Morgunblaðið - 21.02.1995, Síða 64
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181,
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBUSCENTRUM.1S / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTI 85
ÞRIÐJUDAGUR 21. FEBRÚAR 1995
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Ríkisstjórnin greiðir fyrir samningum með 1.850 millj. framlagi
Nýir kjarasamningar
voru samþykktir í nótt
SAMNINGANEFNDIR Alþýðusambandsins og vinnuveitenda samþykktu í
nótt nýjan kjarasamning eftir að ríkisstjórnin hafði á miðnætti komið til
móts við kröfur verkalýðshreyfmgarinnar og samþykkt að 4% framlag laun-
þega í lífeyrissjóð verði að fullu frádráttarbært frá skatti á næstu tveimur
árum. Það þýðir að skattleysismörk hækka í 60.700 kr. þegar breytingin er
að fullu komin fram. Ríkisstjórnin samþykkti einnig að leggja fé til skuld-
breytinga vegna vanskila í húsnæðiskerfinu, að upphæð nokkur hundruð
milljónir króna. Þá var ákveðið að miða verðtryggðar fjárskuldbindingar
við vísitölu framfærslukostnaðar, í stað lánskjaravísitölu eins og nú er, og
draga úr verðtryggingu í áföngum. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins
jpr talið að yfirlýsing ríkisstjórnarinnar vegna kjarasamninga, sem forsætis-
ráðherra undirritaði í nótt, kosti ríkissjóð 1.850 milljónir króna á þessu
ári, 2.100 milljónir á næsta ári og 500 milljónum króna meira árið 1997.
Reiknað var með að öll samtök innan ASÍ myndu skrifa undir í nótt, þeg-
ar gengið hefði verið frá málefnum iðnnema, nema Þjónustusambandið.
Ríkisstjórnin lagði síðdegis í gær
fram drög að yfirlýsingu, þar sem
kveðið var á um að helmingur af
framlagi launþega í lífeyrissjóð yrði
frádráttarbær, auk aðgerða í hús-
næðismálum og fleiri málaflokkum.
Forystumenn Alþýðusambandsins
voru óánægðir með að fá ekki lífeyr-
issjóðsframlag frádregið að fullu.
Jafnframt kröfðust þeir hærri fram-
laga til skuldbreytinga í húsnæðis-
kerfmu og að foreldrar 16-19 ára
unglinga í framhaldsnámi fengju
framlengingu bamabóta og barna-
bótaauka.
Gengið lengra í skatta-
og húsnæðismálum
Þessar athugasemdir ASÍ voru
kynntar á fundi með fjórum ráðherr-
um á fundi í Stjórnarráðshúsinu í
gærkvöldi. Ráðherrar samþykktu að
koma til móts við verkalýðshreyfing-
una varðandi skattlagningu lífeyris-
greiðslna og skuldbreytingar hús-
næðislána.
í drögum að yfirlýsingu ríkis-
stjómarinnar kemur meðal annars
þetta fram, auk þess sem áður er
talið:
• Frá 1. júlí næstkomandi verður
heimilt að draga 2% af framlagi
launþega í lífeyrissjóð frá skatttekj-
um. Frá 1. júlí á næsta ári hækkar
hlutfallið í 3% og 1. júlí 1997 verður
framlagið að fullu frádráttarbært. í
yfirlýsingunni er tekið fram að tekju-
tapi vegna þessa verði að mæta með
nýjum tekjum eða niðurskurði út-
gjalda.
• Eingreiðslur í almannatrygginga-
kerfinu verði í samræmi við ákvæði
um eingreiðslur í kjarasamningum.
