Morgunblaðið - 28.02.1995, Page 1
72 SÍÐUR B
49. TBL. 83. ÁRG.
ÞRIÐJUDAGUR 28. FEBRÚAR 1995 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Barings-banki gjaldþrota vegna áhættuviðskipta
Markaðir í Evrópu
og Asíu í uppnámi
Lundúnum. Reuter.
BARINGS, elsti fjárfestingarbanki Lundúna, varð gjaldþrota um helgina
vegna áhættuviðskipta starfsmanns í útibúi bankans í Singapore. Gjald-
þrotið olli miklu uppnámi á ijármálamörkuðum í Evrópu og Asíu. Pundið
snarlækkaði í verði og hefur aldrei verið jafn lágt gagnvart þýska markinu.
Þetta er mesta bankakreppan í
Bretlandi í ellefu ár og hrun Bar-
ings varð til þess að hlutabréf lækk-
uðu í verði í kauphöllunum í Lund-
únum, Frankfurt og París. Upp-
náminu olli starfsmaður bankans í
Singapore, Nick Leeson, er stund-
aði áhættuviðskipti sem gætu kost-
að bankann meira en milljarð
Bandaríkjadala, jafnvirði 66 millj-
arða króna.
Nick Leeson hvarf á fimmtudag
og lögreglan í Malasíu leitar hans
nú að beiðni yfirvalda í Singapore.
Talið er að Leeson hafi flúið frá
Singapore á föstudag og notað fals-
að vegabréf á flóttanum.
Bankastjóri Englandsbanka
sagði að Leeson hefði orðið fórnar-
lamb taps vegna „umfangsmikilla
viðskipta án heimildar“. Englands-
banki reyndi að bjarga Barings frá
gjaldþroti en örvæntingarfullar til-
raunir um helgina til að fá nokkra
af stærstu lánastofnunum heims til
að koma bankanum til bjargar báru
ekki árangur.
Vilja strangari reglur
Stjórnarandstæðingar á breska
þinginu kröfðust skýringa frá John
Major, forsætisráðherra Bretlands,
á því hvernig einn starfsmaður
gæti valdið hruni eins virtasta
banka landsins. Gordon Brown,
talsmaður Verkamannaflokksins í
fjármálum,
hvatti til þess
að settar yrðu
strangari reglur
um viðskipti
með afleidda
samninga. Af-
leiddir samn-
ingar, sem
tengjast gengi
vöru, hluta-
bréfa eða
skuldabréfa,
voru upphaf-
lega hugsaðir
sem baktryggingar gagnvart verð-
breytingum. Hagnaðurinn af braski
með slíka samninga á eftirmarkaði
getur hins vegar verið gífurlegur -
og tapið einnig.
■ Tapaði 66 milljörðum/18
■ Pund og hlutabréf hrapa/15
Meistarar
OPNUÐ var í Moskvu í gær sýning
á málverkum, sem sovéskir her-
menn tóku í Þýskalandi undir lok
síðasta stríðs. Hafa þau ekki kom-
ið fyrir almenningssjónir í hálfa
öld en þýska stjómin vill, að þeim
verði skilað. 63 verk verða á sýn-
ingunni í Púshkín-saf ninu og þar
á meðal verk eftir spænsku málar-
ana Francisco de Goya og E1 Greco
og franska impressjónistann Aug-
Reuter
á sýningu
uste Renoir. Irína Antonova, for-
stöðumaður Púshkín-safnsins, seg-
ir, að þessi verk séu aðeins sjötti
hluti þeirra, sem flutt voru til
Rússlands eftir strið, og séu fleiri
sýningar fyrirhugaðar. Þjóðverjar
krefjast þess að verkunum verði
skilað en Rússar tregðast við,
benda á að Þjóðverjar hafi sjálfir
stolið aragrúa rússneskra lista-
verka í heimsstyrjöldinni.
Isjaki
stærri en
Reykja-
nesskagi
London. Reuter.
GEYSIMIKILL ísfleki, nær tvö-
falt stærri en Reykjanesskagi,
hefur brotnað úr ísnum við
Suðurskautslandið vegna
hækkandi hitastigs á svæðinu
og er á leið norður í Kyrrahaf,
að sögn breskra vísindamanna.
Borgarísjakinn er um 78
sinnum 37 kílómetrar að stærð
og allt að 200 metra þykkur.
