Morgunblaðið - 14.02.1995, Side 47
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 14. FEBRÚAR 1995 47
Matur og matgerð
Sykurlaust kívíkrap
______________6 kíví_____________
3 meðalstórir bananar
Válitil melóna
2 eggjahvítur
I dl hvítvín eða Vzdl eplasafi + Vzdl
sódavatn
’Atslc. rósapipar til skrauts (mó
sleppa)
1. Afhýðið kíví og banana. Takið
steina úr melónu og skafið aldin-
kjötið úr henni. Setjið allt íkvörn
(matvinnsluvél) eða blandara og
hrærið vel í sundur. Setjið í frysti í
1 klst.
2. Þeytið eggjahvíturnar, takið
ávextina úrfrystinum og blandið
eggjahvítunum varlega saman við.
Setjið aftur í frysti og látið frjósa
alveg.
3. Takiðafturúrfrystinum, sker-
ið örlítið í sundur, setjið hvítvín eða
eplasafa og sódavatn út í. Setjið í
kvörn eða blandara og hrærið laus-
lega ísundur. Hellið íglös eða
skálar, stráið rósapipar yfir og
berið strax á borð.
Kívítriffli
100 g möndlumakrónur
Vi dl sérrí eða eplasafi
6 kíví
Vanillubúðingur:
1 'A dl rjómi
1 'A dl mjólk
2 eggjarauður
________2 msk. sykur_______
______1 msk. kgrtöflumjöl__
V* tsk. vanilludropar
2 eggjahvítur
________3 msk. sykur_______
nota mó tilbúinn vanillubúðing,
heitan eða kaldan
1. Raðið makrónukökunum á
flatbotna eldfasta skál. Hellið sérríi
eða eplasafa yfir.
2. Afhýðið kíví og skerið í sneið-
ar, raðið ofan á.
3. Þeytið eggjarauður með sykri
og kartöflumjöli.
4. Hálffyllið eldhúsvaskinn af
köldu vatni.
5. Setjið mjólk og rjóma í pott
og látið sjóða.
6. Takið pottinn af hellunni,
hrærið eggjahræruna út í. Bregðið
pottinum á helluna, látið hitna að
suðu eða þar til þetta þykknar, en
það má ekki sjóða, þá skilja eggin
sig. Hrærið vel í á meðan.
7. Skellið pottinum í kalda vatn-
ið í vaskinum og hrærið í þar til
mesti hitinn er rokinn úr. Kælið
að mestu. Hellið yfir það sem er
i skálinni.
8. Þeytið eggjahvíturnar, setjið
sykurinn smám saman út í. Þeytið
þar til þetta er oröið mjög vel stíft.
Setjið yfir það sem er í skálinni.
9. Hitið bakaraofninn í 220°C,
setjið skálina í miðjan ofninn og
bakið í 5-10 mínútur eða þar til
marengsinn hefurtekið lit.
10. Berið fram heitt eða kalt.
Vegna mistaka við birtingu á
þætti Kristinar Gestsdóttur, Mat-
ur og matgerð, sl. sunnudag, birt-
ast uppskriftirnar aftur. Hlutað-
eigendur eru beðnir velvirðingar.
Glæsilegnr lokasprettur
hjá Birni og Aðalsteini
BRIDS
Hótel Loftlciöir
BRIDSHÁTÍÐ 1995
72 para tvímenningskeppni 10.-11.
febrúar.
AÐALSTEINN Jörgensen og
Björn Eysteinsson unnu tvímenn-
inginn með minnsta mun, eftir
hörkukeppni, einkum við Zia
Mahmood og Tony Forrester.
Hinir fyrrnefndu fengu 3.025
stig en Zia og Forester 3.024
stig.
Mótið hófst á föstudagskvöldið
með því að Jón Baldvin Hannib-
alsson, utanríkisráðherra, setti
mótið og bauð gesti velkomna
en þriðjungur þátttakenda voru
erlendir, flestir brá Bandaríkjun-
um. Ráðherrann sagði síðan
fyrstu sagnimar fyrir Islandsvin-
inn Zia Mahmood, sem lék á als
oddi í fyrstu lotunni og fékk um
70% skor og var langefstur ásamt
Bretanum Forrester eftir fyrsta
kvöldið með 1.214 stig.
