Morgunblaðið - 21.02.1995, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 21.02.1995, Qupperneq 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 21. FEBRÚAR 1995 KJARAMÁLIN Drög að kjarasamningi aðila vinnumarkaðarins fyrirliggjandi Meðalhækkun allra laiina er 6,9% á samningstíma LAUN undir 60 þúsund krónum á mánuði munu hækka um 11,3% að meðaltali á samningstímanum ef gengið verður frá þeim drögum að kjarasamningi aðila vinnumark- aðarins sem ligga fyrir. Laun á bilinu 60-84 þúsund krónur munu hækka um 9,2% að meðaltali, en meðalhækkun allra launa á samn- ingstímanum er um 6,9%. Þetta kemur fram í sameiginlegu mati aðila vinnumarkaðarins á samn- ingnum, sem Morgunblaðið hefur undir höndum. Drög að samningi lágu fyrir í gærmorgun, en beðið var með end- anlegan frágang þar til skýrðist hvað stjómvöld gætu lagt af mörk- um til að auðvelda samningagerð- ina. Gert er ráð fyrir samningi til tæplega tveggja ára eða til ársloka árið 1996. Laun hækka tvívegis á samningstímanum. Við undirskrift hækka laun um 2.700 til 3.700 krónur og hækka lægstu launin mest, en hækkunin fer stigminnk- andi upp að 84 þúsund krónum. Hækkunin er þannig útfærð að laun á bilinu 43 til 48 þúsund hækka um 3.700 krónur. Hækkun- in er síðan eitt hundrað krónum minni fyrir hveijar fjögur þúsund krónur sem launin hækka um uns hún fjarar út þegar launin hafa náð 84 þúsund krónum á mánuði, Morgunblaðið/Sverrir MAGNÚS Gunnarsson, for- maður VSÍ, Þórarinn V. Þórarinsson, framkvæmda- stjóri VSÍ, og Benedikt Dav- íðsson, forseti _ASÍ, ræða málin i gær. Árni Bene- diktsson, formaður VMS, fylgist með. en miðað er við laun fyrir dagvinnu að meðtalinni yfirborgun. Öll laun hærri en 84 þúsund krónur hækka síðan um 2.700 krónur á mánuði. Laun hækka síðan aftur 1. jan- úar næstkomandi um 2.700 krónur hjá þeim landssamböndum Alþýðu- sambands íslands sem völdu krónutöluhækkun, én um 3% hjá þeim landssamböndum sem vildu fremur prósentuhækkun. Öll Dæmi um hækkun launa á samningstímabilinu, m.v. að valin sé krónutöluleiðin 1. janúar 1996. Laun fyrir hækkun Við undirskr. Janúar 1996 Laun þá samtals: 44.000 3.700 2.700 50.000 48.000 3.600 2.700 54.300 52.000 3.500 2.700 58.200 56.000 3.400 2.700 62.100 60.000 3.300 2.700 66:000 64.000 3.200 2.700 69.900 68.000 3.100 2.700 73.800 72.000 3.000 2.700 77.700 76.000 2.900 2.700 81.600 80.000 2.800 2.700 85.500 84.000 2.700 2.700 89.400 og hærri 2.700 2.700 Launahækkun við undirritun Mánaðarlaun fyrir dagvinnu Almenn hækkun Sérstök hækkun Hækkun samtals: 43.000-47.999 2.700 1.000 3.700 48.000-51.999 2.700 900 3.600 52.000-55.999 2.700 800 3.500 56.000-59.999 2.700 700 3.400 60.000-63.999 2.700 600 3.300 64.000-67.999 2.700 500 3.200 68.000-71.999 2.700 400 3.100 72.000-75.999 2.700 300 3.000 76.000-79.999 2.700 200 2.900 80.000-83.999 2.700 100 2.800 84.000- 2.700 0 2.700 stærstu samböndin völdu krónu- töluhækkun, þ.e. Verkamanna- samband íslands, Landssamband íslenskra verslunarmanna, Iðja, auk Þjónustusambands Islands, en Samiðn og Rafiðnaðarsamband ís- lands völdu prósentuhækkun. Þá felur samningurinn í sér óbreytt ákvæði frá fyrri kjara- samningi um láglaunabætur á heildarlaun undir 80 þúsund krón- um og koma þessar bætur tvívegis hvort ár í maí