Morgunblaðið - 28.02.1995, Side 18
18 ÞRIÐJUDAGUR 28. FEBRÚAR 1995
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
Starfsmaður Barings veldur gjaldþroti bankans með spákaupmennsku
Tapaði allt að 66 millj-
örðum á viðskiptunum
Lundúnum. Reuter, The Daily Telegraph.
ÁÆTLAÐ er að Barings-banki, einn elsti og virtasti banki Bret-
lands, hafí tapað allt að milljarði dala, um 66 milljörðum króna,
vegna áhættuviðskipta starfsmanns í útibúi bankans í Singapore.
Varasjóður bankans nemur aðeins jafnvirði 20 milljarða króna.
Reyter
EINN starfsmaður Baringsbanka treður sér í gegnum hóp frétta-
manna fyrir utan aðalstöðvarnar í London.
Starfsmaðurinn, Nick Leeson,
hvarf á fimmtudag og fer huldu
höfði. Leeson, sem er 28 ára, var
fluttur til Singapore úr höfuðstöðv-
um bankans í Lundúnum fyrir
þrem árum þegar bankinn tók að
auka umsvif sín í svokölluðum af-
leiddum samningum (derivatives),
nýrri tegund viðskiptasamninga.
Notkun slíkra samninga hefur
stóraukist á síðustu árum.
Hrun bankans hefur kynt undir
kröfum um að settar yrðu strang-
ari reglur um afleidda samninga,
sem gera fi'árfestum kleift að bak-
tryggja sig þegar þeir veðja á
breytingar á gengi gjaldmiðla og
hlutabréfa, auk breytinga á vöxt-
um og hrávöruverði.
Talið er að Leeson hafi keypt
milli 15.000 og 40.000 afleidda og
framvirka samninga og veðjað á
að japanska hlutabréfavísitalan
Nikkei-225 myndi hækka aftur
fyrir 1. mars eftir að hafa lækkað
í kjölfar landskjálftans í Kobe. Eins
og í öllum afleiddum samningum
var sjálf innborgunin aðeins brot
af heildarfjárhæðinni.
Eddie George, bankastjóri Eng-
landsbanka, sagði í gær að heild-
arfjárhæð samninganna hefði
numið 27 milljörðum dala, 1.800
milljörðum króna.
Hættuleg viðskipti
Afleiddir samningar byggjast á
núverandi viðskiptum, svo sem
, með ríkisskuldabréf, kauprétt, vör-
ur og gjaldmiðla. Afleiddir samn-
ingar eru í reynd tilbrigði við þá
gömlu íþrótt að segja fyrir um
þróunina á mörkuðunum og veðja
á ákveðnar breytingar. Þeir sem
stunda slík viðskipti geta lagt mik-
ið undir fyrir takmörkuð útgjöld,
en ef þeir hafa veðjað á rangan
hest geta þeir þurft að leggja enn
meira undir og taka enn meiri
áhættu. Menn sem kaupa slíka
samninga geta tapað margföldu
því fé sem lagt er fram við kaup-
in, en geta einnig hagnast gíf-
urlega á skömmum tíma.
Margir hafa farið flatt á slíkum
samningum og tapað miklum fjár-
hæðum. Orange County í Banda-
ríkjunum varð til að mynda gjald-
þrota vegna afleiddra samninga
og þýska stórfyrirtækið Metallges-
ellschaft rambaði á barmi gjald-
þrots vegna flókinna, framvirkra
viðskipta með olíu.
Barings-málið hefur kynt undir
gagnrýni á frelsið sem ríkir í þess-
um viðskiptum og einnig varpað
Ijósi á þá ábyrgð sem hvílir á mönn-
um sem stunda slík viðskipti einir
við tölvuskjái og treysta á eigið
innsæi við ákvarðanir.
Leyndi tapinu
Stjómendur Barings í Lundún-
um neita því að hafa vitað af samn-
ingunum og bankastjóri Englands-
banka sagði að Leeson hefði tekist
að leyna tapinu fyrir stjórnendum
Barings í Lundúnum.
Sérfræðingar á þessu sviði við-
skipta sögðu það furðulegt að
stjómendur Barings skuli ekki
hafa fengið vitneskju um samning-
ana fyrr. „Ef til vill hefði hann átt
að geta gert þetta í einn.eða tvo
daga, en hér er ekki um viku að
ræða, hann hefur komist upp með
þetta í tvo eða þrjá rnánuði," sagði
einn þeirra.
