Morgunblaðið - 14.02.1995, Side 41

Morgunblaðið - 14.02.1995, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ EVA MARÝ GUNNARSDÓTTIR + Eva Marý Gunnarsdóttir fæddist í Reylgavík 26. apríl 1982. Hún lést á Landspít- alanum 19. janúar síðastliðinn og fór útför hennar fram frá Aðventkirkj- unni í Reykjavík 27. janúar. ÞAÐ ER ótrúlegt hve lífið er hverfult. Vegna syndarinnar þá eru veikindi og dauði. Sat- an gerir allt til að eyðileggja líf okkar manna og fá okkur til að snúast gegn Guði. 26. apríl 1982 fæddist lítil stúlka sem fékk nafnið Eva Marý Gunn- arsdóttir. Tíu daga gömul fór hún í uppskurð við húðkrabbameini og var í nokkur ár tíður gestur á Barnaspítala Hringsins í sýnatök- um og rannsóknum. Á næstu níu árum dundu áföllin stanslaust yfír, flutningar, veikindi foreldranna og ástvinamissir; Eva Marý missti ömmu, afa, langafa, tvær langömmur og fleira náið frænd- fólk. Hörmungarnar virtust enda- lausar, en það var sama hvað gekk á, alltaf var stutt í brosið og góða skapið. Eftir uppskurði stóð hún upp brosandi eins og ekkert hefði gerst, gott dæmi um hörku hennar og dugnað er aðgerð sem hún fór í sumarið 1993, tíndir voru úr henni nokkrir tugir sauma, þegar því var lokið sagði læknirinn: „Það er nú venjulega svæft, en af því þetta ert þú ...“ Eva Marý byrjaði fljótt að sýna hagsýni í peningamálum, hún var ekki nema fjögurra ára þegar hún fór að hjálpa til í gróðurhúsum sem við rákum. Næstu tvö árin hjálpaði hún við að sá salatfræjum í bakka, upptekt á grænmeti, tína tómata o.fl. Var þetta vinnan hennar og fékk hún smáaura fyrir. Tíu ára gömul tók hún við útburði Morgun- blaðsins af systur sinni til að geta sjálf keypt hljómtæki, sjónvarp o.fl. í sumarvinnunni, garðaþjón- ustu, var Eva Marý fljót að tileinka sér hröð og kröftug vinnubrögð ásamt systur sinni. Einnig vann hún síðastliðið sumar í kökugerð. Það var ótrúlegt hvað þessi stúlka var dugleg og atorkusöm, hún sló fullorðna fólkinu við hvað eftir annað. Frá sex ára aldri var Eva Marý nokkrar vikur á hverju sumri í sveit hjá ömmusystur sinni í Skipagerði í V-Landeyjum, en síð- asta sumar var aðeins breytt til og líka farið að Hvammi í Vatnsdal og í Vindáshlíð ásamt sumarvinnunni sem hún stundaði á milli. Eva Marý söng með Barna- kór Hallgrímskirkju einn vetur og fór með þeim t.d. til Vestmanna- eyja. Einnig stundaði hún píanó- nám. Við héldum að hún væri úr lífs- hættu en þá fór að halla undan fæti. Hendurnar fóru að dofna, verkir komu í úlnliði og axlir, svimi og miklir magaverkir voru daglegt vandamál. Skólanum varð oft að sleppa og olli það henni miklum áhyggjum, en þrátt fyrir það voru einkunnir alltaf góðar. Persónu- leikabreytingar fóru að sýna sig, skapið breyttist, en ekkert kom út úr ferðum til lækna og innlögn á sjúkrahús. Eva Marý safnaði fyrir utan- landsferð ásamt systkinum sínum og sl. haust var farið í viku til Flórída við mikinn fögnuð, en dag- inn sem komið var heim fékk hún slæman krampa sem þá var greind- ur sem þreyta, en fleiri komu í kjölfarið sem endaði síðan með innlögn á Barnaspítala Hringsins þar sem hún greindist með heila- æxli og var skorin á Borgarspíta- lanum 8. nóvember. Aðgerðin tókst mjög vel og fékk hún fljótt leyfi til að fara með okkur í verslunarferð gagngert til að