Morgunblaðið - 21.02.1995, Blaðsíða 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 21. FEBRÚAR 1995
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ
Kanna áhuga á áramóta-
ferðum fyrir Parísarbúa
ATHUGUN stendur nú yfir á því að koma á
áramótaferðum frá París til Akureyrar. Vonir
standa til áð unnt verða að bjóða slíkar ferðir
um næstu áramót, en enn er óvíst hvort það takist.
Atvinnumálanefnd Akureyrarbæjar veitt fyrir
nokkru Arna Steinari Jóhannssyni umhverfis-
stjóra á Akureyri styrk til að kanna möguleika
á að koma slíkum ferðum á í samstarfi við ferða-
þjónustuaðila.
Árni Steinar var í París á dögunum og átti
þá fund með fulltrúum sjö ferðaskrifstofa í borg-
inni þar sem þessi mál voru rædd. Hótel KEA
og Hótel Harpa á Akureyri hafa stutt þetta fram-
tak Áma Steinars.
Heimavinnan eftir
„Draumurinn er að koma upp ferðaþjónustu á
þessum árstíma, reyna að fá Parísarbúa til að
koma hingað norður og eyða hér áramótunum,“
sagði Ámi Steinar. Hann sagði vinsælt meðal
íbúa borgarinnar að fara til Finnlands um ára-
mót. Slíkar pakkaferðir hefðu hafist fyrir 10-15
árum og um síðustu áramót hefðu um 3.000
Parísarbúar farið í áramótaferð til Finnlands og
nytu slíkar ferðir vaxandi vinsælda.
„Fólk var jákvætt fyrir þessari hugmynd og
fimm af sjö ferðaskrifstofum ætla að taka þátt
í að selja áramótaferðir til Akureyrar, komist
hugmyndin í framkvæmd," sagði Árni Steinar,
en hann sagði að nú ættu menn eftir að setjast
niður og vinna sína heimavinnu, en að mörgu
þyrfti að hyggja áður en hægt yrði að bjóða slík-
ar ferðir.
Grasafræðiferð
Síðastliðið haust átti Árni Steinar fund með
fulltrúum ferðaskrifstofu í Lundúnum sem sér-
hæfir sig í grasafræði- og náttúruvísindaferðum
og hefur verið ákveðið að setja íslandsferð á
dagskrá árið 1996. Sjónum yrði einkum beint
að Akureyri með Lystigarðinn sem útgangspunkt.
„Það er með þetta starf eins og ræktunina,"
sagði Árni Steinar „þetta tekur allt tíma áður
en árangur sést."
Skráning
bóka Dav-
íðs heimil
MENNINGARMÁLANEFND Ak-
ureyrarbæjar hefur heimilað amts-
bókaverði að hefja undirbúning að
skráningu bókasafns Davíðs Stef-
ánssonar skálds frá Fagraskógi.
Lárus Zóphaníasson amtsbóka-
vörður vék að því í ræðu á hátíðar-
samkomu á Amtsbókasafninu á
Akureyri á 100 ára afmæli Davíðs
Stefánssonar í janúar síðastliðnum
að bókasafn hans sem er mikið
að vöxtum sé enn óskráð. Slíkt
sé óviðunandi þar sem ekki sé með
góðu móti hægt að halda utan um
safnið.
Amtsbókavörður ítrekaði þá ósk
sína að hafíst verði handa um
skráningu bókasafns Davíðs Stef-
ánssonar við menningarmálanefnd
bæjarins og gerði hann nefndinni
grein fyrir þeim hugmyndum sín-
um að dreifa verkinu á tvö til fjög-
ur ár. Samþykkti nefndin að heim-
ila undirbúning þessa verkefnis.
Arekstur
göngum
við Dalvík
ENGINN slasaðist í árekstri
sem varð í snjógöngum Dal-
víkurmegin við Múlagöngin í
gærdag. Miklar skemmdir
urðu á ökutækjum.
