Morgunblaðið - 17.02.1995, Page 30
30 FÖSTUDAGUR 17. FEBRÚAR 1995
MORGUNBLAÐIÐ
STEFNUÞINB
Um næstu helgi, 18. -19. febrúar, koma saman í Reykjavík fulltrúar G-lista um land allt til þess
að stilla saman strengi sína, afgreiða kosningastefnuskrá og leggja síðustu hönd á undirbúning
kosningabaráttu. Málefnaáherslur Alþýðubandalagsins og óháðra verða samþykktar og rætt
um framkvæmdaatriði í sambandi við kosningarnar. Alls verða sjö samkomur í Reykjavík og
Kópavogi í tengslum við stefnuþingshelgi G-listanna.
Stefnuþing G-listanna
Laugardagur kl 9:00 til 18:00
Stefnuþing G-listanna, Alþýðubandalagsins og
óháðra hefst í Borgartúni 6, Reykjavík, kl. 09:00,
laugardaginn 18. febrúar og lýkur kl. 18:00.
Þingið hefst með setningarfundi þar sem
Ólafur Ragnar Grímsson, formaður
Alþýðubandalagsins, Ögmundur Jónasson
formaður BSRB og Árni Steinar Jóhannsson
umhverfisstjóri, halda ræður. Fundarstjóri er
Bryndís Hlöðversdóttir, lögfræðingur ASÍ.
Að loknum setningarfundi hefjast vinnufundir.
Stefnuþingið er sameiginlegur vettvangur
Alþýðubandalagsins og óháðra og verkefni þess
er að ganga frá samkomulagi um kosninga-
stefnuskrá og taka ákvarðanir um kosningastarf
Þingið er opið öllum sem eru á G-listum og
stuðningsfólki G-listanna.
Ólafur Ragnar Grímsson
Bryndís Hlöðversdóttir
Árni Steinar Jóhannsson
VINSTRI
KJOLFESTA
VINSTRI
LIFSKJOR
VINSTRA
VOR
Skáldafundur á
Café Reykjavík
Laugardagur kl. 12:00
Á Café Reykjavík verður hádegissamkoma
laugardaginn 18. febrúar þar sem skáldin Einar
Már Guðmundsson ogVigdís Grímsdóttir
verða heiðursgestir.
Einar Már Guðmundsson, sem hlotið hefur
Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs 1995
fyrir Engla alheimsins, ogVigdís Grímsdóttir,
sem hlaut íslensku bókmenntaverðlaunin fyrir
Grandaveg 7, lesa upp.
Samkomugestir eiga þess kost að kaupa léttan
hádegisverð á Café Reykjavík.
Skáldafundurinn er öllum opinn.
Vigdfs Grlmsdóttir
Góugleði G-listans
í Reykjavík________
Laugardagur kl: 20:00
ABR, Birting, Framsýn og aðrir aðstandendur fram-
boðs Alþýðubandalagsins og óháðra í Reykjavík hafa
sameiginlega undirbúið Góugleði sem haldin verður
á Þorraþræl og stendur fram á Konudag, fyrsta dag í
Góu. Góugleðin hefst kl. 20:00 í Mána-
bergi, sal á 3. hæð að Lágmúla 4 í Reykja-
vík (nýja Úrvals/Útsýnar-húsið).
Léttar veitingar. Aðgangseyrir kr. 1200.
Veislustjóri er Svanhildur Kaaber
sem skipar 6. sæti G-listans í Reykjavík.
Þátttökutilkynningar í G-listamið-
stöðinni Kirkjuhvoli, sími 2 28 14.
Svanhildur Kaaber
Iþróttastefna í Smáranum
Sunnudagur kl. 12:30
Alþýðubandalagið efnir til málþings um íþróttastefnu í Smáranum,
íþróttahúsi Breiðabliks í Kópavogi. íþróttaþingið hefst kl. 12:30 á
sunnudaginn með hádegisverði í Smáranum. Logi Kristjánsson,
formaður Breiðabliks, ávarpar samkomuna.
Lúðvík Geirsson, formaður Hauka í Hafnarfirði, og Hákon
Gunnarsson, framkvæmdastjóri HM '95, flytja stutt erindi.
Guðmundur Bragason, fyrirliði bikarmeistara í körfuknattleik,
ræðir málin út frá sjónarmiði keppnismannsins. Síðan verða almennar
umræður.
Málþinginu lýkur með samantekt Steingríms J. Sigfússonar,
varaformanns Alþýðubandalagsins.
Lúflvík Geirsson
Guðmundur Bragason
Steingrímur J. Sigfússon