Morgunblaðið - 14.02.1995, Síða 10

Morgunblaðið - 14.02.1995, Síða 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 14. FEBRÚAR 1995 FRETTIR MORGUNBLAÐIÐ Framsókn klofnar á Vestfjörðum Pétur Bjarnason ákveður framboð PÉTUR Bjamason. alþingismaður Framsóknarflokksins á Vestfjörð- um, hefur ákveðið að fara í sér- framboð. Bíður hann eftir endan- legu svari Iandstjórnar Fram- sóknarflokksins vegna óskar hans um að framboðið verði undir merkjum flokksins sem BB-listi, en býst ekki við jákvæðu svari. Telur hann allar líkur benda til að listinn verði óháður. Pétur var í öðru sæti á lista Framsóknarflokksins við tvennar síðustu kosningar og hefur verið varaþingmaður Ólafs Þ. Þórðarson- ar sem er í veikindaleyfi frá þing- störfum. Hann sóttist eftir efsta sæti á listanum í prófkjöri, en hafn- aði í öðru sæti, á eftir Gunnlaugi M. Sigmundssyni, framkvæmda- stjóra úr Reykjavík, og hafnaði síð- an sæti á framboðslistanum. Fasteignamiðlun Siguröur Óskarsson lögg.fasteigna- og skipasali Suðurlandsbraut 16,108 Reykjavík SÍMAR 588-0150 og 588-0140 Seljendur athugið! Hef kaupanda að 3ja-4ra herb. íb. í Hlíöum, Túnum eða Teigum. Hef kaupanda aS 2ja-3ja herb. íb. í vesturbæ. Hef kaupanda að raðhúsi eða einbýli í Fossvogi eða Laugarnesi. Hef kaupanda að einbýli eða raðhúsi í Bústaðahverfi eða Sundunum. Hringið og við skráum samdægurs. Framsóknarmenn og fleiri Pétur segir að margir þeirra sem standa með honum að undirbúningi framboðsins séu upphaflega fram- sóknarmenn og til viðbótar komi ýmisir samheijar úr öðrum störfum hans fyrir kjördæmið og séu sumir þeirra tengdir öðrum flokkum en aðrir óflokksbundnir. Meðal þeirra manna sem taka þátt í framboðinu með Pétri eru að hans sögn Magnús Reynir Guð- mundsson, framkvæmdastjóri á ísafirði, Gunnlaugur Finnsson frá Hvilft, fyrrverandi alþingismaður Framsóknarflokksins, Guðmundur Hagalínsson, bóndi á Ingjaldss- andi, Vigfús Geirdal, kennslufull- trúi á ísafirði, Hannes Friðriksson, kaupmaður á Bíldudal, Inga Ósk Jónsdóttir, formaður Framsóknar- félags ísfirðinga, og Konráð Eg- gertsson, hrefnuveiðimaður á Isafirði. Pétur segir að sérframboð hans muni setja á oddinn þau málefni sem tengjast mest héruðum kjör- dæmisins og nefndir fyrst at- vinnumálin og þó sérstaklega sjávarútvegsmálin. Bendir á að útgerðarmynstrið í kjördæminu hafi mjög breyst, með því að toga- raútgerð hafi lagst af á mörgum stöðum. Atvinna á mörgum stöðum byggist á krókabátum og litlum aflamarksbátum. Því vilji hann skoða leiðir til að efla þann þátt. Aðspurður um það hvað greini hann frá Framsóknarflokknum og öðrum stjórnmálaflokkum segir Pétur, að í raun hafi ekki orðið vart mikils áherslumunar milli flokkanna í þessum efnum. Þá nefnir hann einnig áfram- haldandi þróun ferðamannaþjón- ustunnar á Vestfjörðum og skóla- og menningarmál sem hafi lengi verið hans áhugamál. Til sölu raðhús Hef til sölu einnar hæðar endaraðhús, 175 fm, með bílskúr. Húsið er frágengið utan með útídyrahurðum. Ófrágengið innan með frágenginni miðstöð. Öll heim- æðagjöld greidd. Rafmagnstafla er komin. Húsið er á einum fegursta útsýnisstað í Grafarvogi. Til afhendingar strax. Verð 8.900.000. Upplýsingar hjá Hauki Péturssyni í símum 35070 og 621867. f)4A rn f)A f)lf\ LÁRUS Þ. VALDIMARSSON, framkvæmdastjori L I I 0U"fc I 01 U KRISTJÁN KRISTJÁNSSON, loggiltur fasteignasali Til sýnis og sölu m.a. eigna: Vinsæll staður - hagkvæm skipti Sérhæð 4ra herb. tæpir 110 fm nettó m/rúmg. bílskúr á vinsælum stað í Hlíðunum. Hagkvæm skipti á 3ja herb. góðri íb. í Hafnarfirði á 1. hæð, helst m. bílskúr. Meistaravellir - Hjarðarhagi Góðar 3ja og 4ra herb. íbúðir. Vinsamlegast leitið nánari uppl. Neðra-Breiðholt - góð fbúð - gott lán í suðurenda 3ja herb. íb. um 70 fm. Laus fljótlega. 