í öðru sæti voru Tom Towns-
end og Jeffrey Allerton með
1.087 stig, Jónas P. Erlingsson
og Rúnar Magnússon voru með
1.083 stig og Grímur Amarson
og Björn Snorrason vom með
1.077 stig.
Flestir voru á því að úrslit tví-
menningsins væru ráðin en ann-
að kom á daginn. Townsend og
Allerton söxuðu jafnt og þétt á
Zia og Forrester í annarri um-
ferðinni auk þess sem íslenzku
pörin sýndu klærnar.
Morgunblaðið/Amór
SIGURVEGARARNIR í tvímenningskeppninni á Bridshátíð,
Bjöm Eysteinsson og Aðalsteinn Jörgensen.
EINHVERN tíma hefir maður nú gert betur en þetta gæti
David Berkowitz verið að hugsa þegar hann skoðar skorblað-
ið en hann varð í 28.-29. sæti í tvímenningnum ásamt félaga
sínum Larry Cohen. Milli þeirra situr Steve Weinstein en allir
þessir spilarar era meðal bestu bridsspilara Bandaríkjanna.
Staða eftir tvær lotur:
Zia Mahmood - Tony Forrester 2.099
TomTowmsend-JeffreyAllerton 2.095
Einar V. Kristjánss. - Arnar G. Hinrikss. 2.059
Guðm. Sv. Hermannss. - Helgi Jóhannss. 2.056
Jón Baldnrsson - Sævar Þorbjörnsson 2.040
Öm Amþórsson - Guðl. R. Jóhannss. 2.040
Melih Özdil — Nezih Kubaq 2.010
Þegar hér var komið vom
Björn og Aðalsteinn í 14. sæti
með 1.916 stig og sáu því aðeins
efstu sætin í hyllingum en eins
og margreynt er skiptir máli að
vera á toppnum á réttum tíma.
Aðalsteinn og Björn skoruðu
jafnt og þétt í síðustu lotunni.
Þeir komust í efsta sætið í næsts-
íðustu umferð og héldu því eins
og áður er getið með einu stigi.
Naumara gat það ekki verið en
Zia og Forrester höfðu leitt mót-
ið nær allan tímann.
Verðlaunin fyrir fyrsta sætið
vom 2.900 dalir en 2.000 dalir
fyrir annað sætið. Alls voru veitt
verðlaun fyrir 8 efstu sætin, sam-
tals 8.600 dalir.
Lokastaðan í mótinu:
Bjöm Eysteinss. - Aðalsteinn Jörgensen 3.025
Zia Mahmood - Tony Forrester 3.024
TomTownsend-JeffreyAllerton 3.004
Jón Baldursson - Sævar Þorbjörnsson 2.990
Páll Valdimarsson - Ragnar Magnússon 2.967
Jason Hackett - Justin Hackett 2.952
ÖmAmþórss.-Guðl.R.Jóhannsson 2.938 -
Guðm. Sv. Hermannss. - Helgi Jóhannss. 2.935
Melih Özdil—Nezih Kubaq 2.930
Einar V. Kristjánss. - Amar G. Hinriksson 2.923
Jón Baldursson og Sævar Þor-
björnsson spiluðu gegn Zia og
Forrester í fyrstu umferðinni.
Jóni og Sævari gekk vægast sagt
mjög illa, fengu 6 stig af 116 sem
í boði vom. Ef lokastaðan er
skoðuð sést hve örlagarík þessi
seta var fyrir þá félaga.
Keppnisstjórar vom Kristján
Hauksson, Sveinn R. Eiríksson
og Einar Guðmundsson. Hinir
fyrmefndu sáu um útreikning en
Elín Bjarnadóttir var mótsstjóri.
Arnór G. Ragnarsson.
