Morgunblaðið - 21.02.1995, Qupperneq 49
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 21. FEBRÚAR 1995 49
FRÉTTIR
i
I
l
l
j
I
J
i
j.
4
I
I
i
Styrkja
slysavarnir
í sveitum
SLYSAVARNAFÉLAGI íslands
voru veittar, í lok janúar, 500
þúsund krónur frá Búnaðarfélagi
Islands til styrktar átaki í slysa-
vörnum í landbúnaði á íslandi.
Jafnframt veitti Búnaðarfélagið
Slysavarnafélaginu viðurkenningu
fyrir góð störf á þessu sviði og
bar fram þakklæti sitt fyrir hönd
bændastéttarinnar.
Samkvæmt upplýsingum SVFÍ
frá Vinnueftirliti ríkisins voru 5
slys skráð við landbúnaðarstörf á
árinu 1993 og ekkert dauðaslys.
Einnig kemur fram að slysum í
landbúnaði fari fækkandi.
BÚNAÐARFÉLAG íslands afhendir S.lysavarnafélagi íslands
500.000 kr. styrk. Myndin er tekin við það tækfæri. F.v. Gunnar
Hólmsteinsson, skrifstofustjóri Búnaðarfélags Islands, Jónas Jóns-
son, búnaðarmálastjóri, Gunnar Tómasson, varaforseti Slysa-
varnafélagsins, og Esther Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri
Slysavarnafélagsins.
Skátar fagna sjötíu ára
skátastarfi í Hafnarfirði
SKÁTAR í Hafnarfirði minnast á
morgun, miðvikudaginn 22. febrúar,
þess að þá eru liðin 70 ár frá því
að fyrsti skátaflokkurinn þar tók til
starfa. Hinn 22. febrúar 1925 var
fyrsti skátaflokkurinn stofnaður í
Hafnarfirði. Það var Jón Oddgeir
Jónsson, þekktur skátaforingi og
síðar mikill frumkvöðull slysavama-
mála, sem kveikti þennan fyrsta
neista skátahugsjónar þar og veitti
þessum fyrsta skátaflokki leiðsögn
og handleiðslu.
Hafnfirskir skátar hafa víða tekið
til hendi, látið til sín taka. Það má
nefna vormótin sem nú eru orðin
54 talsins. Og þá kemur Krýsuvíkin
í hugann. Þar hafa skátarnir í Hafn-
arfirði 10 hektara lands í sinni um-
sjá. Þetta land hafa þeir nú skiplagt
til landgræðslu og útilífsnota og
vinna nú markvisst að uppbyggingu
þessa svæðis í samræmi við það. Þar
stendur einn útileguskálinn þeirra,
Skýjaborgir. Hraunbúarnir í Hafnar-
firði eiga nú annan útileguskála við
Kleifarvatn. Hann heitir Hverahlíð.
St. Georgsgiidið í Hafnarfirði, sem
em félagssamtök eldri skáta, eiga
fallegan og skemmtilégan útilegu-
skála við Hvaleyrarvatn. Hg.nn heitir
Skátalundur. Hraunbúar hafa iðu-
lega fengið afnot af Skátalundi.
Skátaheimili Hraunbúa, Hraun-
byrgi, stendur við Hraunbrún. Þetta
er gott hús, en komið til ára sinna.
Þess vegna er orðið aðkallandi að
byggja nýtt skátaheimili undir
skátastarfið í Hafnarfirði, segir í
frétt frá Hraunbúum.
Draumurinn um nýtt
skátaheimili að rætast
Fyrir fimm árum fékk skátafélag-
ið fyrirheit frá bæjaryfirvöldum um
lóð á Víðiastaðatúni undir nýtt
Hraunbyrgi, nýtt félagsheimili
Hraunbúa. í fyrra var undirritaður
samstarfssamningur við Hafnar-
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi athugasemd frá Þor-
varði Örnólfssyni framkvæmda-
stjóra Krabbameinsfélags Reykja-
víkur:
„í viðtali við unglinga sem birtist
i síðasta sunnudagsblaði vegna reyk-
inga þessa hóps, mátti skilja orð
þeirra svo að Krabbameinsfélag
Reykjavíkur sýni aðeins eina
fræðslumynd í gegnum allan grunn-
skólann. Því fer víðs fjarri.
