Morgunblaðið - 21.02.1995, Page 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 21. FEBRÚAR 1995
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
50 ár frá því Dettifossi var sökkt
DETTIFOSS, myndin er tekin í erlendri höfn.
Þrjátíu bj örguðust
og fimmtán fórust
Um borð í Dettifossi voru
14 farþegar og 31 skip-
verji. Þennan örlagaríka
morgun var Dettifoss á
siglingu skammt norður af írlandi
og í samfloti með þremur erlendum
skipum. Veður var sæmilegt, norð-
austan strekkingur og kröpp alda.
Ekki hafði þessi floti herskipafylgd
vegna þess hve skipin voru fá.
Gífurleg sprenging
Morgunblaðið flutti fyrst frétt af
skipskaðanum þann 13. mars 1945,
enda hömlur á fréttaflutningi vegna
stríðsins. Jónas Böðvarsson skip-
stjóri lýsti svo atburðum: „Skipið var
á siglingu í sæmilegu veðri. Klukkan
var 8.29 að morgni, er alt í einu
varð gríðarleg sprenging í skipinu
frammí. Farþegar flestir voru í rúm-
um sínum, en skipsverjar höfðu ný-
lega lokið við að skifta um vakt.“
Óiafur Tómasson 2. stýrimaður
var í messanum að neyta morgun-
verðar. Hann lýsti því sem þá gerð-
ist í bókinni Farmaður í friði og
stríði, (Skuggsjál976), sem Jóhann-
es Helgi skráði: „Klukkan var 29
mínútur gengin í níu. Þá gerðist
það. Tundurskeyti hæfði skipið. Það
Síðastliðinn sunnudag komu saman í Reykja-
vík nokkrír þeirra sem björguðust þegar es.
Dettifossi var sökkt norður af írlandi þann
21. febrúar 1945. Skipið varð fyrír tundur-
skeyti eða tundurdufli og sökk á aðeins fímm
mínútum. Guðni Einarsson kynnti sér
gamlar heimildir um þennan atburð.
21150-21370
LARUS Þ. VALÐIMARSSON, FRAMKVÆMDASTJÓRI
KRISTJÁN KRISTJÁNSSON, löggiltur fasteignasali
Ný eign á fasteignamarkaðnum - til sýnis og sölu:
Allt sér - útsýni - eignaskipti
Mjög góð 6 herb. efri hæð í þriggja hæða húsi á vinsælum útsýnisstað
í austurborginni. Sórþvottah. á hæð. Grunnfl. hússins um 150 fm.
Skipti mögul. á góðri 3ja-4ra herb. íb. á 1. eða 2. hæð. Frábært verð.
Skammt frá Háskólanum
Litið endurb. einbhús með 3ja herb. íb. á hæð og í risi. Gott lán.
Tilboð óskast.
Stór og góð 3ja herb. íb. við Hjarðarhaga 85,4 fm auk geymslu og sam-
eignar. Tvennar svalir. Sérþvottaaðst. Ágæt sameign. Tilboð óskast.
Sérþvottah. - mikið útsýni - eignask.
í suðurenda mjög góð 4ra herb. íb. á 2. hæð miðsvæðis við Hraunbæ.
Bílskúr. Ágæt sameign. Skipti mögul. á minni íb.
Skammt frá Landspítalanum
Ný endurbyggð 3ja herb. jarðh. 40 ára húsnl. kr. 3,1 millj. Vinsæll
staður. Tilboð óskast.
Vesturborgin - þríbýlish. - eignaskipti
Glæsil. 5 herb. sérefri hæð skammt frá Vesturbæjarskóla. Grunnfl.
hússins um 155 fm. Innb. bílsk. með geymslu 37 fm. Skipti æskil. á
góðri 3ja-4ra herb. íb. í borginni eða nágr.
Höfum trausta kaupendur að:
Góðu einbýlish. í Hafnarfirði, má vera hæð og kj.
4ra-6 herb. góðri íb. við Espigerði.
Húseign við Hávallagötu, Hólavallagötu, nágrenni.
Húseign með 3-4 svefnherb. á Lækjum, Teigum, nágrenni.
Húseign í borginni með tveim íbúðum. Sérstakl. óskast húseign í
Skerjafirði, nágrenni með tveimur 3ja-4ra herb. íbúðum.
Allt eru þetta traustir og fjársterkir kaupendur og jafnframt gamlir við-
skiptamenn Almennu fasteignasölunnar.