Fólksbíll sem kom að sunn-
an frá Dalvík og jeppi sem
kom úr gagnstæðri átt mætt-
ust í djúpum snjógöngum sem
þarna eru, í brekku sunnan
við gömlu vegamótin í
Ólafsfjarðarmúla. Sam-
kvæmt upplýsingum lögregl-
unnar á Dalvík bjargaði það
miklu að ökumaður jeppans
brá á það ráð að keyra upp
í ruðninginn. Jeppinn lenti á
hlið fólksbílsins, kastaðist
upp í ruðninginn og valt á
hliðina.
Ekki slys á fólki
Engin slys urðu á fólki en
tvennt var í hvorum bíl. Báð-
ir bflarnir eru töluvert mikið
skemmdir.
Að sögn lögreglu á Dalvík
eru víða djúp snjógöng á veg-
inum, einungis ein breidd og
því nokkuð torfært á köflum.
1
snjó-
Morgunblaðið/Rúnar Þór
UNNIÐ er af kappi við að skipta
um lýsingu í íþróttahöllinni og
er það liður í endurbótum vegum
Heimsmeistarakeppninnar í
handknattleik en einn riðill
keppninnar fer þar fram. Ljós-
magnið í Höllinni eykst um helm-
ing eftir að búið verður að koma
nýju ljósunum fyrir, en alls verða
sett upp 48.800 watta ljós í húsið.
Byrjað var á þessu verkefni
um leið og verkfall kennara
hófst, en vegna þess er engin
íþróttakennsla í húsinu. Um
páskana verður síðan hafist
handa við að skipta um gólf í
húsinu sem einnig er liður í
endurbótum vegna HM-95.
Á litlu myndinni eru raf-
virkjarnir Ári Fossdal og Baldur
Ragnarsson með eitt af Ijósunum
sem verið er að setja upp í
Iþróttahöllinni.
Ný ljós
fyrir HM
Þórsarar telja brýna
nauðsyn á bættri aðstöðu
Foreldrar langþreyttir á akstri milli íþróttahúsa
ÍÞRÓTTAFÉLAGIÐ Þór hyggst
óska eftir viðræðum við bæjaryfír-
völd um byggingu íþróttahúss við
félagsheimili sitt. Forráðamenn
félagsins áttu fund á sunnudags-
kvöld með bæjarstjóra, formanni
íþrótta- og tómstundaráðs og for-
manni skipulagsnefndar þar sem
farið var yfír málið.
Aðalsteinn Sigurgeirsson for-
maður Þórs sagði að í kjölfar sam-
þykktar skólanefndar í fyrri viku
þess efnis að byggja ætti stjórnun-
arálmu við Glerárskóla hefði verið
hreyft við málinu nú, en Þórsarar
hefðu lengi haft í hyggju að byggja
eigið íþróttahús.
Á fundinum á sunnudagskvöld
viðruðu Þórsarar þá hugmynd að
íþróttahús Glerárskóla yrði breytt
í stjórnunarálmu við Glerárskóla,
en forsenda þess að félagið geti
byggt íþróttahús sé að það verði
nýtt yfir daginn fyrir leikfími-
kennslu skólabama. Bent var á
þann möguleika að Síðuskóli og
væntanlegur Giljaskóli gætu nýtt
íþróttahúsið undir leikfimikennslu
sína í framtíðinni.
Kostnaður 110 til 140 milljónir
Aðalsteinn sagði ekki spumingu
um að Þórsarar byggðu íþróttahús,
spurningin væri hins vegar hve-
nær. Rammasamningur milli fé-
lagsins og bæjarins rennur út síðar
á árinu en Þórsarar horfa til þess
að hægt verði að undirrita nýjan
samning á 80. ára afmælisdegi
félagsins 6. júní næstkomandi. Að
sögn Aðalsteins er áætlað að
kostnaður við byggingu íþróttahús
félagsins geti numið á bilinu 110
til 140 milljónum króna, en for-
svarsmenn félagsins hafa verið að
skoða teikningar og spá í spilin
um nokkurt skeið.