ZIA og Forrester leiddu tvímenninginn þar til tvær umferðir voru eftir. Hér spila
þeir við Odd Hjaltason og Eirík Hjaltason.
Laufaliturinn
gaf tvo toppa
BJÖRN Eysteinsson og Aðal-
steinn Jörgensen fengu tvo toppa
í setunni gegn Bretanum Andrew
Robson og Ritu Shugart frá
Bandaríkjunum. Þetta var annað
spilið.
Vestur Norður ♦ 864 ¥864 ♦ K873 ♦ K75 Austur
♦ G953 ♦ D7
¥ KG105 ¥9732
♦ ÁDG9 ♦ 1054
♦ G ♦ G1032
Suður
♦ ÁK102
¥ÁD
♦ 62
+ ÁD864
Vestur Norður Austur Suður
Shugart A.J. Robson B.E
— — — 1 lauf
dobl 1 tígull 2 hjörtu 3 Gr/
Björn opnaði á sterku laufi og
dobl vesturs sýndi hálitina. Aðal-
steinn sýndi 5-7 punkta og það
nægði Birni til að stökkva í geim-
ið.
Eins og sést liggur spilið ekki
vel enda töpuðust 3 grönd við flest
borð þar sem þau vora reynd. En
þarna spilaði Shugart út hjarta-
tíunni eftir talsverða umhugsun
og Björn fékk fyrsta slaginn á
drottningu. Hann spilaði laufi á
kóng, og Robson lét þristinn; og
þegar Björn spilaði meira laufí
úr borði kom tvisturinn frá Rob-
son.
Birni fannst margt benda til
þess að laufið lægi illa. Fyrsta
vísbendingin var umhugsun Shug-
arts um útspilið, sem benti til
þess að hún ætti annan kost, og
þá tígul. Laufagosinn virtist því
vera blankur. 1 öðm lagi sýndi
Robson jafna tölu í laufí, en at-
vinnuspilarar em yfirleitt mjög
heiðarlegir í merkingum þegar
þeir spila við lakari spilara. Björn
ákvað að treysta þessu og lét lauf-
áttuna duga.
Þegar áttan hélt var spilið unn-
ið. Björn tók nú laufslagina sína
og Shugart henti tveimur spöðum.
Þá átti Björn fjóra slagi á spaða
og 12. slagurinn kom með því að
spila tígli á kóng.
Uppfinnmg við borðið
Bretinn Tony Forrester, sem
venjulega spilar við Robson, er
hugmyndaríkur spilari. í þessu
spili úr síðustu lotu tvímennings-
ins fann hann sögn sem fáum
öðrum hefði hugkvæmst, og fékk
toppskor fyrir.
N/AV
Norður
♦ G63
¥ G1085
♦ DG6432
+ -
Vestur Austur
♦ K42
¥ 32
♦ 9
♦ ÁK98752
♦ ÁD1087
VD96
♦ K8
♦ G103
Suður
♦ 95
VÁK74
♦ Á1075
♦ 1)64
Þegar horft er á hendur AV
virðast 4 spaðar vera hinn besti
samningur. En þeir Zia Mahmood
og Forrester sýndu fram á annað:
Vestur Norður Austur Suður
Forrester Zia
— pass 1 spaði dobl
2 lauf 4 laufi pass 4 työrtu
4 spaðar dobl/
Eins og í spilinu hér að ofan
snerist allt um laufalitinn. Forr-
ester fann upp 4 laufa sögnina
við borðið og ætlaði henni að sýna
laufaeyðu og vera úttekt um leið.
Hann doblaði síðan 4 spaða til að
biðja um lauf, en Zia var ekki
ömggari á stöðunni en svo að
hann tók sér 5 mínútna umhugsun
áður en hann passaði.
En vörnin var ömgg. Zia spil-
aði út hjartaás og skipti í lauf sem
Forrester trompaði. Þá kom tígull
á ás, lauf trompað, hjarta á kóng
og lauf trompað og spilið var kom-
ið 3 niður.
Guðm. Sv. Hermannsson