• •
Fjöldi eigna í skiptum.
Teikningará skrifst.
Almenna fasteignasalan sf.
var stof nuð 12. júlí 1944.
AtMENNA
FASTEIGNASAUH
LÁUGWEGM8Sn!lAR2m3^í5?Ö
Morgunblaðið/Þorkell
TIL AÐ minnast hins örlagaríka
dags fyrir réttum 50 árum og
þeirra, sem ekki komust af og
famir em síðan, komu saman í
kaffi í Þingvallasal Hótels Borgar
síðastliðinn sunnudag, þrír úr
hópi farþega og sjö skipverjar á
Dettifossi. I fremri röð em: Anton
Líndal, Baldvin Ásgeirsson; Ás-
geir Magnússon, Ólafur B. Olafs-
son, Tryggvi Steingrímsson og
Bjarni Árnason. I aftari röð em
Gísli Guðmundsson, Geir Geirs-
son, Erlendur Jónsson og Davíð
S. Jónsson.
lék á reiðiskjálfi, dumbur gnýr, helj-
arhögg...
Eitt sekúndubrot sveif ég ein-
hvern veginn í lausu lofti - skilning-
arvitin þöndust og maginn dróst inn.
Eg sat eins og negldur eina örskots-
stund. Svo stökk ég á fætur, hljóp
ganginn að vélarúminu og horfði
þangað niður. Ég sé Ásgeir Magnús-
son vélstjóra stefna á stjórntæki
vélarinnar og setja vélsímann á
Stopp...“
Valdimar Einarsson loftskeyta-
maður lýsti atvikum þannig í viðtali
við Morgunblaðið, 13. mars 1945:
„Jeg geri mjer strax grein fyrir því
hvað skeð hefði, og nú væri ekki
seinna vænna að bjarga sjer. Hljóp
jeg strax upp í „brú“. Sá jeg þaðan,
að brotið var ofan af framsiglunni,
hin svokallaða „stöng“ hafði brotnað
af henni við sprenginguna. Þá var
loftnetið farið leiðina sína og loft-
skeytastöð skipsins við það óvirk."
Erfitt að sjósetja
björgunartæki
Ólafur stýrimaður hélt strax út á
þilfar, en þá þar var enginn maður
sjáanlegur. „Flekinn bakborðsmegin
er horfinn, hafði sundrast við
sprenginguna, og skipið er nú þeg-
ar, einni mínútu eftir sprenginguna
farið að halla svo mikið að mjög
erfitt er að fóta sig og damp farið
að leggja um það... Ég handstyrkti
mig í logandi hvelli miðskips að
stjórnborðsbátum sem mér bar sem
2. stýrimanni að sjósetja, raða fólki
í og stýra. En hallinn á skipinu er
þegar orðinn svo mikill að tilgangs-
laust er að losa þann bát úr sæti
sínu; hann hefði aldrei í sjóinn farið
heldur dottið niður á skipið. Fjórir
menn eru að bjástra við bátinn. Ég
segi þeim að láta þennan bát eiga
Fyrirtækjasalan Skipholti 50B
S. 5519400 - 5519401
fox 622290
★ MATVÖRUVERSLANIR í MIKLU ÚRVALI.
★ UÓSRITUNARSTOFA.
★ EFNALAUG í VERSLUNARKJARNA.
★ BÓKA- OG RITFANGAVERSLUN.
★ BARNAFATAHEILDVERSLUN.
★ VÖRUFLTUNINGALEIÐ.
★ SÆLGÆTISFRAMLEIÐSLA.
★ TÖLVUVERSLUN.
★ SÓLBAÐSSTOFA.
★ HÁRGREIÐSLUSTOFA.
★ VEITINGAHÚS.
★ SÖLUTURNAR.
★ MATVÆLAFRAMLEIÐSLA.
★ BRAUÐGERÐ - FRAMLEIÐSLA.
Getum bætt við fyrirtækjum á skrá.
Góð sala framundan.
sig og koma yfir að hinum og þang-
að brölti ég við svo búið og losa
hann. Snúa þarf tveim sveifum til
að lyfta björgunarbát úr sæti sínu,
önnur er að framanverðu og hina
að aftanverðu og ég byija á þeirri
fyrrnefndu og sný uns sjórinn hrekur
mig að hinni sveifinni. Hann nær
mér von bráðar í hné og ég sný og
sný. Útblásturskrafturinn frá katlin-
um og drunurnar í honum sjálfum
yfirgnæfa öll önnur hljóð. Drunur,
heit gufa, hafrót - og skipið er að
sökkva. Gífurlegt sár er á bakborðs-
bógnum, kolsvart gap og undnar
stálplötur. Ég hamast á sveifinni og
hugsa ekki um annað en að snúa -
en ég skynja."
