Morgunblaðið - 21.02.1995, Side 20
20 ÞRIÐJUDAGUR 21. FEBRÚAR 1995
MORGUNBLAÐIÐ
ÓDÝRUSTU
rimlagluggatjöldin
á íslandi
50 cm x 160 cm
60 cm x 160 cm
70 cm x 160 cm
80 cm x 160 cm
90 cm x 160 cm
100 cm x 160 cm
110 cm x 160 cm
120 cm x 160 cm
130 cm x 160 cm
140 cm x 160 cm
150 cm x 160 cm
160 cm x 160 cm
290 kr
390 kr
450 kr
490 kr
550 kr
590 kr
690 kr
790 kr
990 kr
990 kr
1090 kr
1190 kr
Kommóða
með fjórum skúffum
Verö aðeins:
2.990 kr
é
ll-H
Hvítar hillur
h:85,5 cm, b:88 cm, d:24 cm
Verö aðeins:
1.990 kr
með hvítum hillum
Verö aðeins:
4.990 kr
Rúm
með tveimur skúffum
Verö án dýnu:
4.990 kr
• HdtapörOum Skoitunnf 13 Rwkjarvfkurvepl 72 Noröurtanga 3 4»
^ Reykjavík Reykjavtk Ha/narfjrft Akureyri g
ERLENT
Elsta manneskja í heimi 120 áraídag
Dole líklegasta
forsetaefni
repúblikana
Man eftir
vínlyktinni
af Vincent
Van Gogh
Arles. Reuter.
JEANNE Calment var 14 ára
gömul þegar hún hitti málar-
ann Vincent Van Gogh ogtví-
tug sá hún fyrstu kvikmyndina,
sem sýnd var. Calment er elsta
manneskja á jörðinni og í dag
heldur hún upp á það með því
að slökkva logann á 120 kert-
um.^
„Ég hef beðið þess í 110 ár
að öðlast frægð og ætla því að
njóta stundarinnar vel,“ sagði
Calment við fréttamenn og bar
á sig kinnalit eins og hún gerir
daglega. Hún er hins vegar hætt
að reykja, hún var 117 áraþegar
hún lagði þann ósið á hilluna.
Calment er orðin blind og næst-
um heyrnarlaus en er annars vel
á sig komin og kann að gera að
gamni sínu.
Ruglar saman Balladur og
Daladier
Calment heldur upp á afmælið
á elliheimili í borginni Arles við
Miðjarðarhaf en þar fæddist hún
1875 og hefur búið alla tíð síð-
an. Hún var í hjónabandi 154
ár en hefur nú verið ekkja í
hálfa öld. Þau hjónin áttu eina
dóttur, sem lést 1934, og dóttur-
sonur hennar lést 1963.
Calment fæddist fimm árum
eftir að Napóleon III. hrök-
klaðist frá völdum og tíu árum
eftir að Abraham Lincoln
Bandaríkjaforseti var myrtur.
Hún man eftir Eiffelturninum í
byggingu um aldamótin og
ruglast stundum á Edouard
Balladur, núverandi forsætisráð-
herra, og Edouard Daladier, sem
var forsætisráðherra fyrir
seinna stríð. Hún man eftir Van
Gogh „með eyrað sitt“ og hann
var „ijótur eins og erfðasyndin,
JEANNE Calment með ára-
fjöldann á spjaldi. Hún er enn
hin ernasta og lifi hún árið
út hefur hún náð hærri aldri
en nokkur önnur manneskja
svo vitað sé.
skapbráður og lyktaði af brenni-
víni“.
Vísindamenn hafa sýnt Cal-
ment og háum aldri hennar mik-
inn áhuga. „Hún hefur aldrei
passað neitt sérstaklega upp á
heilsuna," segir Frakkinn Jean-
Marie Robine, „en margir for-
feðra hennar hafa náð háum
aldri, lifað 15 til 20 árum lengur
en jafnaldramir.“
Hillir undir nýtt met
Ef Calment heldur heilsu enn
um hrið getur hún orðið elsta
manneskja, sem vitað er um.