kaupa húfu og föt á sig, en sem dæmi um nægjusemi Evu Marý þá keypti hún eingöngu garn í húfu og mat til að hafa hjá sér á Barnaspítalanum. Nú var andað ÞÓRUNN KRISTÍN ÞÓRHALLSDÓTTIR + Þórunn Krístin Þórhalls- dóttir fæddist á Akureyri 16. febrúar 1920. Hún lést á Egilsstaðasjúkrahúsi 6. febrúar síðastliðinn og fór útför hennar fram frá Egilsstaðakirkju 11. febrúar. TENGDAMÓÐIR mín, Þórunn Kristín Þórhallsdóttir, er látin eftir langa sjúkdómslegu. Ég kynntist Þórunni fyrir tuttugu árum þegar ég kom til Egilsstaða með unnustu minni Jenný, dóttur Þórunnar og eftirKfandi eiginmanns hennar Steinþórs Eríkssonar vélvirkja- meistara og listmálara. Þetta var um jól og að sjálfsögðu gistum við hjá þeim. Þá sá ég í fyrsta skiptið, en ekki það síðasta, þá rausn og höfðingsskap sem Þórunni var eig- inlegt að sýna gestum sínum. Ósér- hlífríí og alúð hennar kom sérstak- lega vel fram þegar hún var að gera eitthvað fyrir aðra. Þegar Þór- unn sá að ég kunni að meta góðan mat, varð ekki aftur snúið. Ekki þýddi annað en gefa sér góðan tíma til borðhalds, annað kom hreinlega ekki til greina. Stórsteikur Þórunn- ar og sósur voru algerlega sér á parti, hún var snillingur í hvers konar matargerð og gerði veislumat úr hvaða hráefni sem var. Þetta geta þeir borið um sem notið hafa gestrisni hennar og Steinþórs, og þeir eru margir. Fá hjón veit ég jafn vinmörg. í gegnum árin var heimili þeirra vinsæll án- ingarstaður. Og allir voru jafn vel- komnir hvort sem það voru nánir vinir eða kunningjafólk. Vinatal og spjall stóð þá oft langt fram yfir miðnætti. Fólk kom og fór, sumir stoppuðu stutt, aðrir í lengri tíma en enginn fór svangur eða þyrstur út. Það hefði ekki fallið innan þess ramma sem Þórunn taldi að gest- risni sinni sæmdi. Hún var i reynd stoltur fulltrúi hinnar íslensku hús- móður. Þórunn var ákaflega röggsöm kona og ákveðin. Ef hún tók eitt- hvað að sér var það klárað. Hún var fræg fyrir einstakan saumaskap sinn og þær eru ófáar flíkurnar sem hún saumaði fyrir fólk út um allt land. Sérstaklega var hún þekkt fyrir að sauma þjóðbúninga. Hún var dverghög með nál og tvinna, og natni og nákvæmni var henni eðlislæg hvort sem hún vann í lér- eft eða silki, og fara ekki margar saumakonur í sporin hennar. Staðfesta Þórunnar í grundvall- armálefnum lífsins var á traustum grunni. Skoðun hennar á málefnum líðandi stundar var byggð á heil- brigðri lífsskoðun og mátti treysta því að hún segði ekki eitt í dag og annað á morgun. Það þýddi þó ekki að hún væri ósveigjanleg í skoðun- um sínum, þvert á móti, en hún vildi fá að heyra frambærileg rök MINNINGAR léttara, en það stóð bara í nokkra daga. Hinn 21. nóvember veiktist Eva Marý mikið, var í fyrstu ekki vitað hvað var að en eftir tvær vikur í kvölum kom í ljós að sortuæxli í heila hafði breiðst hratt út. Þrátt fyrir mikil veikindi þá lét hún það ekki aftra sér frá því að kaupa jólagjafír handa fjölskyldu og vin- um, nokkrum dögum fyrir jól fór hún í hjólastól í Kringluna með ælubakkann í fanginu og morfín- tækið við hlið sér, þar sem Dísa systir hennar keyrði hana búð úr búð, en vegna hávaða í búðunum varð hún að láta keyra sig fram á gang strax og hún var búin að velja og fór Dísa síðan aftur inn að borga gjafirnar. Ekki komst hún heim um jólin, en