Morgunblaðið - 14.02.1995, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 14.02.1995, Blaðsíða 1
72 SIÐUR B 37. TBL. 83. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR14. FEBRÚAR1995 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Reuter Minningarathöfn um árásina á Dresden Yopnahlé o g viðræður í Tsjetsjníju Moskvu. Reuter. SAMIST hefur um vopnahlé í Tsjetsjníju hvað varðar stórskotaliðsvopn og stefnt er að viðræðum um að það taki til allra vopnaviðskipta. Búist er við, að Borís Jeltsín, forseti Rússlands, muni gagnrýna harðlega fram- kvæmd hernaðarins í Tsjetsjníju í stefnuræðu sinni á þingi á fimmtudag og jafnvel boða, að málefni sjálfstjórnarlýðveldisins verði tekin nýjum tökum. Tsjetsjenar segjast hafa fellt 250 rússneska hermenn þegar þeír sprengdu upp eldflaugastöð nærri Grosní en það hefur ekki verið staðfest. Múslim- ar svelta í Bihac Sanyevo, Samac. Reuter. HUNGURSNEYÐ er skollin á með- al múslima vegna umsátursins um yfírráðasvæði Bosníustjórnar í Bi- hac í norðvesturhluta landsins, að sögn embættismanna Sameinuðu þjóðanna í gær. Á sama tíma vör- uðu friðargæsluliðar við því að vopnahléssamningurinn sem músl- imar og Serbar undirrituðu um ára- mótin væri í hættu vegna tíðra vopnahlésbrota. „Ástandið er mjög alvarlegt á öllu Bihac-svæðinu og er jafnvel orðið slæmt meðal best settu fjöl- skyldnanna," sagði talsmaður Flóttamannahjálpar Sameinuðu þjóðanna. „Matvælaskorturinn er alvarlegur, orðið hungursneyð er nú viðeigandi þar sem ástandið er verst.“ Bihac einangrað Bihac-svæðið er einangrað vegna umsáturs múslima, sem berjast gegn stjómarhernum, og serbneskra bandamanna þeirra. Þeir hafa reynt að knýja stjómarherinn til uppgjafar með því að stöðva næstum algjör- lega matvælaflutninga þangað frá því í fyrravor. Ibúamir em um 100.000 og fá aðeins um 15% mat- vælanna sem þeir þurfa. Gary Coward, talsmaður friðar- gæsluliðsins í Bosníu, sagði í gær að múslimar jafnt sem Serbar hefðu gerst brotlegir við vopnahléssamn- inginn, sem gilda átti í fjóra mán- uði frá áramótum meðan reynt yrði að semja um frið. Klofningur er kominn upp innan Serbneska lýðræðisflokksins, flokks Radovans Karadzic, leiðtoga Bosníu-Serba. Sjö fulltrúar flokks- ins á þingi Bosníu-Serba hafa hvatt forystuna til að fallast á friðaráætl- un fímmveldanna, en leiðtogar flokksins saka þá um svik. -----♦ ♦ ♦----- Ungverjaland ÍNATO á næsta ári? Búdapest. Reuter. UNGVERSKA dagblaðið Nepsza- badsag hafði í gær eftir Gyula Hom, forsætisráðherra landsins, að Ungveijar kynnu að ganga í Atlantshafsbandalagið (NATO) á næsta ári, áður en þeir fengju aðild að Evrópusambandinu. Ungveijar sækjast eftir aðild að öllum helstu bandalögum á Vestur- löndum, Evrópusambandinu, Vest- ur-Evrópusambandinu og NATO. Leggja þeir áherslu á að þetta ger- ist eins fljótt og auðið er til að inn- sigla aðskilnað sinn við fyrrum Sov- étríkin. Hom átti fund með sendiherrum aðildarríkja NATO í síðustu viku. Hafa talsmenn bandalagsins lýst því yfír að skoðun á hugsanlegri stækkun þess ljúki í september og að aðildarviðræður geti hafíst í upphafi næsta árs. FULLTRÚAR Breta, Banda- rikjamanna og Þjóðverja lögðu í gær blómsveiga að minningar- steini um þá, sem fórust í gífur- legum árásum breskra og bandarískra flugvéla á þýsku borgina Dresden fyrir 50 árum. Talið er, að 35.000 manns hafi látið lífið í eldhafinu. Roman Herzog, forseti Þýskalands, flytur hér ræðu í menningar- miðstöð Dresdenar en gegnt honum er risastórt kerti í minn- ingu þeirra sem létu lífið. Talsmaður rússneska hersins sagði í gær, að Anatolíj Kúlíkov, hershöfðingi og yfírmaður rúss- neska hersins í Tsjetsjníju, og Asl- an Maskhadov, leiðtogi tsjetsjneska hersins, hefðu náð samkomulagi um vopnahléið og væri gert ráð fyrir framhaldsviðræðum á morg- un, miðvikudag. Gratsjov látinn fara? Hernaðurinn í Tsjetsjníju hefur