og desember. Des- emberuppbót árið 1996 hækkar r MORGUNBLAÐIÐ síðan úr 13 þúsund krónum í 15 þúsund krónur. Að auki hefur tek- ist samkomulag um ýmis sérmál einstakra landssambanda og má þar meðal annars nefna nýjan kauptryggingarsamnings fisk- vinnslufólks. Stöðugleikinn tryggður Með samningnum telja samn- ingsaðilar að það svigrúm sem sé til ráðstöfunar sé notað sérstak- lega í þágu hinna tekjulægri, stefnt sé að almennri kaupmáttaraukn- ingu og stöðugleikinn sé tryggður, þar sem þær kostnaðarhækkanir sem samningnum fylgi raski hon- úm ekki og eigi að tryggja áfram lága verðbólgu og stöðugt gengi krónunnar.- Þannig hafí samnings- aðilar lagt sitt af mörkum til að bæta samkeppnisstöðu íslensks atvinnulífs, stuðla að auknum vexti og árangursríkri baráttu gegn at- vinnuleysi. Þá mun á samningstímabilinu starfa sérstök launanefnd skipuð þremur fulltrúum frá hvorum samningsaðila, launþegum og vinnuveitendum. Hlutverk nefnd- arinnar er að fylgjast með fram- vindu í efnahags-, verðlags- og atvinnumálum og er hvorum aðila heimilt að segja samningnum laus- um með mánaðarfyrirvara miðað við 1. janúar næstkomandi, ef marktæk frávik verða frá samn- ingsforsendum. Byggt er á því að verðlagsþróun á samningstíman- um í heild verði áþekk því sem gerist í helstu samkeppnislöndum. í mati aðila vinnumarkaðarins á samningnum segir að sú sátt um launajöfnun sem samningurinn endurspegli byggist á því að þeir hærra launuðu í þjóðfélaginu sætti sig við að laun þeirra hækki um fasta krónutölu, 2.700 krónur á mánuði, á árinu 1995. Náist ekki víðtæk samstaða um þessa leið sé ljóst að meginmarkmiðum samn- ingsins sé teflt í tvísýnu. „Skilyrði þess að samningsmarkmiðum verði náð er að víðtæk samstaða skapist meðal allra tekjuhópa í samfélag- inu um að sá bati sem kominn er fram í þjóðarbúskap okkar gangi ríkar fram til þeirra sem lægri hafa launin," segir ennfremur. Kjaradeila kennara enn í hörðum hnút Morgunblaðið/Kristinn NOKKRIR framhaldsskólanemar settust á ganga fjármálaráðu- neytisins í gær til að sýna stuðning við kjarabaráttu kennara. Magnús Pétursson ráðuneytisstjóri spjallaði við nemendur. SAMNINGANEFNDIR kennara og ríkisins þokuðust ekkert í sam- komulagsátt á fundum í gær og í fyrradag. Við lá að upp úr viðræð- um slitnaði í fyrrinótt eftir að kenn- arar höfnuðu tillögum ríkisins um breytingar á vinnutíma og kennslu- skyldu kennara. Að mati beggja samningsaðila er líklegt að viðræð- ur dagist á langinn jafnvel þó að gengið verði frá kjarasamningum á almennum markaði í dag. Guðrún Ebba Ólafsdóttir, vara- formaður Kennarasambands ís- lands, sagði að mikið vantaði á að búið væri að rtá samkomulagi um sérmál kennara. Hún sagðist ekki sjá að kjaradeilan leystist þó að samningar tækjust á almennum vinnumarkaði. Til þess að það mætti verða þyrfti afstaða ríkisins að breytast mikið. Tilboð ríkisins 740 milljónir í stórum dráttum standa mál þannig að samnipganefnd ríkisins hefur boðist til að auka launaút- gjöld ríkisins vegna kennara um 740 milljónir. Að auki hefur verið talað um hækkun á grunnkaupi kennara. Almennt er gert ráð fyrir að sú hækkun verði svipuð og semst um á almennum markaði. Indriði sagði að stjórnvöld viður- kenndu að þörf væri á að endur- meta kennarastarfið. Starf