Morgunblaðið - 14.02.1995, Qupperneq 32
32 ÞRIÐJUDAGUR 14. FEBRÚAR 1995
MORGUNBLAÐIÐ
STOFNAÐ 1913
ÚTGEFANDI: Árvakur hf., Reykjavík.
FRAMKVÆMDASTJÓRI: Haraldur Sveinsson.
RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
SAMSTAÐAISTAÐ
ÁTAKA
HOLLA LEXIU fyrir aðila vinnumarkaðarins og stjórn-
völd mátti sjá í viðtali við sænska hagfræðiprófess-
orinn Johan Myhrman í Morgunblaðinu sl. sunnudag.
Hann flallaði þar m.a. um breytinguna, sem varð á vinnu-
markaði í Svíþjóð á áttunda áratugnum og leiddi til efna-
hagserfiðleika og gjaldþrots velferðarkerfisins þar í landi.
Þar kemur fram, að sænskt atvinnulíf var undirlagt
af verkföllum framan af öldinni. Ástandið varð til þess,
að fulltrúar sænskra atvinnurekenda og launþega komu
saman í Saltsjöbad 1938 og ákváðu að forðast verkföll,
svo og að fá stjórnvöld til að láta af afskiptum af kjara-
samningum.
Myhrman segir, að upp úr þessu samkomulagi hafi
sprottið jákvæð samvinna, sem leiddi til stöðugs atvinnu-
lífs og þar með hagvaictar. Gott og náið samstarf verka-
lýðsleiðtoga og atvinnurekenda hafi þýtt ábyrga kjara-
samninga allt fram á áttunda áratuginn. Jafnvægi hafi
verið milli kostnaðar og tekna. Þetta hafi breytzt á átt-
unda áratugnum og jafnvægið skekkzt á vinnumarkaði,
þar sem stjórn jafnaðarmanna hafi dyggilega stutt
sænska Alþýðusambandið, sem þar með hafi orðið sterk-
ari aðilinn. Ríkisstjórnin hafi gripið inn í kjarasamninga
með lagasetningu. Þetta hafi reynzt þjóðarbúinu dýrt til
lengdar. Svo hafi verið komið í einu ríkasta landi heims,
að ríkið hafi orðið að bjarga bankakerfinu frá gjald-
þroti, iðnaðurinn hafi staðnað og atvinnuleysi dunið yf-
ir. Ríkið hafi ekki endalaust getað tekið við þeim sem
misstu vinnuna. Gripið hafi verið til ríkisstyrkja við fyrir-
tæki til að tryggja atvinnu. Þar með hafi framleiðslan
orðið óarðbær og ósamkeppnishæf.
íslendingar þekkja þessa lýsingu af biturri reynslu.
Hún var hvatinn að þeim þáttaskilum, sem urðu í efna-
hagsþróun hér á landi í febrúar 1990. Verkalýðsforustan
og vinnuveitendur tóku þá höndum saman um þjóðarsátt-
ina. Ástæðan var svipuð og í Svíþjóð 1938. Þjóðarsáttin
bar ríkulegri ávöxt en flestir þorðu að vona.
I kjaraviðræðunum nú er sem fyrr nauðsyn á sam-
stöðu aðila vinnumarkaðarins um efnahagsleg markmið.
Reynsla Svía og okkar sjálfra sýnir, að samstaða er lík-
legri til að bæta kjörin en verkföll og átök.
ÚTFLUTNIN GUR
Á LYFJUM
SAMNINGUR, sem lyfjafyrirtækið Delta hf. hefur
gert um framleiðslu á hjartalyfi fyrir Þýzkalands-
markað fyrir 500-600 milljónir króna á þessu ári, hefur
að vonum vakið mikla athygli. Ljóst er, að fyrirtækið
hefur með útsjónarsemi hagnýtt sér sérstaka stöðu á
markaðnum til þess að ná þessum samningum.
Markaðsaðstæður eru þær, að framleiðandi umrædds
hjartalyfs hefur háft einkaleyfi í flestum Evrópulöndum
á lyfinu. Það einkaleyfi er nú runnið út í Þýzkalandi og
rennur út í öðrum Evrópulöndum á árinu 1997. Hins
vegar hirti frumframleiðandi lyfsins ekki um að verða
sér út um einkaleyfi hér vegna smæðar markaðarins.
Af þeim sökum hefur Delta hf. framleitt lyfið fyrir innan-
landsmarkað síðustu árin.
Vegna þeirrar reynslu hefur fyrirtækið visst forskot
á aðra aðila og hefur hagnýtt sér það til þess að tryggja
þennan myndarlega samning um framleiðslu fyrir Þýzka-
landsmarkað.
