Morgunblaðið - 08.02.1995, Qupperneq 48

Morgunblaðið - 08.02.1995, Qupperneq 48
V f K G 3K*¥!0tltl(lftfrÍfe alltaf á Miövikudög'imi MORGUNBLAÐW, KWNGLAN 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SlMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBL@CENTRUM.IS / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTI 85 MIÐVIKUDAGUR 8. FEBRÚAR 1995 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK Söluverð hlutabréfa í einkavæðingu ríkisfyrirtækja 1.700 milljónir 2.200 manns hafa eignazt hlut í fyrrverandi ríkisfyrirtækjum NÁLEGA tvö þúsund og tvö- hundruð einstakl- ingar keyptu hlutabréf í þeim ríkisfyrirtækjum, sem ríkisstjórnin hefur einkavætt á kjörtímabil- inu. Þar af eru 177 starfsmenn fyrirtækjanna. Söluandvirði ríkisfyrirtækja á sama tíma er um 1.720 milljónir króna, samkvæmt tölum frá Rík- isbókhaldi. Einstaklingum var gefinn kostur á að kaupa hlutabréf í fjórum fyrirtækjum, sem einkavædd voru. Langflestir keyptu bréf í Lyfjaverzlun ís- lands, eða um 1.600 manns, þar af 58 starfs- menn fýrirtækisins. Þá keyptu 476 einstaklingar hlut í Jarðborunum, þeirra á meðal 16 starfs- 'menn. Mest fékkst fyrir SR-mjöl og Lyfjaverzlun í SR-mjöli keyptu 96 einstaklingar hlut og af þeim voru 77 starfsmenn fyrirtækisins. Við sölu Ferðaskrifstofu íslands var starfsmönnum veittur forkaupsréttur og sameinuðust 26 þeirra um að kaupa fyrirtækið. Alls hafa 2.198 einstak- lingar eignazt hlut í ríkisfyrirtækjunum, sem hafa verið einkavædd. Söluverð ríkisfyrirtækja, sem seld hafa verið frá því á árinu 1992, er um 1.721 milljón króna. Mest fékkst fyrir bréfin í SR-mjöli, eða 725 milljónir, 400 milljónir fyrir bréf í Lyfjaverzlun- inni, 162 fyrir hlut í íslenzkri endurtryggingu og 130 milljónir fyrir hlut ríkisins í Þróunarfé- lagi íslands. Þá voru bréfin í Jarðborunum seld fyrir 88 milljónir, bréf í Þormóði ramma fyrir 87 milljón- ir og prentsmiðjan Gutenberg fyrir 86 milljónir. Ferðaskrifstofa íslands var seld fyrir um 19 milljónir, Framleiðsludeild ÁTVR fyrir 15 millj- ónir og bréf í Rýni hf. fyrir níu milljónir. Á tíma- bilinu var Skipaútgerð ríkisins jafnframt lögð niður og eignirnar seldar. Friðrik Sophusson fjármálaráðherra sagði í samtali við Morgunblaðið að ekki mætti einblína á söluverð allra þeirra fýrirtækja, sem ríkið hefði selt, þar sem í sumum tilvikum hefði ríkissjóður verið að leggja niður starfsemi, sem hefði verið byrði á honum, til dæmis Skipaútgerðina. í öðr- um tilvikum hefði starfsemi verið seld til aðila, sem nú greiddu skatta. Þúsundir eigenda Friðrik sagði að ýmsar aðferðir hefðu verið hafðar við einkavæðinguna og við sölu Ferða- skrifstofu íslands hefði starfsfólki til dæmis verið veittur forkaupsréttur. „í seinni tíð hefur áhugi ókkar fyrst og fremst beinzt að því að hafa eignaraðild sem dreifðasta og koma eignar- hlut í fýrrverandi ríkisfyrirtækjum á sem flestra hendur," sagði Friðrik. „Við viljum gefa sem flestum tækifæri til að eignast hlut í fyrirtækjum og taka síðan þátt í verðbréfaviðskiptum. Slík viðskipti verða síðan til þess að örva innlendan hlutabréfamarkað. Ég fagna því þess vegna að þúsundir einstaklinga skuli nú orðnir eigendur í fyrrverandi ríkisfyrirtækjum.“ Irving Oil Sóttum breytta land- notkun BORGARRÁÐ hefur samþykkt að fela borgarskipulagi að sækja um breytingu á landnotkun á lóðum við Eiðsgranda og við Hraunbæ vegna óska Irving Oil um að reisa þar bensínstöðvar og verslanir. í bókun skipulagsnefndar segir að nefndin telji rétt að unnið verði nánar með tillögur að bensínstöðv- um við Hraunbæ og Eiðsgranda í samráði við hagsmunaaðila á þess- um stöðum og jafnframt að þess verði gætt að sjávarstígur við Eiðs- granda haldist. Nefndin hafi efa- semdir um staðsetningu bensín- stöðvar við Stekkjarbakka þar sem ekki liggi fyrir hvort eða hvenær ný stofnbraut