kennar- ans hefði breyst á síðustu árum vegyia breyttra krafna í skólastarfi, breytinga í tækni og almennra breytinga á samfélaginu. Hann sagði að samninganefnd ríkisins hefði komið fram með tillögur sem að tækju mið af þessu breytingum. Indriði sagði að stjórnvöld legðu mikla áherslu á að um leið og kennarastarfið væri endurmetið væru gerðar ákveðnar breytingar á kjarasamningi kennara, sem í dag hindraði að hægt væri að gera nauðsynlegar endurbætur í skóla- starfí. Þessar endurbætur varða vinnutíma, kennsluskyldu o.fl. Kennarar hafa lýst sig tilbúna til viðræðna um breytingar á kennslutilhögun, en hafna alfarið að selja þessar breytingar því verði sem ríkið býðst til að kaupa þær á. Af beggja hálfu er vilji til að breyta launaröðun, en launakerfi kennara þykir um margt flókið og dýrt í framkvæmd. Kennarar hafa sett fram tillögu um iiýja launaröð- un og ríkið hefur á móti lagt fram tillögu um annars konar röðun. Engin breyting hefur orðið á af- stöðu deiluaðila um þetta atriði. Ekki að vænta nýs tilboðs Indriði sagði að samninganefnd ríkisins myndi ekki koma með nýtt tilboð í deilunni á næstunni. í augnablikinu sæi hann ekki flöt sem gæti leitt til lausnar. Hann sagðist ekki geta svarað því hvort það væri fallið til að greiða fyrir samn- ingum ef menn legðu einfaldlega allar tillögur um breytingar á vinnu- tíma, kennsluskyldu og öðrum slík- um þáttum til hliðar. Fulltrúar kennarar gengu á fund Ólafs G. Einarssonar menntamála- ráðherra um helgina til að ræða stöðuna. Guðrún Ebba sagði að þetta hefði verið gagnlegur fundur. Á honum hefði verið velt upp þeirri tillögu að settur yrði inn í frumvarp- ið fyrirvari um réttindamál kennara líkt og er í því um tekjustofna til sveitarfélaga. Guðrún Ebba sagði að kennarar vildu gjarnan fá að sjá frumvarp menntamálaráðherra um réttindamál kennara, en fyrirvari gæti hugsanlega leyst ágreining um ríkisins og kennara um grunnskóla- frumvarpið. Síðdegis í gær gengu forystu- menn kennara á fund fjármálaráð- herra. Elna K. Jónsdóttir, formaður HÍK, sagði að á fundinum hefði kennurum verið kynntar þær að- gerðir sem ríkisstjómin ætlaði að fara út í til þess að greiða fyrir samningum á almennum markaði. Ekkert hefði verið rætt um stöðuna í kjaradeilu kennara. 15 undanþágubeiðnir Mikið var að gera hjá verkfalls- stjórn kennarafélaganna í gær. Að sögn Gunnlaugs Ástgeirssonar, for- manns verkfallsstjórnar, hafa kom- ið upp nokkur álitamál um fram- kvæmd verkfallsins. Um 15 undanþágubeiðnir hafa borist verkfallsstjórn. Gunnar sagði að beiðnirnar væru af ýmsum toga. Nokkrum hefði verið hafnað og ein, um kennslu við fatlaða, hefði verið samþykkt. Hann sagðist gera ráð fyrir að öðmm yrði svarað í dag. Gunnar sagði að verkfallsstjórn gerði ekki athugasemdir við ösku- dagsskemmtanir á vegum foreldra- félaga skólanna, en óvíst væri hvernig verkfallsstjórn myndi af- greiða undanþágubeiðnir um árshá- tíðir nemenda. Nokkrir nemendur úr framhalds- skólunum settust að í fjármálaráðu- neytinu í gær með kröfuspjöld til stuðnings kjarabaráttu kennara. Nokkrir komu með námsbækurnar með sér. Nemendurnir yfirgáfu ráðuneytið um miðjan dag í gæ>' án þess að til neinna árekstra kæmi.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.