40 ára húsnlán kr. 3,3 millj. Frábær greiðslukjör. Tilboð óskast. Helst í gamla bænum - hagkvæm skipti Leitum að 2ja herb. íb. í skiptum fyrir rúmg. 3ja herb. íb. á 3. hæð í reisulegu steinh. í gamla góða austurbænum. Uppl. á skrifst. Lítil, ódýr sérhæð í gamla góða vesturbænum, 3ja herb. Allt sér. Mikið útsýni. Tilboð óskast. Hentar m.a. þeim sem hafa gæludýr/hund. • • • Sér neðri hæð óskast íVogunum eða nágrenni í skiptum fyrir glæsil. einbhús íVogunum. ALMENNA FASTEIGHASAIAH LAUGAVEGi18SIMAR2Íl5^1370 Borun lok- ið á Öl- kelduhálsi BORUN er nú lokið á rannsóknar- holu fyrir Hitaveitu Reykjavíkur á Ölkeldusvæði milli Hveragerðis og Nesjavalla, en borun þar hófst í byij- un desember og náðist að bora niður á 1.035 metra dýpi. Fyrir jól var lokið við að fóðra holuna í 781 m. Eftir að borun hófst að nýju eftir áramótin opnaðist fljót- lega vatnsæð í holunni og við áfram- haldandi borun tapaðist allt skolvatn á um 820-830 m dýpi. Þegar komið var á um 1.019 m dýpi kom svo hrun í holuna og vart varð við festu á borstreng, en hrunið var mulið og náðist að bora niður í 1.035 m þótt áfram hrundi í holuna. Holan var þá hitamæld og kom þá í ljós að vatnsæðin á 820 metra dýpi var vel opin og var holan kæld niður að henni, og einnig komu í ljós fleiri æðar á meira dýpi. Ákveðið hefur verið að geyma megnið af bornum á staðnum til vors þegar betur hentar til flutn- inga, en þá er og möguleiki á að reyna frekari boranir ef niðurstaða af þeim æðum sem hafa verið opn- aðar eru ekki góðar. Blástursbúnaði verður nú komið fyrir við holuna og er stefnt að því að hægt verði að láta hana blása í eina til tvær vikur áður en snjóa tekur upp. ----» » 4--- Morgunblaoiö/bvernr Fimm djáknar vígðir til þjónustu BISKUP íslands vigði á sunnu- dag fimm djákna og einn prest til þjónustu í íslensku þjóðkirkj- unni, en þetta er í fyrsta skipti sem djáknar, sem numið hafa við Háskóla íslands, eru vigðir til þjónustu hér. Á annarri myndinni er hópur- inn sem vígðist ásamt biskupnum yfir íslandi, herra Ólafi Skúla- syni, og vígsluvottum, en hin myndin er af Kristínu Bögeskov, einum djáknanna sem vígðist, og syni hennar, séra Krisljáni Björnssyni, sem var vigsluvottur hennar, og herra Ólafi Skúlasyni. Andlát LEÓ ÁRNASON FRÁ VÍKUM Selfoss. Morgunblaðið. LEÓ Ámason frá Vikum á Skaga í Austur-Húnavatns- sýslu lést á laugar- dag, 11. febrúar, á Sjúkrahúsi Suður- lands. Hann var fæddur 27. júní 1912 og var því 83 ára að aldri. Hann var sjöundi í hópi tíu systkina, sonur hjónanna Árna Antons Guð- mundssonar, Bjarnasonar bónda í Víkum og Önnu Lilju Tómasdóttur, Markússonar. Leó lauk prófi í húsasmíðum frá Iðnskóla Akureyrar og varð meist- ari í þeirri iðn 1943. Leó var mikill athafnamaður, var framkvæmda- stjóri verslunar í Reykja- vík að Laugavegi 38 og stofnaði pijónastofu sem hann rak í í Hveragerði. Hann reisti fjölda húsa, rak ísbúðina ísborg og stofnaði saltfiskverkun á Selfossi. Leó var tvíkvæntur, fyrri kona hans var Val- gerður Austmar Sigurð- ardóttir. Með henni átti hann tvær dætur. Seinni kona hans var Herdís Jónsdóttir og áttu þau sex börn. Leó tók sér nafnið Ljón norðursins sem nafn lista- og framkvæmdamannsins. Hann hélt fjölda sýninga á málverkum sínum og ljóðum. Eftir hann .liggur fjöldi mynda og ljóða. Fæðingardeild Landspítala Engar sérstak- ar ráðstafnir UNGBÖRN á fæðingardeild Land- spítalans eru ekki hjá mæðrunum í almennum heimsóknartímum. Þau eru höfð saman í herbergi og er starfsfólk ávallt þar til staðar. Á undanförnum mánuðum hefur tveimur nýfæddum börnum vgrið rænt af sjúkrahúsum í Englandi. Engar sérstakar öryggisráðstaf- anir vegna nýfæddra barna eru gerð- ar á fæðingardeild Landspítalans, að sögn Guðrúnar Bjargar Sig- urbjörnsdóttur hjúkrunarfram- kvæmdastjóra. „Börnin eru að öllu jöfnu hjá móðurinni nema í heim- sóknartímanum,“ sagði hún. Utan heimsóknartíma er eitthvað um utanaðkomandi umgang um deild- ina, en síðdegis og á kvöldin er deild- inni læst með öryggislæsingu. Guðrún sagði að starfsfólk hefði atburðina í Bretlandi í huga, en eng- in sérstök skoðun hafi farið fram á öryggismálum deildarinnar. „Við munum að ræða þetta,“ sagði hún.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.