Morgunblaðið - 08.02.1995, Side 16
16 MIÐVIKUDAGUR 8. FEBRÚAR 1995
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Reuter
MUSLIMSKIR uppreisnarmenn skjóta að flutningabíl hers Bosníustjórnar nærri Velika Kladusa í
Bihac-héraði í gær. Þar hefur verið hart barist þrátt fyrir vopnahlé í Bosníu.
Bandaríkjamenn hætta friðarviðræðum við Bosníu-Serba
Júgóslavar neita að
viðurkenna Bosníu
Jerúsalem, Washington. Reuter.
Bandaríkjaforseti
Vill Cams
yfir CIA
BILL Clinton, forseti Bandaríkj-
anna, hefur í hyggju að tilnefna
Michael Cams, fyrrverandi hers-
höfðingja í bandaríska flughem-
um, sem yfirmann leyniþjón-
ustunnar CIA í stað James Wools-
eys, að sögn dagblaðsins San
Francisco Chronicle.
Bandarískur embættismaður,
sem hefur tekið þátt í leitinni að
eftirmanni Woolseys, sagði að að-
stoðarmenn Clintons væru að búa
sig undir að tilkynna tilnefninguna
formlega á næstunni. Embættis-
menn sögðu að Clinton hefði valið
Carns vegna mikillar reynslu hans
af stjómun flughersins. „Forsetinn
vildi leiðtoga með reynslu af stjórn-
un innan hersins sem gæti skipu-
lagt og stjómað flóknum aðgerðum
með þátttöku hinna ýmsu stofn-
ana,“ hafði San Francisco
Chronicle eftir ónafngreindum
embættismanni.
Hefur ekki stafað fyrir
leyniþjónustuna
Cams hefur ekki starfað fyrir
leyniþjónustuna, en embættismenn
Hvíta hússins Iíta ekki á það sem
ókost vegna þeirrar gagnrýni sem
CIA hefur sætt í kjölfar Aldrich
Ames-njósnamálsins.
Cams var aðstoðaryfirforingi
flughersins frá árinu 1991 til sept-
ember í fyrra þegar hann lét af
störfum fyrir herinn. Áður hafði
hann verið framkvæmdastjóri
bandaríska herráðsins þegar Colin
Powell var þar í forsæti. Sem fram-
kvæmdastjóri bar hann ábyrgð á
því að stefnu Powells yrði fram-
fylgt innan hersins.
Embættismaður í Hvíta húsinu
lýsti Cams sem „ópólitískum"
manni sem repúblikanar jafnt sem
demókratar ættu að geta sætt sig
við og nyti virðingar innan hersins
og meðal embættismanna í Wash-
ington.
VLADISLAV Jovanovic, utanríkis-
ráðherra Júgóslavíu, sambandsríkis
Serbíu og Svartfjallalands, þvertók
fyrir það í gær að til greina kæmi
að viðurkenna sjálfstæði Bosníu.
Daginn áður hafði Haris Siljadzic,
forsætisráðherra Júgóslavíu, sagt
að stjórn sín myndi íhuga tillögu
Rússa um viðræður Bosníu og Júgó-
slavíu um gagnkvæma viðurkenn-
ingu.
„Otímabær viðurkenning á Bosn-
íu-Herzegóvínu sem sjálfstæðu ríki
hefur hrandið hinni fyrram Júgó-
slavíu út í borgarastyrjöld. Enn ein
viðurkenning mun aðeins gera illt
verra,“ sagði Jovanovic í samtali
við ísraelska útvarpið.
Vestrænir stjórnarerindrekar
segja Serba og Svartfellinga verða
að viðurkenna Króatíu og Bosníu
eigi að aflétta refsiaðgerðum Sam-
einuðu þjóðanna.
Hætta viðræðum við Serba
Aðstoðaratanríkisráðherra
Bandaríkjanna, Richard Holbrooke,
sagði á mánudag að Bandaríkin
hefðu hætt viðræðum við Bosníu-
Serba og að þeir myndu ekki taka
þær upp að nýju fyrr en Bosníu-Ser-
bar væra reiðubúnir að samþykkja
alþjóðlega friðaráætlun.
Síðasti fundur Bandaríkjamanna
og Bosníu-Serba var í desember sl.
er Jimmy Carter, fýrrverandi
Bandaríkjaforseti, hitti Karadzic að
máli. Þá fullvissaði Karadzic Carter
um að Bosníu-Serbar myndu sam-
þykkja friðaráætlun fimmveldanna,
sem kveður á um að Serbar fái 49%
lands í Bosníu en múslimar og Kró-
atar 51%. Serbar höfnuðu henni
hinsvegar.
Að sögn Holbrookes verður
Karadzic ekki boðið til fundar um
sem Frakkar boða til næstkomandi
mánudag með stuðningi Evrópu-
sambandsins en þar á að ræða
málefni fyrram lýðvelda Júgóslavíu.
