Morgunblaðið - 14.02.1995, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 14.02.1995, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. FEBRÚAR 1995 33 3i ísfirðinga knir rlega Hann leggur jafnframt til að í stað toglyfta í bröttustu brekkunum komi stólalyftur með sérstyrktum staurum. Að sögn forráðamanna bæjarins verða snjóflóðarannsóknir stórefldar á j svæðinu og hefur þegar verið keyptur til þess búnaður, auk þess sem sérstök- um manni verður falið eftirlit í fjallinu. Forseti bæjarstjómar ísafjarðar og bæjarstjóri gagnrýndu ríkisútvarpið harðlega á fundinum í gær og sögðu að aðeins neikvæð atriði úr skýrslunni hefðu verið dregin fram. í skýrslunni kemur einnig fram að á nýju skíðasvæði, þar sem nú er ver- ið að byggja lyftur í Tungudal innan- verðum, sé engin hætta á snjóflóðum, en þar er talið og ráðlagt að verði meginumferð skíðamanna í framtíð- inni. Nýi skíðavegurinn sé mun örugg- ari en hinn gamli. Forseti bæjarstjórn- ar benti á að þrátt fyrir 60 ára sam- fellda notkun á skíðasvæðinu á Selja- landsdal hefði aldrei orðið slys þar sem rekja mætti til snjóflóða. Hann sagði að aðgerðir Svisslend- inga til að ná niður snjóflóðum væru okkur ofviða fjárhagslega, enda bygg- ist þær meðal annars á ýmiskonar sprengingum og notkun þyrlna. Hann sagði að í staðinn mætti hugsa sér notkun snjógrinda og annarra vind- breyta á fjöllunum til að flytja niður- komu frá viðkvæmum stöðum. Þýðingin taf ði birtingu A fréttamannafundinum í gær höfn- uðu fulltrúar bæjarins því algjörlega að þeir hefðu legið á skýrslunni, enda væri þar í rauninni ekkert nýtt og að hún hefði ekki verið gerð vegna fram- kvæmdanna á skíðasvæðinu, heldur til að átta sig á hvernig ætti að umgang- ast svæðið og hvernig mætti koma við snjóflóðavömum. Þeir sögðu að ástæða þess að skýrslan hefði ekki verið gerð opinber enn væri sú að ákveðið hefði verið að þýða hana. Skýrslan hafi borist 11. nóvember, en þýðingu hennar hefði ekki verið lokið fyrr en í byijun janúar. Hörmung- amar í Súðavík hefðu svo orðið til þess að málið dróst á langinn, þar til að hún var afhent bæjarfulltrúum sem trúnaðarmál sjöunda febrúar sl. Heilbrigðis- og trygginganefnd Al- þingis hefur um skeið undirbúið laga- breytingu í þá veru að breyta lögum um Viðlagatryggingu íslands og gera þau afturvirk, til að hægt sé að greiða Isfirðingum um 90 milljónir króna. Þeir fjármunir eiga að nýtast til að endurreisa skíðamannvirki þeirra á Seljalandsdal sem eyðilögðust í snjó- flóði er féll í apríl á seinasta ári. Þeg- ar er búið að taka skóflustungu að upphafi þeirra framkvæmda. Morgunblaðið/Sverrir grunnskóla óttast margir að hugsanlegt verk- fall kennara, sem boðað hefur verið frá og með næstkomandi föstudegi, muni geta haft verulega röskun í för með sér á námi þeirra. Blaðamaður og ljósmyndari Morgunblaðsins heimsóttu í gær skóla í Reykjavík og ræddu við nokkra nemendur. Algengt að nemendur slái slöku við vegna yfirvofandi kennaraverkfalls Nemendur óttast rösk- un skóla- starfsins Nemendur á framhaldsskólastigi og í 10. bekk LIUA Dögg Vilbergsdóttir er á öðru ári I Fjölbrautaskólanum í Ármúla og segir hún að það muni eyðileggja mikið