verður lögð norðan Stekkjarbakka. í bókun borgarráðsfulltrúa Sjálf- stæðisflokks segir að þeir geti fall- ist á að sótt verði um heimild til að auglýsa breytta landnotkun við Eiðsgranda og Hraunbæ. Formannafundur VMSÍ * * Oskiverk- falls- heimilda FORMANNAFUNDUR Verka- mannasambands íslands samþykkti í gær að beina því til þeirra félaga sem ekki hefðu aflað sér verkfalls- heimildar að gera það nú þegar. Var þetta samhljóða niðurstaða allra fundarmanna, að sögn Björns Grét- ars Sveinssonar, formanns VMSÍ. Ekki ágreiningur Fulltrúar verkalýðsfélagsins ' Dagsbrúnar í Reykjavík, Hlífar í Hafnarfirði og Verkalýðs- og sjó- mannafélags Reykjavíkur mæta til fundar í dag um nýjan kjarasamning með fulltrúum annarra félaga innan VMSÍ. Bjöm Grétar gerir lítið úr ágreiningi innan VMSÍ. Segir að þessi félög þurfi að fá umfjöllun um sín sérmál. Hann segir að þótt stað- an sé erfið trúi hann ekki öðru en að hægt verði að hotta á merina. -----♦ ♦ ♦---- Áburðarpinna- verksmiðja ^ í Garðabæ NORMA hf. hefur í undirbúningi að setja á stofn áburðarpinnaverk- smiðju í Garðabæ í samvinnu við sænska fyrirtækið Bio Bicf. Samn- ingar standa nú yfir við Svíana og segist Sævar Svavarsson, fram- kvæmdastjóri Normu, telja meiri lík- ur en minni á að samningar takist og að áburðarpinnaverksmiðjan hefji starfsemi síðar á þessu ári. Þeir áburðarpinnar sem fyrirhug- að er að verksmiðjan framleiði, að mestu til útflutnings, eru pinnar sem stungið er niður í mold um leið og tré eða annar gróður er gróðursett- ur. Sævar segir að áætlanir geri ráð fyrir að 10 menn starfi við fyrirtæk- ið. Húsnæði sé til staðar í Garðabæ, en nauðsynlegt væri að ráðast í all- miklar fjárfestingar í vélbúnaði. Heildarfjárfesting næmi um 70 millj- ónum króna. Fj ár málar áðher r a segir dæmi um misnotkun opinberra útboða Standa ekki í skilum og fá sér nýja kennitölu FRIÐRIK Sophusson íjármálaráð- herra sagði á Alþingi í gær að grípa yrði til aðgerða gegn misnotkun á útboðum opinberra framkvæmda. Brögð væru að því að lægstbjóðend- ur stæðu ekki í skilum, m.a. með opinber gjöld, færu á höfuðið en væru fljótlega risnir upp að nýju með nýja kennitölu og nýtt tilboð í framkvæmdir. Þetta kom fram í framsöguræðu Friðriks fyrir frumvarpi um breyt- ingu refsiákvæða í skattalögum, sem er hluti af átaki ríkisstjórnar- innar gegn skattsvikum. Friðrik sagði að nefnd, sem skipuð hefði verið til að skoða árangur útboðs- stefnu ríkisins og benda á úrbætur, hefði m.a. fjallað um hvernig koma mætti í veg fyrir misnotkun á út- boðum. Endanlegrar greinargerðar nefndarinnar væri að vænta síðar í mánuðinum. Með lægsta boð „Á undanförnum árum hefur borið á því í æ ríkara mæli að lægst- bjóðendur í opinberar framkvæmdir standi ekki í skilum með opinber gjöld eða greiðslur til undirverk- taka,“ sagði Friðrik. „Skoða þarf sérstaklega hvernig hægt er að bregðast við því þegar þeir, sem boðið hafa lægst og fengið verkefni við opinberar framkvæmdir, standa ekki í skilum, fara á höfuðið en mæta síðan í næsta útboð með nýja kennitölu og lægsta boð. Þetta eru afar mikilvæg mál, sem nauðsyn- legt er að tekið sé á af festu.“ Friðrik sagðist hafa skipað fram- kvæmdanefnd þriggja manna, sem ætti að yfirfara tillögur skattsvika- nefndar, og kanna möguleika á nýjum aðgerðum. Morgunblaðið/Kristinn Lætur ekki ófærðina aftra sér ÞAÐ er engan bilbug að finna á Eiríki Guðjónssyni á ísafirði þótt fannfergi hafi verið með mesta móti í bænum undanfar- ið og suma dagana vart fært út úr húsi. Þessi kempa, hátt á níræðisaldri, sem nú dvelur á dvalarheimilinu Hlif lætur ekki ófærðina aftra sér, en Eiríkur fer daglega allra sinna ferða á gönguskíðunum sinum, og ef færið er ekki nógu gott þá einfaldlega held- ur hann á skíðunum frekar en að skilja þau eftir heima.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.