Morgunblaðið - 21.01.1995, Qupperneq 41
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 21. JANÚAR 1995 41
BRÉF TIL BLAÐSINS
Hvar er
tækniþróunin?
Frá Guðvarði Jónssyni:
ÞEGAR fóru að birtast myndir af
þeim voða atburðum sem gerðust í
Súðavík. Þá fannst mér eins og ég
hefði hrokkið 100 ár aftur í tímann.
Þeir menn sem börðust hetjulegri
baráttu við ofsahamfarir náttúru-
aflanna og lögðu líf sitt í hættu við
að bjarga mannslífum stóðu með
sömu tækin í höndunum og forverar
þeirra fyrir 100 árum, skófluna,
stöngina og hundinn. Hvar er tækni-
þróunin?
Ég er ekki með þessum orðum að
gera lítið úr gagnsemi þess búnaðar
sem notaður var, því skóflan er eina
framkvæmdatækið sem hægt er að
nota og hundurinn ómissandi með
sína undraverðu þefvísi. En stöngin
gæti verið tæknivædd með háþróaða
hijóðnema og hátalara, þannig að
hægt væri að hlusta eftir hljóðum í
holrúmum flóðsins og einnig kalla
eftir svörum. Einnig er hægt að búa
til geislatæki sem gæti skynjað lík-
amshita mannsins og gæti þetta tæki
verið annaðhvort sjálfstætt eða í
tengslum við stöngina. Einnig væri
hægt að búa til hljóðnema sem lagð-
ir væru á jörðina við jaðar flóðsins
og næmu hljóð sem bærust með jörð-
inni.
Fjölmargar aðrar leiðir eru örugg-
lega til sem gætu haft áhrif sem skiptu
sköpum fyrir þann sem í flóðum lend-
ir, en það gerist ekkert ef tæknileiðin
er ekki könnuð. Ég legg til að ráðherr-
ar og forsvarsmenn almannavarna
ræði við tæknimennina á þessu sviði.
Mér fínnst að tæknin skuldi þeim eitt-
hvað sem dóu í Súðavík.
En það er ekki nóg að eiga tækni-
leg tæki. Þau mega ekki vera svo
langt frá hættusvæðunum að það
tæki marga sólarhringa að koma
búnáðinum á staðinn.
GUÐVARÐURJÓNSSON,
Hamrabergi 5, Reykjavík.
Vetrarhjálp
Steina og Olla
Þekkir
einhver
mennina?
ÞESSI mynd er tekin í kringnm
1920 og er af áhöfninni á Regin.
Lengst til vinstri á myndinni
er Friðleifur, eiginmaður
undirritaðrar, en um hina er
ekkert vitað. Þekki einhver
mennina á myndinni er hann
vinsamlega beðinn um að koma
þeirri vitneskju til undirritaðr-
ar í síma 32589.
Halldóra Eyjólfsdóttir,
Grensásvegi 56,
Reykjavík.
Frá Jóni K. Guðbergssyni:
EINHVERN tímann heyrði ég þá
sögu af amerísku skopleikurunum
Steina og Olla að þeir hefðu fund-
ið hjá sér hvöt til þess að koma
á vetrarhjálp í borginni sinni. Þeir
gerðust umsvifamiklir við söfnun
fjár og fata og þegar þeim fannst
nóg komið héldu þeir á fund fræg-
asta auðkýfingsins og nirfilsins í
borginni og afhentu afrakstur erf-
iðis síns.
Komnir á stúfana
Svipaðir hlutir virðast í upp-
siglingu hér á íslandi. Þorsteinn
Pálsson og Friðrik Sóphusson eru
komnir á stúfana rétt einu einni.
Nú á að hjálpa þeim vesalingum
sem í mestri þörf eru fyrir fjár-
hagsaðstoð svo um munar. Ekki
eru það öryrkjar, ekki fátæk
gamalmenni, ekki þessir
margumtöluðu lægst launuðu.
