Morgunblaðið - 14.02.1995, Side 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 14. FEBRÚAR 1995
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Trúnaðarmannaráð V erkalýðsfélagsins Einingar
Veitt heimild til að
boða til verkfalls
Á FÉLAGSFUNDUM sem haldnir
voru í öllum deildum Verkalýðsfé-
lagsins Einingar í Eyjafirði um
helgina var samþykkt að veita trún-
aðarmannaráði félagsins heimild til
að boða vinnustöðvun, hvort sem
er allsheijarvinnustöðvun, eða í
ákveðinni starfsgrein, hjá ákveðnu
fyrirtæki til að ýta eftir gerð nýrra
kjarasamninga.
Alls tóku 216 manns þátt í at-
kvæðagreislunni í fimm félögum í
Eyjafírði, á Akureyri, Grenivík,
Ólafsfirði, Dalvík og Hrísey en
fundir voru haldnir í öllum deildum
á laugardag og sunnudag.
Atkvæðagreiðslan fór þannig að
181 sagði já, eða 83,8%, nei sögðu
34 eða 15,7% og einn seðill var
auður.
Samstaða ríkjandi
Bjöm Snæbjörnsson formaður s
Einingar sagði að áberandi hefði
verið að yngra fólk sótti fundina,
greinilegt væri að það léti sig þessi
mál mjög varða. Sagði Bjöm að
mikil samstaða hefði verið ríkjandi
meðal fundargesta, fólk væri tilbúið
í verkfall ef þörf krefði.
Verkfall þarf að boða með 7
sólarhringa fyrirvara, en Björn
sagði að tekið yrði mið af stöðu
annarra félaga innan Verka-
mannasambandsins áður en það
yrði boðað. Heimildin væri fyrir
hendi og vonandi hefði það áhrif í
þá átt að flýta gerð nýrra kjara-
samninga.
Tvísýn staða
Björn sagði stöðu í kjarasamn-
ingaviðræðum tvísýna, „það miðar
löturhægt," sagði formaður Eining-
ar.
^ Morgunblaðið/Rúnar Þór
A vélskíðum
ENN er langt í að fólk geti þeyst
um spegilsléttan Pollinn á sjó-
skíðum, en parið á myndinni
ætlar greinilega ekki að láta það
á sig fá og því er það sem hendi
er næst nýtt til hins ítrasta. Sjálf-
sagt er ekkert verra að láta vél-
sleðann draga sig um ísilagðar
tjarnir á skiðunum, svona til að
hita upp fyrir sumarið.
Innbrot í 7 versl-
anir í Krónunni
Morgunblaðið/Rúnar Þór
BROTIST var inn í sjö verslanir í verslunarmiðstöðinni Krónunni,
en þjófarnir sem greinilega voru eingöngu að leita að peningum
höfðu Iítið upp úr krafsinu.
Stofnun leik- og
sérskóla í bígerð
BROTIST var inn í sjö verslanir í
verslunarmiðstöðinni Krónunni við
Hafnarstræti 97 á Akureyri, pening-
um stolið og nokkrar skemmdir unn-
ar. Samkvæmt upplýsingum rann-
sóknarlögreglu sem annast rann-
sókn innbrotsins í Krónuna var farið
inn bakatil í húsinu, frá Gilsbakka-
vegi og farið niður allar hæðirnar
en verslanir eru á tveimur neðstu
hæðum hússins. Brotist var inn í
húsið á sunnudag eða aðfaranótt
mánudags að sögn lögreglu.
Innbrot í sjö verslanir
Þeir sem að verki voru fóru inn
í sjö verslanir, Snyrtihúsið Töru,
tískuverslunina Funky, Sápubúðina,
ísabellu, Aladín, Zóló og Káta
krakka. Nokkrar skemmdir voru
unnar við innbrotin, en rúður voru
brotnar í hverri verslun til að kom-
ast inn. Greinilegt var að þjófar voru
á höttunum eftir peningum, því engu
öðru var stolið. Ekki var að fullu
ljóst í gær hversu mikið þeir höfðu
upp úr krafsinu, að sögn rannsókn-
arlögreglu.
„Það er greinilegt að þeir sem hér
FRAMBOÐSLISTI Þjóðvaka í
Norðurlandskjördæmi eystra við
Alþingiskosningar 1995 var sam-
þykktur á kjördæmisfundi um helg-
ina.
I fyrsta sæti er Svanfríður Inga
Jónasdóttir, forseti bæjarstjómar
Dalvíkur, í öðru sæti Vilhjálmur
Ingi Árnason, formaður Neytenda-
félags Akureyrar, Magnús Aðai-
björnsson, aðstoðarskólastjóri, Ak-
ureyri, í þriðja sæti, Helga Kristins-
dóttir, bankastarfsmaður, Húsavík,
í þriðja sæti, Árni Gylfason, verka-
voru á ferðinni voru eingöngu að
leita að peningum," sagði Kristín
Krietjánsdóttir í snyrtivöruverslun-
inni ísabellu. Hún sagði að rúður
hefðu verið brotnar í öllum hurðum
verslananna og peningakassar
spenntir upp. Flestir voru einungis
með skiptimynt í kössunum og því
taldi Kristín að litlu hefði verið stolið.
