Morgunblaðið - 21.02.1995, Side 28

Morgunblaðið - 21.02.1995, Side 28
28 ÞRIÐJUDAGUR 21. FEBRÚAR 1995 MORGUNBLAÐIÐ AÐSENDAR GREINAR LITIÐ hefur dagsljós reglugerð um tilvísanaskyldu í utanspítala- þjónustu. Heilbrigðisráðherra hefur farið stórum orðum um hvernig . sparast munu 100 af þeim 480 milljónum, sem Ríkissjóður greiðir fyrir þá þjónustu sérfræðinga, sem verður tilvísanaskyld. Til þess að gera orð sín trúverðug hefur hann vitnað í skýrslu óhlutdrægrar verk- fræðistofu, sem reiknaði dæmið fyrir ráðuneytið. Skýrsla verkfræðistofunnar vek- ur upp margar spumingar, bæði um vinnulag þeirra starfsmanna ráðherra, sem að þessu máli stóðu, og eins um heilindi heilbrigðisráð- herra. Því skýrsla verkfræðistof- unnar byggist í meginatriðum á forsendum, sem ekki standast nán- ari skoðun. Niðurstaðan gefin fyrirfram í inngangi skýrslunnar kemur fram, að verkfræðistofunni vom gefnar forsendur, fastar og breyti- legar, við gerð reiknilíkans. Fram kemur einnig, að með því að breyta þessum forsendum má fá aðrar nið- urstöður, sem þýðir í raun það eitt, að ráðherra getur fyrst ákveðið „spamaðartöluna" og síðan breytt forsendum reiknilíkansins til að styðja mál sitt, allt eftir því hvert áróðrinum skal stefnt. Hitt er öllu alvarlegra, að verkfræðistofunni virðast hafa verið gefnar bæði rang- ar tölur og villandi forsendur. Fastgr forsendur í þessum þætti hefði allt átt að vera rétt, enda reiknaðar tölur fyrir- liggjandi. En svo er ekki. í fyrsta lagi er gefin sú forsenda, að meðal- greiðsla sjúklings á heilsugæslustöð sé 445 kr. í skýrslu Hagsýslu ríkis- ins, útgefinni í júlí 1994, um rekst- ur heilsugæslustöðva, kemur fram, að meðal- komugjöld árið 1992 voru 390 kr. en ekki 445 kr. Á þessu tíma- bili hafa komugjöld ekki hækkað. Ekki er tekið með í reikning- inn, að frá komugjaldi dragast strax 10%, sem renna í sjóð hverr- ar stöðvar til menntun- ar og tækjakaupa, og er m.a. notað til greiðslu á utanferðum starfsfólks heilsugæsl- unnar. Afgangurinn rennur síðan til alls rekstrar hverrar stöðv- ar. Beinn lækniskostnaður vegna komu sjúklinga, þ.m.t. símaviðtöl, er einungis 'h af rekstrarkostnaði hverrar stöðvar. Þannig koma ekki til frádráttar lækniskostnaði 445 kr., eins og þeir hjá verkfræðistof- unni gera ráð fyrir, heldur 117 kr. Þar fyrir utan er gefín sú for- senda, að meðalkostnaður vegna heimsóknar til heilsugæslu sé 1.153 kr., en ekki 1.425 kr., eins og kem- ur fram í skýrslu Hagsýslunnar. Með þessum villandi tölum kemst verkfræðistofan að þeirri niður- stöðu, að meðalkostnaður Ríkis- sjóðs á hvert læknisverk í heilsu- gæslunni, að frádregnu komugjaldi, sé 708 kr. Kostnaðurinn skv. tölum Hagsýslunnar er 1.308 kr., þ.e. tæplega tvöfalt hærri en spamaðar- forsendur gera ráð fyrir. Er þá hvorki leiga, stofnkostnaður né kostnaður vegna hjúkmnarfræð- ings meðtalinn. Fleiri villur eru í föstu forsendun- um, flestar léttvægar. Neyðarlegt er til dæmis, að einingaverð til sér- fræðinga er sagt vera 132.09 kr. þegar það er 132.36 kr. Ekki stórvægilegt, en merki um hversu óvönduð vinnubrögðin eru. Þessar leiðrétting- ar einar minnka sparn- að um 60-100 milljón- ir. Breytilegar forsendur Og enn versnar það. Verkfræðistofunni er gefin sú forsenda, að komum til sérfræðinga muni fækka um 32%. Þegar haft er í huga, að heilbrigðiskerfið hefur undanfarin 15 ár treyst æ meira á starfsemi sér- fræðinga utan sjúkrahúsa, til að auka á hagkvæmni í sjúkrahús- rekstri, með því að flytja sem