Morgunblaðið - 14.02.1995, Síða 6

Morgunblaðið - 14.02.1995, Síða 6
6 ÞRÍÐJÚDAÖÍJR 14. FEBRÚÁR 1995 FRÉTTIR Jákvæðar niðurstöður fyrir innlenda framleiðslu í víðhorfskönnun ÍM-Gallup 9 af 10 telja íslenskar vörur sam- bærilegar eða betri að gæðum Morgunblaðið/Sverrir LÍNA G. Atladóttir, viðskiptafræðingur hjá Samtökum iðnaðar- ins, (t.h.) og Helga Guðrún Jónasdóttir, forstöðumaður Upplýs- ingaþjónustu landbúnaðarins, voru meðal þeirra sem kynntu niðurstöður könnunar IM-Gallup á blaðamannafundi í gær. ÍM-Gallup gerði viðhorfskönnun á vegum átaksins, íslenskt, já takk, dagana 8.-12. janúar. Niðurstöður könnunarinnar voru jákvæðar fyrir íslenska framleiðslu. Gæði íslenskra vara þóttu í langflestum tilvika álíka eða betri en erlendra vara en mörgum þótti verð íslenskra vara lakara en erlendra. í úrtaki voru 1.200 manns, heild- arfjöldi svarenda var 872 eða 75%. Unnið var út frá tilviljunarúrtaki úr þjóðskrá í gegnum síma. 81% aðspurðra sögðust velja inn- lenda vöru þegar um sambærilega vöru væri að ræða, annars vegar innlenda, hins vegar erlenda. 18,6% sögðust lítið velta því fyrir sér og aðeins 0,4% sögðust frekar velja erlenda vöru. Átakið hvatti 19% Spurt var um þær ástæður sem kynnu að liggja að baki vöruvalinu. Þeir sem söguðst velja innlendu vöruna voru spurðir af hverju og gátu aðspurðir sjálfir ráðið svarinu, þ.e. engir svarmöguleikar voru gefnir. 60,5% sögðust velja íslenskt af því að það veitir atvinnu. Tæp 19% vísuðu til hvatningar frá átak- inu, íslenskt, já takk. Tæp 9% sögð- ust vilja styðja íslenska framleiðslu og 6% sögðust velja íslenskt af því að það væri betri vara. Tæp 4% gáfu upp aðrar ástæður. Aðspurðir voru beðnir um að bera saman verð og gæði annars vegar innlendra og hins vegar er- lendra vara. Rúm 42% töldu gæði íslenskra vara betri og 51% álíka. Verð íslenskra vara þykir hins veg- ar lakara í 73% og álíka í 23% til- vika. Fleirum finnst íslenskt betra Samtök iðnaðarins hafa á liðnum árum látið athuga viðhorf fólk til verðs og gæða innlendra og er- lendra samkeppnisvara. í kynningu könnunarinnar á blaðamannafundi í gær kom fram að'viðhorf til verð- þáttarins hefði lítið breyst en mark- tæk breyting væri á afstöðunni til gæðaþáttarins. Þeim sem þætti gæði innlendu vörunnar betri hefði fjölgað um rúmlega 10% (úr 30% í rúm 40%). Þetta þýddi að gæðaímynd innlendu framleiðslunnar færi batnandi. Því væri hins vegar vandsvarað hvers vegna afstaðan til verðþáttarins hefði breyst jafn lítið og raun bæri vitni, sér í lagi með hliðsjón af hag- stæðri verðþróun innlendra vara á undanförnum árum. Ef til vill hefði efnahagsþróunin sitt að segja í þessu sambandi, sem einkennst hefði af samdrætti og minnkandi kaupmætti almennings. í könnuninni kom í ljós að greina megi marktækan mun í svörun þeg- ar litið sé til aldurs og tekna svar- enda. Yngsti aldurshópurinn, 15-24 ára, hefur tilhneigingu til að velja síður innlenda vöru eða um 70% á móti 88% hjá elsta aldurs- hópnum, 55-75 ára. Marktækur munur var ekki á milli annarra ald- urshópa. Tekjuháir velja síður íslenskt Þá velja þeir sem eru með hæstu fjölskyldutekjumar, 300 þúsund krónur á mánuði og