Engar þjófavarnir
„Við verðum að teljast heppinn,
það hefði verið hægt að rústa öllu
hér á skömmu tíma, en sem betur
fer var það ekki gert,“ sagði Krist-
ín. Hún sagði að engin vakt hefði
verið í húsinu og ekkért þjófavarna-
kerfí. „Það er nú einhvern veginn
svo með okkur íslendinga að við
bregðumst ekki við fyrr en hlutirnir
hafa gerst, við höfum sjálfsagt talið
þetta nokkuð öruggt, að hafa marg-
ar verslanir á sama stað. Við höfum
gantast með það að þetta sé líklega
eina verslunarmiðstöðin í heimi sem
ekki er með þak, enda var það svo
að þessir óboðnu gestir komu að
ofan, þeir fóru inn frá Gilsbakkaveg-
inum og komu niður,“ sagði Kristín.
maður, Raufarhöfn, í fimmta sæti,
Jórunn Jóhannesdóttir, leikskóla-
kennari, Akureyri, í sjötta sæti,
Sæmundur Pálsson, forstöðumaður,
Akureyri, í sjöunda sæti, Ingibjörg
S. Egilsdóttir, sjúkarliði og bóndi,
Reykjadal, í áttunda, Gunnar R.
Kristinsson, stýrimaður, Ólafsfirði,
í níunda, Jón Benonýsson, múrara-
meistari, Reykjadal, í tíunda sæti,
Ásdís Árnadóttir, sölustjóri, Akur-
eyri, í ellefta sæti og Hannes Örn
Blandon, sóknarprestur, Eyjafjarð-
arsveit, er í tólfta sæti.
B YGGIN G ANEFND Akur-
eyrarbæjar hefur tekið jákvætt í
erindi frá Guðnýju Önnu Annas-
dóttur þar sem hún spyrst fyrir
um hvort leyfi nefndarinnar feng-
ist fyrir því að breyta húsinu núm-
er 1 við Móasíðu og reka þar leik-
skóla. Þá tók nefndin einnig ják-
vætt í erindi Guðnýjar Önnu um
leyfi til að reka sérskóla fyrir 5
EIGANDI fólksbifreiðar á Dalvík
komst að raun um að ekki er með
öllu óhætt að skilja bíla sína eftir
í gangi þó aðeins eigi að bregða sér
frá stutta stund.
Eigandi umrædds bíls skildi hann
eftir mannlausan og í gangi fyrir
utan Sæluhúsið á Dalvík aðfaranótt
laugardags, en innan dyra skemmtu
menn sér á þorrablóti af miklum
móð.
ára börn í austurhluta félagsheim-
ilis Þórs, Hamri við Skarðshlíð.
Á sama fundi bygginganefndar
var tekið fyrir erindi frá Pétri
Bjarnasyni þar sem sótt var um
lóð austan gatnamóta Glerárgötu
og Strandgötu til að byija á um
300 fermétra hús fyrir veitinga-
rekstur, en nefndin gat ekki orðið
við því erindi.
Leiði virðist þó hafa sótt að
tveimur gestanna sem gripu bifreið-
ina mannlausu traustataki og óku
upp í Svarfaðardal.
Misstu þeir bifreiðina út af vegin-
urn og á ýmsu gekk meðan á öku-
ferðinni stóð, en þorrablótsgestirnir
báðir voru mikið drukknir, að sögn
rannsóknarlögreglu. Bifreiðin
komst þó í hendur eigenda án telj-
andi skemmda.
Heimili og skóli
með opið hús
Ahrif verk-
falls kenn-
ara rædd
LANDSSAMTÖKIN Heimili
og skóli verða með opið hús í
húsnæði samtakanna á Glerár-
götu 20 í kvöld, þriðjudags-
kvöldið 14. febrúar, og hefst
það kl. 20.00.
Þar verður staðan rædd
varðandi verkfallsboðun kenn-
ara og hvaða áhrif hún hefur
á börn og foreldra. Fulltrúi frá
Fræðsluskrifstofu Norður-
lands eystra og fulltrúi kenn-
ara verða á staðnum og leitast
verður við að svara fyrirspurn-
um. Foreldrar og áhugamenn
um málefni barna og unglinga
eru hvattir til að koma og
ræða málin.
Á aðalfundi Heimilis og
skóla í fyrri viku var þess kraf-
ist í ályktun að stjórnvöld geri
allt sem í þeirra valdi stendur
til að koma í veg fyrir yfirvof-
andi verkfall kennara, foreldr-
ar geti ekki sætt sig við að
lögbundinn réttur barna til
menntunar sé fótum troðinn.
Hass fannst
hjá meintum
hjólkoppa-
þjófum
FJÓRIR menn voru handtekn-
ir á Akureyri um helgina
vegna gruns um þjófnað á hjól-
koppum, en við leit í bíl þeirra
fundust tæki og tól til neyslu
fíkniefna.
Mennirnir voru færðir á lög-
reglustöðina þar sem þeir við-
urkenndu við yfirheyrslu að
hafa neytt um 15 gramma af
hassi um kvöldið. Þá viður-
kenndu þeir einnig að hafa
keypt og neytt á milli 40 og
50 gramma af hassi á síðustu
vikum.
Baráttufund-
ur kennara
KENNARAR á Norðurlandi
eystra halda baráttufund í
dag, þriðjudaginn 14. febrúar,
á Hótel Kea, Akureyri og hefst
hann kl. 17.30.
Framsögumenn verða úr
forystusveit Kennarasam-
bandsins og HÍK.
Listi Þjóðvaka á Norðurlandi eystra
Svanfríður og Vil-
hjálmur í efstu sætum
Bíl stolið á Dalvík
Þorrablótsgestir
brunuðu í sveitina