Morgunblaðið - 21.01.1995, Side 52
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181,
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBLÞCENTRUM.IS / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTl 85
LAUGARDAGUR 21. JANÚAR 1995
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Morgunblaðið/RAX
Linda
þakkar
Hnotu líf-
gjöfina
LINDA Rut Ásgeirsdóttir, sem
bjargaðist úr snjóflóðinu í Súða-
vík, hitti lífgjafa sinn, tíkina
Hnotu, í gær. Linda Rut var 4-5
tíma í snjóflóðinu áður en Hnota
fann hana.
„Hér er ég,“ sagði Linda Rut
þegar hún varð vör við björgun-
arsveitarmenn á mánudaginn.
Amar Þór Stefánsson, eigandi
Hnotu, var einn þeirra sem
grófu Lindu upp úr snjónum.
Hann sagði að Linda hefði verið
einstaklega róleg meðan hún
var grafin upp úr snjónum og
staðið sig eins og hetja. Arnar
Þór er einn hundraða björgun-
arliða sem tóku þátt i leitinni í
Súðavík. Það er samdóma álit
allra sem stóðu að leitinni að
björgunarsveitarmennirnir
hefðu staðið sig einstaklega vel
og í raun unnið þrekvirki. En
án hundanna hefði björgun
þeirri 12 sem lifðu flóðið án efa
orðið mun erfiðari og tímafrek-
ari. Hnota og hinir hundarnar
em því líka hetjur.
Foreldrar Lindu, Þorsteinn
Om Gestsson og Sigríður Rann-
veig Jónsdóttir, þökkuðu einnig
Hnotu fyrir.
■ Súðavík/2/4/6/26-27
Kyrrðarstund í Hallgrímskirkju
Hagkaup og Bónus stofna hlutafélag með Skeljungi
*
Atta kerti brunnu
áberandi hratt
NOKKRUM stundum eftir kyrrð-
arstund í Hallgrímskirkju í há-
deginu á fimmtudag veitti
kirkjuvörðurinn Hálfdan Ólafs-
son því athygli að átta af fjórtán
kertum til minningar um Súðvík-
ingana fjórtán sem fórast í snjó-
flóðinu á mánudag höfðu brunnið
áberandi hraðar en hin kertin
sex. Séra Karl Sigurbjörnsson,
sóknarprestur í Hallgrímssókn,
sagði að kirkjuvörðurinn og
fleiri hefðu sett kertin í samband
JAsð börain átta sem fórust.
Séra Karl sagði að kveikt hefði
verið á kertunum í kyrrðarstund-
inni til minningar um Súðvíking-
ana fjórtán. „Við tendruðum 14
kerti í glerstjökum í kórtröppun-
um,“ sagði Karl. Hann sagði að
skömmu síðar hefði kirlquvörð-
urinn tekið eftir að kertin hefðu
brunnið afar misjafnlega. „Hann
tók eftir að fyrstu þrjú kertin
voru orðin áberandi lág. Næstu
fimm höfðu brunnið rólegar og
við hliðina á þeim höfðu önnur
fimm brunnið álíka mikið og
fyrstu kertin þijú. Á endanum
var eitt stakt stórt kerti," sagði
séra Karl.
Ljósið
Hann sagði að í kyrrðarstund-
inni hefði Ijósið verið íhugunar-
efni. „Kertaljósið á sitt afmark-
aða skeið eins og líf okkar. Fyrr
eða síðar kemur að því að það
Morgunblaðið/Kristinn
LJÓSIN i Hallgrímskirkju
loga enn. En skipt hefur verið
um kerti frá því á fimmtudag.
er á þrotum. En aðeins með okk-
ar augum því að trúin sér að guð
lyftir lífinu upp í ljósið alskæra,
sem okkar lifsljós er endurskin
af,“ sagði hann. Séra Karl sagði
að margir hefðu orðið snortnir
af því að sjá hvað kertin átta
brunnu áberandi fljótt þegar leið
á daginn. „Það var þeim tákn,
óháð því hvaða eðlilegar skýring-
ar gætu verið að baki.“
Ætla að selja bensín
við þriá stórmarkaði
NYTT hlutafélag, Orkan hf., hefur verið stofnað í þeim tilgangi að hefla
bensínsölu hérlendis á lægra verði en neytendum býðst í dag, að sögn
forsvarsmanna fyrirtækisins. Fyrst í stað hyggst félagið selja bensín við
þijá stórmarkaði á höfuðborgarsvæðinu, við verslanir Bónuss í Holtagörð-
um og í Kópavogi og verslun Hagkaups á Eiðistorgi á Seltjamarnesi.
