Morgunblaðið - 04.01.1995, Blaðsíða 20
20 MIÐVIKUDAGUR 4. JANÚAR 1995
MORGUNBLAÐIÐ
FERÐALÖG
ÞAÐ slær gullnum blæ á gröf gula keisarans Qin Shi Huangdi.
Af Chengde
ogXian
Geymdi mér að segja frá ferð-
inni til Chengde, sérkenni-
legs þétbýliskjarna við jaðar
Yansan-fjallagarðsins og 256 kíló-
metra norður af Peking, en þaðan
er fjögurra tíma bílferð. Ferðin
þangað er mér einfaldlega svo minn-
isstæð að ég vildi geta hennar i
upphafí næstu greinar. Nú voru allir
lentir, að segja má, úthvíldir og vel
hressir eftir fjórar nætur á hótelinu,
og nutu í ríkum mæli fegurðar lands-
lagsins er við blasti út um bflglugga-
na og ljósmynduðu í gríð og erg.
Guðimir höfðu verið hér örlátir um
fjölbreytileika í náttúrunni sem átti
athygli okkar óskipta alla leiðina.
Úpprunalega nefndist Chengde
Jehol, og þar var var sumardvalar-
staður Qing-keisaranna er ríktu frá
1644 til 1911, og liggur 350 metra
yfir sjávarmáli. Loftslagið er því
mun svalara og mildara en í Peking,
og þannig er meðalhitinn í júlí 24,4
á celsíus, sem er tveim gráðum lægri
en í höfuðborginni. Telst kannski
ekki mikill munur, en lega staðarins
gerir hann mjög ákjósanlegan til
sumardvalar. Keisaramir eru sagðir
hafa verið í átta daga á leiðinni með
fríðu föruneyti og fullkomnustu far-
kosti er þá voru til í ríkinu. Trúlega
hafa þeir svo notið náttúrufegurðar-
innar betur en við, þó ferðalagið
hafí reynt margfalt meira á þá. Og
vel hafa þeir nestað sig af konum,
því sagan segir þá hafa átt ótöluleg-
an fjölda eða allt upp í þijú þúsund
er best lét! Á leiðinni sér til elsta
hluta múrsins mikla hátt uppi í fjöll-
unum og reyndist mikilfengleg sjón,
því þennan dag var sjónlínan skörp
og stórbrotin, og svo var sem saga
hins mikla mannvirkis hríslaðist um
okkur er við skynjuðum einn af
snertipunktum hennar í næsta ná-
grenni. Áfangastaðurinn liggur í
skjóli fjallanna og yndisfagurt vatn,
umkringt gróðursælum garði, er
djásn hans og augnayndi. Fjöllin búa
Það fer ekki hjá því að menn fínni til smæðar
sinnar, er þeir standa frammi fyrir þessum mikil-
feng-legu áþreifanlegu minjum löngu liðins tíma,
skrifar Bragi Asgeirsson, og væri upplit á vestr-
inu, ef það ætti þó ekki væri nema örlitla hliðstæðu
HINN furðulegi Qingchui hnjúkur í Chengde. Ef vel er gáð
má sjá mannfjöldann á leið upp og við hann.
yfír mörgum sérkennilegum formun-
um og er þar Oingchui hnjúkurinn,
sem gnæfír eins og þumalfíngur upp
í loftið hrikalegastur og sérstæðast-
ur. Þangað valfartar fólkið enda er
sagt að hann búi yfir náttúrumögn-
um og kraftbirtingi. í fjöllunum eru
átta musteri og í umhverfi þeirra
og fjallabyggðinni getur að líta ijóm-
ann af garðskrúði norður og suður
Kína, og blandast gróðri frá ýmsum
þjóðum.