flest verk yfir í stofurekstur, ætti öllum að vera ljóst, að heilsugæslan er ekki í stakk búin til að sinna flestum þessara verka vegna aðstöðu- og þjálfunarleysis. Þessi lækkun er því fullkomlega óraunhæf tala, byggð á draumkenndri óskhyggju. Verði það svo, að einhver sérfræðiverk flytjist yfir í heilsugæsluna, verða það minni háttar verk og ódýrari. Þau verk eru Ríkissjóði dýrari í heilsugæslu en á sérfræðistofu vegna meiri kostnaðarþátttöku sjúklinga á síðarnefnda staðnum. í útreikningum verkfræðistof- unnar er síðan gert ráð fyrir, að meðalkostnaður Ríkissjóðs vegna hvers sérfræðiverks muni lækka eftir kerfisbreytinguna. Hér er greinilega unnið eftir þeirri for- sendu, að það verði erfiðari og flóknari verk sérfræðinga, s.s. kvið- slits- og æðahnútaaðgerðir, löng geðlæknisviðtöl, maga- og ristil- Tilvísanaskyldan kostar miklu meira en hún sparar, segir Högni Oskarsson, og veldur sjúklingum útgjalda- auka og óþægindum. speglanir, svo eitthvað sé nefnt, sem muni flytjast yfir til heilsugæsl- unnar. Allir vita, að það mun ekki gerast, heldur það þveröfuga. Þann- ig gerir reiknilíkanið veigamikla breytu a.m.k. 50% ódýrari Ríkis: sjóði en hún mun verða í raun. í þessum lið er því sparnaður Ríkis- sjóðs ofreiknaður um ekki minna en 100 milljónir. Með þessum röngu forsendum sýnir ráðherra fram á spamað; sparnað, sem enginn mun verða, þar sem kerfið verður, með tilvísanaskyldu, þegar hér er komið sögu, mun dýrara en nú er, bæði fyrir Ríkissjóð og sjúklinga. Það versta er þó eftir Margir skyldu ætla að nóg sé komið. En svo er ekki. Því verk- fræðistofunni voru líka gefnar þær forsendur, að heildarkomum til lækna, bæði sérfræðinga og heilsu- gæslulækna, muni fækka við kerfís- breytinguna. Þetta mætti afgreiða aftur sem draumkennda óskhyggju, ef ekki lægju fyrir blákaldar stað- reyndir, sem segja fyrir um hið gagnstæða; staðreyndir sem voru starfsmönnum ráðherra kunnar þegar þeir gáfu verkfræðistofunni forsendur fyrir útreikningum. í áðumefndri skýrslu Hagsýsl- unnar kemur nefnilega fram, að ásókn í læknisþjónustu á íslandi eykst eftir því sem erfiðara er að ná til sérfræðings. Þegar íslandi er skipt niður í svæði eftir aðgengi að sérhæfðri læknisþjónustu, eru 24-74% fleiri komur til heilsugæslu á landsvæðum þar sem aðgengi er erfíðara. Munur á lægsta og hæsta heilsugæslusvæði er rúmlega 300%. Og þó leitar fólk af þessum svæðum líka eftir sérfræðiþjónustu. Af þessu má draga þá ályktun, að komum í heilsugæslu muni fjölga verulega umfram þann samdrátt, sem kann að verða hjá sérhæfðari læknum, gagnstætt því sem ráðherra stað- hæfir. Varlega áætlað kynni sá við- bótarkostnaður að verða 70-100 milljónir. Þetta var líka falið fyrir verkfræðistofunni. Niðurstaða Eftir að fastar og breytilegar forsendur reiknilíkansins hafa verið leiðréttar og samræmdar þekktum stærðum í heilbrigðiskerfi okkar, verður niðurstaða útreikninga allt önnur en ráðherra staðhæfir. Tilvís- anaskyldan mun kosta miklu meira en hún sparar, og er þá ekki tekið tillit til þess, að leggja þarf í fjár- festingar strax, upp á ekki minna en 800 milljónir, vegna nýrra heil- sugæslustöðva. Við það bætist, að rekstrarkostnaður heilsugæslu- stöðva er yfirleitt þrefalt meiri en lækniskostnaðurinn einn, og erum við þá farin að tala um viðbótar- kostnað vegna tilvísanaskyldu, sem mun hlaupa á hundruðum milljóna. Það er vissulega áhyggjuefni hvernig staðið hefur verið að þess- um útreikningum. Með því að gefa verkfræðistofunni