Metið átti Japaninn Shigeshiyo
Izumi en hann var 120 ára og
237 daga gamall þegar hann lést
1986.
Fyrir 30 árum hafði lögfræð-
ingur í Arles augastað á íbúð
Calment og samdi um það við
hana, að hann skyldi greiða
henni 34.000 kr. á mánuði meðan
hún lifði gegn því að fá íbúðina
að henni látinni. Nú er hann
búinn að borga íbúðina að
minnsta kosti þrisvar sinnum og
er sjálfur kominn á eftirlaun, 77
ára gamall.
Manchester, New Hampshire. Reuter.
ÁTTA áhrifamenn í Repúblikana-
flokknum lýstu á sunnudag áhuga
sínum á því að hljóta útnefningu
flokksins fyrir forsetakosningam-
ar í Bandaríkjunum 1996. Mestar
líkur eru á því að Bob Dole, leið-
togi meirihlutans í öldungadeild-
inni, hreppi hnossið, samkvæmt
skoðanakönnunum.
Samkvæmt könnun New
Hampshire Sunday News sögðust
19% vilja Dole en aðrir sem sækj-
ast eftir útnefningu fengu innan
við 10%. Hins vegar lýstu 18%
aðspurðra stuðningi við Colin
Powell hershöfðingja og hetju úr
Persaflóastríðinu. Hann er ekki
skráður í flokkinn og ekki í fram-
boði.
í könnun sem Boston Globe birti
sögðust 35% vilja að Dole yrði út-
nefnur forsetaefni repúblikana og
20% nefndu Powell. Stuðningur við
aðra var innan við 10%. Til viðbót-
ar fékk Dole 35% í könnun Boston
Herald og Powell 17% en enginn
annar meira en 8%.
Talið er að Phil Gramm öldunga-
deildarmaður frá Texas geti reynst
Dole erfiðastur vegna fjáröflunar-
snilli. Léleg ræðumennska, kulda-
legt viðmót og fullmikil íhaldssemi
myndi þó líklega koma í vég fyrir
að hann næði nokkurn tíma kjöri
sem forseti.
Forkosningar Repúblikana-
flokksins vegna forsetakosning-
anna 1996 hefjast í New Hamp-
shire í febrúar að ári. Þó ríkið sé
fámennt þykja úrslitin þar skipta
afar miklu. Með aðeins einni
undantekningu eftir seinna stríðið
hefur sigurvegarinn þar hlotið út-
nefningu flokksins.
Reuter
ÞEIR sækjast eftir útnefningu Repúblikanaflokksins við
forsetakosningarnar í nóvember 1996 (f.v.): Pat Buchanan,
Phil Gramm, Arlen Specter, Bob Dole, Lamar Alexander, Bob
Dorman, Alan Keyes, Richard Lugar.
Rússneskur KGB-maður mótmælir grein í The Sunday Times
Fullyrti ekki að Foot
hefði verið á mála
London. The Daily Telegraph.
EINN af fyrrverandi liðsforingjum
sovésku leyniþjónustunnar gömlu,
KGB, segir að breska blaðið The
Sunday Times hafí mistúlkað orð
sín er það hafði eftir honum að
Michael Foot, fyrrverandi leiðtogi
Verkamannaflokksins, hefði þegið
fé af stofnuninni fyrir veittar upp-
lýsingar. „Ég þekki engan liðsfor-
ingja sem vann með honum, veit
ekki um neinar leynilegar aðgerðir
eða greiðslur“, sagði maðurinn,
Viktor Kúbeykín, á sunnudag.
Kúbeykín segist ekki hafa stað-
fest að Foot hafi verið svonefndur
„njósnari í áhrifastöðu", vinnuheiti
er notað var um vinveitt áhrifafólk
á Vesturlöndum sem veitti KGB
mikilvægar upplýsingar, oft án
greiðslu og gat þjónað málstað-
Sovétmanna vegna stöðu sinnar.