Þetta framtak vekur upp bjartsýni um, að þrátt fyrir
allt, höfum við íslendingar kannski möguleika á að hazla
okkur völl víðar en í veiðum og vinnslu sjávarafurða.
Vel má vera, að fleiri tækifæri séu fyrir hendi til þess
að ná fótfestu af því tagi, sem Delta hf. hefur náð á
lyfjamarkaðnum í Þýzkalandi auk þess, sem sú fram-
leiðsla getur hugsanlega leitt af sér aðra framleiðslu og
aukna samvinnu fyrirtækisins við erlenda aðila.
Tækifæri eins og þetta kemur ekki af sjálfu sér. Samn-
ingur Delta hf. er orðinn að veruleika vegna þess, að
forráðamenn fyrirtækisins hafa sýnt frumkvæði og hug-
kvæmni.
Svisslendingar telja snjóflóðahættu á skíðasvæc
Snj óflóðarannsó
o g eftirlit eflt stó:
I skýrslu sem Svissneska snjóflóðarannsóknar-
stofnunin vann að ósk Isafj arðarkaupstaðar,
kemur fram að miklum hluta fyrirhugaðra
-------------------r——----------------------—
skíðamannvirkja Isfírðinga á Seljalandsdal
stafar hætta af snjóflóðum samkvæmt sviss-
neskum snjóflóðastöðlum.
BÆJARSTJÓRI og forseti
bæjarstjómar á ísafirði
sögðu á fréttamannafundi í
gær að snjóflóðavamir og
eftirlit á skíðasvæði ísfírðinga verði
stórlega eflt. Jafnframt segja þeir nið-
urstöður skýrslunnar koma í fáu á
óvart. Ástæðuna fyrir því að ekki hafi
fyrr verið greint frá' efni hennar opin-
berlega segja þeir vera tafír við þýð-
ingu og harmleikinn á Súðavík.
Samkvæmt lögum um almannavam-
ir frá 1962 fer lögreglustjóri með stjóm
almannavama í sínu umdæmi. Ólafur
Helgi Kjartansson sýslumaður á
ísafírði fékk skýrsluna fyrst i hendur
eftir hádegi í gær. „Mér hefði fundist
sjálfsagt og eðlilegt að sjá þessa
skýrslu fyrr, eða fljótlega eftir að hún
var tilbúin," segir Ólafur. Hann hafði
ekki kynnt sér skýrsluna til hlítar þeg-
ar Morgunblaðið ræddi við hann og
vildi af þeim sökum bíða með að tjá
sig um hana.
Ráðherra fær skýrslu í dag
Össur Skarphéðinsson umhverfis-
ráðherra kveðst ekki hafa séð skýrsl-
una en eiga von á að hún berist honum
í hendur í dag. Hann hafí fýrst haft
pata af henni í byijun seinustu viku,
og þá hafi riQast upp að svissneskir
sérfræðingar voru kallaðir tii starfa á
seinasta ári.
„Ég heyrði í íjölmiðlum að hún var
merkt trúnaðarmál og mér skildist líka
á fréttum að bæjarfulltrúar hefðu ekki
fengið hana fýrr en nýlega, en ég hef
ekki hugmynd um hvernig á því stend-
ur,“ segir Össur.
Hann kvaðst telja að í sjálfu sér
þyrfti bæjarstjóm Isafjarðar ekki að
láta neinn fá skýrsluna. „Þeir hljóta
að hafa sínar ástæður fyrir því. “
Mikill dráttur
Helgi Hallgrímsson formaður ofan-
flóðanefndar segir að nefndin hafi ekki
vitað af skýrslunni og því ekki barið
hana augum. Hann segir miður að
frétta af henni í fjölmiðlum og eðli-
legra að hún hefði „borist með eðlileg-
um boðleiðum".
„Það er orðinn ansi mikill dráttur á
og tíminn er að verða svo langur að
eðlilegt hefði verið að við hefðum séð
hana,“ segir hann. Nefndin hafi hins
vegar vitað að ísafjarðarkaupstaður
leitaði til svissneskra ráðgjafa á sein-
asta ári. Helgi kveðst þó vænta þess
að nefndin hefði fengið skýrsluna í
hendur á einhverju stigi málsins og
nefndin muni áreiðanlega óska eftir
henni til umfjöllunar, nú þegar tilvist
hennar hefur verið gerð opinber.
Tími sá sem liðinn er sfðan henni
var skilað til verkkaupa hljóti að skýr-
ast á þann hátt að þeir hljóti að hafa
viljað melta hana vel.
„f mínum huga hefur legið fyrir að
þama er snjóflóðahættusvæði. Að
Svisslendingar myndu ekki byggja á
þessu svæði, er viðbótarviðvörun ef svo
má segja,“ segir hann.
