Morgunblaðið - 21.01.1995, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 21. JANÚAR 1995 9
FRÉTTIR
Jónas Sigurðsson aðalvarðstjóri
lögreglunnar á Patreksfirði
Abyrgðarhluti
að leyfa fólki að
snúa heim aftur
JÓNAS Sigurðsson, aðalvarðstjóri lögreglunnar á Patreksfirði veitti al-
mannavarnanefnd forstöðu í fjarveru sýslumanns. Hann sagðist hafa orð-
ið var við harkalega gagnrýni á það hve lengi hættuástandi var viðhaldið
og hve margir hafí verið látnir yfirgefa heimili sín.
Aðspurður um
hvernig hann svaraði
slíkri gagnrýni sagði
Jónas. „Eg hef svarað
þessu þannig að það
er ekkert mál að taka
ákvörðun um að rýma
og flytja þrjú hundruð
manns til en það er
miklu meira mál og
meiri ábyrgð sem
fylgir því að segja
fólkinu að fara heim
aftur, ég held að fólk
geri sér grein fyrir
þessu en það má sjálf-
sagt deila um það
hvort hleypa hefði
mátt fólkinu inn í ein-
hver hús einn daginn og önnur
annan dag, við kusum það hins
vegar í almannavarnanefndinni að
hafa þetta svona og að óbreytt
ástand yrði þar til að hægt væri
að meta aðstæður og sjá þetta al-
mennilega, það hefur ekki verið
hægt fyrr en í dag, miðvikudag.
Veðrið var mjög slæmt þessa daga
og spáin slæm og ég vildi ekki taka
aðra ákvörðun í ljósi þess. Ég vona
að fólk skilji þetta,“ sagði Jónas.
Gísli Ólafsson forseti bæjar-
stjórnar situr í almannavarnanefnd
í fjarveru bæjarstjóra; „Það var
mikil blinda og sást ekki út úr aug-
um vegna snjókomu á mánudaginn
en nánast allur snjór sem hér er
kom þá,“ sagði Gísli. „Vegna þess
hvernig fréttir við höfðum þá haft
norðan af fjörðum um að þar hafi
orðið slys á svæði þar sem menn
hefðu ekki gert ráð fyrir að myndu
falla snjóflóð og vegna aðstæðna
hér var ákvörðun tekin um að rýma
hús hér í bænum. í ljósi þess og
að við vissum ekkert hversu mikið
af snjó hafði safnast í íjallið, en
við gátum gert ráð fyrir því að í
svona norðvestan átt mundi safnast
verulega mikill snjór í fjallið, þá
veltum við því fyrir okkur hvort
hugsanleg frávik frá því sem menn
höfðu áður gert ráð fyrir gætu átt
sér stað hér eins og á Súðavík þess
vegna var ákveðið að gera heldur
meira en minna og flytja einnig
fólk úr húsum utan markaðra
X /
Utsala - Utsala
15% viðbótarafsláttur
áhættusvæða en verulega mikið var
vikið frá því hættumati sem hér
liggur fýrir,“ sagði Gísli. Hann
sagði að gagnrýnisraddir á þessar
ákvarðanir hafi vissulega heyrst en
benti á að ákvörðun um að viðhalda
hættuástandinu þar til í gær hafi
ekki valdið neinum skaða. „Menn
voru að velta þessu fyrir sér á
þriðjudaginn þegar betur sást til
fjallsins heldur en til dæmis í gær
en þá var veðurspáin hins vegar
verulega slæm og því var ákveðið
að viðhalda þessu ástandi áfrarn,"
sagði Gísli. Jónas og Gisli voru sam-
mála um að gera þyrfti nýtt áhættu-
mat varðandi snjóflóðavarnir á Pat-
reksfirði jafnvel þótt mjög nýlegt
hættumat væri fyrirliggjandi fyrir
Patreksfjörð sem m.a. franskir sér-
fræðingar hefðu annast. „Það er
ekki spurning að hér þarf að meta
allt upp á nýtt,“ sagði Jónas.
- kjarni málsins!
TBHvr hið
_________Dunhaga,
I .... . \ sími 622230
Opið virka daga
kl. 9-18,
laugardaga
kl. 10-14.
Hversu stór verður "ann?
Tvöfaldur fyrsti vinningur á laugardag!
UTSALA UTSALA
Opið í dag frá kl. 10-16.
30-70%
afsláttur
(_ tískuverslun
Kauftarárstíg 1, sími 615077
MERKISMENN