Ólafur lýsir því síðan þegar hann
sér Davíð Gíslason 1. stýrimann losa
björgunarfleka og koma honum fyrir
borð. Flekinn bjargaði 17 manns en
ekki Davíð. Hann drukknaði. Ólafi
tókst með harðfylgi að koma björg-
unarbátnum á flot en lenti sjálfur í
sjónum. Geir Geirsson 3. vélstjóri
kippti honum um borð í bátinn, en
hann var kominn þar um borð ásamt
kokknum á skipinu. Þeir lónuðu síð-
an í kringum sökkvandi skipið,
björguðu fólki úr sjónum og fylgdust
með því hvort fleiri kæmu úr flakinu.
Fáninn hvarf síðast
Aðeins fimm mínútum eftir
sprenginguna hvarf skipið sjónum.
Valdimar Einarsson loftskeytamað-
ur lýsti því þannig: „Leið nú skipið
hægt í djúpið og var fánastöngin á
skutnum seinast ein úr sjó, með ís-
lenska fánann blaktandi í golunni.
Þeirri látlausu sjón gleymum við
skipbrotsmenn aldrei."
Alls komust 11 manns fyrst í
bátinn, 17 á stærri flekann og 2 á
annan minni og var þeim síðar bjarg-
að í bátinn. Allir voru blautir og
margir illa klæddir og sumir án
bjargbeltis. Ekkert varð ráðið við
stóra björgunarflekann og rak hann
fyrir vaxandi veðri og vindum. Fólk-
ið þar um borð sat undir stöðugri
ágjöf, flekinn seig öðru megin og
við og við sat fólkið í sjó upp undir
mitti.
Þungunin bjargaði
Ólafur stýrimaður og félagar hans
á björgunarbátnum áttu betri vist
og hægara með að stýra sinni för.
„Við iónuðum á slysstaðnum, svipuð-
umst um, þeir sem ekki sátu undir
árum. Og þá komum við Hallgrímur
vélstjóri auga á eitthvað sem maraði
í kafi í nokkur hundruð metra fjar-
lægð. Þetta er áreiðanlega éitthvað
kvikt, sagði Hallgrímur. Ekki varð
greint hvað þetta var, rekald eða
böggull, því að báturinn sat djúpt í
sjónum og aldan var kröpp. Ég stýrði
að þessu - og í ljós kom bak á líf-
beltislausri mannesku. Það var kona.
Eugenie Bergin Hallgrímsson, dótt-
urdóttir Thor Jensen. Hún var þung-
uð - og flaut á þunga sínum, átti
líf sitt að þakka baminu sem hún
bar undir belti. Hún var meðvitund-
arlaus þegar við innbyrtum hana -
og úr öðrum axlarliðnum." Þeim
félögum tókst að blása lífi í Eugenie
og koma henni í liðinn. „...við dúðuð-
um hana og í fyllingu tímans fæddi
hún sitt barn, sitt líf og sinn lífgjafa
í senn, hraustan dreng sem enn er
í fullu fjöri á jörðinni," segir Ólafur.
Bjargað eftir eina stund
Alltaf sást á milli björgunarflek-
ans og björgunarbátsins, þótt í sund-
ur drægi með þeim. Ekki leið nema
klukkustund þar til bresk hersnekkja
kom á vettvang. Björguninni er
þannig lýst í Morgunblaðinu:
„Fóru allir um borð í hana. Þar
var mjög vel tekið á móti skipbrots-
fólkinu og vildu bresku sjómennirnir
allt fyrir það gera. Láta það fá þurr
föt og hressingu og hlynna að fólk-
inu á annan hátt.
Þegar til hafnar kom [í Skot-
landi] var þar fyrir fulltrúi frá Eim-
skipafjelagi íslands, frá breska hern-
um og Rauða krossinum enska.
Skipbrotsfólkið fjekk föt og peninga
frá Eimskipafjelaginu og þá bestu
aðhlynningu sem hægt var veita.“
Skipbrotsmennirnir fengu síðan far
heim til íslands með Brúarfossi.