Morgunblaðið - 21.02.1995, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ
AÐSENDAR GREINAR
ÞRIÐJUDAGUR 21. FEBRÚAR 1995 27
Framtíð samstarfs
N orðurlandanna
Pólitískt samstarf stjórnmálaflokka
Norðurlandanna þarf að aukast og
eiga sér stað á stöðugum grund-
velli. Hugmyndir mínar um hvemig
slíkt þing gæti litið út lýsi ég í
greininni „Alþingi Norðurlandanna
- nýr grundvöllur" sem vonandi
birtist í Morgunblaðinu innan
skamms.
Höfundur stundar nám í Svíþjóð.
HIN nýja stefna í
málefnum Norðurland-
anna, boðuð á fundi
fyrstu manna sam-
nefndra ríkja í Kaup-
mannahöfn á dögun-
um, er aukið pólitískt
samstarf milli bræðra-
flokka innan Norður-
landanna og markviss-
ari pólitísk og menn-
ingarleg samvinna.
Nauðsyn á nánara pól-
itísku samstarfi hefur
aukist eftir að Norð-
menn höfnuðu aðild að
Evrópubandalaginu og Hóhnsteinn
lengstu landamæri Brekkan
Evrópu er að finna
þvert í gegnum Skandinavíu. Fyrir
Islendinga og Norðmenn er nánara
pólitískt samstarf gífurlega mikil-
vægt þar sem um er að ræða mikil-
vægan lið í að hafa einhver áhrif
á þá pólitísku stefnumótun sem á
sér stað í Brussel.
Staðbundið Norðurlandaþing
Það er ljóst að breytinga er að
vænta í starfsemi Norðurlandaráðs
og málefnum Norðurlandanna
verður í framtíðinni markvisst sinnt
af fagfólki i fullu starfi fremur en
þingmönnum og ráðherrum í hjá-
verkum. Enn liggur ekki ljóst fyrir
hvernig hið nýja fyrirkomulag verð-
ur en nokkuð víst er að um ein-
hvers konar sameiginlegt norrænt
þing með fasta staðsetningu verður
að ræða. Einnig er gert ráð fyrir
því að einhverjar stofnanir Norður-
landaráðs verði sameinaðar og fátt
skynsamlegra en að finna þeim
stað innan eða í nágrenni við nor-
ræna þingið.
Lögð hefur verið fram tillaga,
og áfgreidd í nefnd, um norrænt
hús í Gautaborg og verður tillög-
unni hafnað formlega í Reykjavík
nú í lok febrúar. Röksemdafærsla
nefndarinnar fyrir að hafna tillög-
unni byggist fyrst og fremst á því
að norrænt menningarhús og þar
af leiðandi tákn um norræna sam-
vinnu skuli takmarka við jaðar-
svæði og einangraðri hluta Norður-
landanna. Þetta er í algerri mót-
sögn við það sem fram kom í
Reykjavík 1993, þegar haldið var
upp á 25 ára afmæli Norræna húss-
ins í Vatnsmýrinni, að norrænt
samstarf þyrfti að vera sýnilegra
á hinum þéttbýlu svæðum og va-
rast bæri sérstaklega einangrandi
hugtök eins og vest-norræna svæð-
ið. (Árbók Norræna hússins 1993.)
Vel má vera að afgreiðsla nefnd-
arinnar á tillögunni í núverandi
formi sé rétt en í ljósi nýrra upplýs-
inga og breyttra áherslna í norrænu
samstarfi er ljóst að endurskoða
þarf hugmyndina um norrænt hús
og samskiptamiðstöð í Gautaborg.
Norrænt þinghús í Gautaborg?
Ekki er mér ljóst hversu vel fs-
lendingar eru upplýstir um Gauta-
borgartillöguna en það hús sem um
er að ræða, og í boði er, kannast
menn kannski við sem „Storan“ eða
gamla óperuhúsið, þar sem Garðar
Cortes hafði aðsetur sem óperu-
stjóri í Gautaborg. Húsið er stórt
og virðulegt og fá hús á Norður-
löndum myndu sóma sér betur sem
samnorrænt þinghús. Einnig
myndu þar inni rúmast þær sam-
eiginlegu stofnanir Norðurlanda-
ráðs sem hugmyndir eru um að
sameina. Að velja Gautaborg sem
sameiginlega miðstöð norrænnar
menningar og samstarfs ætti að
geta verið viðunandi fyrir öll Norð-
urlöndin með tilliti til nánast allra
þátta norræns samstarfs. Hér er
ekki einungis átt við hina sam-
göngulegu hagræðingu og þann
ávinning sem fæst með því að finna
norrænu pólitísku og menningar-
legu samstarfi fastan
samastað heldur einn-
ig sögulegur bak-
grunnur borgarinnar
og lega miðsvæðis á
Norðurlöndum.
