Morgunblaðið - 14.02.1995, Síða 61

Morgunblaðið - 14.02.1995, Síða 61
I í I J I I I ! I ! 3 I I 3 <t 4 4 4 4 4 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. FEBRÚAR 1995 61 Hvar eru þau og hvað eru þau að gera? Myndlistarmenn þurfa að vera rosa- lega þolinmóðir ElVA Rakel Jónsdóttir er í 10. bekk í Snælandsskóla. Hún hefur mikinn áhuga á skapandi listum en ætlar ekki að verða myndlistarkona sjálf. Hvers vegna valdir þú myndlist? Ég hef mikinn áhuga á mynd- list og listafögum almennt. Ég held að áhuginn sé í ættinni, mamma ætlaði í myndlist en hætti við. Þetta er sköpunargleði held ég, ég gæti ekki lifað af án þess að vera í einhveiju listafagi. En fyrst og fremst er þetta mjög gaman. Ég ætla í Kvennaskólann eftir 10. bekk og svo í sagnfræði eða mannfræði, mig langar líka til að verða flugstjóri. Ég fer ekki mikið á myndlistarsýningar, hef ein- hvemveginn ekki komið mér til þess. Ég ætla ekki að verða lista- kona vegna þess að ég efast um að ég háfí nægilega góða hæfí- leika til þess að starfa við það, og svo er starfsframinn óöruggur ef maður er myndlistarmaður. Góður myndlistarmaður þarf að hafa góða sköpunargáfu og mikið ímyndunarafl, vera þolin- móður, hafa rosalegan áhuga á viðfangsefninu og vera tilbúinn til að leggja rosalega mikið á sig. Ég ætla samt að halda áfram í myndlist, fara á kvöldnámskeið og slíkt, mér fínnst skemmtilegast að mála með olíumálningu og vinna með leir. UiMGLIIMGAR Finnst gaman að vera með vinkonum sínum Nafn: Sigríður Ella Jónsdóttir Heima: Kópavogi Aldur: 14 ára Skóli: Snælandsskóli Getur skólinn verið betri en hann er? Nei Hveiju vilt þú breyta í þjóðfé- laginu? Ég veit það ekki, kannski fá meiri atvinnu. Er til unglingavandamál? Já, það drekka rosalega margir, en ég hef ekkert á móti því. Er til foreldravandamál? Já, þeir sem treysta ekki bömunum nógu vel. Hvernig er fyrirmyndarungl- ingur? Góður að læra, drekkur ekki og reykir ekki og er skemmtilegur. Hvemig eru fyrirmyndarfor- eldrar? Bara góðir og skemmtilegir og treysta manni. Hvað vilt þú ráðleggja þeim sem umgangast unglinga? Koma fram við unglingana eins og þeir vilja að þeir komi fram við sig. Hvað er það skemmtilegasta sem þú gerir? Að skemmta mér með vinkonum mínum. Hvað er það leiðinlegasta sem þú gerir? Stærðfræði Hvað ætlar þú að verða þegar þú verður stór? Ég ætla að hafa góða vinnu og gera eitthvað skemmtilegt. Hver myndir þú vi\ja vera ef þú værir ekki þú? Eg veit það ekki. Hvernig eru strákar/stelpur? Ólöf, 15 ára Hellingur af þeim er ógeðslega mikið á eftir og margir að sýna sig. Þeir eru æðislega sætir og það eru til heiðarlegar undan- tekningar. Þórir, 15 ára i’air eru flestar fallegar og skemmtilegar. Geta verið leiðin- iegar stundum, skapillar. Listi yfir það sem nemendur geta gert ef kennarar fara í verkfall ISitjið yfír námsbókunum • a.m.k. átta stundir á dag. Þannig haldið þið heilasellunum virkum og tilbúnum þegar skól- inn byijar aftur. 2Takið til í herbergjunum • ykkar, þið gætuð jafnvel fundið óopnaða jólapakka inn- anum allt draslið. Takið að ykkur matarinn- • kaupin fyrir foreidra ykk- ar og nágranna. Þið hafi gott af því að hreyfa ykkur og bera eitthvað sem er þyngra en stfla- bók. 4HaIdið áfram að mæta í • skólann þó enginn sé þar. Látið ekki smáatvik eins og kennaraverkfall setja líf ykkar úr skorðum. að aldrei verður góður lúr of langur. Fáið ykkur vinnu, þeir allra • hörðustu gætu eflaust komist á loðnubát í gegnum klíkuskap og stórgrætt. Lærið að prjóna. • SGangið um vælandi og * veinandi, þið fáið varla betra tækifæri en þetta til að afla ykkur samúðar almennings. Notið tímann til að rækta • listræna hæfileika sem þið búið yfir, sum ykkar gætu jafn- vel verið svo fær að þurfa ekki að fara aftur f skólann, heldur geta lifað af listinni. 5Sofið allan sólarhringinn. • Ekki nóg með að skamm- degið mæli með því, heldur líka "I 0 Lteimsækið ömmur oj A V/ • afa sama hvar þau en stödd og dekrið við þau á sam; hátt og þau hafa dekrað vi< ykkur frá því þið fæddust. HARGREIMNGU '0 og kynningu REDKEN vör fimmtudaginn 16 febrúar. Fagmaður frá REDKEN verður með ráðleggingar um meðhöndlun á hári. Tímapantanir í | 0g á morgu C\ Verið velkomin HAR OG FÖRÐUN FAXAFENI 9 SÍMI 588 929 Blab allra landsmanna! - kjarni málsins!

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.