Morgunblaðið - 08.02.1995, Blaðsíða 14
14 MIÐVIKUDAGUR 8. FEBRÚAR 1995
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
Hrávara
*
Ovissa
ríkir eft-
ir svartan
mánudag
London. Reuter.
ÓTRYGGT jafnvægi tók við á hrá-
vörumarkaði í gær eftir gífurlega
sölu spákaupmanna og fjárfesting-
arsjóða á mánudag. Sérfræðingar
eru ósammála um hvort hækkanir
síðustu 15 mánaða hefjast að nýju.
Öll hráefni lækkuðu í umrótinu
í fyrradag, en mest var lækkunin
á kopar. Um miðjan janúar seldist
kopar á hæsta verði í tæp sex ár,
en á mánudag lækkaði hann um
tæplega 10% í verði. „í gær var
svartur mánudagur verðlags á
málmum," sagði verðbréfafyrirtæk-
ið Macquarie Equities.
Sumir telja að hrávöruverð muni
smám saman hækka á ný, einkum
á helztu málum, þar sem framboð
og eftirspurn séu í nógu miklu jafn-
vægi. Kaup notenda styrktu verðið
á mánudag og sagt er líklegt að
kaup af því tagi muni koma á stöð-
ugleika á mörkuðum „þegar núver-
andi söluæði íjarar út“.
Aðrir telja að framboð og eftir-
spum muni ekki nægja til þess að
efla hrávörumarkaðinn ef fleiri fjár-
festingaraðilar taki undir það sjón-
armið að verðbréfamarkaðurinn
hafi lifnað við og hagkvæmara sé
að fjárfesta þar. „Erfítt verður að
bæta skaðann," sagði einn sérfræð-
ingur.
Hagfræðingar segja að ef til vill
hafí vaxtahækkanimar í Bandaríkj-
unum og víðar þegar haft þau áhrif
að hægja á efnahagsbata þeim sem
jók hráefnaeftirspurnina .
í London seldist kopar á rúmlega
2.825 dollara tonnið í gær miðað
við 2.780 dollara á mánudag og
3.081 dollara um miðjan janúar.
Á1 seldist í gær á um 10 dollara
hærra verði en á mánudag þegar
verðið var 2.050 dollarar við lokun.
FYRIRTÆKI í FLUTNINGUM OG FERÐAÞJÓNUSTU
Markaðshlutdeild 1993 samkvæmt skýrslu Samkeppnisráðs
Flutningar á sjó
E
§
3
Eimskipafélag
Islands hf.
Samskip hf.
Jöklar hf.
2% Nesskip hf.
1% Nes hf.
Flugrekstur
Ferðaskrifstofur
Flugleiðir hf.
2% Islandsflug hf.
2%Flugf. Norðurl. hf.
Samvinnuferðir -
Landsýn hf.
Úrval-Útsýn hf.
5% Ferðaskr. ísl. hf.
5% Kynnisferðir sf.
s
o>
«1«
'S-8 c?
.to .ÍO 3
sce
-ll-g
S-Si s
oi29-
'“1
-
Önnur
fyrirtæki
Sll
Onnur fyrirtæki
I skýrslu Samkeppnisráðs um stjórnunar- og eignatengsl í atvinnulífinu er gerð sérstök grein fyrir
markaðshlutdeild fyrirtækja í flutningum og ferðaþjónustu. Þar kemur fram að á árinu 1993 voru 65 fyrirtæki
á ferðaskrifstofumarkaði. Þrjú stærstu fyrirtækin voru eingöngu með ferðaskrifstofur en mörg önnur hafa
stóran hluta tekna sinna af öðrum rekstri t.d. rekstri hótela, langferðabifreiða, veitingasölu o.fl.
