Morgunblaðið - 28.02.1995, Side 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 28. FEBRÚAR 1995
MORGUNBLAÐIÐ
___________________________RÁIMIÐ í LÆKJARGÖTU____________________________
Þrír hettuklæddir menn réðust að peningaflutningamönnum Skeljungs 1 Lækjargötu í gærmorgun
Komust undan
með 5 milljónir
Morgunblaðið/Júlíus
FRIÐRIK Stefánsson, starfsmaður Skeljungs, með
uppgjörstöskur sem ekki komust í ræningjahendur.
EFTIR að hálfbrunnar uppgjörstöskur fundust í Hvammsvík
stöðvaði lögreglan alla bíla á leið til borgarinnar, skráði hjá
sér númer þeirra og leitaði að þekktum afbrotamönnum.
TVEIR hettuklæddir menn réðust
á tvo starfsmenn Skeljungs, sem
voru að flytja afrakstur helgarsölu
bensínstöðva fyrirtækisins í ís-
landsbanka í Lækjartorgi í gær-
morgun, börðu annan þeirra og
rændu af þeim tösku með rúmlega
fimm milljónum króna, þar af rúm-
lega 3 milljónum í reiðufé og 2
milljónum í ávísunum. Ránið virðist
þaulskipulagt og komust ræn-
ingjarnir undan á stolnum bíl sem
þriðji maðurinn ók en á bílinn höfðu
þeir sett stolnar númeraplötur.
Samkvæmt upplýsingum Morgun-
blaðsins er talið að einn ræningj-
anna hafi verið kona. Undir kvöld
í gær fannst bíll sá sem númeraplöt-
unum hafði verið stolið af.
Síðdegis í gær fundust hálf-
brunnar uppgjörstöskur merktar
Skeljungi og fatnaður í íjörunni
skammt ofan við Hvammsvík í
Hvalfírði. Talið er víst að ræn-
ingjarnir hafí komið þeim fyrir þar
og reynt að kveikja í þeim. Morgun-
blaðið fékk ekki staðfest í gær-
kvöldi að í töskunum hefði m.a.
verið eitthvað af þeim ávísunum
sem stolið var í ráninu.
Leit að ræningjunum stóð yfír
um Reykjavík og nágrenni fram á
kvöld í gær í einhveijum umfangs-
mestu lögregluaðgerðum seinni ára
í Reykjavík. Maður var handtekinn
í gærkvöldi í framhaldi af ákeyrslu
á Grandagarði (sjá annars staðar á
þessari blaðsíðu) en samkvæmt
upplýsingum Morgunblaðsins voru
grunsemdir um að hann tengdist
ráninu taldar veikar.
Barin með slökkvitæki
Ránið var framið um kl. 10 í
gærmorgun þegar tveir starfsmenn
Skeljungs, Katrín Hjálmarsdóttir
og Guðbjörg Jakobsdóttir, komu að
Islandsbankanum í Lækjargötu eft-
ir að hafa verið á ferð milli bensín-
stöðva fýrirtækisins í borginni að
safna saman töskum með afrakstri
sölu laugardags og sunnudags.
Stúlkumar hafa ekki viljað tjá
sig við fjölmiðla um atburðinn, en
samkvæmt upplýsingum Morgun-
blaðsins réðust að þeim tveir menn
um leið og þær stigu út úr bíl merkt-
um fyrirtækinu og var önnur þeirra
Hálfbrunnar upp-
gjörstöskur frá
Skeljungi og fatn-
aður fundust í
Hvalfirði í gær
SLÖKKVITÆKI sem önnur
stúlkan var slegin með.
barin í höfuðið með litlu slökkvi-
tæki. Hún var fiutt á slysadeild en
ekki talin alvarlega meidd, að sögn
Kristins Bjömssonar forstjóra
Skeljungs.
Mennimir tveir vom samkvæmt
lýsingum stúlknanna klæddir í
dökka galla og með andlitsgrímur
en samkvæmt frásögn vitnis sem
horfði á árásina var annar þeirra
klæddur í dökkgrænan hermanna-
jakka og ljósbláar gallabuxur. Báðir
vom með brúnar lambhúshettur á
höfði.
Mennimir tveir komust undan
með peningatöskuna en þó urðu
eftir á vettvangi uppgjörspokar frá
nokkrum bensínstöðvum.
Stolinn bíll — stolnar
númeraplötur
Ræningjamir forðuðu sér í hvítan
Saab-bíl sem þriðji aðilinn ók.
Skömmu eftir að ránið var til-
kynnt lögreglu fannst hvítur SAAB-
bíll ræningjanna, þar sem honum
hafði verið lagt við bílskúr inni á
lóð við Ásvallagötu. Inni í honum
var peningataskan tóm. Bílnum
hafði verið stolið og sett á hann
stolin skráningarnúmer.
