Morgunblaðið - 28.02.1995, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 28. FEBRÚAR 1995 17
FRÉTTIR: EVRÓPA
Sir Leon Brittan
Sameiginleg
mynt 1999
Lundúnum. Reuter.
SIR Leon Brittan, vara-
forseti framkvæmda-
stjómar Evrópusam-
bandsins, telur að „mik-
ilkvægur kjami“ aðild-
arríkjanna verði tilbú-
inn til að taka upp sam-
eiginlegan gjaldmiðil
árið 1999.
Sir Leon lét þessi orð
falla á ráðstefnu í Lund-
únum um samrunaþró-
unina á sviði efnahags-
og peningamála. Hann
kvað sameiginlega Evr-
ópumynt ekki lengur
vera eingöngu fræðileg-
an möguleika heldur
lýsti yfir því að hún
yrði senn raunverulegur valkostur.
Væri þá gengið út frá því að hin
efnahagslegu skilyrði Maastricht-
sáttmálans hefðu verið uppfyllt.
I máli varaforsetans kom fram að
framkvæmdastjómin héldi enn form-
lega opnum þeim möguleika að sam-
eiginlegri mynt yrði komið á 1997
eins og kveðið er á um í Maastricht-
samningnum. Sir Leon kvaðst þó
teija að eðlilegt væri að
ganga út fá því að
„ákveðinn kjami“ aðild-
arríkjanna reyndist
reiðubúinn að stíga
þetta skref árið 1999.
Sir Leon lét í ljós þá
von að Bretar myndu
taka þátt í þessari sam-
runaþróun en kvaðst
einnig telja að breska
ríkisstjórnin ætti síðar
að áskilja sér rétt til að
standa fyrir utan sam-
eiginlega peningakerf-
ið. Mikilvægt væri á
hinn bóginn að Bretar
tækju þátt í þeim samn-
ingum sem fyrir hönd-
um væru.
Skiptar skoðanir em um ágæti
þessara áforma innan bresku ríkis-
stjórnarinar og breska íhaldsflokks-
ins. Sir Leon tjáði sig ekki beint um
deilu þessa en lét þess getið að æski-
legt væri að umræðan væri einskorð-
uð við raunveruleg viðfangsefni en
einkenndist ekki af „pólitísku
hnútukasti".
Sir Leon Brittan.
FRAMKVÆMDASTJÓRNIN á fundi í Brussel.
Svíum og Finnum ofbýður misréttið
Óskilvirkt
karlaveldi
Munið góða verðið hjá okkur!!
Ný sending frá Daniel Ray.
Margar gerðir af æðislegum
bakpokum.
Úrval fermingargjafa,
m.a. seðlaveski
með nafngyllingu.
ÐTángey h f
DANIEL-RAY
ORIGINAL CREATION
AUTHENTIC AND UOOERN
OESJON FOR THE YOUNG
Gerð 2329 kr. 2.390
Gerð 2268 kr. 1.790
Laugavegi 58 Sími 13311
Hewlett-Packard 1200C er
m ijtaprenian
manaðarins
■ I■ á tilboði í Tæknivali
Liturinn
Hewlett-Packard DeskJet 1200C litaprentarinn
er galdurinn
í dag
Liturinn er galdurinn og lífið verður margfalt skemmtilegra heima og á
skrifstofunni með útprentunum í lit. HP DeskJet 1200C er litaprentari
mánaðarins. Hann er hraðvirkur og skilar hágæða útprentun.
Fjórskipt bleksprautun. 2MB minni (stækkanlegt). Framtiðareign.
HINUM nýju aðildarþjóðum Evrópu-
sambandsins, einkum Finnum og
Svíum, þykir það kynjamisrétti sem
ríkir innan framkvæmdastjórnarinn-
ar hróplegt. Af þeim 300 mönnum
sem teljast til toppembættismanna á
vegum framkvæmdastjórnarinnar
eru einungis fjórar konur. Finnar og
Svíar hafa boðað að breytingar séu
í vændum.
Þetta kemur fram í nýjasta heftj
breska tímaritsins The Economist. í
frétt þess segir að norrænu umbóta-
sinnamir ættu ef til vill frekar að
huga að því hvemig gera megi starf
framkvæmdastjórnarinnar skilvirk-
ara og ódýrara. Þannig nemi launa-
greiðslurnar einar á ári hveiju um
100 milljörðum íslenska króna.
