Morgunblaðið - 14.02.1995, Side 50
50 ÞRIÐJUDAGUR 14. FEBRÚAR 1995
MORGUNBLAÐIÐ
M ættir að skrifa skáldsögu Efnið er þarna. Allt sem þú þarft LEIÐINDABÆR.
byggða á lífi mínn. er góður titill.
BREF
TIL BLAÐSINS
Kringlan 1103 Reykjavík • Sími 5691100 • Símbréf 569 1329
Opið bréf til
yfirverkfræðings hjá
Vegagerð ríkisins
herra ennfremur: „4. í vegaáætlun
er gert ráð fyrir, að þverun Gils-
fjarðar skuli boðin út árið 1994, en
þungi verksins falli á árin á eftir.
Sú staðreynd, að vegafé hefur verið
aukið og að unnt er að ráðast strax
á næstsa ári í brú yfír Kúðafljót
veldur því, að sú áætlun á að geta
staðist.
5. Lausleg áætlun gerir ráð fyrir,
að þverun Gilsfjarðar kosti 700-800
millj. kr. Það er mikið fé og hefur
ekki farið dult, að ég hef haft af
því áhyggjur, hvort svigrúm yrði til
verksins við framkvæmd vegáætl-
unar. Það er léttara að lofa fyrir
kosningar en efna fyrirheitið eftir
á. Nú blasir hins vegar við, að meira
verður gert en lofað var og eru
þessar áhyggjur því úr sögunni."
Hér fer ekki á milli mála hver
hugur samgönguráðherra er og
Vegaáætlun segir til um hug og
vilja Alþingis. Hvers vegna hunsar
þú, Jón, vilja ráðherra og Alþingis?
Vona ég að Morgunblaðið birti
bréfkom þetta svo þú sjáir og ekki
líði mörg ár þar til þú svarir.
BJARNIP. MAGNÚSSON,
sveitarsljóri Reykhólahrepps.
Upplýsingar um
Intemettengingu
við Morgunblaðið
VEGNA fjölda fyrirspuma
varðandi Internet-tengingu
við Morgunblaðið, skal eftir-
farandi áréttað:
Tenging við helmasíðu
Morgunblaðsins
Til þess að tengjast heima-
síðu Morgunblaðsins, sláið
inn slóðina
http://wtvw. centrum.is/mbl/
Hér liggja ýmsar almennar
upplýsingar um blaðið, s.s
netföng starfsmanna, upplýs-
ingar um hvemig skila á
greinum til blaðsins og helstu
símanúmer.
MorgunblaAIA á Internetinu
Hægt er að nálgast
Morgunblaðið á Internetinu á
tvo vegu. Annars vegar með
því að tengjast heimasíðu
Strengs hf. beint með því að
slá inn slóðina
http://www.strengur.is eða
með því að tengjast heimasíðu
blaðsins og velja Morgunblað-
ið þaðan.
Strengur hf. annast
áskriftarsölu Morgunblaðsins
á Internetinu og kostar hún
1.000 krónur.
Sending efnls
Þeir sem óska eftir að
senda efni til blaðsins um Int-
eraetið noti netfangið
mh/@centrum.is
Mikilvægt er að lesa vandlega
upplýsingar um frágang sem
má finna á heimasíðu blaðs-
ins. Það tryggir öruggar
sendingar og einnig að efnið
rati rétta leið í blaðið. Senda
má greinar, fréttir, auglýs-
ingar og myndir eins og fram
kemur á heimasíðu blaðsins.
Mismunandl tengingar
viA Internet
Þeir sem hafa Netscape/
Mosaic-tengingu eiga hægt
um vik að tengjast blaðinu.
Einungis þarf að slá inn þá
slóð sem gefin er upp hér að i
framan.
Þeir sem ekki hafa
N etscape/Mosaic-tengingu
geta nálgast þessar upplýs-
ingar með Gopher-forritinu.
Slóðin er einfaldlega slegin
inn eftir að forritið hefur
verið ræst.
Mótöld
Heppilegast er að nota
a.m.k. 14.400 baud-mótald
fyrir Netscape/Mosaic teng-
ingar. Hægt er að nota af-
kastaminni mótöld með Goph-
er-forritinu.
Frá Bjarna P. Magnússyni:
ÞEGAR þetta er ritað að kvöldi 9.
febrúar 1995 er vegurinn um Gils-
fjörð ófær. Af síðustu 27 dögum
hefur vegurinn um Gilsfjörð verið
lokaður í 22 daga. Nú háttar svo
hér að ekkert áætlunarflug er til
staðarins, einu íbúar hreppsins sem
geta notað feijuna Baldur eru íbúar
Flateyjar, aðrir verða að treysta á
samgöngur um veg.
Fæst af þeirri þjónustu sem skatt-
greiðendur telja sjálfsagt að hafa í
nánd höfum við. Flestir íbúar
hreppsins þurfa að sækja til læknis
í á annað hundruð kflómetra fjar-
lægð.
Hvemig þætti þér, Jón, að þurfa
að sækja lækni á Hvolsvöll og hafa
Hellisheiði, Þrengslin og veginn um
Krísuvík lokaða dögum saman?
í minnispunktum frá þér, Jón,
sem þú ritaðir samgönguráðherra
fyrir tveimur og hálfu ári segir þú
að um það bil árs vinnu vanti til
að fullhanna þverun Gilsijarðar.
(Sjá grein Halldórs Blöndal bls. 14
í Morgunblaðinu 21. nóvember
1992.)
í greininni skrifar samgönguráð-