Hann brotnaði frá Larsen-
ísflekanum suður af Nýja-Sjá-
landi og hefur þetta valdið því
að hægt er að sigla að eyjunni
James Ross í fyrsta sinn. A
eftir jakanum er aragrúi
smærri brota.
Vísindamenn segja að með-
alhitastig á svæðinu hafi hækk-
að um 2,5 stig á celsíus undan-
farin 50 ár. Vindar og straum-
ar beri jakann hratt norður
næstu mánuðina og hann muni
bráðna snögglega er hann lendi
í hlýrri sjó.
Reuter
PETER Kerry á flugvellinum í Kuala Lumpur í fylgd fulltrúa breska sendiráðsins og innlends
lögreglumanns í gær. Drengurinn var væntanlegur heim til London í dag.
Tugir farast í tilræði í N-írak
Ankara. Reuter.
BÍLSPRENGJA varð a.m.k. 54 manns að bana
og 15 særðust að auki í Kúrdaborginni Zakho
í gær en hún er í norðurhluta íraks. Kúrdarnir
njóta verndar vestrænna flugheija, einkum
bandarískra, fyrir heijum Saddams Husseins
íraksforseta en eiga í blóðugum, innbyrðis deil-
um.
Sprengingin varð við fjölfarna götu í við-
skiptahverfi Zakho að morgni, ekki var vitað
hver bar ábyrgð á henni. Borgin er um 20 kíló-
metra frá tyrknesku landamærunum.
Önnur helsta frelsishreyfing Kúrda, Kúrdíski
lýðræðisflokkurinn, undir stjórn Masouds Barz-
anis, ræður borginni, hann hefur einnig töglin
og hagldirnar í Dohuk og Salahuddin. Keppi-
nautur hans, Jalal Talabani, fer fyrir Föður-
landssambandi Kúrdistans, og sagði hann í yfir-
lýsingu um atburðinn að þeir sem vildu auka
viðsjár milli Kúrda hlytu að liggja undir grun
og þá einkum stjórn Saddams.
Taíabani ræður m.a. borgunum Arbil og
Suleimaniyah, sunnar í héraðinu. Flokkarnir
tveir hafa barist hart frá því í desember og
hafa Bandaríkjamenn og Tyrkir varað þá við,
sagt að aðstoð við Kúrda verði hætt ef ekki
verði lát á.
Deiluefni flokkanna er aðallega tollar sem
Kúrdar leggja á viðskipti Tyrkja er selja írökum
lyf og matvæli með leyfi Sameinuðu þjóðanna
en kaupa í staðinn dísilolíu.
Stakk af
til Malasíu
Kuala Lumpur. Reuter.
FJÓRTÁN ára breskur drengur
var væntanlegur heim til
Harrow í Norður-London í gær
eftir að hafa stungið af í reiði
til Malasíu í síðustu viku. Til
þess notaði hann greiðslukort
og vegabréf nær sextugs föður
síns og þykir málið óþægilegt
bæði fyrir breska útlendingaeft-
irlitið og það malasíska.
Til deilna kom við matarborð-
ið á heimili drengsins, Peters
Kerry, sl. þriðjudag er spagh-
etti-máltíð fór til spillis. Sinnað-
ist honum við föður sinn, John,
sem refsaði pilti með því að taka
hann ekki með tveimur yngri
systkinum hans á fótboltaleik.
Pilturinn, sem er kunnur fyrir
mikla útþrá, lét sig hverfa eftir
máltíðina misheppnuðu, með
greiðslukort og vegabréf föður
síns að vopni.
Lélegt eftirlit
Drengurinn hringdi í foreldra
sína á f immtudag frá Malasíu
og var þá kominn í þrot, búið
að loka greiðslukortinu. Hann
fannst á sunnudag í borginni
Kota Baru í norðurhluta lands-
ins þar sem breskur læknir tók
hann í umsjá sína.
John Kerry, faðir strokupilts-
ins, fann að vegabréfaeftirliti á
breskuin flugvöllum í gær og
sagði að það hlyti að vera losara-
legt fyrst 14 ára piltur kæmist
úr landi á passa 59 ára manns.
„Við erum ekkert líkir. Að vísu
er hann stór og stæltur eftir aldri
en aldursmunurinn dylst engum.
Þá er liann ljóshærður en ég
dökkhærður," sagði faðirinn.