Morgunblaðið - 21.01.1995, Side 42
42 LAUGARDAGUR 21. JANÚAR 1995
MORGUNBLAÐIÐ
Fjórir efstir
á Skákþingi
Reykjavíkur
SKAK
Skákþing Reykjavíkur
Opna mótið
í Gausdal
Skákþing Reykjavikur, 8. janúar
til 3. febrúar. Opna mótið í Gausd-
al, Noregi, 15.-22. janúar.
FJÓRIR skákmenn eru jafnir og
efstir á Skákþingi Reykjavíkur
sem er tæplega hálfnað. Það eru
þeir Bragi Þorfínnsson, sem að-
eins er þrettán ára gamall, Þröst-
ur Þórhallsson, alþjóðlegur
meistari, Júlíus Friðjónsson og
Amar Þorsteinsson sem allir hafa
fjóra og hálfan vinning.
Þátttakendur í opna flokknum
eru 95 talsins, öllu fleiri en á
Haustmóti Taflfélags Reykjavík-
ur og bendir það til þess að skák-
menn vilji almennt
fremur tefla á
opnu móti í stað
þess að vera raðað
niður í tólf manna
flokka eftir stig-
um, eins og þá.
Þátttaka eldri
og reyndari skák-
manna er mun
meiri en áður og
er mikill fengur í
því fyrir þá yngri
að fá að spreyta
sig gegn þeim. Það
má búast við mjög
harðri og jafnri
keppni en Þröstur
Þórhallsson hlýtur
að teljast langsig-
urstranglegastur.
Hann er bæði
stigahæstur kepp-
enda og sigraði örugglega á
Haustmótinu.
Helstu úrslit í fímmtu umferð-
inni urðu þau að Þröstur vann
Magnús Pálma Ömólfsson, Bragi
Þorfínnsson vann Halldór Páls-
son, Júlíus Friðjónsson vann Jón
Viktor Gunnarsson, Amar Þor-
steinsson vann Gunnar Gunnars-
son, Halldór Garðarsson vann
Bergstein Einarsson, Arnar
Gunnarsson vann Magnús Öm
Úlfarsson, Sævar Bjarnason
vann Einar K. Einarsson og Jón
Garðar Viðarsson sigraði Hrann-
ar Baldursson.
Sævar Bjarnason, alþjóðlegur
meistari, er núverandi Reykja-
víkurmeistari og hyggur ömgg-
lega á titilvöm. En Vestfjarða-
meistarinn, Magnús Pálmi Örn-
ólfsson, setti stórt strik í reikn-
inginn hjá Sævari með laglegri
sóknarlotu:
Hvítt: Magnús Pálmi Örn-
ólfsson
Svart: Sævar Bjarnason
Kóngsindversk vörn
1. d4 - Rf6, 2. Rf3 - g6, 3.
g3 - Bg7, 4. Bg2 - 0-0, 5. c4
- d6, 6. 0-0 - Rbd7, 7. Rc3 -
e5, 8. dxe5
Hvítur velur meinlaust af-
brigði, en hefur þau áhrif að
Sævar sofnar á verðinum:
8. — dxe5, 9. Dc2 — c6, 10. e4
- He8, 11. Hdl - Dc7, 12. h3
- Bf8, 13. Be3 - Bc5?
Það var alger óþarfi að leyfa
hvítum að vinna rými á drottn-
ingarvæng með b2-b4. 13. — a5
var betra.
14. Bxc5 — Rxc5, 15. b4 —
Re6, 16. Hacl - b6, 17. Db2 -
Bb7
SJÁ STÖÐUMYND
18. Rd5! — cxd5, 19. cxd5 —
Db8, 20. Rxe5!
Hvítur teflir réttilega með
manni undir fyrir tvö peð og
sterka stöðu. Að taka manninn
til baka með 20. dxe6? — Hxe6
hefði hins vegar gert svörtum
kleift að jafna taflið.
20. - Rf8, 21. f4 - Rh5?
Mistök í mjög erfiðri
stöðu. Skást var 21. —
Dd8 og svara 22. Rc6
— Bxc6, 23. dxc6 —
De7.
22. Rg4 - f6 23. d6?!
Einfaldasta leiðin til
að fá fram vinnings-
stöðu var að taka
þriðja peðið með 23.
Rxf6+.
23. - He6, 24. Db3 -
f5?