• í húsnæðismálum verði gripið til
ýmiss konar aðgerða. í fýrsta lagi
verði gerð athugun á umfangi van-
skila og eðli greiðsluerfiðleika heim-
ila og næstu vikur nýttar til að skil-
greina til hvaða aðgerða eigi að
grípa varðandi skuldbreytingar. í
öðru lagi sé stefnt að fjölgun
greiðsludaga vegna vaxtabóta og að
greiðslur þeirra gangi til greiðslu
afborgana af lánum hjá Húsnæðis-
stofnun. í þriðja lagi bendir ríkis-
stjórnin á ákvæði í frumvarpi um
breytingar á lögum um Húsnæðis-
stofnun, sem nú er til meðferðar á
Alþjngi, m.a. að afskriftir í félags-
lega kerfinu verði lækkaðar úr 1,5%
í 1% og þrengd verði skilyrði fyrir
því að vaxtahækkun geti orðið. Því
verði beint til bankastofnana og líf-
eyrissjóða að gert verði átak í að
skuldbreyta lánum.
• Haldið verður áfram átaki til að
draga úr skattsvikum.
• Skattalögum verði breytt þannig
að hlunnindi starfsmanna af ferðum
til og frá vinnu með hópferðabifreið
vinnuveitanda teljist ekki til skatt-
skyldra tekna.
• Heimilaður verður skattafrá-
dráttur vegna ferðalaga á vegum
atvinnurekanda án tillits til fjöida
ferða á ári, sem eru styttri en 30
dagar.
• Niðurgreiðslur húshitunarkostn-
aðar verði auknar á þessu ári.
• Reglur um endurgreiðslur kostn-
aðar vegna sérfræðiheimsóknar og
innlagnar á sjúkrahús verða endur-
skoðaðar.
• Ríkisstjómin mun skipa nefnd
sem geri tillögur um lækkun fram-
færslukostnaðar heimila, einkum
vöruverðs á landsbyggðinni.
• Ríkisstjómin mun beita sér fyrir
samþykkt framhaldsskólafrum-
varps, sem skapi forsendur fyrir
breytingar á verk- og starfsmennt-
un.
• Unnið verður að úrbótum á mál-
um fólks í atvinnuleit með aðgerðum
á sviði verkmenntunar og starfs-
þjálfunar, m.a. með 15 milljóna við-
bótarframlagi á þessu ári.
• Gerviverktaka verði takmörkuð
og réttindi launþega tryggð.
• Lagðar verði fram allt að 3 millj-
ónir í viðbótarfé til aðgerða, sem
dragi úr launamun karla og kvenna.
• Skattalögum verði breytt og
kveðið á um að sannanlega tapað
hlutafé í gjaldþrota félögum teljist
til rekstrargjalda. Sama gildi um
hlutafé sem tapast vegna niður-
færslu í kjölfar nauðasamninga.
• Lögum um atvinnuleysistrygg-
ingar verði breytt til að gera fast-
ráðningu fiskvinnslufólks mögulega.
Loka-
hand-
takið
ÞEIR voru margir fundirnir sem
haldnir voru í gær í sambandi við
kjarasamningana. Ráðherrar og
forystumenn launþega og vinnu-
veitenda hittust í stjórnarráðinu
og í húsakynnum sáttasenyara
ræddust samninganefndirnar við.
Þessi mynd var tekin undir mið-
nætti í nótt, þegar Davíð Oddsson
forsætisráðherra og Benedikt
Davíðsson, formaður Alþýðusam-
bandsins, takast í hendur að lokn-
um fundi forystumanna ASÍ með
Davíð, Jóni Baldvin Hannibals-
syni utanríkisráðherra (í baksýn),
Friðrik Sophussyni fjármálaráð-
herra og Rannveigu Guðmunds-
dóttur félagsmálaráðherra í
Stjórnarráðshúsinu seint í gær-
kvöldi. Þetta var þriðji og síðasti
fundur þeirra í gær. ASI-forystan
hélt þá til fundar við félaga sína
í húsnæði ríkissáttasemjara, þar
sem fundað var um tilboð ríkis-
stjórnarinnar.
Meðalhækkun launa á samningstíma nýrra kjarasamninga 6,9%
Laun undir 60 þúsund
krónum hækka um
Alþýðu-
flokkur og
Þjóðvaki
jafnir
ALÞÝÐUFLOKKUR og Þjóð-
vaki hafa jafnmikið fylgi, sam-
kvæmt skoðanakönnun, sem
Félagsvísindastofnun gerði fyr-
ir Morgunblaðið í sfðustu viku.