villandi og rang- ar forsendur, og eins með því að „gleyma“ tilveru vel þekktra stað- reynda um neysluvenjur í íslenska heilbrigðiskerfinu, hefur verið hægt að byggja upp áróður fyrir tilkomu tilvísanaskyldu. Hvað skyldi liggja að baki? Ekki verður lagður dómur á það hér, hvort ráðherra hafi verið kunn- ugt um, hversu ótraustar tölur hon- um voru látnar í té fyrir ákvarðana- tökuna. En það þarf hins vegar ekki mjög töluglöggan mann til að komast að þeirri niðurstöðu, við samanburð á þekktum gögnum og svo „sparnaðar“staðhæfingum ráð- herra, að boðuð kerfísbreyting muni ekki aðeins verða Ríkissjóði dýrari en núverandi kerfi, heldur mun breytingin einnig hafa í för með sér aukin útgjöld og óþægindi fyrir al- menning, sérstaklega barnafjöl- skyldur og elli- og örorkulífeyris- þega. En hafi ráðherra verið kunnar þessar staðreyndir, verður sú spurn- ing æ áleitnari, hverjum sé að treysta fyrir velferðarmálum á ís- landi, ef ekki einum valdamesta forystumanni Alþýðuflokksins, Jafnaðarmannaflokks íslands. Höfundur starfar sem geðlæknir í Reykjavik. Spamaður á sandi byggður Grundvöllur tilvísanaskyldu hruninn Högni Óskarsson NÝJA skólastefnan, sem nú ligg- ur fyrir Alþingi, er tvímælalaust eitt af stærstu framfaramálum þjóð- arinnar. Það er því afar brýnt að hún verði að veruleika. Með því eykst hlutur foreldra og aðila at- vinnulífs í stefnumörkun á sviði skólamála, auknar kröfur verða gerðar um gæði skólastarfs og bet- ur verður fylgst með árangri þess en verið hefur. í frumvörpum til laga um grunn- og framhaldsskóla, sem byggð eru á þessari stefnumót- un, er innleidd ný hugsun fyrir ís- lenskt skólakerfi. Þessar eru helstu áherslur nýju menntastefnunnar: * Skýr markmið liggi fyrir um það hveiju eigi að ná fram í skólastarf- inu, m.a. verði skilgreind markmið um kunnáttu og færni nemenda á tilteknum aldursstigum. * Gerðar eru kröfur um mikla fag- mennsku í skólastarfí. M.a. er gert ráð fyrir að kennarar vinni sameig- inlega að skipulagningu skólastarfs- ins og að innleiddar verði aðferðir til að meta árangur þess, svo sem sjálfsmat skóla. Kennurum standi til boða aukin endurmenntun og ráðgjöf. * Samræmd próf gegna veigamiklu hlutverki til þess að unnt sé að fylgj- ast með skólastarfí á landsvísu. Samræmdum prófum verði fjölgað verulega, sett inn á fleiri aldursstig- um grunnskólans og verði áfram a.m.k. fjögur við lok grunnskóla. Lokapróf úr framhalds- skólum verði samræmd í tilteknum greinum. Jafnframt verði byggt upp fjölþætt ytra mat á skólastarfí, m.a. út- tektir á skólum. * Þátttaka foreldra í skólastarfí verði aukin, svo og ábyrgð þeirra á námi bama sinna. Við hvem grunnskóla starfí foreldraráð, sem hafí það hlutverk að miðla skoðunum for- eldra til stjómenda skólanna. * Tryggður verði rétt- ur foreldra og almenn- ings til upplýsinga um gæði og gang skólastarfsins. * Starfsnám á framhaldsskólastigi verði forgangsverkefni í skólamál- um. Sérstök áhersla verði lögð á að efla tengsl atvinnulífs og skólanna. * Stjómvöld verði virkari í mótun menntastefnu og fylgist betur með skólastarfi í landinu. I báðum fmm- vörpum er lagt til að menntamála- ráðherra geri Alþingi grein fyrir framkvæmd skólahalds á þriggja ára fresti. Pólitíska stefnumótun bráðvantar Það bráðvantar pólitíska stefnu- mótun fyrir skólakerfið, staðfesta í lögum um gmnn- og framhaldsskóla. Skóla- kerfið hefur þróast án markvissrar stefnu- mörkunar og hefur lif- að eigin lífi með litlu eftirliti af