í staðinn vorum við öll hjá henni. í lok desember komst Eva Marý með hörku og þrautseigju heim í sjúkrabíl í af- mæli pabba síns og á gamlárs- kvöld reyndi hún að gleðjast með heimilisfólkinu þótt hún væri nærri blind og sæi bara blossa þegar rakettum var skotið upp. Barðist hún með ótrúlegum kjarki og dugnaði við stanslausar höfuðkval- ir og uppköst, blindu og heyrnar- leysi til dauðadags. Ástkæra Eva Marý okkar er dáin, sofnuð svefninum langa, en von okkar og trú er að hitta hana aftur við endurkomu Drottins. „Ekki viljum vér, bræður, láta yður vera ókunnugt um þá, sem sofnaðir eru, til þess að þér séuð ekki hryggir eins og hinir, sem ekki hafa von. Því að ef vér trúum því að Jesús sé dáinn og upprisinn, þá mun Guð fyrir Jesúm leiða ásamt honum fram þá, sem sofnað- ir eru.“ (1. Þess. 4.13-14) „Því að sjálfur Drottinn mun stíga niður af himni með kalli, með höfuðengils raust og með básúnu Guðs og þeir, sem dánir eru í trú á Krist, munu fyrst upp rísa. Síðan munum vér, sem eftir lifum, verða ásamt þeim hrifnir burt í skýjum til fundar við Drottin í loftinu. Og síðan munum vér vera með Drottni alla tíma.“ (1. Þess. 4. 16-17) Kveðjum við nú yndislegu dug- legu stúlkuna okkar með sorg og söknuði og biðjum Guð um hjálp til að komast í gegnum sorgina. Mamma, pabbi og systkini. fyrir því að hún breytti skoðun sinni. Þetta og hennar stóra hjarta gerði það að verkum að álits Þór- unnar var oft leitað í viðkvæmum málum. Og víst var að ekki fleipr- aði hún með það sem henni var treyst fyrir og öðrum kom ekki við. En þótt skapfesta Þórunnar væri sterk og ákveðin, var hún fágaður húmoristi og kom fljótt auga á spaugiiegu hliðarnar á hlutunum. En aldrei varð spaugið að kerskni eða illkvitni, það samræmdist ekki lífsskoðun hennar. Fyrir kom að við ræddum um eilífðarmálin svokölluðu. Um þau var Þórunn ekki margmál, en þó skildist mér að hún væri trúuð á annað líf eftir þetta. Ég er viss um að hún hefur ekki orðið fyrir von- brigðum að því leyti. Þórunn mín, ég þakka þér fyrir allt gott _sem þú hefur gert mér og mínum. Ég veit að það hefur verið tekið vel á móti þér hinum megin af ástvinum sem farnir voru á und- an þér yfir móðuna miklu. Það er sannfæring mín að við eigum eftir að sjást aftur og ég er viss um að þú tekur vel á móti mér þegar þar að kemur. Steinþóri og dætrum Þórunnar sendi ég mínar innilegustu samúð- arkveðjur. Guð blessi minningu hennar. Sjá, nóttin er á enda, nú árdagsgeislar senda um löndin ljós og yl. í nafni náðar þinnar ég nú til iðju minnar, minn Guð, að nýju ganga vil. (H. Hálfd.) Guðm. Fr. Kristjánsson. 91 HAOíUKT'I ,H HUÖAUULSIM 0*1 ÞRIÐJUDAGUR 14. FEBRÚAR 1995 41 GRÉTAR INGIMUNDARSON + Grétar Ingimundarson fæddist í Borgarnesi 28. febrúar 1934. Hann lést á Sjúkrahúsi Akraness 27. janúar síðastliðinn og fór útför hans fram frá Borgameskirkju 3. febrúar. FÖSTUDAGSKVÖLDIÐ 27. jan- úar sl. var síðasta skiptið sem undir- ritaður sá Grétar. Var þá auðséð að stutt var til ferðar yfir móðuna miklu. Okkar kynni tengdust jafnaðar- stefnunni. Við hittumst fljótlega eft- ir 1986 á vettvangi kjördæmisráðs Alþýðuflokksins á Vesturlandi. Ljóst var að allt sem Grétar sagði var þrauthugsað og marktækt og gerði ég mér því far um að leita til hans eins og margir aðrir sem