Báðir flokkar fá stuðning
10,5% af þeim, sem afstöðu
tóku í könnuninni. Alþýðuflokk-
ur hafði 8,8% í seinustu könnun
Félagsvísindastofnunar í jan-
úar, en Þjóðvaki 17,3%.
Sjálfstæðisflokkurínn hefur
stuðning 39,8% svarenda, en
hafði 37,9% í janúar.
^ Kvennalistinn tapar áfram
'fylgi og nýtur nú stuðnings
3,9%, miðað við 5,8% í janúar.
Alþýðubandalagið fær nú
stuðning 15,6% svarenda en
hafði 12,3% í janúar. Fram-
sóknarflokkur fær nú 18,7%,
en hafði 17,6% í janúar.
■ Stjórnarflokkar/6
GENGIÐ var frá drögum að kjara-
samningi milli landssambanda Al-
þýðusambands íslands, Vinnuveit-
endasambands íslands og Vinnu-
málasambands samvinnufélaganna
í gærmorgun, en beðið var með
undirritun þar til skýrðist hvað
stjórnvöld gætu lagt af mörkum til
að liðka fyrir gerð samninganna.
Samkvæmt drögunum hækka
lægstu laun mest á samningstíman-
um og fer hækkunin minnkandi
eftir því sem ofar dregur í launa-
stiganum. Að mati samningsaðila
hækka laun undir 60 þúsund krón-
um að meðaltali um 11,3% á samn-
ingstímanum, laun á bilinu 60-84
þúsund krónur hækka að meðaltali
um 9,2%, en meðalhækkun launa á
samningstímanum sem samningur-
inn felur í sér er 6,9%.
Kjarasamningurinn er til tæplega
tveggja ára eða til ársloka 1996.
Tvær almennar launahækkanir eru
á samningstímanum, en samning-
urinn felur í sér að lægstu laun
hækka um 3.700 krónur á mánuði
við undirritun. Hækkunin fer síðan
stiglækkandi upp að 84 þúsund
króna mánaðarlaunum, en öll laun
þar fyrir ofan hækka um 2.700
krónur. Miðað er við föst laun fyrir
dagvinnu að meðtalinni yfirborgun.
Laun hækka síðan aftur 1. jan-
úar 1996 og er annaðhvort um pró-
sentu- eða krónutöluhækkun að
ræða eftir því hvaða landssamband
Alþýðusambandsins á í hlut. Laun
félaga í Verkamannasambandi ís-
lands, Landssambandi íslenskra
verslunarmanna, Iðju og Þjónustu-
sambandi íslands hækka um 2.700
krónur, en laun félaga í Rafiðnaðar-
sambandi íslands og Samiðn hækka
um 3%.
Desemberuppbót hækkar
Þá felur samningurinn í sér að
desemberuppbót hækkar úr 13 þús-
und krónum í 15 þúsund krónur í
desember 1996 og að sérstakar
launabætur koma á heildarlaun
undir 80 þúsund krónum með sama
hætti og í fyrri kjarasamningi.
Launabæturnar koma tvívegis
hvort ár í maí og í desember.
Launanefnd skipuð þremur full-
11,8%
trúum frá hvorum aðila, Alþýðu-
sambandi og vinnuveitendum, fylg-
ist með framvindu efnahags-, at-
vinnu- og verðlagsmála á samnings-
tímanum og gerir tillögur um við-
brögð til samningsaðila og stjórn-
valda eftir því sem aðstæður krefj-
ast á hverjum tíma. Heimilt er að
segja samningnum upp með mánað-
arfyrirvara um næstu áramót verði
þróunin verulega frábrugðin því
sem gert var ráð fyrir við gerð
samningsins. Er byggt á því að
verðlagsþróun á samningstímanum
í heild verði áþekk því sem gerist
í helstu samkeppnislöndum.
■ Meðalhækkun/4