Nei, síður en svo. Það eru þjóð-
þrifamennirnir sem hafa fram-
færi sitt af því að flytja eina lög-
leyfða vímuefnið, áfengi, inn í
landið - og svo sjoppugreifarnir
sem sjá um að dreifa því. Nú eiga
þeir að fá að ráðskast með inn-
flutninginn og söluna að eigin
vild og hirða gróðann án þess
ríkið sé að skipta sér alltof mikið
af framtakssemi þeirra. Blessun-
in af störfum þeirra sést líka víða.
Ekki er það þeim að kenna þó
að svokölluð meðferð drykkju-
fólks sé orðin umfangsmikil at-
vinnugrein. Eða borga þfeir ekki
fyrir endurhæfingu fíklanna?
Ekki er það þeim að kenna þó
að þúsundir velti ölvaðar út úr
kránum um hverja helgi, skemmi
verðmæti, geri þarfir sínar til
baks og kviðar á almannafæri og
sýni af sér hvers konar rudda-
mennsku og ofbeldi. Eða borga
þeir ekki fyrir hreinsun miðbæj-
arins á laugardags- og sunnu-
dagsmorgnum? Ekki er það þeim
að kenna þó að söluvara þeirra
valdi þyngra böli en tárum taki
á íslenskum heimilum. Nei, ekki
er það þeim að kenna.
Fallega gert
Þess vegna er það svo óskaplega
fallega gert af þeim Þorsteini og
Friðrik að hugsa til þessara hug-
sjónamanna og velgerðarmanna
þjóðarinnar.
Og gamall aðdáandi Steina og
Olla getur að minnsta kosti glaðst
yfír því að innræti þeirra og hug-
myndafræði skuli bera ávöxt hér
á klakanum í skammdegismyrk-
rinu.
JÓN K. GUÐBERGSSON,
Máshólum 6, Reykjavík.
Víkverja
Frá G. Margréti Jónsdóttur:
í PISTLI þínum miðvikudaginn
18. janúar gerir þú að umtalsefni
skrif mín um laun kennara. Þú
kemur m.a. inn á það að svona
skrif séu ekki til þess fallin að
bæta tiltrú almennings á baráttu
kennara.
Ég vil því að sannleikurinn komi
heill fram. Heil laun kennara í
fullu starfi eftir 32 ár eru það sem
þú Jcallar hálfan sannleika.
Ég vona svo að heil skrif okkar
beggja verði til þess að talan á
launaseðlinum hækki umtalsvert
og tiltrú almennings á baráttu
kennara aukist svo að ekki þurfi
að koma til verkfalls.
Hvað varðar þessa tvo opinberu
starfsmenn, sem töluðu við þig um
hálfan sannleika, þá geta þeir
fengið að vita að það hafa fjórir
opinberir starfsmenn talað við mig
um að þetta væru hæfileg hálf
laun.
G. MARGRÉT JÓNSDÓTTIR,
kennari.
verður glœsilegt þorrahUtöborð
í Blómasal Hótel Loftleiða með
úrvali af þorramat og öðrum
gimilegum réttum
Magnús Kjartansson og Helga Möller
skemmta gestum öll kvöldin.
Húsið opnar kl. 19:00.
Verð aðeins kr. 2.250-
SCANDÍC
loptieiðih
Borðapantanir ísimum 552-2321 og 562-7575
Erí þú í
húsgagnaleit?
Sófasett - Hornsófar
Hvíldarstólar í le$ri og áklæði.
Borðstofuhúsgögn - Svefnsófar. -JSv
\0'A
17 H f • • V*'
Valhusgogn
ÁRMÚLA 8, SÍMAR 812275, 685375.
UTSALA 10-60% AFSLATTUR
Vetrarfatna&ur, skí&agallar, dúnúlpur,
íþróttaskór, íþróttagallar o.fl.
Opið
lauqardag
kl. 10-16
» hummél^
SPORTBÚÐIN
Ármúla 40 • Simi 813555 og 813655