Morgunblaðið - 14.02.1995, Side 18
18 ÞRIÐJUDAGUR 14. FEBRÚAR 1995
MORGUNBLAÐIÐ
ERLEIMT
Perústjórn hyggst svara „blekkingarherferð“ Ekvador
Sækja að vígi
Ekvadormanna
Lima. Reuter.
ALBERTO Fujimori, forseti Perú, sagði að Perúmenn hefðu skotið niður
tvær herflugvélar frá Ekvador á sunnudag vegna deilu ríkjanna um frum-
skógarsvæði við landamæri þeirra. Hann bætti við að hersveitir Perú
hefðu hafið lokasókn að mikilvægu vígi Ekvadormanna á svæðinu.
aður var í Rio de Janeiro árið 1942.
Árið áður höfðu blossað upp bar-
dagar um svæðið. Stjórn Perú sendi
um 2.000 hermenn að landamærun-
um um helgina og þeir sóttu að
helsta vígi Ekvadormanna. Sóknin
hafði tafist vegna úrhellis eftir
harðar loftárásir í síðustu viku.
Áróðursstríð
Stjórnin í Perú hefur einnig í
hyggju að senda her stjómarerind-
reka, lögspekinga, háskólamanna
og blaðamanna til erlendra ríkja til
að útskýra afstöðu hennar í deil-
unni. Mennimir verða sendir til
Bandaríkjanna og landa í Evrópu
og Rómönsku Ameríku til að svara
„blekkingarherferð" Ekvador-
manna í deilunni.
Fujimori sagði að hermenn hefðu
beitt flugskeytum til að skjóta orr-
ustuþoturnar niður og bætti við að
„sem betur fer“ væri deilan ekki
komin á svo alvarlegt stig að til
bardaga kæmi milli herflugvéla.
Daginn áður hafði Fujimori við-
urkennt að þijár herflugvélar frá
Perú hefðu verið skotnar niður þeg-
ar þær hefðu ráðist á vígi Ekvador-
manna á svæðinu.
Fujimori sagði að hersveitir Perú
hefðu náð tveim mikilvægum landa-
mærastöðvum og vísaði á bug stað-
hæfíngum Ekvadormanna um að
þær væm enn á valdi þeirra.
Ríkin deila um 77 km langt
ómerkt svæði í afskekktum fjalladal
við landamærin sem voru mörkuð
samkvæmt samningi sem undirrit-
LANDAMÆRADEILA PERU OG EKVADORS
Spenna hefur skapast á hverju ári miili Perú og Ekvadors
vegna deilu ríkjanna um landamærin sem voru mörkuö sam-
kvæmt samningi þeirra áriö 1942. Perú fékk
þá næstum helming Ekvadors eftir landa-
mærastríö áriö áöur. Ecuador hafnaöi
samningnum áriö 1960 og ríkin hafa síðan
deilt um svæöi sem eru auðug
af olíu og gulli. _________________...
KO
LOM BlA
Heimildir: International Petroleum Encyclopedia /
Borderand Territorial Disputes, Longman Current Aflairs
Kosninga-
baráttan
hafín
Dregnr úr stuðn-
ingi við Balladur
EDOUARD Balladur, for-
sætisráðherra Frakklands,
hóf um helgina kosningabar-
áttu vegna forsetakosning-
anna í Frakklandi undir
slagorðinu „Trúið á Frakk-
land. A sama tima og vin-
sældir Balladurs virðast fara
dvínandi hefur fylgi Jacques
Chiracs borgarstjóra í París
vaxið hægt og bítandi. Hafa
um 20% kjósenda ákveðið að
kjósa hann í fyrri umferð-
inni, samkvæmt könnunu u.
París. Daily Telegraph.
EDOUARD Balladur forsætisráð-
herra Frakklands hóf í gær kosn-
ingabaráttu sína vegna frönsku for-
setakosninganna í apríl. Fréttaskýr-
endur segja að hugsanlega hafi vin-
sældir hans náð hámarki og merki
þess sjáist að farið sé að fjara undan
honum.
Samkvæmt skoðanakönnunum
þykir Balladur líklegastur til að ná
kjöri sem eftirmaður Francois Mit-
terrands á forsetastóli. Er það áiit
Búist við framboði
d’Estaing eða Barre
um 64% kjósenda. Þeir ætla þó ekki
allir að kjósa hann, því kannanir
sýna að einungis um 28% kjósenda
styðji hann í fyrstu umferð.
í síðustu viku kom til hatrammra
stúdentamótmæla víða um land.
Balladur gaf strax eftir og afturkall-
aði stjórnarákvörðun um breyttar
reglur um aðgang að tækniháskól-
um. Stúdentarnir mótmæltu einnig
fyrirhuguðum umbótum stjórnarinn-
ar á æðri menntun. Brenndu þeir
skýrsluna og brúður af Balladur og
Charles Pasqua innanríkisráðherra.
Fyrir ári gaf Balladur einnig eftir
og féll frá áformum sínum um sér-
stök lágmarkslaun fyrir nýútskrifað
háskólafóik. Stúdentar töldu að um
tilraun til þess að misnota þá og
„festa í þrældóm" væri að ræða.
Sex hljóta dauðadóm vegna strangra viðurlaga við guðlasti í Pakistan
Reutor
Eftirgjöf Balladurs í mörgum
málum er nú almennt kölluð „Ballad-
ur-leiðin“. Sjálfur segir hann þessa
leið snúast um viðræður og sættir í
stað átaka. Pólitískir andstæðingar
hans og gangrýnendur telja hana
hins vegar til marks um að hann
komist hvergi með mál, sem ágrein-
ingur kunni að vera um, hann sé
maður „kyrrstöðunnar".
