Morgunblaðið - 14.02.1995, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 14.02.1995, Blaðsíða 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 14. FEBRÚAR 1995 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Magrar en árangursríkar vikur hjá Gro Harlem Brundtland:, -----------Mo> —wmmiií Mér skal takast að komast í gegnum skráargatið ... Verjandi skipstjóra Bjarts NK telur að um prófmál verði að ræða Skipstjóri sofandi og stýrimaður við stjóra VARÐSKIPIÐ Ægir stóð togarann Bjart NK frá Neskaupstað á fímmtu- dagsmorgun að meintum ólöglegum veiðum í hólfi á utanverðu Lónsdýpi þar sem veiðar eru bannaðar frá kl. 8 að morgni til kl. 20 að kvöldi. Ákæra var gefin út á hendur skip- stjóranum og þess krafist að hann yrði dæmdur til refsingar og að sæta upptöku veiðarfæra og afla. Við þingfestingu málsins í Hér- aðsdómi Austurlands á föstudaginn óskaði skipstjórinn eftir að skipaður yrði veijandi í málið. Á það var fallist, málinu frestað og lögð fram trygging af hálfu útgerðarinnar. Skipstjórinn var sofandi meðan hið meinta refsiverða atvik átti sér stað og í ákæru kemur fram að stýrimaður hafi verið við stjórn skips og veiða á þeim tíma er hinar meintu ólöglegu veiðar fóru fram. Bjartur var að toga á kanti hólfsins og var rétt innan marka. Hlutlæg ábyrgð fær ekki staðist Gísli Baldur Garðarsson hrl. er verjandi skipstjórans og segir hann að hlutlæg ábyrgð, þ.e. ábyrgð á gjörðum annarra, sem beitt hafi verið í málum sem þessu, fái ekki staðist. Fyrir henni sé ekki fótur í landhelgislögum, hún sé í andstöðu við meginreglu löggjafarinnar, sem fram komi í hegningarlögum og lögum um meðferð opinberra mála, o g sé auk þess í andstöðu við mann- réttindasáttmála Evrópu og mann- réttindayfirlýsingu Sameinuðu þjóðanna. „Þessi regla sem ég er að tala um er þess efnis að það verði eng- inn dæmdur til refsingar nema fyr- ir verknað sem fyrir liggur klár sönnun að hann hafi framið. í þessu tilviki er öldungis ljóst að þessi skilyrði hafa ekki verið fyrir hendi. Hliðstæð mál komin til ára sinna Það er okkur líka ljóst að skip- stjórinn ber mjög ríka eftirlits- og stjórnunarskyldu og það er hugs- anlegt að koma við refsiábyrgð á verknað annars manns ef það vantar upp á að rétt hafi verið sagt til. En það er að mínu viti ekki hægt að dæma manninn á grundvelli hlutlægrar ábyrgðar á gjörðum annars manns,“ sagði Gísli. Gísli Baldur sagði að ætla mætti BREYTING verður á skipulagi sjó- birtingsveiða á neðsta svæði Ytri- Rangár á komandi hausti og er hún m.a. liður í auknum rannsóknum á sjóbirtingi í ám á Suðurlandi. Mest af sjóbirtingsveiðinni hefur farið fram á svæðinu fyrir neðan Ægissíðufoss og þá einkum á Neðra horni og Bleikjubreiðu. í október verður einungis leyfð fluguveiði á svæðinu og mönnum gert skilt að sleppa öllum fiski undir 35 sentimetr- um. Slíkt hefur verið gert með góðum árangri á urriðasvæðunum í Laxá í Þingeyjarsýslu. Þá verður leyfð sérstök vorveiði í Ytri-Rangá og verður hún undir eftir- liti leigutaka svæðisins, Þrastar Ell- iðasonar. Öllum fiski i vorveiðinni verður sleppt merktum og siðan verð- ur fylgst með heimtum. í fyrravor að málið yrði prófmál en tók jafn- framt fram að það væri á byijunar- stigi og ýmsa þætti þess þyrfti að skoða nánar. „Það liggja fyrir nið- urstöður úr málum sem eru hliðstæð um margt. Þær niðurstöður eru hins vegar komnar mjög til ára sinna og menn telja margir að þar hafi ekki verið gætt sem skyldi þessarar megin- reglu, sem ég gat um áðan, enda lögfesting mannréttindasáttmál- ans þá ekki orðin að veruleika enda þótt hann hafi verið að finna í laga- safni sem auglýsingu.“ var dálitlu magni af vorfiski sleppt með merkjum og veiddust þrír fiskar aftur um haustið. Þeir veiddust allir á sama svæði, rétt neðan Ægissíðu- foss. Sjóbirtingsveiði hefur sótt sig nokkuð hin seinni ár. í Rangánum varð hún 260 fiskar í fyrra, 191 fisk- ur 1993 og 340 stykki 1992. Árin 1974 og 1975 var veiðin 364 og 472 sjóbirtingar og að sögn Þrastar Ell- iðasonar má búast við því að skrán- ing afla hafi ekki verið upp á marga fiska og veiðin því allmiklu meiri. Árin eftir var veiðin slök, frá 49 í 152 fiska, allt þar til að dálítil upp- sveifla hefur verið þijú síðustu sum- ur. Dæmigerður sjóbirtingur í Rang- ánum vegur 2-3 pund, en í fyrra var stærsti fiskurinn 9 pund. Sjóbirtingsveiðar í Ytri-Rangá Auknar merkingar og friðun smáfisks Syngur með Sinfóníuhljómsveit Islands Komið að eiginmannin- um að mála Rannveig Fríða Bragadóttir RANNVEIG Fríða Bragadóttir söng- kona kemur fram á tónleikum Sinfóníu- hljómsveitar