Nú opnast allar flóð-
gáttir. Enn mátti veita
verulega mótspyrnu
með 24. - Kh8, 25.
d7 - Dd8 (Ekki 25. -
Hd6, 26. Rh6 - Kg7
er svarað með 27. Hc8!
og vinnur.) 26. Rh6!?
- Kg7, 27. Rf7 -
Kxf7, 28. f5 og svarta
staðan er erfið en ekki vonlaus.
25. exf5 — gxf5, 26. Rh6+ —
Kh8, 27. Rf7+ - Kg7, 28. Bxb7
- Kxf7, 29. Hc7+ - Kg8, 30.
He7 og svartur gafst upp því 30.
— Rg7 er svarað með 31. d7!
Helgi Áss byrjar illa í
Gausdal
Helgi Áss Grétarsson, stór-
meistari og heimsmeistari ungl-
inga 20 ára og yngri, byijaði
ekki vel á opnu móti í Gausdal
í Noregi sem hófst 15. janúar
og lýkur 22. janúar. Eftir fímm
umferðir á mótinu er Helgi um
miðju með tvo og hálfan vinning
sem er talsvert undir væntingum.
Helgi Áss tapaði óvænt í fyrstu
umferð fyrir Dananum Martin
Olesen og í annarri umferð fyrir
enska alþjóðlega meistaranum
Andrew Martin. Síðan hefur
hann mætt norskum andstæðing-
um, unnið Wicklund-Hansen,
gert jafntefli við Tönning og sigr-
að Johansen. Röð efstu manna á
mótinu er þessi:
1. Rogers, Ástralíu 4'/2 v.
2. Kinsman, Englandi 4 v.
3. -7. Engquist, Svíþjóð, de-
Firmian, Bandaríkjunum, Vo-
skanjan, Armeníu, Ward, Eng-
landi og Bjarke Kristensen, Dan-
mörku. Helgi Áss er í 14.-20.
sæti með 2 ‘/2 v.
Hann hefur dvalið í Noregi frá
því fyrir áramót og tók fyrst
þátt í lokuðu móti þar sem hann
vann fimm fyrstu skákirnar.
Hann varð þó að sjá af efsta
sætinu. Norsku alþjóðameistar-
arnir Djurhuus og Gausel sigruðu
með 7 vinninga en Helgi Áss
varð þriðji með 6‘/2 v.
Síðan ferðaðist Helgi Áss um
og tefldi fjöltefli um vikuskeið
þar til opna mótið hófst. Eftir
er að tefla fjórar umferðir á því.
Margeir Pétursson
BRAGI Þorfinns-
son, 13 ára, er á
meðal efstu manna
á Skákþingi
Reykjavíkur.
I DAG
HÖGNIHREKKVÍSI
HVERNIG veistu að
pabbi ætlar að leggja
blessun sína yfir sam-
bandið?
kenndur í gærkvöldi.
Klukkan hvað kom ég
heim, elskan?
ÞAÐ þýðir ekki að standa
hér eins og hengilmæna.
Farðu út og gerðu eitt-
hvað í málinu.
VELVAKANDI
Svarar í síma 569 1100 frá 9-5 frá mánu-
degi til föstudags
Góðir
bananar í
Pjarðar-
kaupum
HÚSMÓÐIR í Garðabæ
hringdi til Velvakanda
og vildi vekja athygli á
því að núna fengjust
góðir bananar í Fjarðar-
kaupum. Hún sagði að
undanfarið hefðu Fjarð-
arkaup ekki verið með
góða banana og hefði
hún nokkrum sinnum
minnst á það við forráða-
menn verslunarinnar, en
nú væru komnir góðir
bananar og vill hún
þakka fyrir það.
Varðandi
textavarp
AUÐUNN Bragi Sveins-
son hringdi til Velvak-
anda vegna þess sem
heyrist oft í útvarpi:
„Horfið á fréttir í texta-
varpi.“ Hann sagði þetta
ergja sig í hvert sinn sem
hann heyrði þetta þvf
einungis 25% hafa
möguleika á að hlusta á
textavarp og 75% hafa
enga möguleika á því
nema kaupa sér nýtt
sjónvarpstæki á 100 þús-
und krónur.
Tapáð/fundið
Skinnhúfa
tapaðist
SKINNHÚFA með flug-
húfusniði úr úlfaskinni
tapaðist sl. miðvikudag
innarlega á Suðurlands-
braut. Kollurinn er ljós-
drappaður og börðin úr
úlfaskinni, eyrun eru
bundin yfir kollinn. Húf-
an fauk af eigandanum
hratt og hátt og gæti
verið hvar sem er í aust-
urbænum. Skilvís
finnandi vinsamlega
hringi síma 685100 á
vinnutíma og 40076 á
kvöldin.
