Morgunblaðið - 21.02.1995, Page 55
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
ÞRIÐJUDAGUR 21. FEBRÚAR 1995 55
DiCaprio leikur
Lennon á
Kjarvalsstöðum
TVÆR sýningar voru opnaðar á
Kjarvalsstöðum síðastliðinn laugar-
dag. Um var að ræða sýningu á
steinþrykksmyndum bítilsins og
fjöllistamannsins Johns Lennons og
sýningu á verkum Kristínar Jóns-
dóttur frá Munkaþverá.
Sýning Lennons samanstendur
annarsvegar af myndum sem voru
fýrst gefnar út eftir dauða hans.
Hinsvegar af myndum úr stein-
þrykksmyndaröðinni „The Bag One
Portfolio“ sem var fyrst sýnd opin-
berlega í janúar 1979, en efni henn-
ar er upphafning ástar Johns á
konu sinni Yoko Ono og samlíf
þeirra hjóna. Kristín Jónsdóttir frá
Munkaþverá heldur sýningu á vef-
list og beitir hún nýjum efnistökum,
meðal annars með tilvísun í ritlist-
ina.
KRISTJÁN Jónsson, Sigríður
Baldursdóttir, Karlotta Laufey
Halldórsdóttir, Ingigerður Bald-
ursdóttir, Þóra Baldursdóttir,
Eysteinn Jónsson með Kristján
Orra Arnarson og fyrir framan
er Sólveig Kristjánsdóttir.
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
GUÐRÚN Finnborg Þórðar-
dóttir, Þórunn Halldóra Þórð-
ardóttir og Guðrún Jónsdóttir.
► LEONARDO DiCaprio ræðst
ekki á garðinn þar sem hann er
lægstur. Hann mun að öllum lík-
indum fara með hlutverk James
Dean í væntanlegri kvikmynd um
leikarann goðsagnakennda. Ekki
nóg með það heldur mun hann
leika franska skáldið Rimbaud í
myndinni „Total
Eclipse" á móti
David Thewlis
sem leikur
Verlaine. Rim-
baud og Verla-
ine áttu í ást-
arsambandi og
eflaust mun
það fara fyrir
brjóstið á banda-
ríska kvikmyndaeftirlitinu að í
myndinni sjást þeir kyssast.
„Ég sé ekkert athugavert við
að leika í kvikmynd sem fjallar
um ástarsamband tveggja
manna,“ segir DiCaprio. „Þannig
getur leiklistin verið. Hvað
kossaatriðinu líður á það eftir
að verða erfitt fyrir mig. Ég hef
hinsvegar gert upp hug minn
og ég mun gera það vegna
þess að í myndinni á ég að
elska hann. Kvikmyndin
t fjallar á hinn bóginn ekki
um samkynhneigð sem slíka,
þótt ég þykist viss um að
g fjölmiðlar muni helst velta sér
upp úr því.“
DICAPRIO hefur í
nógu að snúast.
REBEKKA Þráinsdóttir,
Gunnar Kristinsson og
Jón E. Guðmundsson .
Dean og Rimbaud
Síðustu dagar útsölunnar
allirskórá kr. 1.495
eða minna
oppstórinn
Veltusundi v/lngólfstorg,
sími 21212.
FERMINGARBÖRNIN samankomin, frá vinstri: Ása Gissurar-
dóttir, Guðmundur Guðjónssson, Ásta Steingrímsdóttir, Guðgeir
Ólafsson og Vigdís Magnúsdóttir.
Endurfundir fermingarbama
FYRIR rétt rúmum sextíu árum
voru fímm ungmenni fermd í Ey-
vindarhólakirkju af séra Sveinbimi
Högnasyni. Á 75 ára afmæli Ástu
Steingrímsdóttur nú á dögunum
hittust þau svo aftur í fýrsta sinn,
öll saman, síðan á fermingardag-
inn. Urðu að vonum miklir fagn-
aðarfundir.
Námsstyrkir
MENNTABRAUT
Námsmamtaþjónusta íslandsbanka
íslandsbanki mun í tengslum við Menntabraut,.
námsmannaþjónustu íslandsbanka,
veita sjö námsstyrki að uþþhæð 100.000 kr. hver
á árinu 1995.
Allir námsmenn, 18 ára og eldri, geta sótt um styrkina,
hvort sem þeir eru í námi hér á landi eða erlendis.
Styrkirnir eru óháðir skólum og námsgreinum.
í umsókninni þurfa að koma fram upplýsingar um
nafn, heimili, símanúmer, námsferil, námsárangur og
framtíðaráform í stuttu máli.
Umsóknir skal senda til:
íslandshanki hf.
Markaðs- og þjónustudeild (Námsstyrkir)
Kringlunni 7
155 Reykjavík
Umsóknarfrestur er til 15. mars 1995
ISLA N DSBA N K I