Yfir 170
milljónir
171.470.555 krónur höfðu safnast í
söfnuninni Samhugur í verki í gær-
kvöldi. AIls höfðu 14.874 einstakl-
ingar tilkynnt um framlög símleiðis
og 6.496 lagt framlög inn á söfn-
unarreikning. Símanúmer söfnunar-
innar er 8005050 og söfnunarreik-
ingur nr. 800 í Sparisjóði Súðavíkur.
----------» ♦ ♦----
Minningarathöfn
FORSETI íslands frú Vigdís Finn-
bogadóttir, Davíð Oddsson forsæt-
isráðherra og þingmenn Vestfjarða
verða viðstödd minningarathöfn um
þá sem létust í snjóflóðinu á Súðavík
í Iþróttahúsinu á Isafirði kl. 14 í dag.
Prestar verða séra Magnús Erl-
ingsson, sóknarprestur í Súðavík og
á ísafirði, séra Jakob Hjálmarsson
og séra Karl V. Matthíasson, fyrrver-
andi prestar Súðvíkinga.
Athöfninni verður útvarpað beint
á öllum útvarpsstöðvum.
Félagið er í eigu Fjárfestingar-
félagsins Þors hf. og ísaldi hf. að
74 hlutum og að 74 hluta í eigu
Skeljungs hf. Þor hf. er í eigu
Hofs sf. sem rekur Hagkaup hf.
en ísaldi hf. er eignarhaldsfélag
Jóhannesar Jónssonar í Bónus og
fjölskyldu hans.
Gerður hefur verið samningur
við Skeljung hf. um innkaup á elds-
neyti á heildsöluverði. Þá lögðu
forsvarmenn félagsins í gær fram
óskir um heimild til bensínsölu á
lóðum við fyrrnefnda stórmarkaði
við borgarstjórann í Reykjavík og
bæjarstjórana á Seltjarnamesi og í
Kópavogi.
Viðskiptavinir geti valið um
mismunandi þjónustu og verð
Það eru einkum þijú atriði sem
öðm fremur réðu úrslitum um að
Skeljungur ákvað að ganga til
samstarfs við Bónus og Hagkaup,
að sögn Kristins Bjömssonar, for-
stjóra félagsins. Lög heimili nú
olíufélögunum að selja eldsneyti á
mismunandi verði. í öðru lagi hafi
þróunin erlendis verið hröð í þá
átt að lækka verð á bensíni með
því að draga úr þjónustu fyrir þá
sem vilja og byggja ódýrari bensín-
stöðvar við stórmarkaði. Margt
fólk sé reiðubúið að ferðast um
langan veg til að kaupa ódýrt inn,
t.d. matvörur, húsgögn, föt, teppi
og bensín. „I nágrannalöndunum
er langalgengast að fólk geti nálg-
ast þetta allt á einum stað. Skelj-
ungur hf. vill taka þátt í því að
bjóða upp á nýtt þjónustustig sem
gefur viðskiptavinum færi á að
velja um mismunandi þjónustu og
verð. Það er nýtt í starfsemi olíufé-
lags að geta boðið upp á þetta
val,“ segir hann.
Loks segir Kristinn augljóst að
með stofnun Orkunnar sé verið að
bregðast við áformum Irving Oil
um að hasla sér völl hér á landi.
Irving Oil heldur
sínu striki
Othar Örn Petersen, fulltrúi Irv-
ing Oil hér á landi, sagði í samtali
við Morgunblaðið að viðbrögð Art-
hurs Irving, eiganda fyrirtækisins,
við þessum fregnum í gær hefðu
verið þau, að hann væri hlynntur
allri samkeppni. Fyrirhuguð
bensínsala Orkunnar hf. hefði eng-
in áhrif á áætlanir Irving Oil um
að hefja starfsemi hér á landi.
■ Eldsneyti keypt/39