Fram kom í blaðinu Le Figaro í
gær, að þungavigtarmaður úr röðum
franskra miðjumanna ætti líklega
eftir að taka þátt í slagnum um for-
setastarfið. Þar var sagt, að bæði
Valery Giscard d’Estaing fyrrver-
andi forseti og Raymond Barre fyrr-
verandi forsætisráðherra „íhuguðu
alvarlega“ að bjóða sig fram.
Unglingur dæmdur til dauða
VEGNA hinna ströngu viðurlaga
við guðlasti í Pakistan, hefur íjórt-
án ára kristinn unglingspiltur,
Salamat Masih, verið dæmdur til
dauða ásamt öðrum manni, Re-
hmat Masih. Undirréttur fann þá
í síðustu viku seka um að hafa
skrifað háðuglegar athugasemdir
um Múhameð spámann á veggi
mosku í þorpinu Phokar Pur í
norðausturhluta Pakistans.
Dómnum hefur verið áfrýjað til
hæstaréttar.
Salamat og Rehmat eru kristn-
ir. Óttast þeir mjög um Iíf sitt,
segja að jafnvel þó að þeir verði
sýknaðir vilji heittrúaðir múslimar
Múhameð spámanni. Að minnsta
kosti sex manns hafa nú þegar
verið dæmdir eftir lögunum en
engum dómanna hefur verið
framfylgt.
Mannréttindanefnd Pakistasns
hefur mótmælt lögunum í nokkur
ár en þau kveða á um algert bann
við gagnrýni á íslam og Múha-
með. Koma þau sérstaklega hart
niður á öðrum trúflokkum í Pa-
kistan svo sem kristunum mönn-
um, hindúum, pörsum, síkhum og
shítamúslimum. Dómurinn hefur
vakið upp mikla reiði, m.a. í Nor-
egi, og munu þarlend yfirvöld
mótmæla honum.
þá feiga. Þetta kom
fram í viðtali sem
blaðamaður Aften-
posten átti við þá fyr-
ir skömmu.
Þriðji maðurinn, sem
ákærður var fyrir að
skrifa á vegg mos-
kunnar, lét lífið er
skotið var á þre-
menningana í apríl á
síðasta ári. Á þeim
tíma sem liðinn er frá
því að þeir voru hand-
teknir, hafa Salamat
og Rehmat verið í
felum og skipt um
Salamat Masih
felustað tíunda hvern
dag. Var ströng ör-
yggisgæsla við rétt-
arhöldin yfir þeim,
þar sem heittrúar-
menn höfðu hótað að
hengja þá án dóms
og laga.
Sex dauðadómar
Viðurlög við guðl-
asti eru geysiströng.
I síðasta mánuði voru
tveir shíta-múslimar
dæmdir til dauða fyr-
ir að hafa tekið ljós-
rit af teikningu af
Boesak
ekki til SÞ
SÉRA Allan
Boesak hætti
í gær við að
gerast sendi-
herra Suður-
Afríku hjá
Sameinuðu
þjóðunum í
Genf. Boesak er sakaður um
að hafa misnotað fé úr sjóðum
sem vera átti til styrktar þeim
sem liðið höfðu fyrir aðskiln-
aðarstefnuna í Suður-Afríku,
Rannsókn á
getuleysi
BRESKIR vísindamenn ýttu í
gær úr vör 18 mánaða rann-
sókn á félagslegum, fjárhags-
legum og læknisfræðilegum
afleiðingum getuleysis, sem
þeir segja að hrjái allt að 45%
karla. Aætla þeir að árið 2000
muni um 47 milljónir karla um
heim allan þjást af getuleysi,
þar af 15,5 milljónir í Evrópu.
Eiturlyfja-
markaði í
Zttrich lokað
SVISSNESKA lögreglan til-
kynnti í gær að hún hygðist
loka stærsta eiturlyfjamarkað-
inum í Zíirich. Allt að 3.000
eiturlyfjaneytendur safnast
saman við Letten-brautarstöð-
ina til að selja og kaupa eitur-
lyf og hefur verið fjölgað í lög-
regluliði borgarinnar og
byggður fjöldi fangelsa til að
takast á við vandann.
Styðja ekki
þjóðarat-
kvæði
TALSMAÐUR breska verka-
mannaflokksins sagði í gær
að flokkurinn myndi ekki
hvetja þingmenn sína til að
styðja tillögu fijálslyndra
demókrata um þjóðaratkvæða-
greiðslu um málefni Evrópu-
sambandsins. Er nú talið að
tillagan verði felld, jafnvel þó
að nokkrir þingmenn Ihalds-
flokksins muni greiða atkvæði
með henni.
Winnie tekur
orð sín aftur
BÚIST var við því í gær að
Winnie Mandela, fyrrverandi
eiginkona Nelsons Mandela,
forseta Suður-Afríku, myndi
taka aftur orð sín um ríkis-
stjórn landsins. Sagði Winnie
að svo virtist sem meiri áhersla
væri lögð á hafa hvíta minni-
hlutann góðan en að veita
blökkumönnum aðstoð.
Gingrich ekki
fram
NEWT Gingrich, forseti full-
trúadeildar Bandaríkjaþings,
lýsti því yfír í gær að hann
myndi ekki bjóða sig fram í
forsetakosningunum sem
verða á næsta ári. Stuðnings-
menn hans hafa lagt hart að
honum að fara fram en
Gingrich sagðist myndu sitja
áfram á þingi til að fylgja
áætlun repúblikana, „Samn-
ingi við þjóðina“ eftir.