Á árinu 1993 voru 16 fyrirtæki í flugrekstri en Flugleiðir hafa augljóslega mikil yfirráð á markaðnum með um
80% hlutdeild. Svipaða sögu er að segja af sjóflutningum en á þeim markaði hefur Eimskip um 65%
hlutdeild. Samkeppnisráð bendir hins vegar á að virk samkeppni sé í stórflutningum og að einnig sé nokkur
samkeppni í öðrum flutningum.
Metafkoma hjá Islenskum markaði á síðasta reikningsári
Hagnaður um 37,4
millj. fyrir skatta
HAGNAÐUR Islensks markaðar á Keflavíkurflugvelli var alls um 37,4
milljónir króna fyrir skatta á síðasta reikningsári sem lauk 31. október
samanborið við 34,5 milljónir árið áður. Þetta er fímmta árið í röð sem
hagnaður verður meiri en næsta ár á undan.
Rekstrartekjur íslensks markað-
ar á síðasta reikningsári námu alls
tæplega 231 milljón króna. Eigið
fé er bókfært 183 milljónir og eig-
infjárhlutfall er tæplega 84%. Arð-
semi eiginfjár var 13% í fyrra.
Logi Ulfarsson, framkvæmda-
stjóri íslensks markaðar, segir
þennan góða árangur einkum að
þakka frammistöðu stjórnar félags-
ins sem gert hafí strangar kröfur
til rekstrarins og hvergi hvikað frá
kröfum um góða arðsemi. í öðru
lagi hafí starfsfólk lagst á eitt um
að bæta árangurinn á hverju ári. í
þriðja lagi hafí farþegum fjölgað
sem átt hafi leið um flugvöllinn.
Á móti kemur, að sögn Loga, að
gengi dollars fór hratt lækkandi
seinni hluta ársins sem leitt hafi til
lækkandi meðalálagningar. Þá hef-
ur ýmis kostnaður innan flugstöðv-
arinnar aukist og nýir kostnaðarlið-
ir komið til skjalanna.
Leigutakar vilja taka við
rekstri flugstöðvarinnar
Aukning var í sölu í flestum vöru-
flokkum og í fyrsta skipti í mörg
ár jókst sala ullarvöru. Nam sölu-
aukningin um 4 milljónum króna.
Þá hefur sala á matvælum og sæl-
gæti aukist mikið.
Logi segir ennfremur að viðræð-
ur eigi sér nú stað milli leigutaka
í flugstöðinni um framtíð hennar
og þeirrar starfsemi sem þar sé
rekin. Fyrirhugað sé að stofna und-
irbúningsfélag með þátttöku Flug-
leiða, Landsbankans, Pósts og síma,
Samtaka iðnaðarins, Þróunarfélags
íslands o.fl. aðila sem hafi það að
markmiði að taka yfir reksturinn á
flugstöðinni. „Við höfum beðið
lausna ríkisvaldsins í málum tengd-
um framtíð flugstöðvarinnar í fimm
ár og sáum ekki að neinna úrlausna
væri að vænta á næstunni sem
tækju á framfaramálum. Þess
vegna vildum við gera tilraun til
að taka málin í okkar hendur,“
sagði hann.
NYJAR IBUÐIR A NONHÆÐ KOPAVOGS
"é
FRABÆRT UTSYNI - FRABÆRT VERÐ - GOÐUR STAÐUR I
Allar íbúðir með óvenju íburðarmiklum og vönduðum mahogny innréttingum
IBUÐIR AFHENDAST
FULLBÚNAR
------------ I
íbúðir með sérinngangi
■ Baðherbergi með fallegum flísum
■ Sér þvottaherbergi
■ Stórar svalir eða sólverönd
■ Húsin verða fullfrágengin að utan
Fullfrágengnar lóðir ásamt mal-
bikuðum bílastæðum.
PÆMI UM KAUPTILBOÐ
Kauptilboð í 3ja herb. íbúð.7.450.000 kr
Við undirskr. kaupsamnings:.1.000.000 kr f
Húsbréf:.......................4.800.000 kr
Eftír 6. mán. frá kaups.:.412.000 kr
Eftír 9. mán. frá kaups.:.412.000 kr ||
I;
Eftir 12. mán. frá kaups!:.412.000 kr fé
Eftir 16. mán. frá kaups.:.414.000 kr \
FJÁRFESTING
Ifll FASTEIGNASALA HF.
