
klúbbnum í Frith Street.
Diskurinn hefur að geyma
sex lög samin af Einari Val
Scheving, Tómasi R. Einars-
syni og Sigurði Flosasyni, og
tvo standarda, titillagið Hot
House og Alone Together,
sem líka má heyra á sam-
nefndum diski Quartet West.
Guy Barker lék með Jazz-
kvartettnum í Reykjavík á
síðasta ári og er aftur í góð-
um hópi, nú í London þar sem
kvartettinn/kvintettinn hit-
aði upp fyrir kvartett George
Coleman eina viku í febrúar
síðastliðnum. Hot House hef-
ur þennan anda sem yfirleitt
næst ekki nema á tónleikum,
þá helst litlum klúbbum,
nærveru, persónuleika og ló-
fatak.
Barker er í feiknastuði á
heimavelli og gefur strax
tóninn í Alone Together í
blúsuðum spuna og mörgum
klemmdum nótum. Sigurður
tekur likkið upp og sveiflar
laginu en Eyþór fer blíðlega
um hljómborðið í lýrískum
inngangi að fantahröðu og
góðu sólói. Tómas er glettinn
í dálítið Mingusarlegum tón-
smíðastellingum í Tongue in
Cheek sem Barker skreytir
glæsilegum sólóum. Sigurður
íhugulli í All the Time, og
blúsaðri í Dark Thoughts.
Einleikur Barkers í Hot Ho-
use er með öllum fínustu blæ-
brigðum bíbopparans -
hraði, fínlegur vefnaður og
heitar áherslur. Sigurður
blæs ekki síðra sóló í Hot
House, með valdsmannsleg-
um alt og algjörlega sinni
röddu fer hann inn og út úr
tóntegund, en lang. heitastur
er hann í sínum þungu þönk-
um, Dark Thoughts.
Hot House er góður diskur
í safnið og víst að hann safn-
ar ekki ryki í rekkanum. Hún
hefur verið eftirminnileg vik-
an í febrúar fyrir Lund-
únabúa. Fróðlegt hefði verið
að heyra hveiju kvartett Cole-
mans hafði við djassyfirlýs-
ingu Jazzkvartetts Reykja-
víkur að bæta.
Guðjón Guðmundsson.