í 6. bekk er sýnd myndin Reyk-
laus framtíð - okkar framtíð, rætt
er við nemendur og spurningar um
efni myndarinnar- eru lagðar fyrir
nemendur í lok tímans. Þá fá þeir
bæklinginn Foreldrar og reykingar,
reglustiku með áletruninni „Strikum
yfir tókbak" og fleira.
í 7. bekk er sýnd myndin Veðmál-
ið, rætt er við nemendur og þeim
gefinn bæklingurinn Óbeinar reyk-
fjarðarbæ þar sem bærinn skuld-
bindur sig til að leggja fram 50
milljónir króna á næstu fimm árum
til byggingar skátaheimilis og er þá
árið 1994 meðtalið.
Teikningar að hinu nýja skáta-
heimili hafa verið unnar í samráði
við bæjaryfirvöld og ýmsar breyting-
ar gerðar samkvæmt ábendinum frá
þeim. Byggingarnefnd Hraunbúa
hefur fjallað um þetta mál með full-
trúum bæði núverandi og fyrrver-
andi bæjarstjórnar.
Á morgun verður mikið um að
vera á Víðistaðatúni í Hafnarfirði.
Þá byija skátarnir þar 70. afmælis-
árið sitt. Kl. 19.30 leggja þeir af
stað frá Skátaheimilinu Hraunbyrgi
í blysför. Henni lýkur á Víðistöðum
þar sem nýtt skátaheimili mun rísa
á næstu árum. Þar verða eldar
kveiktir, stutt ávörp flutt. Sr. Sig-
GRIKKLANDSVINAFÉLAGIÐ
Hellas heldur fræðslufund fimmtu-
daginn 23. febrúar kl. 20.30 í Litlu
Brekku, en hún er við hliðina á
Kornhlöðunni, bak við veitingahúsið
Lækjarbrekku, Bankastræti 2.
Að þessu sinni verður fjallað um
Hómer og söguhetju hans Odysseif
sem hlustendur Þjóðarþels í Ríkisút-
varpinu hafa kynnst undanfarið með
lestri Kristján Ámasonar, formanns
Grikklandsvinafélagsins. írski höf-
undurinn James Joyce nefndi aðal-
verk sitt Ulysses, sem er latneska
myndin af nafninu Odysseifur.
Bókmenntafræðingarnir Ástráður
Eysteinsson og Halldór Guðmunds-
son auk Sigurðar A. Magnússonar,
rithöfundar, sem unnið hefur það
ingar, veggspjald og bókmerki.
I 8. bekk flytja læknanemar á
fjórða ári fyrirlestur með litskyggn-
um þar sem umræður fylgja í kjölfar-
ið.
í 9. bekk er sýnd myndin Allt
sama tóbakið og rætt er við nemend-
ur.
í 10. bekk er rætt við nemendur
um tóbaksvarnir, þróun reykinga-
venja, reyklausa vinnustaði og fleira.
Önnur þjónusta við skólana felst
í útlánum fræðslumynda og annars
fræðsluefnis, hópar nemenda geta
fengið aðstoð í námskeiðsformi við
að hætta að reykja og einstaklings-
viðtöl eru veitt þegar sérstaklega
stendur á. Auk þess fær hver reyk-
laus bekkur í 8.-10. bekk í grunn-
skólum um allt land viðurkennngar-
skjal og nokkrir bekkir eru dregnir
út til verðlauna, svo og nokkrir ein-
stakir nemendur.“
urður Helgi Guðmundsson mun vígja
svæðið og tekin verður táknræn
skóflustunga hins nýja skátaheimilis
og flugeldum verður skotið á loft.
Að þessu loknu verður haldið í
Víðistaðakirkju þar sem ljósálfar,
ylfingar og nýliðar verða vígðir með
tilhlýðilegri athöfn. Að þeirri athöfn
lokinni verður boðið upp á skátakakó
og aðrar góðgjörðir að gömlum og
góðum skátasið. Skátadagskrá verð-
uri gangi með söng og gamni, þar
sem skátarnir skemmta sér með
ýmsum stuttum varðeldaatriðum.
Allir eru velkomnir til þess að
taka þátt í hátíðarhöldunum. Sér-
staklega er þess vænst að gamlir
Hraunbúnar og fjölskyldur þeirra
komi og fagni þeim áfanga sem
þarna er að hefjast í skátastarfi í
Hafnarfirði. Skátasystur og bræður
úr nágrenninu eru líka velkomin.
stórvirki nýlega að þýða Ulysses,
munu fjalla um Hómer og James
Joyce. Grikklandsvinir og aðrir unn-
endur bókmennta eru velkomnir.