Taskan hafði verið útbúin með
sérstökum þjófavarnarbúnaði sem
var þannig úr garði gerður að þeg-
ar taskan færi í ákveðna fjarlægð
frá þeim sem hana átti að bera og
var með lykilinn á sér færi taskan
að ýla og spýtti síðan bláleitu dufti
yfir innvols töskunnar og nær-
stadda yrði reynt að opna hana.
Þjófavarnarbúnaður
virkaði ekki
Peningarnir voru hins vegar sam-
kvæmt upplýsingum Morgunblaðs-
ins í uppgjörstöskum ofan í tösk-
unni með þjófavarnarbúnaðinum.
Hinn sérstaki þjófavarnarbúnað-
ur töskunnar virkaði ekki þegar til
átti að taka og komust ræningjarn-
ir undan með peningana.
Kristinn Bjömsson forstjóri
Skeljungs sagði að starfsmenn fyr-
irtækisins hefðu í einu og öllu fylgt
þeim fyrirmælum sem þeim hafí
verið sett um hvernig standa skuli
að peningaflutningum af þessu tagi.
íbúar urðu einskis varir
Rannsóknarlögregla ríkisins
stjórnaði rannsókn á vettvangi þar
sem bíllinn fannst.
íbúar nálægra húsa sem Morgun-
blaðið ræddi við kváðust einskis
hafa orðið varir. Kona í nálægu
húsi kvaðst hafa tekið eftir bílnum
í stæði við bílskúr sinn.
Hún kvaðst hafa hringt í ná-
granna sína til að kanna hvort þeir
þekktu til bílsins og þegar svo
reyndist ekki vera hafi hún ætlað
að hringja í lögreglu en um sama
leyti hafí lögreglan komið að og
fundið bílinn.
Lögreglan fékk sporhund á vett-
vang á Ásvallagötu og sá hljóp
hring um nágrennið án þess að það
skilaði áþreifanlegum vísbending-
um um ferðir ræningjanna.
Umfangsmikil leit
Lögregla hóf strax umfangsmikla
leit að ræningjunum, og auk RLR
tók fíkniefnalögreglan þátt í þeirri
leit, heimsótti aðsetur kunnra af-
brotamanna og stöðvaði þá á götu.
Meðal annars var fíkniefnalög-
reglan á ferð í Tryggvagötu í há-
deginu og stöðvaði þá ferð manns-
ins, sem síðar var handtekinn á
Grandagarði undir kvöld, en honum
og fjórum félögum hans var sleppt
að loknu stuttu viðtali enda þótti
ekkert þá benda til að hann væri
viðriðinn málið.
Reynt að kveikja í
uppgjörstöskum
Á Qórða tímanum í gær barst
lögreglunni tilkynning frá manni
sem leið átti um Hvalfjörð að hann
hefði fundið skjöl sem reynt hafði
kveikja í í flæðarmálinu milli
Hvammsvíkur og Fossár.
Lögregla og rannsóknarlögregla
fóru á staðinn og reyndust þarna
vera nokkir uppgjörspokar merktir
Skeljungi og fatnaður. Þessum hlut-
um hafði verið staflað upp í hrúgu
og kveikt í þeim en eldurinn hafði
kulnað.
Ummerki í Hvalfirði
Rannsóknarlögreglan tók þessa
hluti í vörslu sína og ljósmyndaði
ummerki um mannaferðir á vett-
vangi.
Eftir að þessi vísbending barst
setti lögregla upp vegartálma við
helstu akstursleiðir milli borgarinn-
ar og Hvalfjarðar og stöðvaði alla
bíla á leið til borgarinnar. Einnig
var lögregla í Borgarnesi fengin til
að fylgjast með umferð norður úr.
Rauður bíll
Samkvæmt upplýsingum Morg-
unblaðsins taldi lögreglan sérstaka
ástæðu til að leita að rauðum bíl
sem sést hafði í Hvalfirði um þetta
leyti.
Rannsóknarlögregla ríkisins hef-
ur þetta mál til meðferðar. í gær
voru teknar skýrslur af stúlkunum
tveimur og vitni sem gaf sig fram
og í gærkvöldi var rannsókn máls-
ins enn á frumstigi, samkvæmt
upplýsingum Morgunblaðsins og
engir ákveðnir aðilar undir grun
vegna ránsins.
Hélt þetta væri
öskudagsgrín
Umfangsmiklar aðgerðir
lögreglu á Grandagarði
„ÉG HÉLT að þetta væri ösku-
dagsgrín," sagði vitni að ráninu
í Lækjargötu í samtali við
Morgunblaðið í gær.