Flóttamenn snúi heim
Bosníustjórn hefur krafist þess
að bosnískir flóttamenn snúi aftur
til síns heima. Að sögn danska dag-
blaðsins Politiken var flóttamanna-
og félagsmálaráðherra landsins,
Muharem Cero, nýverið á ferð í
Danmörku, Svíþjóð og Noregi til
að leggja drög að heimför flótta-
mannanna.
Flóttamannahjálp Sameinuðu
þjóðanna segir þetta allt of snemmt
þar sem ástandið í landinu sé enn
ótryggt. Rök Bosníumanna eru
hinsvegar þau að Bosníumenn eigi
að snúa aftur til að koma í veg
fyrir að Serbum takist þjóðernis-
hreinsanir sínar. Til að byija með
vilja Bosníumenn fá um 6.700 börn
sem hafa orðið viðskila við foreldra
sína auk handverksmanna, kennara
osfrv. til að hefja uppbyggingu.
De Klerk
óttast ekkí
framtíðina
F.W. DE Klerk, varaforseti
Suður-Afríku, sagði í gær að
hyrfi Nelson Mandela af ein-
hveijum orsökum úr embætti,
myndi það ekki valda straum-
hvörfum í Suður-Afríku, þó
að vissulega myndi slíkt hafa
alvarleg áhrif. Sagði de Klerk
að áhrif brotthvarfs Mandela
yrðu ekki varanleg, þar sem
fjölmörg leiðtogaefni séu inn-
an Afríska þjóðarráðsins. Slíkt
kynni hins vegar að ýta undir
klofning innan samtakanna.
Líbanir vilja
eitrið burt
LÍBANSKA þingið hefur kraf-
ist þess að ítalir taki við þús-
undum tonna af eiturefnaúr-
gangi sem þeir sendu til Líbán-
ons 1987-1988 en þá geisaði
borgarastyijöld þar. Býður
þingið ítölum aðstoð við að
flytja tunnurnar með eiturefn-
unum til Ítalíu.
• •
Ofgamenn
verði kross-
festir
EGYPSKUR trúarleiðtogi hef-
ur lýst því yfir að múslimskir
öfgamenn hafi kallað yfír sig
alvarlegar refsingar á borð við
krossfestingu og aflimun.
Sagði hann öfgamenninna
ekki hafa neinn rétt til þess
að kalla sig „trúarlega öfga-
menn“ hvað þá „íslamska
hópa“, heldu séu þeir réttir og
sléttir glæpamenn.
Art Taylor
allur
JASSTROMMULEIKARINN
Art Taylor lést á mánudag,
65 ára að aldri. Taylor lék
m.a. með John Coltrane, Bud
Powell og Thelonius Monk.
Er hann lést hafði hann nýlok-
ið við að leika inn á plötu með
jassorgelleikaranum Jimmy
Smith. Ekki er vitað hvert
banamein Taylors var.
Ráðherra
grípur til
haka
BÚIST er við afsögn Allans
Stewarts, aðstoðarráðherra í
bresku stjórninni á næstu dög-
um í kjölfar þess að hann hélt
á haka er hann deildi við fólk
sem mótmælti vegarlagningu.
Segist Stewart hafa gripið
hakann af ótta við að annars
myndi einhver annar gera það
en mótmælendurnir segja
hann hafa ógnað þeim.
Tregafullur
vitnisburður
DENISE Brown, systir Nicole Brown Simpson,
bar vitni í réttarhöldunum yfir bandarisku
íþrótta- og sjónvarpsstjörnunni O.J. Simpson á
mánudag. Denise grét óstjórnlega þegar hún
lýsti síðustu samverustund systranna nokkrum
klukkustundum áður en Nicole var myrt á
heimili sínu ásamt vini sínum, þjóni á veitinga-
húsi. Denise Brown staðfesti ásakanir sækjend-
anna um að Simpson hefði misþyrmt og kúgað
eiginkonu sína og sýndar voru myndir af Nic-
ole eftir barsmíðar hans á nýársdag árið 1989.
Nicole var þar greinilega bólgin á hægra auga,
vanga og kinnum. Systirinn sagði ennfremur
að Simpson hefði auðmýkt konu sína þegar hún
hefði verið barnshafandi og kallað hana „feitt
svín“. „Það er búið að gráta svo mikið í þessu
máli að erfitt er orðið að greina staðreyndirn-
ar frá tárunum," sagði Johnnie Cochran, aðal-
verjandi Simpsons, um vitnisburð Denise
Brown, sem tárfelldi hvað eftir annað meðan
hún bar vitni.
Reutcr
Misstir þú af miðakaupum
í janúar? Þú hefur enn „
tækifæri.