fyrir sér ef verkfall kennara verður að veru- leika. „Maður hefur samt heyrt það hjá mörgum krakkanna að þeir verði fegnir og kannski er maður það líka svolítið sjálfur, en þetta eyðilegg- ur samt auðvitað mikið fyrir manni. Síðan það spurðist fyrst um þetta, fljótlega eftir að skólinn byijaði eftir áramótin, hefur maður ekkert nennt að læra og hugsar bara með sér að það sé að koma verkfall. Það er sagt að ef það verði verk- fall þá standi það í 1-2 mánuði og þá hætti ég í skólanum. Ég veit að það ætla margir fleiri að hætta þótt það ætli líka margir að harka þetta af sér. Maður veit hins vegar ekki neitt núna og reynir bara að halda áfrarn," sagði Lilja Dögg. Búinn að sætta sig við þetta Páll Arnar Steinarsson er á fjórðu önn í Ár- múla og segist halda að það sé algengt að krakkar í skólanum hafi slakað á í náminu síðustu vikur vegna yfirvofandi verkfalls kennara og verði ekki af því blasi við að krakkarnir verði að leggja mjög hart að sér við námið á næstu vikum. „Maður veit að kennarar hafa alveg rétt á þessu og maður skilur hvað þeir vilja og meina. Þetta hefur verið yfirvofandi síðan skólinn byijaði og maður er kannski búinn að sætta sig við þetta. Að miklu leyti út af þessu er maður ekkert búinn að leggja mjög hart að sér í náminu, en það hef- ur þó hvergi verið slakað á í kennslunni. Sumir krakkanna eru í vinnu með skólanum og ef það verður verkfall reyna þeir sennilega að fá sér meiri vinnu, og sjálfur er ég er búinn að vera að leita mér að vinnu,“ sagði hann. Kennarar verða að fá sitt „Þetta leggst auðvitað alveg hræðilega í mann,“ segir Auður Yestmann, sem á að útskrifast úr Fjölbrautaskólanum í Ármúla í vor ef allt gengur að óskum. „Þetta gæti eyðilagt mikið fyrir mér ef ég þarf að fresta því til næsta vetrar að útskrifast. Ég reyni að halda náminu áfram alveg til enda þrátt fyrir að verkfallið sé yfirvofandi, en reyndar er ég lítið í skólanum þar sem ég er bara í þremur fögum. Það er auðvitað óréttlát að þetta skuli bitna á okkur nemendunum, en þessir kennarar verða náttúrulega að fá sitt,“ sagði Auður. Allt í lagi að fá smáfrí „Þetta leggst illa í mig, en það er kannski allt í lagi að fá smáfrí í svona eina viku, en ekki miklu meira ef eitthvað ruglast," sagði Sveinn Jónasson, sem er á þriðja ári í Menntaskólanum við Sund. „Miðað við hvernig þetta gengur núna lítur út fyrir að það geti orðið langt verkfall. Það er eins og krakkarnir búist við verkfalli og þess vegna hafa þau verið slappari að læra þar sem þau sjá ekki neina ástæðu til að vera stressa sig jafn B&r III p ... : • *-T • \ í. ' jÁ. "í' ** Li(ja Dögg Vilbergsdóttir Páll Arnar Steinarsson Auður Vestmann jð ■■■gwwóoc... :ii P 'wm i ■ • ■>:’X;«h?