„Ég var að keyra suður
Lækjargötuna þegar ég sá
álengdar þessa tvo menn með
lambhúshettur. Ég kveikti ekki
á perunni og hélt að þetta væri
grín. Svo sá ég hvar þeir henda
konunni í götuna milli tveggja
bíla, lúskra á henni og taka af
henni stóra tösku. Annar stóð
eins og í skjóli við bílinn og ég
sá ekki hvernig hann var
klæddur. Hinn sem réðst á hana
var í ljósbláum gallabuxum og
hermannajakka. Þeir voru báð-
ir með brúnar lambhúshettur
og það sást bara í nef og augu.
Ég var að flýta mér í skólann
og það var svo mikil umferð
þarna og svo margt fólk að ég
hélt að þetta hlyti að verða
upplýst strax. Éftir klukkutíma
þegar ég var búin í skólanum
keyrði ég fram hjá aftur, sá
lögregluna og að eitthvað mik-
ið var í gangi. Þá gaf ég mig
fram til að segja hvað ég hafði
séð.
Þetta var mjög einkennilegt.
Það var mikil umferð og þetta
gerðist í einni hendingu og ég
var komin fram hjá áður en ég
vissi af. Ég þorði ekki að snar-
stoppa vegna þess hvað það var
mikil umferð en maður hugsar
ekki rökrétt þegar maður sér
svona. Maður á líka ekki von á
því að verða vitni að ráni úti á
götu um hábjartan dag. Ég
hélt eiginlega að þetta væri
eitthvert öskudagsgrín," sagði
vitnið, sem ekki vildi koma
fram undir nafni.
LÖGREGLAN í Reykjavík stóð fyrir
mjög umfangsmiklum aðgerðum á
Grandagarði í gær til að leita að
mönnum, sem stungið höfðu af frá
árekstri og um tíma var talið að
tengdust milljónaráninu frá Skelj-
ungi. Einn mannanna var handtek-
inn undir kvöld í gær en í gærkvöldi
fékk Morgunblaðið þær upplýsingar
hjá lögreglunni í Reykjavík og RLR
að grunsemdir gegn honum hvíldu
e'kki á sterkum grunni.
Á fjórða tímanum í gær var bíl
ekið á þijá bíla við hús Slysavarnar-
félagsins á Grandagarði. Tjónvaldur-
inn ók af vettvangi en númer bílsins
náðist. I bílnum voru 2 karlar og 1
eða 2 konur.
Sjóblaut föt
Skömmu siðar fannst bíllinn við
hús Áttavitaþjónustunnar á Granda-
garði.
í bílnum fundust m.a. sjóblaut
föt, en skömmu áður höfðu upp-
gjörstöskur úr Skeljungsráninu
fundist við Hvammsvík í Hvalfirði.
Lögreglan vissí að umráðamaður
bílsins var kunnur síbrotamaður í
borginni.
Lögreglan blés þegar til umfangs-
mikillar leitar og fylgdist grannt
með akstursleiðum frá Grandagarði.
Sporhundur var fenginn á staðinn
og lögregla kannaði nágrennið.
Þyrlu Landhelgisgæslunnar var snú-
ið af leið upp í Hvalfjörð til að leita
í sumarbústöðum að ræningjunum
og látin leita strendur meðfram
Grandagarði, auk þess sem siglt var
á gúmmíbáti meðfram Grandanum.
Kom í leigubíl
Auk þess var settur vörður um
fyrirtæki við Grandagarð þar sem
fyrrnefndur síbrotamaður hefur
starfað. Þorri lögregluliðs borgar-
innar var við störf við leit á Vestur-
landsvegi og á Grandagarði dijúgan
hluta dagsins í gær.
Leit lögreglunnar bar árangur
skömmu fyrir klukkan sjö þegar sí-
brotamaðurinn sem leitað hafði verið
að kom vestur á Grandagarð í leigu-
bíl. Hann hafði þá komist á brott
en sneri aftur og á vinnustað sinn.
Veikar grunsemdir
Hann var þá handtekinn og færð-
ur í fangageymslur.
Samkvæmt upplýsingum sem
Morgunblaðið fékk hjá RLR var ekki
talið að sterkar vísbendingar tengdu
þennan mann að svo stöddu við rán-
ið en hann var hafður í haldi og
yfirheyrður vegna ákeyrslunnar við
hús Slysavarnafélagsins.
Maður þessi hafði um hádegið
m.a. verið stöðvaður af fíkniefna-
deild lögreglunnar en látinn laus
enda þótti þá ekkert liggja fyrir sem
bendlað gæti hann við ránið.