Morgunblaðið - 08.02.1995, Blaðsíða 6
6 MIÐVIKUDAGUR 8. FEBRÚAR 1995
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
Um helmingur niannaflans kominn til starfa hjá Frosta hf. í Súðavík
Yerðnr erfitt
þar til skóla-
hald hefst á ný
Morgunblaðið/Kristinn
INGIMAR Halldórsson framkvæmdastjóri á skrifstofu sinni í
Frosta hf. í Súðavík. Út um gluggann sést Bessi ÍS við bryggju.
RÆKJUAFLINN sem borist hefur til Frosta hf. hefur verið
þokkalegur upp á síðkastið. Á myndinni sést Gunnar Jónsson
matsmaður skoða rækju sem Bessi ÍS iandaði á mánudaginn.
ATVINNULIF er að miklu leyti
komið í samt lag í Súðavík, og hjá
Frosta hf., sem er helsta atvinnufyr-
irtæki staðarins, hefur verið unnið
við rækjuvinnslu svo til alla daga frá
því á mánudaginn í síðustu viku er
fyrsta rækjan barst þangað eftir að
snjóflóðin féllu á byggðina. Um 100
tonn komu til vinnslu í síðustu viku,
og á mánudaginn landaði Bessi ÍS
40 tonnum, en vegna hráefnisskorts
kom skipið til hafnar einum degi
fyrr en áætlað var.
Enn sem komið er er þó aðeins
unnið á einni vakt hjá Frosta hf. og
hafa um 35 manns verið þar við
störf, en það er um helmingi færra
fólk en starfaði hjá fyrirtækinu áður
en flóðin féllu. Ingimar Halldórsson,
framkvæmdastjóri Frosta hf., segir
fólkið vera að skila sér smátt og
smátt, en veðráttan daginn sem
starfsemin byijaði hafí hins vegar
sett verulegt strik í reikninginn.
Brúnin að léttast
á mönnum
„Þetta fór illa með okkur þvi fólk-
ið sem ætlaði að koma hingað inneft-
ir og var lagt af stað frá Isafirði
lenti í því að snjóflóðin féllu fyrir
framan bílinn hjá því. Þetta varð til
þess að fólkið þoldi hreinlega ekki
meira eftir allt sem á undan var
gengið. Því miður hefur þess vegna
orðið töf á því að fólk hafí skilað
sér til baka hingað inneftir. Við hefð-
um þurft að fá blíðskaparveður í
svona þijár vikur á meðan fólkið
væri að jafna sig,“ sagði Ingimar.
Hann sagði að starfsandinn hjá því
fólki sem komið væri til starfa væri
ennþá frekar þungur, en samt sagð-
ist hann greina að brúnin væri að
léttast á mönnum, og húmorinn
væri farinn að gera vart við sig á ný.
Ingimar sagði fyrirsjáanlegt að
einhver vandamál yrðu viðvarandi í
sambandi við atvinnumálin í Súðavík
á meðan skólahald hefði ekki verið
flutt þangað á nýjan leik frá ísafirði,
en í mörgum tilfellum væri um það
að ræða að hjón störfuðu hjá Frosta
hf. og bömin væru á Isafirði. Þetta
ástand myndi að minnsta kosti verða
til staðar fram til þess tíma sem
hugsanlegt verkfall kennara skellur
á sem boðað hefur verið 17. þessa
mánaðar.
Þarf að vinna hratt að
uppbyggingu
Frosti hf. er eina stóra atvinnufyr-
irtækið í Súðavík, og því sagði Ingi-
mar framtið staðarins velta á því
hvemig það gengi. „Þetta er auðvit-
að samtvinnað þannig að ef við höf-
um ekki fólkið þá eigum við erfitt,
og ef fyrirtækið væri ekki til staðar
þá ætti plássið erfitt uppdráttar. Það
hefur reyndar ekki fengist alveg
staðfest, en ég held að eitthvað sé
um það að fólk ætli sér ekki að
koma hingað aftur.“
Hann sagði að miklar vonir væru
bundnar við að vel tækist til varð-
andi uppbyggingu nýs sjávarþorps á
Eyrardalssvæðinu, en eins og fram
hefur komið er stefnt að því að fram-
kvæmdir þar hefjist 1. maí næst-
komandi. Sagðist hann vona að fólk
kæmi þá aftur í plássið, og ef ekki
það sem nú hefur flutt burtu þá eitt-
hvað annað fólk í staðinn.
„Það verður að vinna hratt í þessu
þannig að fólkið fái það á tilfinning-
una að það eigi að gera þetta, því
ef þetta dregst of mikið kemur upp-
lausn í fólkið og það fer bara að
leita sér að atvinnu annars staðar,"
sagði hann.
Verðið frekar stígandi
Um áramótin var sett upp ný véla-
samstæða til að hreinsa rækjuna í
Frosta hf. og sagði Ingimar að ef
hún hefði ekki verið komin í gagnið
væri vinnslan vart komin af stað
aftur eftir snjóflóðin. Hann sagði
aflann sem borist hefði upp á síð-
kastið hafa verið mjög þokkalegan
og sömuleiðis verðið sem fengist
hefði á erlendum mörkuðum. Það
væri frekar stígandi en hitt, en skila-
verðið sagði hann vera að meðaltali
um 140 kr. fyrir kílóið. Mest af
rækjunni fer á markað í Bretlandi,
Þýskalandi og Danmörku.