Gæludýr
Falleg tík í
heimilisleit
TVÍLIT tík sem á ættir
að rekja til verðlaunafor-
eldra, blendingur af
golden retriver/labrador,
óskar eftir góðu heimili
af sérstökum ástæðum.
Upplýsingar um hana
fást í síma 96-52270.
Farsi
Víkveiji skrifar...
FRÉTTIR, sem fluttar hafa verið
af prófum í Háskóla íslands,
vekja furðu. Menn standast próf
með góðar fyrstu einkunnir, en
komast samt ekki áfram í námi
vegna fjöldatakmarkana í deildum
og getur munað 0,01 í einkunn, sem
þó er fyrsta einkunn. Menn stand-
ast prófið með prýði, en Háskóli
Islands leggur stein í götu þeirra.
Hvernig má það vera að unnt sé
áð meina slíkum afbragðs nemend-
um að halda áfram námi? Hvar í
veröldinni yrði það gert, að meina
námsmönnum, sem standast próf,
að halda áfram? Kannski er þetta
gert í alræðisríkjum — og á Is-
landi. En slíkt framferði gagnvart
ungu fólki er í senn hrokafullt og
óveijandi. Hafi einhver ungur mað-
ur áhuga á að verða læknir, lög-
fræðingur eða hvað sem er og
standist hann próf, á enginn mann-
legur máttur að geta stöðvað náms-
feril hans í lýðfijálsu ríki. Það get-
ur enginn tekið sér það vald að
stöðva þann unga mann, sem stenzt
próf í námi og allt tal um að ekki
sé unnt að veita honum á síðari
stigum námsins verklegt nám, eru
léttvægar viðbárur um tæknileg
atriði, sem sæma ekki fijálsri
menntastofnun sem háskóla.
xxx
SAMKVÆMT upplýsingum frá
Háskóla íslands er almenna
reglan í skólanum sú, að hafí nem-
andj náð'einkunninni 5,0, telst hann
hafa staðizt próf. Með öðrum orðum
hlýtur það að þýða, að hann sé
hæfur til þess að halda áfram námi.
En vegna óréttlátra fjöldatakmark-
ana að deildum, svonefndrar „num-
erus clausus-reglu“ ákveða háskóla-
yfirvöld, í uppgjöf sinni gagnvart
stjórnvöldum, að takmarka fjölda
þeirra nemenda sem komast áfram
í námi. Víkveiji hefur heyrt af
læknanema, sem tvisvar hefur hiotið
einkunn yfír 8,0 og hefur samt aldr-
ei orðið svo hólpinn að vera meðal
30 hæstu. Honum hefur í tvígang
verið meinað að halda áfram, þótt
hann hafí í bæði skiptin fengið fyrstu
einkunn. Gera háskólayfírvöld sér
grein fyrir því, að slík framkoma
við unga menn, getur eyðilagt líf
og framtíð fjölda íslenzkra ung-
menna, sem af kostgæfni hafa valið
sér þetta lífsstarf, jafnvel fundið hjá
sér köllun til þess að stunda það?
xxx
*
ILÖGFRÆÐI eru engin þau rök
til, að meina ungum mönnum,
sem standast próf, að halda áfram
sem rökin í læknadeild. Lögfræði-
nemar þurfa ekki verklegt nám með
sama hætti og læknanemar. En
hveijar eru þá forsendur takmark-
ana? Getur það verið að Háskóli
Islands láti. lögfræðinga landsins
hafa þar áhrif á málin, að markað-
urinn sé mettaður lögfræðingum?
Vart er unnt að trúa því. Lögfræði
er almenn menntun, sem getúr
gagnast mönnum, þótt þeir stundi
ekki málflutning fyrir dómstólum.
Eins á það ekki að vera áhyggju-
efni skólans, hve margir lögfræð-
ingar eru á markaðinum, þar hlýtur
að gilda lögmálið að hinir hæfustu
komast af, en skólinn á ekki að
takmarka fjölda manna í stéttinni.
Hver sá ungur maður sem stenzt
próf á rétt á að verða lögfræðingur
eða læknir. Réttindi frjálsborins
íslendings eru hvaða menntun hann
kýs sér.