Morgunblaðið - 28.02.1995, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 28. FEBRÚAR 1995 15
VIÐSKIPTI
Hrun Baríngsbanka veldur óróa
Pund og hluta-
bréf falla
London. Reuter.
óstyrks mun líklega einnig gæta
þar ekki síður en annars staðar.
Markið eftirsótt
Sérfræðingar benda á að sókn í
trausta gjaldmiðla hafi aukizt, eink-
um þýzk mörk og svissneska
franka, vegna óvissu á mörgum
mörkuðum.
Bankastjóri Englandsbanka,
Eddie George, reyndi að stuðla að
rósemi á mörkuðum með því að
leggja áherzlu á að erfiðleikarnir
væru bundnir við Baringsbanka og
hefðu ekki áhrif á aðra banka og
fj ármálastofnanir.
Engu að síður vekur ugg á fjár-
málamörkuðum að bankar í London
hafa ekki verið þess megnugir að
bjarga einhveijum virtasta og sögu-
frægasta banka Bretlands.
Verðbréfasali í London sagði að
óvissan vegna kreppunnar í Mexíkó
næði nú til bankakerfisins vegna
gjaldþrots Baringsbanka. Hann
sagði að pundið yrði að yfirstíga
aðra hindrun á miðvikudag þegar
umræður fara fram á þingi um
Evrópustefnu Johns Majors forsæt-
isráðherra og atkvæði verða greidd
um hana. Ef Major biði ósigur
mundi það auka mikla pólitíska
óvissu og veikja stöðu pundsins
ennþá meir.
Bandaríkin
GENGI pundsins gagnvart markinu
hefur aldrei verið lægra og hluta-
bréf lækkuðu í verði um allan heim
í gær vegna gjaldþrots Barings-
banka í Bretlandi.
Englandsbanki fékkst ekki til að
bjarga Baringsbanka og órói á
mörkuðum vegna hruns hans er
meiri en ella vegna pesóakreppunn-
ar í Mexíkó. Tap Barings nemur
meira en einum milljarði dollara.
í Tokyo lækkuðu hlutabréf um
3,.8%. Nikkei-vísitalan lækkaði um
664,24 stig, var 16,808.70 við lokun
og hefur ekki verið lægri síðan 8.
desember 1993.
Gengi pundsins hefur aldrei verið
lægra og var skráð 2.2950 mörk
fljótlega eftir opnun. Áður hafði
pundið lækkað í 2,2993 mörk í
Asíu og það heldur áfram að lækka
í Evrópu.
í London lækkaði kauphallarvísi-
tala um tæp 1,3 stig við opnun, en
staðan skánaði. Skömmu síðar hafði
Financial Times-kauphallarvísital-
an lækkað um 23,7 stig í 3,014.0.
í kauphöllinni í París várð um
1% lækkun. í nokkrum löndum varð
mest lækkun á hlutabréfum banka.
Wall Street var eini stóri hluta-
bréfamarkaðurinn þar sem útlitið
var ekki svart. Þar voru hlutabréf
seld á .metverði á föstudag, en
Ferðaskrifstofur
í skæruhemað
gegn flugfélögum
Boston. Morgunblaðið.
STARFSMENN bandarískra ferða-
skrifstofa eru æfir um þessar
mundir vegna þaks, sem nokkur
flugfélög hafa sett á umboðslaun,
og hafa gripið til skæruhernaðar
til að koma á þau höggi. Þeir panta
miða undir tilbúnum nöfnum, af-
panta frátekin sæti og kreijast sér-
þjónustu til að skapa glundroða.
í Boston hefur hópur starfs-
manna á ferðaskrifstofum, sem
gengur undir nafninu neðanjarðar-
ferðamenn, snúið bökum saman og
lætur boð ganga um herbragð
dagsins. Á föstudag beindu þeir
spjótum sínum gegn flugfélaginu
Delta, bókuðu þeir í gríð og erg
sæti fyrir uppdiktaða farþega,
pöntuðu hjólastóla og sérstakar
máltíðir.
Skæruhernaður þessi siglir í
kjölfarið á því að sjö af helstu flug-
félögum Bandaríkjanna með Delta
í broddi fylkingar tilkynntu 9. febr-
úar að skerða umboðslaun ferða-
skrifstofa.
„Þeir héldu að við myndum taka
þessu þegjandi og hljóðalaust,“
sagði Mary Hogan, stjórnandi sam-
taka ferðaskrifstofa, í samtali við
dagblaðið The Boston Globe. „Þeir
áttu síst von á því að við myndum
bregðast svona við.“
Umboðslaun voru tíu prósent af
miðaverði, en umrædd flugfélög
ákváðu að þau yrðu ekki hærri en
25 dollarar (um 1.700 ÍSK) fyrir
miða aðra leið og 50 dollarar (um
3.400 ÍSK) fyrir miða báðar leiðir.
Flugfélögin, sem mörg flest eru
rekin með tapi, kveðast hafa skorið
niður eftir mætti á öllum öðrum
sviðum og ekki hafa átt annars
kost en að beita niðurskurðarhnífn-
um á umboðslaun, sem er þriðji
hæsti kostnaðarliður þeirra á eftir
launum og eldsneyti.
„Flugfélög hafa reynt að skera
allan hugsanlegan kostnað. Þau
hafa þjappað saman sætum, boðið
upp á jarðhnetur í staðinn fyrir
málsverði, þrengt beltisólar starfs-
manna,“ sagði Paul Dempsey, sér-
fræðingur um málefni flugfélaga.
„Það var ekkert annað eftir."
Flugfélögum stefnt fyrir
samráð
Talsmenn ferðaskrifstofa segja
hins vegar að lítið megi út af bera
til þess að halli undan fæti og þessi
ráðstöfun flugfélaganna gæti leitt
til þess að þær fari umvörpum á
höfuðið. Auk skæruhernaðar hafa
samtök ferðaskrifstofa stefnt flug-
félögunum fyrir samráð og ólög-
lega verðmyndun.
Þau hafa einnig reynt að ná
neytendum á sitt band með heil-
síðuauglýsingum í dagblöðum um
að niðurskurður umboðslauna muni
leiða til þess að gjald verði sett á
ýmsa aðra þjónustu.
Flugfélögin segjast ekki munu
gefa eftir og kveða skæruhernað-
inn engin áhrif hafa haft.
MOTOLD
Öflug faxmótöld!
Tilvalin á Internet og
í faxsamskipti.
14400baud frá kr. 13.500.
28800baud á kr. 23.500.
Hugbúnaður og kapall fyrir PC eða MAC!
tb TÆKNIBÆR
Aðalstræti7,101 Reykjavík
. símar 16700, 658133, fax 658131. .
------ STEINAR WAAGE --------
SKÓVERSLUN
í tölsk tíska
og gæðí frá LOUIS NORMAN
Litir: Dökkbrúnn, drapp
Stæröir: 36-42
Litir: Brúnn, drapp, blátt, svart,
einnig í rúskinni
Stæröir: 36-42
V
STEINAR WAAGE #
-----------------#
SKÓVERSLUN ^
EGILSGÖTU 3 SÍMI 18519 <P
</
V I Ð
E R U M
F L U T T
í SÍÐUMÚLA
ARGUS
Argus & Orkin hf.
^ AUGIÍSINGAR OG MARKAOSMÁL FRÁ A-Ö
SÍffUMÚLA 31, 128 REYKJAIÍK, PÓSTHÓLF 8856, SÍMI 568 5566 , 5ÍMFAX 568 0117