verið Jeltsín mikill álitshnekkir jafnt heima sem erlendis og búist er við, að hann muni boða breytta stefnu í málefnum landsins í stefnuræðunni á fimmtudag. Telja margir, að Pavel Gratsjov varnar- málaráðherra, sem skipulagði her- förina, verði neyddur til að segja af sér en í gær var Borís Gromov aðstoðarvarnarmálaráðherra, einn helsti gagnrýnandi hernaðarins, látinn víkja úr því embætti og skip- aður hermálasérfræðingur í utan- ríkisráðuneytinu. Movladi Udugov, upplýsingaráð- herra Tsjetsjníju, sagði í viðtali við NORSKA stjórnin hefur ákveðið, að eftirlit með stjómun þorskveiða á fiskvemdarsvæðinu við Sval- barða verði verði óbreytt frá því, sem var á síðasta ári. Kemur þetta fram í tilkynningu frá norska sjávarútvegsráðuneyt- útvarpsstöð í Moskvu, að 250 rúss- neskir hermenn hefðu fallið og 24 brynvagnar eyðilagst þegar Tsjetsjenar sprengdu upp eld- flaugastöð skammt frá Grosní. Hafa þessar fréttir ekki verið stað- festar enn. Rússneska fréttastofan Interfax hafði það eftir heimildum í gær, að rússneski herinn yrði ekki flutt- ur frá Tsjetsjníju fyrr en þijár helstu borgirnar auk Grosní væm fallnar. Var sagt, að hótað væri miklum loftárásum ef Tsjetsjenar hygðust veija þær. Jean-Marc Bor- net, stjórnarmaður í Alþjóða Rauða krossinum, sagði i gær, að yrði hernaðinum í Tsjetsjníju haldið áfram myndi það auka á flótta- mannastraum til nágrannaríkjanna og verða til þess að stríðsátökin breiddust út. Eistneska þingið samþykkti í gær með miklum meirihluta álykt- un þar sem hvatt er til, að sjálf- stæði Tsjetsjníju verði viðurkennt þegar „ástandið í alþjóðamálum leyfi“. inu en í henni segir, að norsk og rússnesk skip geti veitt þorsk við Svalbarða í samræmi við kvóta ríkjanna en heildarkvóti annarra skipa er 28.000 tonn. Þá er átt við skip frá Evrópusambandsríkj- um, Færeyjum og Póllandi. Norðmenn streyma í verslunarferðir yfir landamærin til Svíþjóðar Óttast hrun í norskri verslun Kaupmannahörn. Morgunblaðið. SÆNSK-norsku landamærin eru að verða eins og langt af- greiðsluborð þar sem Norðmenn eru í hlutverki kaupandans. Þannig lýsir John Erik Eriksen, fulltrúi á flokksþingi Verka- mannaflokksins, ástandinu nú en lágt verðlag í Svíþjóð lokkar Norðmenn í verslunarferðir yfir landamærin. Thorbjörn Jag- Iand, formaður flokksins, segir að þetta mál sýni að áfram verði að ræða Evrópusambandsmálið þrátt fyrir niðurstöður þjóð- aratkvæðagreiðslunnar í nóv- ember. Glötuð verslun Eriksen er frá bænum Hald- en, sem er rétt við sænsku landamærin. Þar auglýsa sænskar verslanir af krafti og árangurinn Iætur ekki á sér standa. Siðustu þtjá mánuði árs- ins jókst verslunin Svíþjóðar- megin um þriðjung miðað við árið áður. Þetta kallar Eriksen verslunarleka, glataða verslun fyrir norska kaupmenn í byggð- unum við landamærin. Eriksen segir að verðmunur- inn rýri mjög samkeppnismögu- leika norskra kaupmanna við landamærin og að norska stjórnin verði að grípa inn í ef verslunarrekstur eigi ekki að leggjast af við landamærin. Óttast lægra áfengisverð Hann bendir einnig á, að leggi Svíar niður áfengiseinka- sölu eða lækki áfengisverð, þá verði það náðarhöggið fyrir norska verslun við landamærin. Það er fyrst og fremst mat- vara, sem hefur lækkað í verði í Svíþjóð vegna aðlögunar að verðlagi ESB-landanna. Sem dæmi má nefna að hinn hefð- bundni jólamatur Norðmanna, rifjasteik, kostaði um 700 ís- lenskar krónur kílóið, meðan sænskir kaupmenn buðu þennan jólamat á um 150 krónur kílóið. Á flokksþinginu benti Thor- björn Jagland flokksformaður á, að ekki væri hægt að loka augunum fyrir þeim vanda, sem Norðmenn stæðu nú frammi fyrir, meðal annars vegna tolla- mála. Ekki væri hægt að láta vera að ræða mál tengd ESB. Noregur gæti ekki bara tekið sér frí frá ESB-umræðunni. Obreyttar reglur í g’ildi við Svalbarða
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.