meira, síður innlendu vöruna en þeir sem eru með undir 100 þúsund kr. á mán- uði eða 83% þeirra tekjulægstu á móti 75% þeirra tekjuhæstu. Hvað gæðin snertir þá álíta 50% fólks á landsbyggðinni gæðin á ís- lensku vörunum betri á móti 36,5% hjá höfuðborgarbúum. Eini munur- inn hvað verðið varðar er að hærra hlutfall bænda og sjómanna sagði að verðið væri betra á íslenskum vörum. Góðviðristölt NÚ ERU flest reiðhross komin á hús og ýmist verið að byggja þau upp fyrir keppni eða útreið- ar sumarsins. Hross á höfuð- borgarsvæðinu skipta þúsund- um og eru að líkindum um tutt- ugu þúsund hestaíþróttamenn á landinu öllu. Áhugi fyrir íþrótt- inni er ört vaxandi og hefur hestamönnum fjölgað jafnt og þétt síðustu tvo áratugina að sögn kunnugra. Um sé að ræða hina sönnu fjölskylduíþrótt þar sem afi, amma, pabbi, mamma og börn geti notið samvista. Yfirleitt er byijað að taka hrossin í desember en útreiðar- tímabilið er fram í septem- ber/október og alltaf að lengj- ast að sögn. Á myndinni ríður Sigurbjörn Bárðarson út með dóttur sinni. íi I AJHMUrpíOM MORGUNBLAÐIÐ Dómsmálaráðuneyti Ofbeldi gegn konum og börnum kannað DÓMSMÁLARÁÐHERRA hefur, í samræmi við ályktun Alþingis frá maí sl., skipað nefnd til að kanna orsakir, umfang og afleiðingar heim- ilisofbeldis og annars ofbeldis gegn konum og börnum. Annað verkefni nefndarinnar er að gera skýrslu, að beiðni Alþingis, um ofbeldisverk barna og ungmenna. Nefndina skipa Símon Sigvalda- son, lögfræðingur og formaður nefndarinnar, Áshildur Bragadóttir, stjómmálafræðingur, Guðrún Ág- ústsdóttir, Helgi Gunnlaugsson, lekt- or, Hildigunnur Ólafsdóttir, afbrota- fræðingur, Karl Steinar Valsson, af- brotafræðingur, og Pálína Ásgeirs- dóttir, deildarstjóri. Ritari nefndarinnar er Þórdís Bjamadóttir, félagsfræðingur og starfsmaður Rannsóknarstofnunar uppeldis- og menntamála. Ákveðið hefur verið að stofnunin vinni að ákveðnum verkefnum fyrir nefndina samkvæmt nánara samkomulagi. ----------♦ ♦ ♦---- Nútímasamskipti Tölvunefnd stefnt FYRIRTÆKIÐ Nútímasamskipti hefur stefnt Tölvunefnd fyrir Hér- aðsdóm Reykjavíkur til að ógilda úrskurð nefndarinnar frá 1. þessa mánaðar um að fyrirtækinu sé skylt að eyða bók um 14.000 hæstu út- svarsgreiðendur í Reykjavík og frum- gögnum. I fréttatilkynningu segir að í fram- haldi af stefnunni hlíti fyrirtækið ekki fyrrgreindum úrskurði en sölu bókarinnar verði hætt þar til dómur hafi fallið í málinu. „Þótt niðurstaða Héraðsdóms verði okkur í hag þá hefur tölvu- nefnd með framferði sínu skaðað fyrirtæki okkar stórlega og náð að hefta útgáfu þessarar bókar, því að þegar úrskurður dómsins verður birt- ur þá eru þessar upplýsingar orðnar úreltar og ekki lengur söluvara," segir í fréttatilkynningunni. -----♦ ♦ ♦ Athugasemd ÞAÐ ER ekki rétt, sem gefið er í skyn í grein í Morgunblaðinu sl. laugardag, að ég hafi á vegum formanna þingflokkanna tekið þátt í að semja frumvarp að mannrétt- indakafla stjómarskrárinnar. Jón Steinar Gunnlaugsson, hrl. Ólafur G. Einarsson í umræðum á Alþingi um kaup íslenska útvarpsfélagsins á hlut í DV Lög'gjöf um samruna fjöhniðla ekki útilokuð ÓLAFUR G. Einarsson mennta- málaráðherra útilokar