Hagg Borgartún 31 62-42-50
■■■■■I Hilmar Óskarsson, Pétur Þ. Sigurðsson hdl.
í&
BYG6
Byggingatélag Gyifa og Gunnars
Grunnmynd af 3. hæð í Arnarsmára 20
Útsýni
Aökomuhliö noröur
Arnarsmári 22-24
3ja herb. íbúðir frá 7.450.000 kr og 4ra herb. íbúðir frá
Innrétting úr íbúð BYGG
9.000.000 kr
Utlit noröaustur
Arnarsmári 20
Seðlabank-
inn hækk-
ar vexti
BANKASTJÓRN Seðlabanka
íslands hefur hækkaði í gær
vexti sem gilda í viðskiptum
bankans við innlánsstofnanir.
Þannig hækkar ávöxtun í end-
urkaupasamnigum og endur-
sölusamningum um 0,4 pró-
sentustig.
Þessar breytingar eru í sam-
ræmi við breytingar sem orðið
hafa á skammtímavöxtum hér
á landi og erlendis að undan-
fömu, ekki síst í liðinni viku,
en þá hækkuðu m.a. seðla-
bankavextir í Bandaríkjunum
og Bretlandi, auk þess sem
hækkun varð á ávöxtun ríkis-
víxla í útboði ríkissjóðs og á
eftirmarkaði, segir í frétt frá
Seðlabankanum.
SAS aftur
í hagnað
Stokkhólmur. Reuter.
HAGNAÐUR Scandinavinan
Airlines System á síðasta ári
nam alls um 13,5 milljörðum
króna eða um 202 milljónum
dollara samkvæmt bráða-
birgðauppgjöri. Árið á undan
nam tap félagsins aftur á
móti tæpum 4,5 milljörðum
króna eða eða röskum 66 millj-
ónum dollara.
Samkvæmt upplýsingum
SAS vegur þungt í uppgjörinu
kostnaður upp á um 9 millj-
arða króna, eða 134 milljónir
dollara vegna endurskipulagn-
ingar á móti röskum 5 millj-
örðum árið áður. í uppgjörinu
gætir ennfremur söluhagnaðar
á eignum upp á um 8,5 millj-
arða króna eða röska 114
milljónir dollara á móti um 5
milljörðum króna árið áður.
Velta félagsins af flug- og
hótelstarfsemi jókst um 7% í
306 milljarða króna.
Aukinn vínút-
flutningnr
Frakka
París. Reuter.
VIN og brenndir drykkir
öfluðu Frökkum meiri útflutn-
ingstekna en aðrar franskar
landbúnaðarafurðir í fyrra og
tók þar með við hlutverki korn-
iðnaðarins samkvæmt opin-
berum upplýsingum.
Útflutningur á koníaki jókst
um 44% að magni og 31% að
verðmæti og það slær nær öll
met. Últflutningur á kampa-
víni jókst um 10% og léttum
vínum um 7%.
Þessi bati fylgir í kjölfar
fímm erfiðra ára vegna mikilla
verðhækkana 1988 og 1991
og samdráttar.
Laura Ashley
fækkar fólki
London. Reuter.
TÍZKUFYRIRTÆKIÐ Laura
Ashley hefur ákveðið að leggja
niður 200 störf og er það liður
i endurskipulagningu upp á
35 milljónir punda, sem á að
draga úr kostnaði og auka
hagkvæmni.
Endurskipulagningin nær
til umsvifa fyrirtækisins í Bos-
ton, Massachusetts, Eindho-
ven í Hollandi og Maidenhead
á Suður-Englandi. Um helm-
ingur þeirra sem verður sagt
upp starfa í Bretlandi.