Islands í Há- skólabíói á fimmtudags- kvöld. Rannveig syngur verk breska tónskáldsins Edwards Elgars, Sjávar- myndir, en það er eitt af eftirlætisverkum hennar. Rannveig hefur dvalið hér síðustu vikur og meðal annars komið fram á tón- leikum í tónleikaröð með Jónasi Ingimundarsyni í Gerðarsafni í Kópavogi, auk þess sem fyrir dyrum standa tónleikar á Ákur- eyri, í Borgarnesi og ljóða- tónleikar í Reykjavík. „Þar mun ég m.a. syngja verk eftir Schubert og er það í fyrsta sinn sem ég þori að takast á við verk þessa snillings í svo ríkum mæli,“ sagði Rannveig. Síð- asta verkefni hennar erlendis var við Konunglegu óperuna í Brussel. - Hvenær komst þú síðast fram hér heima? „Ég kom heim í sumar og söng þá á tónleikum í Borgarleikhúsinu sem tileinkaðir voru íslenskum einsöngslögum. Eftir tónleikana var gefinn út diskurinn „Fagurt syngur svanurinn" með íslenskum einsöngslögum sem sjö söngvarar syngja með samleik Jónasar Ingi- mundarsonar. Þetta eru allt minna þekkt lög sem Jónas og fleiri hafa staðið fyrir söfnun á.“ - Hvað hefur þú ■ verið lengi eriendis? „Ég er búsett í Vín og hef ver- ið þar á tólfta ár. Það er gaman enda borgin orðin hluti af manni sjálfum en það er ekki alltaf dans á rósum að flytja til annars lands og festa þar rætur. Sérstaklega ekki eftir að börn koma til sögunn- ar. Það er öðruvísi þegar maður er enn í námi eða vinnu og hugs- ar mest um sjálfan sig. En á meðan börnin eru lítil finnur mað- ur hvað íjölskyldan er mikilvæg.“ - Hvernig er að vera með tvö lítil bdrn í stórborg? „Eftir að hafa verið í tvo mán- uði með fjölskylduna í Brussel þá fínnst mér mikill munur á hvað Vín er ágæt sem stórborg fyrir börn. Þar er mikið af góðum leik- svæðum og ágæt aðstaða. Mér fannst það ekki áður en hef skipt um skoðun. Maður lifir öðru lífi hér heima en í Vín. Veðrið til dæmis gerir það að verkum að líf- ið er öðruvísi. Þar er það þokka- legt helming ársins og lífíð færist þá meira ut- andyra. Svo er þetta stórkostleg menningar- borg með óhemju fram- boði á tónleikum, óþer- um, söfnum og leikhúsum. Þetta er virkilega yndisleg borg.“ - Fylgir fjöiskyldan þér á ferðalögum? „Við reynum að vera saman og höfum gert það en ég hef hvorki verið að ferðast mikið né langt að undanförnu. Mest farið um Þýskaland og Austurríki þessi síð- ustu þrjú ár þegar mestur tími hefur farið í að eiga og hugsa um strákana. Það hefur óhjákvæm- lega dregið úr söngnum á meðan.“ - Hvaða verkefni varst þú með í Brussel? „Ég var að syngja í Konunglegu óperunni í Brussel en hún hefur verið mjög leiðandi og áhrifamikil ► RANN VEIG Fríða Braga- dóttir er 32 ára. Eftir stúdents- próf stundaði hún nám við Tón- listarháskólann í Vín hjá Hel- enu Karusso og lauk þaðan námi 1990. Rannveig er gift Arnold Postl kennara og mynd- listarmanni. Þau eiga tvo drengi, þriggja ára og tæplega eins árs. undanfarin tíu til tólf ár. Ég tók þátt í uppfærslu á „Der Reigen“ eftir belgíska tónskáldið Philippe Boesmans. Þetta er hirðskáld Belga en verkið fjallar um sam- band konu og manns í ýmsum myndum og er mjög áhugavert og sérstakt. Einskonar keðja þar sem eitt par kemur fram í hveiju atriði. Upphaflega er þetta leikrit en er samt fullgild ópera og gerir miklar kröfur til söngvaranna. Það má segja að þetta séu leikandi söngvarar og tónlistin er mjög aðgengileg áheymar. Þetta er ekki tónmál sem áheyrendur eiga erfitt með að meðtaka. Verkið var fyrst sýnt árið 1993 en tekið upp aftur og var mjög vel tekið af öllum gagnrýnendum. Sýningin vakti mikla athygli í París en þangað var farið með þijár sýningar.“ - Er mikil samkeppni meðal söngvara? „Það er gífurleg samkeppni en nokkuð misjöfn eftir röddum og þá mest finnst mér hjá kvenrödd- um. Þetta breyttist mjög mikið eftir að opnaðist til austurs og söngvarar frá austantjaldslöndun- um fóru að flæða yfir til Mið- og Vestur-Evrópu. Þetta eru söngvarar sem syngja fyrir sáralítið kaup og hafa jafnvel undirboðið okkur sem fyrir voru. Svo má ekki gleyma „krepp- unni“ í Evrópu undanfarin tvö til þijú ár. Eftir sameiningu Þýska- lands hefur verið mikill niður- skurður í menningarmálum. Flest óperuhúsin eru í Þýskalandi og þar er verið að spara, segja upp fólki og loka húsum.“ - Hvað tekur við þegar þið far- ið héðan? „Það er ýmislegt í bígerð en ekkert ákveðið. Mest verð ég að einbeita mér að börnunum mínum. Maðurinn minn hefur hingað til verið í bameignarfríi til að gera mér kleift að halda áfram að syngja. Nú finnst mér vera komið að honum að fá að mála.“ Undirboð söngvara frá A-Evrópu
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.