-------» ♦.♦----- '
■ SKOTVEIÐIFÉLAG íslands
(SKOTVÍS) heldur fund fyrir sunn-
lenskra skotveiðimenn og áhuga-
menn um skotveiðar á Selfossi mið-
vikudaginn 22. febrúar. Fundurinn
verður haldinn á Hótel Selfossi og
hefst kl. 20. Meðal efnis er kynning
Ólafs K. Pálssonar formanns Skot-
vís á markmiðum og starfsemi fé-
lagsins, erindi um endur flutt af
Arnþóri Þ. Sigfússi og kynning á
útbúnaði frá versluninni Hjólabæ á
Selfossi. Fundurinn er öllum opinn
og aðgangur ókeypis.
VINNINGSTÖLUR LAUGARDAGINN 18.02.1995 |
©0(í 9) (T)
VINNINGAR FJÖLDI VINNINGSHAFA UPPHÆÐ Á HVERN VINNINGSHAFA
1.5 al 5 2 2.442.850
O 4 af 5 ^■PIÚS L irt- 123.590
3. 4af 5 115 7.410
4. 3al5 4.339 450
Heildarvinningsupphæö: 8.184.760
i Jmm BIRT MEÐ FYRIRVARA UM PRENTVILLUR
Athugasemd
Fjallað um Hómer á
fundi Grikklandsvina
Úr dagbók lögreglunnar
Ölvaö fólk veittist að
lögreglumönnum
í DAGBÓKINNI eru skráð 385 tjl-
vik á tímabilinu. Af þeim eru t.d.
40 vegna ölvunar, 28 vegna umferð-
aróhappa, 21 vegna hávaða og
ónæðis, 4 vegna heimilisófriðar og
ágreinings, 27 vegna innbrota og
þjófnaða, 6 vegna líkamsmeiðinga
og 17 vegna rúðubrota og skemmd-
arverka.
Þrettán ökumenn, sem afskipti
voru höfð af, eru grunaðir um ölv-
unarakstur. Einn þeirra hafði lent í
umferðaróhappi áður en til hans
náðist. Auk þess voru 57 ökumenn
kærðir eða áminntir fyrir ýmis um-
ferðarlagabrot.
Um 1.100 manns voru í miðborg-
inni aðfarnótt laugardags og um 900
aðfaranótt sunnudags. Ástand fólks
aðfaranótt laugardags var þokkalegt
og ekki var mikið um að lögreglan
þyrfti að hafa afskipti af ölvuðu
fólki. Lögreglumenn þurftu þó að
blanda sér í áflog manna í Austur-
stræti er leiddi til þess að færa þurfti
einn á miðborgarstöð lögreglunnar
og vista hann þar stutta stund uns
um hægðist. Síðan var hann fijáls
ferða sinna.
Hindruðu lögreglumann
við skyldustörf
Aðfaranótt sunnudags bar hins
vegar meira á ölvun meðal fólks og
þurfti lögreglan að hafa afskipti af
nokkuð mörgum, sem voru þar til
vandræða sökum ölvunar. Brotnar
voru rúður á þremur stöðum í mið-
borginni. Þá veittist ölvað fólk að
lögreglumönnum í Tryggvagötu
þegar þeir þurftu að hafa þar af-
skipti af ökumanni, grunuðum um
ölvunarakstur. Þurfti að færa þijá
aðila í fangamóttöku í framhaldi af
því.
Þetta fólk á von á sektum, bæði
vegna ölvunarháttsemi sinnar sem
og fyrir að reyna að hindra lögreglu-
menn við skyldustörf. Vista þurfti á
fjórða tug manna í fangageymslun-
um af ýmsum ástæðum.
Missti framan af fingri
Á föstudagskvöld var tilkynnt um
slys á veitingastað í miðþorginni.
Gestur, sem var að skemmta sér á
staðnum, hafði fest vinstri hendina
á milli setunnar og grindar stóls sem
hann hugðist setjast á með þeim
afleiðingum að fremsta kjúkan á
vísifingri skarst af. Konan var strax
flutt á slysadeild og stóllinn tekinn
til frekari rannsóknar.