Aðalsteinn sagði menn gera sér
ljósa grein fyrir því að ekki er
gert ráð fyrir íþróttahússbygging-
unni á fjárhagsáætlun bæjarins
fyrir þetta ár, en í áætlun félags-
ins sé við það miðað að fé fáist á
árinu 1996.
Æfingar á þremur stöðum í
bænum
„Það er orðið afar brýnt að
byggja þetta íþróttahús, aðstaða
fyrir félagsmenn væri óviðunandi
og margir foreldrar em langþreytt-
ir á að aka börnum sínum milli
íþróttahúsa, en æfingar væm
stundaðar á þremur stöðum í bæn-
um. Margir hafa gefist upp á þessu
fyrirkomulagi og við emm farin
að missa krakkana úr íþróttastarf-
inu vegna þessa,“ sagði Aðal-
steinn.
Ungmenni
játa fjölda
innbrota
TVÖ ungmenni vom um helg-
ina látin laus úr gæsluvarð-
haldi vegna aðildar að fjölda
innbrota á Akureyri í liðinni
viku.
Um er að ræða pilt og
stúlku sem viðurkenndu við
yfírheyrslur hjá rannsóknar-
lögreglunni á Akureyri að
hafa komið peningalítil frá
Reykjavík til Akureyrar að
kvöldi sunnudagsins 12. febr-
úar síðastliðinn. Þau hefðu þá
um nóttina brotist inn í
verslunarmiðstöðina Krónuna
og farið þar inn í sjö verslanir
í því skyni að ná sér í fé.
Næsta dag hittu þau aku-
reyrskt par sem slóst í för
með þeim. Eftir neyslu fíkni-
efna um kvöldið ákváðu ung-
mennin að hefja næstu inn-
brotahrinu, en þá um nóttina
brustust þau fjögur inn í fjölda
verslana og fyrirtækja í bæn-
um og nágrenni hans og höfðu
hátt í þrjú hundruð þúsund
krónur í iausafé upp úr krafs-
inu.
Þau vora öll handtekin
morguninn eftir innbrotin og
voru þrjú þeirra úrskurðuð í
gæsluvarðhald. Þau viður-
kenndu við yfirheyrslurnar að
hafa verið undir áhrifum fíkni-
efna seinna innbrotakvöldið.
Viðurkenndu
þrjú innbrot
BROTIST var inn í húsnæði
Rúmfatalagersins aðfaranótt
laugardags, en morguninn
eftir handtók lögreglan þtjá
unga menn sem viðurkenndu
að hafa verið þar að verki.
Þeir viðurkenndu einnig að
hafa gert tilraun til innbrots
í Teiknistofu Hauks Haralds-
sonar í Kaupangi. Þá viður-
kenndu tveir þremenninganna
að hafa ásamt öðrum þriðja
aðila brotist inn í Skíðaþjón-
ustuna í upphafí árs.
Brotist var inn í Filmuhúsið
í göngugötunni í Hafnarstræti
á Akureyri aðfaranótt föstu-
dags í síðustu viku og stolið
þaðan hljómflutningstækjum.
Málið er óupplýst en rann-
sóknarlögreglan á Akureyri
fer með rannsókn málsins.
Tekin með
hass
Rannsóknarlögreglan á Akur-
eyri handtók í liðinni viku
karlmann en við húsleit hjá
manninum fundust 25 grömm
af hassi.
Hann viðurkenndi að hafa
keypt 30 grömm af hassi af
manni á Dalvík. Sá var hand-
tekin og játaði við yfirheyrslu
að hafa keypt 50 grömm af
hassi, hann seldi Akur-
eyringnum 30 grömm en af-
gangurinn var til eigin neyslu.
Fræðslu-
samkoma
FRÆÐSLUSAMKOMA um
börn, trúarþroska og bænina
verður í Glerárkirkju á morg-
un, miðvikudaginn 22. febrúar
kl. 20.30. Allir eru velkomnir.