Þó Chengde líti helst út sem
vinalegur og lítill borgar-
kjarni, er staðurinn miðja
þéttbýlis sem telur 800.000 manns,
og kom sú vitneskja mér mjög á
óvart. Bústaður keisaranna er auð-
vitað hápunkturinn og er dijúg lifun
að skoða vistarverurnar, byggingar,
hof og pagóður með sínum einkenn-
andi uppsveigðu þökum, sem eru
stundum sem stigar til guða himins-
ins. Mikill og aflangur skáli hýsti
keisarana, þjóna þeirra, lífverði og
hjákonur og mátti líta margt for-
vitnilegt inn um gluggana, en nær
var ekki komist. I öðrum endanum
bjó keisarinn og þar var svefnhýsi
hans og vistarrými, en i hinum end-
anum héldu hjákonurnar til. Fyrir
miðju voru svo verðirnir og þegar
keisaranum hugnaðist að sinna kon-
unum, leituðu þeir hátt og lágt á
þeim sem hann stefndi til sín, til að
þær kæmust ekki inn til hans með
nein bitvopn. Má þetta vera sönnun
þess að keisararnir óttuðust um líf
sitt og að konurnar hafi sumar hveij-
ar ekki verið tiltakanlega upptendr-
aðar af hamingju yfír hlutskipti sínu.
Hinar víðu ermar er einkenndu klæði
hjákvennanna eru sagðar til komnar
vegna þess að þær grétu svo mikið
og því þurfti mikið efni til að taka
við öllum tárunum og auk þess huldu
þær andlit sín bak við ermamar
þegar þær voru miður sín, eða af
öðrum og aðskiljanlegum orsökum.
Ljósmynd/ Edda Jónsdóttir
GAMALT og nýtt er sem árf-
arvegur lífsins, getur bág-
lega án hins verið, og hvað
ungur nemur, gamall temur.
A bak við sérhvern aldinn
hal leynist ungur snáði, og á
bak við sérhvern ungan
dreng er gamall maður.
Keisarinn hefur skiljanlega ekki get-
að sinnt nema litlum hluta þeirra,
sem sumar hafa verið teknar eign-
arnámi eða gefnar honum. Tilfinn-
ingaböndin hafa þannig verið mjög
á reiki. Það var fyrst 1978 að staður-
inn var opnaður almenningi og síðan
koma yfír milljón ferðalanga þangað
árlega og straumurinn eykst með
ári hveiju.
Við nutum vel dvalarinnar og
einkum var undursamlegt að ganga
meðfram vatninu og svo ekki síður
áhugavert að koma í eitt klaustrið
á hæðunum þar sem sá vítt yfir
héraðið. í Chengde og klaustrinu
sáum við mikið af Búddhastyttum,
sem sumar voru hreint gersemi í
formrænni fegurð og einkum gengdi
brosandi Búddha miklu hlutverki,
en hann er tákn gleði, jafnlyndis,
hamingju, bjartsýni, fijósemi og ást-
ar. Hefur víst ekki verið vanþörf á
guði gleði og ástþrunginna leikja á
þessum stað með hliðsjón af öllum
konum keisaranna.
Komnir aftur á hótelið í Peking
var stutt í að leiðir skildust, því opin-
beru gestimir héldu fljótlega heim-
leiðis ásamt þremur úr hópi lista-
mannanna. Kvöldið áður voru þeir
kvaddir í veitingabúð forsalar hótels-
ins, og var það ánægjuleg stund og
víst var þeirra jafn mikið saknað,
og því fagnað, að opinbert umstang
yrði minna. Annað mál var svo, að
þeir stóðu sig mjög vel og einkum
sópaði að Svavari Gestssyni, en á
honum mæddi að halda margar ræð-
ur sem hann fór létt með og sköm-
lega.
Morguninn eftir var flogið til
Xian, sem sumir nefna
vöggu menningarinnar og
var áður höfuðborg kínaveldis og
aðsetur keisaranna. Allir sem koma
til landsins nálgast staðinn í mikilli
eftirvæntingu því eins og margur
veit fannst gröf hins mikla Qin Shi
Huangdi þar fyrir nær tveim áratug-
um. Það er mikil saga að baki fund-
arins því að á annarri öld f.Kr. sam-
anstóð landið-af sex óháðum ríkjum
sem áttu í innbyrðis. stríði. í einu
ríkjanna Qin, varð Qin Shi Huangdi
keisari aðeins 13 ára að aldri, og á
næstu árum braut það undir sig hin
ríkin eitt af öðru og árið 221 varð
Qin Shi Huangdi fyrsti keisari sam-
einaðs Kínaveldis.
Það áttu sér stað miklar fram-