hálfu fræðsluyfirvalda. Svo virðist sem við séum eitt af fáum ríkjum OECD sem ekki hafa áttað sig á þeim beinu tengslum sem era milli hagsældar þjóðarinnar og gæða menntakerfis- ins. Á lista yfír sam- keppnishæfni OECD- þjóðanna er ísland nú í 18. sæti af 23. í skóla- kerfinu em gerðar allt of litlar kröfur til nemenda. Skortur á samkeppni og heilbrigðu aðhaldi hefur staðið okkur fyrir þrifum. Það er ábyrgðarhlutur að láta skólamál reka á reiðanum, það er langt frá því að íslenska menntakerfíð stand- ist samanburð við það besta sem gerist annars staðar. Gallar skóla- kerfísins era ótal margir: * Kennslustundir pem íslensk böm fá á ári hvetju era mun færri en hjá nágrannaþjóðum. Til skamms tíma hefur íjöldi manns með ófull- nægjandi menntun sinnt kennslu í grann- og framhaldsskólum víða um land og engin stefna hefur verið uppi um það hvernig laða megi Þegar nýja skólastefnan nær fram að ganga, segir Ólafur G. Einars- son, höfum við byggt upp skólakerfi sem stenst samanburð við það besta í öðrum löndum. hæft fólk til kennslu og uppeldis- starfa. Allt umtal um samræmd próf í skólum hefur verið litið horn- auga, þótt vitað sé að einungis þann- ig sé unnt að mæla hlutlægt og á samanburðarhæfan hátt hvemig til tekst með kennslu og uppfræðslu nemenda. * Verulega skortir á skilgreindar kröfur í skólakerfinu, t.d. um þekk- ingu og færni 9, 12, 16 eða 20 ára nemenda í grandvallargreinum eins og íslensku, stærðfræði og erlendum tungumálum. Ástandið er enn verra ef litið er til greina eins og náttúru- fræði og sögu svo að dæmi séu tek- in. * Skoðanakannanir hafa leitt í ljós óánægju almennings með það hvernig skólarnir sinna hlutverki sínu. * Eftirlit með skólastarfi af hálfu stjórnvalda hefur verið svo lítið hér á landi að líkja má við sinnuleysi. í löndum með langa menntunarhefð þykir sjálfsagt að viðhafa stöðugt eftirlit með skólastarfí. Opinberar eftirlitsstofnanir á borð við „Her Majesty’s Inspectorate“ (HMI) í Bretlandi eiga sér aldagamla hefð og skólamenn sækjast eftir því að- haldi og þeim stuðningi sem slíkar stofnanir veita þeim. * ísland er eitt örfárra landa í Evr- ópu þar sem stúdentspróf er ekki samræmt. Með vaxandi stúdenta- skiptum og alþjóðlegum samningum um aðgang nemenda að háskólum eru að koma upp margvísleg vanda- mál vegna þessa. Á vegum Evrópur- áðsins hefur farið fram umtalsverð vinna varðandi lokapróf úr fram- haldsskólum í þeim tilgangi að afla upplýsinga um þær kröfur sem gerðar era til nemenda í mismun- andi löndum. Um þessar mundir er verið að ganga frá riti um þessi efni á vegum Evrópuráðsins og verður þetta rit notað í evrópskum háskólum þegar lokapróf umsækj- enda úr framhaldsskólum eru metin. Samtök háskóla á Norðurlöndum hafa nýlega hafíð vinnu við stöðlun ein'kunna úr norrænum framhalds- skólum til að framfylgja jöfnum aðgangi norrænna nemenda. Þar blasir sú napra staðreynd við að einkunnir úr íslenskum framhalds- skólum eru ekki samanburðarhæfar milli skóla hér á landi, að ekki sé talað um milli annarra þjóða. Menntunarhlutverk skólans í fyrirrúmi í heild má segja að þegar nýja skólastefnan nær fram að ganga höfum við byggt upp skólakerfi sem stenst samanburð við það sem best gerist í öðrum löndum. Eins og kom- ið hefur fram er hér um að ræða verulega nýjar áherslur, þar sem menntunarhlutverk skólans er í fyr- irrúmi. Höfundur er menntamála- ráðherra. Ný skólastefna stærsta framfaramálið

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.