Æskilegt að sjá skýrsiu
Stefán Thors forstöðumaður Skipu-
lags ríkisins kveðst ekki hafa séð
skýrsluna og geta því ekki tjáð sig um
innihald hennar. „Það hefði verið æski-
legt að sjá þessa skýrslu," segir Stef-
án. Hann kveðst þó telja óvíst að emb-
ættið geti gert kröfu um slíkt á núver-
ándi stigi málsins, nema að fram komi
atriði er snerti verksvið þess beinlínis.
„Ég hafði heyrt á haustmánuðum að
til væri skýrsla um þessi eða skyld
mál en það kom mér í sjálfu sér á
óvart að fýrir lægi skýrsla með þess-
ari niðurstöðu sem komið hefur fram
í fjölmiðlum."
Núverandi uppbygging á Selja-
landsdal hefur ekki komið til af-
greiðslu hjá embættinu, en umhverfis-
ráðherra heimilaði framkvæmdir þar í
fyrrai Skipulag í Tungudal er hins
vegar í meðferð þar. Samkvæmt reglu-
gerð fjallar embættið um þau bygging-
aráform sem eru ekki á áður staðfestu
skipulagi, svo sem áðumefndar fram-
kvæmdir í Tungudal.
Óheimilt er að veita byggingarleyfi
lyrir mannvirkjum þar sem snjóflóð
hafa fallið, en ekki þarf að veita sér-
stakt byggingarleyfí fyrir skíðalyftum
þar sem þeim er ekki ætlað að hýsa
fólk. „Uppbygging lyftumannvirkja er
jaðarmál hvað okkur snertir vegna
þess að ekki þarf sérstakt byggingar-
leyfí, en um leið og kemur að aðstöðu-
húsum eða þjónustumiðstöðvum verð-
um við að fjalla um áformin. Við erum
að skoða skipulagsmál á ísafirði í
stærra samhengi, það er verið að end-
urskoða hættumat fyrir allt byggðar-
lagið og þetta er eitt þeirra atriða sem
tekin verða upp,“ segir Stefán.
Snjóflóðaskýrslan er sextán síðna
löng og rituð á þýsku, dagsett 30.
október síðastliðinn og stimpluð trún-
aðarmál á ísafirði 5. janúar sl. Fullu
nafni kallast hún Möguleikar á snjó-
flóðavörnum á skíðasvæðinu á Selja-
landsdal, ísafirði, íslandi. Hún var rit-
uð að beiðni ísafjarðarkaupstaðar í
kjölfar eyðileggingar skíðsvæðis bæj-
arbúa á Seljalandsdal í snjóflóði sem
féll 5. apríl 1994.
„Inn á mesta hættusvæði"
Byijað var að reisa eina skíðalyftu
á gamla svæðinu á Seljalandsdal í
ágúst sl. og er hún á hættusvæði ef
marka má skýrsluna. Einnig er búið
að setja upp tvær lyftur við jarðganga-
munnann i Tungudal. Áætlað er að
þær verði tilbúnar til notkunar eftir
eina eða tvær vikur.
Víða í skýrslunni eru dregnar upp
dökkar lýsingar af hættum á svæðinu.
Þar segir m.a. að snjómagn það sem
féll á aðeins hálfum öðrum degi í byl,
hafi nægt til að koma af stað „gífur-
legu snjóflóði" (hinn 5. apríl sl.).
„Á sama tíma varð vart við önnur
snjóflóð. Það sýnir að snjóalög voru
óstöðug á stóru svæði. Vegna þess að
veika lagið var frekar djúpt undir
snjóalögunum hefur snjórinn verið í
lengri tíma fyrir 5.4. 1994. Það var
mikið lán að snjóflóðið skyldi falla svo
snemma morguns (kl. 5.00). Hefði
snjóflóðið fallið (af náttúrulegum völd-
um, eða af völdum skíðamanna) nokkr-
um klukkustundum eða dögum síðar,
hefðu afleiðingarnar orðið enn hræði-
legri. Það eru oft sólargeislar og mikil
hlýnun sem setur slík flóð af stað
(fyrsti góði dagurinn eftir snjóbyl).“
Það er álit svissneska sérfræðings-
ins að erfítt geti verið að sjá fyrir snjó-
flóð á stórum hluta gamla skíðasvæðis-
ins á Seljalandsdal. Hinar nýju skíða-
lyftur, og er þá væntanlega átt við
fyrirhugaðar framkvæmdir í Selja-
landsdal, séu „algerlega inni á mesta
hættusvæðinu". Því megi reikna með
að loka þurfí því í marga daga á hveij-
um vetri líkt og gerist með sambæri-
lega staði í Ölpunum. í svo miklum
halla sem er í skíðabrekkunum við ísa-
fjörð sé einnig mikil hætta á því að
skíðamenn komi snjóflóðum af stað.