- ' ? ■ * vl Sveinn Jónasson María Baldursdóttir Guðjón Hjörleifsson p gi miiiá" * wBBUfáT'm Wg ->V' Jósep Pétursson Signý Her- mannsdóttir Gunnar Þór Þorsteinsson mikið yfir þessu. Kennslan hefur hins vegar verið alveg eins og áður og kennararnir hugsa um þetta eins og það verði ekkert verkfall. Ég veit um fullt af fólki sem ætlar að fara að vinna ef það verður langt verkfall, en ég er ekki viss um að það séu margir sem ætla sér að hætta í skólan- um,“ sagði Sveinn. Reynum að hjálpa kennurunum María Baldursdóttir, sem er á fyrsta ári í Menntaskólanum við Sund, segist viss um að hugsanlegt verkfall kennara muni trufla mjög námið hjá henni í vetur þar sem svo geti farið að hún missi úr alveg heilt ár í náminu. „Ef þetta verður langt verkfall þá missir maður auðvitað mikið úr og það er ekkert sniðugt ef ég þarf að fara aftur á fyrsta árið næsta vetur vegna þess. Mér finnst þetta ekki hafa haft mikib áhrif ennþá, en sumir krakkanna hafa þó aðeins slakað á og orðið kærulausir, en það er samt misjafnt. Við kennum kenríurunum hins vegar alls ekki um þetta og erum að reyna að hjálpa þeim svo að þeir þurfi ekki að fara í verkfall," sagði María. Langt verkfall verulega slæmt Guðjón Hjörleifsson, nemandi í 10. bekk í Rétt- arholtsskóla, segir það verulega slæmt ef kennar- ar færu í langt verkfall og engin einkunn fengist á samræmdu prófunum. Það gæti hugsanlega þýtt að hann kæmist ekki í framhaldsskóla næsta vetur. „Ég hef ekki myndað mér neina sérstaka skoð- un á kjarabaráttu kennara, en ég veit að þeir krefjast mikillar launahækkunar. Þetta hefur ekki truflað skólastarfið eins og er og ég held að krakk- arnir séu ekkert farnir að slaka neitt á ennþá,“ sagði hann. Myndi alveg rugla sumrinu „Þetta er slæmt mál út af því að maður er í 10. bekk, en þetta væri annað ef maður væri í 9. bekk. Þá væri maður bara glaður,“ sagði Jósep Pétursson, nemandi í Réttarholtsskóla. „Ef það verður langt verkfall þá verður maður kannski að taka bekkinn aftur eða taka inntöku- próf í framhaldsskóla, en það yrði miklu erfíðara. Það verður kannski farið í sumarskóla til að vinna upp tapið og það myndi alveg rugla sumrinu. Ég er búinn að fá vinnu í físki á Akureyri í sumar og vildi helst ekki þurfa að vera í skóla í staðinn. Vonandi leysist þetta fljótt og verður ekkert mik- ið, en síðustu tvær vikumar er maður hættur að nenna að læra þar sem maður heldur að það verði verkfall,“ sagði Jósep. Alveg til í stutta pásu Signý Hermannsdóttir er í 10. bekk í Réttar- holtsskóla og sagðist hún ekki spennt fyrir því að kennarar fari í verkfall, en þó væri fínt að fá frí frá náminu í smátíma nú að nýafstöðnum próf- um. „Ég vildi alveg fá stutta pásu, kannski í nokkra daga, en maður hefur heyrt að ef verði verkfall í meira en tvær vikur þá fái maður ekki að taka samræmdu prófin. Maður er ekkert sérstaklega til í það, þar sem ég hef heyrt að þá verði maður bara metinn út frá vetrareinkunn og mætingum. Mér finnst að ríkisstjórnin ætti að fínna einhveija samningaleið og semja strax við kennara,“ sagði Signý. Gæti farið að vinna og ná í pening „Ég vil helst að það verði verkfall svo maður geti fengið frí. Þá gæti maður farið að vinna og ná sér í peninga," segir Gunnar Þór Þorsteinsson, sem er í fornámsdeild í Réttarholtsskóla, en hann hyggur jafnvel á Iðnskólanám næsta vetur. „Ég tek prófin á miðvikudaginn og ef ég næ þeim þá kemst ég kannski í framhaldsskóla næsta haust. Ég er alveg sáttur við að fá smápásu, en ef það verður ekkert verkfall þá neyðist. ég til að halda áfram í skólanum alveg fram á vor,“ sagði hann.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.