Heilbrigðisráðuneyti
Niðurfell-
ingn þjón-
ustugjalds
synjað
HEILBRIGÐISRÁÐUNEYTIÐ
hefur synjað ósk Heilsugæslu-
stöðvar Kópavogs um niðurfellingu
þjónustugjalda starfsmanna og
fjölskyldna þeirra. Páll Sigurðsson,
ráðuneytisstjóri, segir ekki hafa
verið hægt að veita undanþáguna
vegna fordæmisgildis.
Páll sagðist líta svo á að ekki
hefði verið hægt að veita undan-
þáguna nema kynna hana annars
staðar. Afleiðingarnar hefðu orðið
þær að mjög stór hópur hefði nýtt
sér undanþáguna og kostnaður
orðið mikill. Hann sagði reglugerð
um greiðslur væri afdráttarlaus og
komugjaldi væri stillt í hóf. Greidd-
ar væru 600 krónur og lægri upp-
hæð fyrir aldraða. Ekki væri held-
ur ætlast til að fólki væri vísað frá
væri það auralaust.
Hann sagðist ekki vita til að
aðrar heilbrigðisstofnanir en
Heilsugæslustöð Kópavogs hefðu
sótt um niðurfellingu þjónustu-
gjalda með sama hætti og hún.
-----» ♦ ♦----
Alþingiskosn-
ingar 8. apríl
ALÞINGI sem nú situr var kosiði
20. apríl 1991 og ber því að láta:
alþingiskosningar fara fram í vor,
segir í tilkynningu, sem Morgun-
blaðinu barst í gær frá forsætis-
ráðuneytinu.
Á ríkisstjómarfundi í gærmorgun
tilkynnti forsætisráðherra að
„ákveðið myndi verða að kjördagur
yrði hinn 8. apríl nk.“
Tillögu um skipan rannsóknarnefndar vegna flutnings veiðistjóra vísað til annarrar umræðu
Stjóniai'flokk-
ar töpuðu at-
kvæðagreiðslu
STJÓRNARFLOKKUNUM á Alþingi mistókst
í gær að koma í veg fyrir að þingsályktunar-
tillögu frá sex þingmönnum stjórnarandstöð-
unnar, um skipun rannsóknarnefndar til að
kanna ákveðna embættisfærslu umhverfísráð-
herra, yrði vísað til síðari umræðu og þing-
nefndar eftir að fyrri umræðu um tillöguna
lauk.
26 þingmenn Sjálfstæðisflokks og Alþýðu-
flokks greiddu atkvæði gegn því að vísa tillög-
unni til annarrar umræðu á þeirri forsendu
að tillagan væri í raun vantrauststillaga á
Össur Skarphéðinsson umhverfisráðherra. 27
þingmenn, þar af tveir þingmenn Sjálfstæðis-
flokks, greiddu atkvæði með að vísa tillögunni
áfram, en margir þeirra lýstu því yfir að þeir
teldu það ekki jafngilda vantrausti á ráðherr-
ann. Tíu þingmenn voru fjarverandi, þar á
meðal Össur Skarphéðinsson sem fór til út-
landa í embættiserindum í gær.
Þingsályktunartillagan var borin fram af
Hjörleifi Guttormssyni þingmanni Alþýðu-
bandalags og fímm öðrum stjórnarandstöðu-
þingmönnum. Hún var um að skipa nefnd til
að kanna embættisfærslu umhverfisráðherra
gagnvart starfsmönnum embættis veiðistjóra
í tengslum við ákvörðun um flutning embættis-
ins frá Reykjavík til Akureyrar í janúar 1994.
í greinargerð með tillögunni segir að sú
ákvörðun hafí verið tekin fyrirvaralaust og
án samráðs við starfsmenn embættisins. Ekki
verði betur séð en umhverfisráðherra hafi
beitt mikilli valdníðslu auk þess að brjóta
gegn óskrifuðum lögum um mannleg sam-
skipti. Einnig sé ástæða til þess að ætla að
ákvörðunin gæti hafa átt rætur í persónuleg-
um árekstri ráðherra við starfsmenn embætt-
isins á óskyldum vettvangi, en ágreiningur
var á milli þeirra um friðunaraðgerðir á ijúpu.
Eitthvað að fela?
Fyrri umræða um tillöguna var á Alþingi
á mánudag en í gær átti að greiða atkvæði
um hvort vísa ætti tillögunni til annarrar
umræðu og allsheijarnefndar þingsins. Hefð
er fyrir samhljóða samþykkt þingmanna á því
Övenjuleg staða kom upp
á Alþingi í gær þegar
stjómarmeiríhlutinn varð
undir í atkvæðagreiðslu
að mál fari til næstu umræðu og nefndar eft-
ir fyrstu umræðu, en í gærmorgun spurðist
að stjórnarflokkarnir ætluðu að greiða at-
kvæði gegn slíku varðandi tillögu Hjörleifs.