Um kvöldið var umferðarslys á
Sæbraut við Laugarnesveg. Bifreið,
sem var ekið norður Sæbraut, lenti
yfir miðeyju á móts við Laugames-
veg og hafnaði á ljósastaur. Staurinn
brotnaði og miklar skemmdir hlutust
af á bifreiðinni. Þurfti að fá tækjabif-
reið slökkviliðsins til að ná ökumann-
inum út. Þrátt fyrir ljóta aðkomu
og illa skemmda bifreiðina virtist
ökumaðurinn Iítið slasaður en hann
var fluttur með sjúkrabifreið á slysa-
deild.
Kona kærði nauðgun
Á föstudagsnótt kærði ung kona
nauðgun í húsi við miðborgina. Hafði
hún hitt ókunnugan mann í miðborg-
inni, sem bauð henni í nálægt hús.
Þar réðist hann að stúlkunni, nauðg-
aði og hirti af henni peninga, sem
hún hafði.
Um nóttina varð gangandi maður
fyrir bifreið á Hverfisgötu á móts
við Þjóðleikhúsið. Maðurinn var
fluttur með sjúkrabifreið á slysa-
deild, en hann kvartaði yfir eymslum
í sípu og handlegg.
Á sunnudag var beðið um aðstoð
vegna snjóflóðs, sem fallið hafði í
Draumadalsgili í Bláfjöllum. Tveir
norskir menn höfðu verið á skíðum
í gilinu þegar snjóflóðið fór af stað.
Flóðið tók annan manninn með sér
en hinn maðurinn slapp frá því og
gat beðið um aðstoð. Tæpri klukku-
stund síðar fannst maðurinn í snjó-
flóðinu og var fluttur með þyrlu
Landhelgisgæslunnar á Borgarspít-
alann. Þar var hann úrskurðaður
látjnn.
Snemma á mánudagsmorgun var
tilkynnt um slagsmál tveggja manna
í húsi í Höfðahverfi. Enduðu slags-
málin á þann veg að annar maðurinn
var færður á slysadeild með sjúkra-
bifreið, llklega nefbrotinn.
Handtekinn föstudag,
laugardag og sunnudag
Maður, sem lögreglan handtók á
innbrotsstað að morgni föstudags,
var handtekinn á ný síðdegis á laug-
ardag fyrir þjófnað á veitingastað í
miðborginni. Síðdegis á sunnudag
var hann handtekinn eftir að hafa
brotist inn í bíl við Laugaveg. Eftir
skýrslutöku á sunnudag var hann
frjáls ferða sinna enn á ný.
í dag, þriðjudag, munu lögreglu-
menn á Suðvesturlandi huga sér-
staklega að ástandi ökutækja og
ökumanna á starfssvæðinu. Það von
þeirra að til sem minnstra afskipta
þurfi að koma að þessu tilefni.
ÍTALSKI BOLTINN 1X2
7. leikvika, 18. feb. 1995 7. leikvika , 19. feb. 1995
Nr. Leikur: Röðin: Nr. Leikur: Röðin:
1. Tottenham - Southampti - X - 2. Everton - Norwich 1 - - 3. QPR - Millwall 1 - - 1. Lazio - Milan l - - 2. Cagliari - Parma l - - 3. Genoa - Roma l - -
4. Watford - C. Palace - X - 5. Wolves - Lcicester 1 - - 6. Sheff. Wed - Aston V. - - 2 4. Cremonese - Fiorentina - X - 5. Juventus - Napoli l - - 6. Padova - Torino l - -
7. Coventry - West Ham 1 - - 8. Tranmerc - Reading 1 - - 9. Middlesbro - Charlton 1 - - 7. Reggiana - Bari - - 2 8. lnter - Brcscia l - - 9. Lucchcse - Cesena - X -
10. Southend - Sheff. Utd - - 2 11. Bristol C. - Oldham -X- 12. Luton - Swindon 1 - - 13. Sunderland - Portsmout - X - 10. Ácireale - Palermo l - - 11. Fid.Andria - Chievo -X- 12. Atalanta - Como l - - 13. Piacenza - Vicenza l - -
Hcildarvinningsupphæöin: Heildarvinningsupphæöin:
109 milljón krónur 15 milljón krónur |
13 réttir: | 83.910 1 kr. 13 réttir: 122.200 kr. kr.
12 réttir: |^^2Æ8(^| kr. 12 réttir: 4.570
11 réttir: ^^32tT^| kr. 11 réttir: [_ kr.
10 réttir: kr. 10 réttir: | 0 kr.