ekki að sett verði sérstök lög um samruna ís- lenskra fjölmiðla, en segir þó að kaup á 35% eignarhlut íslenska útvarpsfélagsins hf. í Fijálsri fjölm- iðlun hf. gefi ekki tilefni til neinna aðgerða af hálfu stjórnvalda. Olafur Ragnar Grímsson, for- maður Alþýðubandalagsins, telur að ef hringamyndun verði í fjölmiðl- un hér á landi stefni það lýðræðis- legu eðli íslenskra fjölmiðla í hættu. Löggjöf víða erlendis Ólafur Ragnar átti frumkvæði að umræðum um þetta mál á Alþingi í tilefni af kaupum íslenska út- varpsfélagsins hf. á hlut í Frjálsri fjölmiðlun hf. Hann sagði að vald fjölmiðla hefði aukist mikið á seinni árum og það væri afar mikilvægt fyrir lýðræði í hveiju landi að fjöl- miðlakerfíð væri opið og fijálst. Hann minnti á að víða erlendis hefðu verið sett lög til að koma í veg fyrir hringamyndanir á sviði fjölmiðlunar. „Við höfum hér á borðum okkar mikla skýrslu um hringamyndun í íslensku atvinnulífi, í sjávarútvegi, í samgöngum, í tryggingafélögum og á fjölmörgum öðrum sviðum. Ef álíka hringamyndun verður í fjölmiðlum og orðið hefur á þeim sviðum atvinnulífísns, sem kennd eru við kolkrabbann og smokkfisk- inn, þá er auðvitað verið að stefna lýðræðislegu eðli íslenskrar fjölm- iðlunar í hættu,“ sagði Ólafur Ragnar. Var skoðað1992 „Ég vil benda á að árið 1992 fól ég útvarpslaganefnd að fjalla sér- staklega um það hvaða kröfur beri að gera um eignaraðild einkarek- inna ljósvakamiðla, sérstaklega með tilliti til samþjöppunar eignar- halds á þessu sviði. Niðurstaða nefndarinnar var sú að ekki væri rétt að setja strangari skilyrði um eignaraðild einkarekinna ljósvaka- miðla en gilda um aðra fjölmiðla eða atvinnufyrirtæki yfirleitt á grundvelli samkeppnislaga. Það er þó mitt mat að við verðum að skoða þessi mál í víðara sam- hengi og fylgjast vel með þróun- inni, m.a. þeirri sem á sér stað inn- an Evrópusambandsins og snertir okkur vegna aðildar okkar að Evr- ópska efnahagssvæðinu. Ég vil ekki útiloka þann möguleika að setja sérlög um samruna fjölmiðla hér á landi,“ sagði ráðherra. Jón Kristjánsson, alþingismaður og ritstjóri Tímans, sagðist telja að eðlileg samkeppni ríkti á íslensk- um fjölmiðlamarkaði þrátt fyrir umtalaða hlutabréfasölu. Eðlileg samkeppni væri tryggð meðan þeirri stefnu væri haldið að reka hér öflugt Ríkisútvarp. Fleiri þing- menn tóku undir það sjónarmið að hér þyrfti að vera áfram til öflugt Ríkisútvarp. Tillaga um ríkisdagblað Guðrún Helgadóttir, þingmaður Alþýðubandalagsins, kvaðst telja tímabært að þjóðin eignaðist dag- blað og lagði til að ríkisvaldið hæfí útgáfu dagblaðs. Þetta vildi þing- maðurinn að gert yrði „til þess að þjóðin fái upplýsingar sem má treysta, þar sem aðhald er, þar sem ekki sé gerður munur á fólki eða málefnum og hið ískalda vald pen- inganna nái ekki að stjórna málum. Einn stjómarþingmaður tók undir sjónarmið Ólafs Ragnars um að þörf væri á að setja sérstök lög um samruna fjölmiðla, en það var Guðmundur Árni Stefánsson. Aðrir stjórnarþingmenn sem tjáðu sig í umræðunum mæltu heldur gegn því að sérstök lög yrðu sett um þetta efni. I. P 5 I' » I t I I I I I h

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.