starfað hafa á vettvarigi jafnaðarstefnunn- ar. Þau ráð sem hann gaf mér hafa reynst traust og ég vona að mér auðnist að fara eftir þeirri fyrirmynd sem Grétar gaf sem jafnaðarmaður og félagi. Síðustu ár var sá sjúkdómur sem að lokum sigraði Grétar honum erf- iður, en hann ræddi ekki um það sem að honum sneri persónulega. Ég undraðist stundum hversu mikil tengsl hann virtist hafa við unga sem eldri og gæti tíundað margar ábend- ingar um fólk sem hann benti á að leggja þyrfti lið ef færi gæfist og einnig hvar gott gæti verið að leita ráða. Haustið 1993 var Grétar sér til ánægju um uppskerutímann hjá garðræktarbóndanum Sigurði Gunn- arssyni í Ási í Melasveit. Flestir sem þar voru við störf voru ungir og hefur Sigurður sagt mér frá því að aldrei hafí þurft að hvetja fólk til starfa meðan Grétar var þar því að í lok hvers kaffi- og matartíma hafi hann staðið upp og sagt sem svo: „Elskumar mínar, þetta gerir sig ekki sjálft,“ eins og vænta mátti með mildri ljúfmennsku. Meira þurfti ekki af hans hálfu til að minna fólk á skyldur sínar. Síðustu dagana sem Grétar var á Sjúkrahúsi Akraness hittumst við oft á dag vegna þess að ég var þar hjá veikri móður minni. Þó hann væri mikið veikur og ætti erfítt með mál fylgdist hann vel með öllu því sem rætt var í kringum hann og hann tjáði sig með smáorðum og stuttum setningum og lýsti þannig » skoðun sinni á umræðuefninu, m.a. hvernig vonast var til að listi okkar skipaðist á Vesturlandi og niður- stöðu prófkjörs á Reykjanesi. Sunnu- daginn 22 jan. sl. komum við saman til Grétars í heimsókn eiginkona mín og dóttir. Hann gaf þeim sitt þétta og hlýja handtak af ótrúlegum styrk, brosið og augnatillitið sagði meira en orð. Fyrir það og alla vinsemd eru hér bomar fram þakkir og kveðj- ur. Kynni mín af Ingigerði Jónsdóttur hafa ekki verið meiri en þann tíma sem við töluðum saman síðustu vik- ur. Mér er Ijóst að styrkur og stefnu- festa Ingu er með fádæmum, um- hyggjuseminni og alúðinni sem hún sýndi eiginmanni sínum verður ekki lýst hér. Þessi fátæklegu kveðjuorð eru sett á blað til að þakka fyrir góð kynni og til að bera fram samúðar- kveðjur kjördæmisráðsfundar Al- þýðuflokksins á Vesturlandi, sem haldinn var í Stykkishólmi 28. jan. sl., til fjölskyldu Grétars. Að endingu bið ég góðan Guð að styrkja þig, Inga, og fjölskyldu þína með þessum orðum. Minning um góðan dreng mun verða vel varðveitt. Gísli Einarsson. t PÁLL JÓNASSON frá Stígshúsi, Eyrarbakka, lést á Ljósheimum, Selfossi, 12. febrúar. Aðstandendur. t JÓNA REYKDAL lést í St. Jósefsspítala í Hafnarfirði þann 12. febrúar. Þórður Reykdal, Hildur Reykdal, Peter Burger, Þórhildur, Sabrina, Andrew, Cory. t Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, SIGURÐUR FINNBOGASON, Sólvallagötu 10, Keflavik, lést sunnudaginn 12. febrúar. Erna Sigurðardóttir, Sævar Sigurðsson, Díana Eiríksdóttir, Þorleifur Gestsson, barnabörn og barnabarnabörn. t Móðir mín, systir og móðursystir, GUÐJÓNA LOFTSDÓTTIR, áður Víðimel 47, Reykjavík, lést í Hafnarbúðum mánudaginn 6. febrúar. Útförin fer fram frá litlu kapellunni í Fossvogi í dag, þriðjudaginn 14. febrúar, kl. 13.30. Loftur Þór Sigurjónsson, Lovfsa Þórunn Loftsdóttir, Þórunn Edda Sigurjónsdóttir.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.