The Economist leggur til að Norð-
urlandaþjóðirnar beini athygli sinni
að „kvótakerfi" því sem gildir um
mannaráðningar en samkvæmt því
eiga aðildarríki tilkall til ákveðinna
embætta óháð hæfniskröfum. í ann-
an stað leggur tímaritið breska til
að opinberum tungumálum sam-
bandsins verði fækkað en þau em
nú 11.
Þriðja tillagan er sú að ráðningar-
reglum verði breytt þannig að auð-
veldara verði að segja starfsfólki
framkvæmdastjómarinnar upp störf-
um. Þeir sem þar starfa fá æviráðn-
ingu, launin er há og skattamir lág-
ir. Atvinnuöryggi starfsfólksins er í
engu samræmi við það sem tíðkast
í Evrópu.
Það er ekki nýtt að fram komi á
vettvangi Evrópusambandsins hug-
myndir um aukinn sveigjanleika og
hugsanlegar uppsagnir starfsmanna.
Fyrir rúmum 20 árum fór Francois-
Xavier Ortoli, þáverandi forseti fram-
kvæmdastjórnarinnar, fram á að
lagðar yrðu fram tillögur sem miðuðu
að því að auka skilvirkni innan stofn-
unarinnar. Breskur embættismaður
lagði í bréfi til forsetans til að ráðn-
ingarreglum yrði breytt þannig að
unnt yrði að segja starfsfólki upp.
Ástandinu lýsti hann svo: „Starfs-
fólkið kemur til vir.nu og fer af vinnu-
stað þegar því sýnist. Starfsmenn
geta verið drukknir mest allan dag-
inn; í stað þess að vinna geta menn
drýgt hór með einkariturum sínum.
Og samt getum við ekki losað okkur
við þá.“
Bætur vegna „óþæginda"
The Economist telur ástæðu til að
ætla að vinnusiðferðið hafi 'heldur
batnað { Brussel frá því þetta var
skrifað en það sama verði ekki sagt'
um bruðlið. Þannig geti umbót-
sinnamir norrænu vakið athygli á
þeim 16% launaauka sem erlendir
starfsmenn fá til að vega upp á móti
kostnaði þeim og „óþægindum" sem
fylgi því að starfa utan heimalands-
ins. Þessar reglur taki m.a. til fólks
sem búið hafi í Brussel í 20 til 30 ár
og líti á hana sem heiinaborg sína.
Leggur tímaritið til að ákvæði um
slíka kaupauka verði bundin í samn-
inga þeirra sem eigi allt að fimm ára
starf fyrir höndum í Brussel.
Hægt er að tengja
prentarann við netkerfi
m/tilheyrandi netbúnaði.
Ósonlaus. Lítil orku-
notkun Umhverfisvæn
framleiðsla.
Staðlaöir fylgihlutir:
Arkamatari, Windows
prentarastýring.
DOS-stýring fáanleg
Útskriftarmöguleikar:
Pappir, glærur, umslög
og límmiðar***.
Upplausn í svartri útprentun Upplausn i litaprentun Hámarks- hraöi í prentun** Fjöldi leturgerða
3 + D0x RE 500 T* dpi • 300 dpi* n 7 siður á minútu 45 letur
Postscript og Macintosh útgáfa:
HP DeskJet 1200C/PS.
* dpi = punkta upplausn á tommu. RET = HP upplausnaraukning. ** Hraði I litaprentun er mismunandi.
*** Úrval llmmiða fynr HP DeskJet prentara er takmarkaö.
Frá hugmynd
til veruleika
Tilboð á HP DeskJet 1200C kr.
stgr. m. vsk.
Einnig bjóðum við Postscript-útgáfuna á aðeins kr. 209.900,- stgr. m. vsk.
Kynntu þér málið í Tæknivaii.
Við bjóðum öll helstu greiðslukjör s.s. VISA raðgreiðslur í 24 mánuði,
EUROCARD raðgreiðslur í 36 mánuði eða Staðgreiðslusamninga Glitnis.
Verið velkomin. Opið á laugardögum frá kl. 10.00 til 14.00.
með
Hewlett-Packard
H Tæknival
Skeifunni 17 - Simi 568-1665 - Fax 568-0664