Fyrir íslendinga er
það sérstaklega mikil-
vægt að Gautaborg er
valin sem miðstöð fyr-
ir norrænt samstarf
og liggja fyrir því
margar ástæður og
má þá kannski fyrst
nefna hið aukna sam-
starf sem á sér stað í
milli heilbrigðisþjón-
ustunnar á íslandi og
sjúkrahúsanna í
Gautaborg um líffæraígræðslur.
Einnig má geta þess að innan heil-
brigðisþjónustu Svíþjóðar starfar
gífurlegur fjöldi íslenskra lækna
og hjúkrunarfólks (um 1% af heild-
arfjölda) og margir starfa í Gauta-
borg. Heildarfjöldi búsettra íslend-
inga í Svíþjóð um þessar mundir
er milli 7 og 8 þúsundir og flestir
Gautaborg hentar vel
sem miðstöð norræns
samstarfs, að mati
Hólmsteins Brekkan,
sem segir 7 til 8 þúsund
íslendinga búsetta í Sví-
þjóð, flesta á Gauta-
borgarsvæðinu.
búa á Gautaborgarsvæðinu eða í
vestur- eða suðurhluta Svíþjóðar.
Söguleg og menningarleg tengsl
íslands og Vestur-Svíþjóðar hafa
verið mjög sterk og má segja að
sögulega megi rekja tengslin allt
til sögualdar er Snorri Sturluson
dvaldi í góðu yfirlæti á Kóngahelllu
og safnaði efni til siðari skrásetn-
inga og tryggði þar með íslending-
um ævarandi sess sem verndarar
norrænnar sögu og menningar.
Önnur rök sem færð hafa verið
fyrir vali Gautaborgar eru mennt:
unarlegs- og viðskiptalegs eðlis. í
Gautaborg er að fínna fjölda sjálf-
stæðra stofnana sem sinna og hlú
sérstaklega að hinu samnorræna á
sviði æðri menntunar og viðskipta.
Þessi sérstaða borgarinnar myndi
eflaust vel nýtast samnorrænu
þingi og menningarstarfsemi sem
og viðskiptalífi Norðurlandanna.
Eins og bent hefur verið á af for-
sætisráðherra, Davíð Oddssyni, þá
er það íslendingum mjög mikilvægt
að eiga fastafulltrúa á slíku þingi
þar sem með óbeinum hætti væri
möguleiki á að hafa áhrif á ákvarð-
anatökur í Brussel. Engin borg á
Norðurlöndum er betur í stakk
búin að sinna okkar samnorrænu
hagsmunum en Gautaborg og hvet
ég forsætisráðherra, Davíð Odds-
son, utanríkisráðherra, Jón Baldvin
Hannibalsson, sem og aðra góða
þingmenn sem sinnt hafa málefn-
um Norðurlandanna að standa með
þeim þingfulltrúum hinna Norður-
landanna sem saman flytja Gauta-
borgartillöguna.
Okkar hagur
Hvet ég eindregið til þess að við
íslendingar gerum allt sem í okkar
valdi stendur til þess að tryggja
það sem þegar hefur áunnist í nor-
rænu samstarfi með því að end-
urvinna þá tillögu sem frammi ligg-
ur um Gautaborg og afgreidd verð-
ur í Reykjavík nú síðar í þessum
mánuði og hafa niðurstöðu fundar
forsætisráðherra Norðurlandanna í
Kaupmannahöfn að leiðarljósi.
Flutningsmiðlun
Með öflugu neti eigin skrifstofa og umboðsmanna heima og erlendis býður Eimskip
faglega ráðgjöf við að finna hagkvæmasta flutningsmátann frá sendanda til endan-
legs móttakanda.
Eimskip rekur 14 skrifstofur í 10 löndum í Evrópu og Norður - Ameríku og á jafn-
framt eignaraðild að sérhæfðum flutningsmiðlunarfyrirtækjum. í samvinnu við þessi
fyrirtæki og skrifstofur Eimskips erlendis getur innflutningsdeild í Reykjavík aflað
hagstæðra samninga um forflutninga á vörum frá öllum heimshornum.
„Vanti þig ráðgjöf og vandaða
flutningsmiðlunarþjónustu skaltu
hafa samband við Eimskip.'1
Sveinn Kr. Pétursson,
forstöðumaður
innflutningsdeildar
Eimskip býður viðskiptavinum upp á heildarlausnir í flutninga-
þjónustu, inn- og útflutning, vöruhúsaþjónustu, innanlands-
flutninga, framhaldsflutninga og forflutninga erlendis.
EIMSKIP
Sími 569 72 40 • Fax 569 71 97
Netfang: mottaka@eimskip.is
Tölvuþjálfun
Windows • Word • Excel
Það er aldrei of seint að byrja!
60 stunda námskeið þar sem þátttakendur kynnast
grundvallarþáttum tölvuvinnslu og fá hagnýta þjálfun.
Vönduð kennslubók innifalin í verði.
Innritun stendur yfir. v
Fjárfestu í framtíðinnil
Tölvuskóli íslands
Höfðabakka 9 • Sími 67 14 66