Um þetta spunnust langar umræður utan
dagskrár fyrir atkvæðagreiðsluna. Þar sökuðu
stjórnarandstæðingar stjórnarliða um aðför
gegn þingræðinu með því að reyna að koma
í veg fyrir að þingið kannaði embættisfærslur
ráðherra. Sögðu þeir að ef sú yrði niðurstaðan
vöknuðu grunsemdir um að eitthvað væri að
fela í embættisfærslu ráðherrans og valdið á
Alþingi væri notað til að halda því leyndu.
Guðný Guðbjömsdóttir varaþingmaður
Kvennalistans sagði að umræðan fengi sig til
að álykta að ríkisstjómin teldi að hér ríkti
bananalýðveldi.
Davíð Oddsson forsætisráðherra sagði að
þingsályktunartillagan væri í eðli sínu lítt
dulbúin vantrauststillaga á Össur Skarphéð-
insson umhverfísráðherra og vantrauststillög-
um væri aldrei vísað til nefndar. Hann sagði
að Ólafur Jóhannesson fyrrverandi forsætis-
ráðherra hefði áður beitt sér fyrir svipaðri
málsmeðferð á Alþingi við svipaðar aðstæður.
Sigbjöm Gunnarsson formaður þingflokks
Alþýðuflokks sagði að öllum væri ljóst að til-
lagan væri vantrauststillaga á umhverfisráð-
herra enda hefði Hjörleifur sagt það beinum
orðum í sjónvarpsviðtali, skömmu eftir að til-
lagan var lögð fram. „Aiþýðuflokkurinn mun
að sjálfsögðu ekki samþykkja vantraust á
ráðherra sem hefur beitt sér mjög farsællega
í umhverfismálum á þessu kjörtímabili," sagði
Sigbjörn.
Ekki vantraust
Tveir þingmenn Sjálfstæðisflokksins, Egg-
ert Haukdal og Matthías Bjarnason, greiddu
atkvæði með því að vísa tillögunni til nefnd-
ar. Eggert sagðist ekki líta á tillöguna sem
vantrauststillögu á Össur. Matthías sagðist
ekki hafa heyrt um fyrirætlanir stjórnarflokk-
anna fyrr en í þingsalnum og hann minntist
þess ekki að hafa í 32 ár greitt atkvæði gegn
því að mál færu til nefndar, þótt hann væri
andvígur mörgum þeim málum. Hann sagðist
vera andvígur þessu máli, en ekki telja það
vantraust á Össur Skarphéðinsson þótt tillag-
an færi til nefndar enda bæri hann fyllsta
traust til Össurar og teldi hann með bestu
ráðherrum í ríkisstjórninni.
Margir stjórnarandstæðingar mótmæltu |
einnig þeirri túlkun að tillagan um skipan
rannsóknarnefndar væri í raun vantrausts-
tillaga á Össur og bentu á að ekki fælist í
því efnisleg samþykkt á tillögunni þótt henni
væri vísað til nefndar.
Bráðhlægilegt mál
Eftir atkvæðagreiðsluna var Davíð Oddsson
spurður hvort líta mætti svo á að samþykkt
hefði verið vantraust á umhverfisráðherra og
svaraði hann því neitandi. „Þeir sem greiddu
atkvæði á móti voru allir á móti vantrausti á
ráðherrann og fjöldi þeirra sem greiddi at-
kvæði með, svo sem Ólafur Ragnar Grímsson,
Steingrímur J. Sigfússon, Kristín Einarsdóttir,
Guðrún Helgadóttir og Matthías Bjarnason
lýstu því yfir að það væri ekki vantraust. Ég
greiddi atkvæði út frá hinu sjónarmiðinu en
hinir skýrðu sitt atkvæði. Ef þeir hefðu ekki
gert það væri málið slæmt en nú er það að-
eins bráðhlægilegt," sagði Davíð.
Hjörleifur Guttormsson sagði að ríkisstjórn-
in hefði kosið að stilla málinu upp sem spurn-
ingu um traust eða vantraust á ríkisstjórnina1
og forsætisráðherra hefði kallað yfir sig spurn-
ingu um traust eða vantraust í atkvæðagreiðsl-
unni. „Nú er það auðvitað forsætisráðherra:
að meta það en þannig held ég að þingheimur
hafi upplifað þetta.“
Hjörleifur sagði að tillagan sjálf talaði sínu
máli. „Hún er tillaga um rannsókn á embættis-
færslu og menn geta síðan velt því fyrir sér, ■
ef út úr þeirri rannsókn kemur neikvæð niður-;
staða fyrir viðkomandi ráðherra, hvernig hann j
eigi að bregðast við. Þegar ég var spurður
um það, eftir að tillagan kom fram, hvort
þetta væri tillaga um vantraust á ráðherrann, •
svaraði ég því játandi að auðvitað mætti skoða
málið þannig ef niðurstaðan yrði þessi. En :
ekki þegar rannsóknin færi fram; það var ;
mistúlkun á minni afstöðu," sagði Hjörleifur.'