Blaðið segir Rússa hafa gefíð Foot
dulnefnið „Boot“.
Kúbeykín segist að vísu hafa
velt því fyrir sér hvort Foot hafí
verið maðurinn en sjálfur hafi hann
aldrei séð skýrsluna um Boot og
geti því ekki fullyrt neitt um málið
eða meinta sekt Foots.
Frásögn The
Sunday Times byggist
að miklu leyti á upp-
lýsingum í væntan-
legri bók eftir gagnn-
jósnarann Oleg Gordí-
evskíj sem gerðist
njósnari fyrir Breta en
var háttsettur í KGB.
Foot er sagður hafa
tekið að sér njósna-
hlutverkið á sjöunda
áratugnum en Kú-
beykín segir að áður-
nefnt vinnuheiti hafi
ekki verið fundið upp
fyrr en seint á áttunda
áratugnum.
Fullyrt er að Foot
hafl þegið fé frá KGB og hafí það
verið falið sem fjárstuðningur við
Tribune, dagblað senm hann stjórn-
aði. Foot, sem nú er 81 árs, segist
hafa velt því fyrir sér að lögsækja
blaðið en „enginn sem ég hef talað
við trúir því að ég hafi verið njósn-
ari KGB svo að sennilega hef ég
ekki einu sinni fyrir því að höfða
mál.“
KGB lygabæli?
Gordíevskíj gefur í
skyn að Míkhaíl Ljúb-
ímov, fyrrverandi of-
ursti í KGB, hafí ráðið
Foot til starfa en Ljúb-
ímov var yfirmaður
njósna leyniþjón-
ustunnar í London árin
1961-65. Er hann var
spurður um málið tók
hann bakföll af hlátri.
„Herra Foot er afár
indæll og afar feiminn
maður. Hvers vegna
ráða hann? Hvert væri
markmiðið? Til hvaða
leyndarmála þekkti
hann?“ sagði Ljúbímov.
Hann telur að Gordíevskíj sé ekki
að ljúga vísvitandi en hann oftúlki
ummæli í skýrslum leyniþjón-
ustunnar í væntanlegri bók sinni.
Hjá KGB hafi menn ávallt reynt að
gera sem mest úr árangri sínum
og klínt dulnefni á þekkt fólk eftir
að hafa rætt nokkrum sinnum við
það, stofnunin hafi verið „lygabæli."
Oleg
Gordíevsky
Blekktu
minkar
einnig
Rússana?
Kaupmannahöfn. Morgunblaðið.
ÞAÐ var ekki aðeins sænski
sjóherinn og sænsk stjómvöld
sem töldu hljóð frá minkum
vera kafbátahljóð. Rússneskir
sérfræðingar fengu upptökur
með hljóðunum í ársbyijun
1993 og komust að þeirri nið-
urstöðu að þau væru frá neð-
ansj ávarfarartækj um.
Rússar hafa ekki krafið Svía
afsökunar; sænsk stjórnvöld
töldu á sínum tíma að rússnesk-
ir kafbátar væru að njósna við
strendur landsins. Upptökur af
hljóðunum voru lagðar fyrir á
fundi sænskra og rússneskra
sérfræðinga í ársbyijun 1993.
Enginn bægslagangur í
minkum
{ sænskum fjölmiðlum hefur
verið rætt við ýmsa dýrafræð-
inga, sem efast stórlega um að
minkar geti orsakað hljóðin tor-
tryggilegu. Dýrin syndi hægt
og af þeim stafi lítill bægsla-
gangur, svo vart sé hugsanlegt
að hljóðin úr hlustunarduflun-
um stafí frá þeim. Það eru því
enn ekki öll kurl komin til graf-
ar hvað kafbáta- og minkaferð-
ir varðar.