Morgunblaðið - 21.01.1995, Blaðsíða 40
40 LAUGARDAGUR 21. JANÚAR 1995
MORGUNBLAÐIÐ
Dýraglens
BRAÐNAR
RJÓ/WAi'S?
PAVfð 9-19
Tommi og Jenni
Þá það, ég skal spyrja hann ...
Þessi litli strákur vill fá þig út Allt í lagi, við skulum leika þrjár
að leika hokkí. tuttugu mínútna lotur, og ég fæ
að aka svellslíparanum!
BREF
TLL BLAÐSINS
Kringlan 1103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
Marat - Sade
Frá Hugo Þórissyni:
NÝLEGA átti ég þess kost að sjá
æfíngu á leikritinu Marat-Sade
eða „Ofsóknin og morðið á Jean
Paul Marat flutt af vistmönnum
Charenton-geðveikrahælisins
undir stjórn Markgreifa de Sade“
sem leikfélag MH er að sýna þessa
dagana og vil ég deila þeirri upp-
lifun með öðrum. Það sem gladdi
mig mest áður en ég fór á æfing-
una var hve metnaðarfullt verk
leikfélagið hafði valið til að takast
á við. Mér er enn í minni sýning
á þessu verki í Þjóðleikhúsinu fyr-
ir mörgum árum og hve mikil
áhrf verkið hafði á mig. Leikritið
fjallar um marga hluti, m.a. fjall-
ar það um frelsi og jafnrétti, um
jafnvægi, um mörkin á milli geð-
veiki og heilbrigðis, um grimmd
og hroka, um hefnd og fyrirgefn-
ingu. Eins og mörgum er eflaust
kunnugt er leikritið um leikrit
sem geðveikir sjúklingar eru að
setja upp á geðsjúkrahúsi sem
tákn um framfarir í starfi með
sjúklingum.
Uppsetning leikfélags MH var
áhrifamikil. Þama var fjöldi ungs
fólks sem hefur lagt margar
stundir í samstarf og þjálfun til
að koma á sýningu sem skiptir
máli. Leiksvið, búningar og tónlist
skapa sterkan svip um sýninguna
þar sem allir leggja sig fram og
vel það. Það er auðséð að leikar-
arnir, sem flestir léku geðveikar
persónur, höfðu velt hlutverkun-
um vel fyrir sér og gert í að skapa
sannfærandi geðsjúklinga, hver
með sínum einkennum. Sú tilfinn-
ing hvernig barátta Marats fyrir
frelsi grípur þessa innilokuðu
sjúklinga er sterk og fær mann
til að hugsa um á hvern hátt við
meðhöndlum frávik frá hinu
„normala" í dag. Öfgarnar á milli
Marats og Sades er þær sömu sem
við þekkjum í dag, m.a. öfgamar
á milli góðs og illa.
Það fer ekki á milli mála, að
sýning leikfélags MH á erindi til
margra í dag. Þeir sem hafa
áhuga á ungu fólki, metnaði,
skemmtun, heimspeki, geðveiki
og heilbrigði, ögmn og jafnvægi
og leikhúsi ættu að drífa sig á
sýningu leikfélags MH í Tjarnar-
bíói sem fyrst, því sýningar verða
aðeins 8.
HUGO ÞÓRISSON,
sálfræðingur.
Upplýsingar um
Internettengingu
við Morgunblaðið
Vegna fjölda fyrirspurna
varðandi Jnternet-tengingu
við Morgunblaðið, skal eftir-
farandi áréttað:
Tenging viö heimasíðu
Morgunblaðsins
Til þess að tengjast heima-
síðu Morgunblaðsins, sláið
inn slóðina http://www.centr-
um.is/mbl/ Hér liggja ýmsar
almennar upplýsingar um
blaðið, s.s netföng starfs-
manna, upplýsingar um
hvernig skila á greinum til
blaðsins og helstu símanúm-
er.
Morgunblaðið á Internetinu
Hægt er að nálgast
Morgunblaöið á Internetinu á
tvo vegu. Annars vegar með
því að tengjast heimasíðu
Strengs hf. beint með því að
slá inn slóðina
http://www.strengur.is eða
með því að tengjast heimasíðu
blaðsins og velja Morgunblað-
ið þaðan.
Þessi þjónusta er endur-
gjaldslaus til 1. febrúar nk.
Sendlng efnls
Þeir sem óska eftir að
senda efni til blaðsins um Int-
ernetið noti netfangið
mblcentrum.is. Mikilvægt er
að lesa vandlega upplýsingar
um frágang sem má finna á
heimasíðu blaðsins. Það
tryggir öruggar sendingar og
einnig að efnið rati rétta leið
í blaðið. Senda má greinar,
fréttir, auglýsingar og myndir
eins og fram kemur á heima-
síðu blaðsins.
Mismunandl tengingar vlð
Internet
Þeir sem hafa Netscape/
Mosaic-tengingu eiga hægt
um vik að tengjast blaðinu.
Einungis þarf að slá inn þá
slóð sem gefin er upp hér að
framan.
Þeir sem ekki hafa
Netscape/Mosaic-tengingu
geta nálgast þessar upplýs-
ingar með gopher-forritinu.
Slóðin er einfaldlega slegin
inn eftir að forritið hefur
verið ræst.
Mótöld
Heppilegast er að nota
a.m.k. 14400 baud-mótald fyr-
ir Netscape/Mosaic-tenging-
ar. Hægt er að nota afkasta-
minni mótöld með Gopher-
forritinu.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók verður framvegis varðveitt í
upplýsingasafni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu það-
an, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu
efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.