Framkvæmdastjórar Barings
voru kvaddir á fund í höfuð-
stöðvunum í Lundúnum og þeim
sagt að fullvissa viðskiptavini,
þeirra á meðal Elísabetu Breta-
drottningu, um að engin hætta
væri á að þeir töpuðu rúmlega
tveggja milljarða punda fjárfest-
ingarsjóðum sínum. Barings er
einn þeirra banka sem hafa séð
um ávaxta 60 milljóna punda fjár-
muni drottningarinnar.
Gamall og virtur banki
Barings-banki er 223 ára gam-
all og starfsmenn hans em 4.000,
þar af er helmingurinn í Lundún-
um. Bankinn hefur notið virðingar
fyrir sérfræðiþekkingu á nýju
mörkuðunum í Austurlöndum fjær.
Almenn hlutabréf bankans eru
í eigu Barings-stofnunarinnar, sem
gaf jafnvirði 900 milljóna króna
til ýmissa góðgerðamála í fyrra.
Barings er elsti fjárfestingar-
banki Lundúna og íhaldsemi hans
þótti til fyrirmyndar. Það kom því
Bagdad. Reuter.
RUSSNESKI þjóðemissinninn Vlad-
ímír Zhírínovskíj sagði í írak í gær,
að Rússar og múslimar væru vinir
en óvinurinn væri vestræn ríki.
Zhírínovskíj, sem er í þriggja daga
heimsókn í Irak, sagði megintilgang
ferðarinnar að koma í veg fyrir átök
milli norðurs og suðurs en norðrið
væri Rússland og suðrið araba- og
múslimaríkin.
Næsti forseti Rússlands
Zhírínovskíj ræddi í gær við Sadd-
am Hussein, forseta íraks, en sagði
ekkert um undirtektir undir hug-
myndina um samstöðu Rússa og
mjög á óvart að hann skyldi verða
fyrir barðinu á viðskiptum með
afleidda samninga.
„Allir eru furðu lostnir,“ sagði
hátt settur starfsmaður bankans.
„Það er ótrúlegt að slíkt skuli hafa
gerst hjá Barings."
„Það er stórfurðulegt að einn
maður í Austurlöndum fjær skuli
geta valdið hruni heils banka,“
sagði Louise Baring, frænka As-
hburtons lávarðs, fyrrverandi
stjómarformanns bankans.
Hrun Barings er mikið áfall fyr-
ir Baring-fjölskylduna, eina af
auðugustu fjölskyldum Lundúna.
Peter Baring er nú stjórnarformað-
ur bankans og margir aðrir úr fjöl-
skyldunni er enn áhrifamiklir í
bankanum. Ashburton lávarður
sagði þó eftir að hann hætti störf-
um hjá bankanum árið 1989 að
Barings væri ekki lengur fjöl-
skyldubanki, þótt fjölskyldan væri
enn áhrifamikil innan hans.
múslima. „Ég var sammála öllu, sem
Hussein sagði, og hann tók undir
állt með mér þannig að okkar á milli
var mikill og góður skilningur," sagði
Zhírínovskíj að fundinum loknum. í
ferðinni hafa talsmenn Zhírínovskijs
og fylgdarlið, 50 manns og þar af
20 þingmenn, ávallt kynnt hann sem
næsta forseta Rússlands.
Við komuna til íraks sagði Zhír-
ínovskíj, að aflétta ætti refsiaðgerð-
um gegn landinu og Rússlandsstjórn
er raunar sama sinnis en Borís Jelts-
ín kveðst ekki munu aflétta refsiað-
gerðum einhliða.
Milosevic
hafnar
friðartil-
lögum
STJÓRNVÖLD í Serbíu hafa í
annað sinn hafnað tillögum stór-
veldanna um frið í Bosníu og
hefur það kynt undir ótta við,
að stríðið breiðist út til annarra
ríkja í Júgóslavíu sem áður var.
Áttu embættismenn frá Frakk-
landi, Bretlandi og Þýskalandi
viðræður við Slobodan Milosevic
Serbíuforseta sl. fímmtudag en
fengu engu um þokað. Margir
búast við nýjum átökum í Króa-
tíu þegar gæsluliðar Sameinuðu
þjóðanna hverfa frá Serba-
byggðunum þar og í apríllok er
úti fjögurra mánaða vopnahlé í
Bosníu.
Fjöldamorð
í París
SAUTJÁN ára gamall drengur
skaut foreldra sína, afa sinn og
ömmu og önnur hjón til bana í
París í fyrrakvöld. Er fólkið allt
af rússneskum ættum og bjó
mjög ríkmannlega í einu út-
hverfa borgarinnar. Ekki er vit-
að hver ástæðan var fyrir morð-
unum en tveggja eða þriggja
ára gömul stúlka slapp ómeidd
úr skothríðinni.
Flúnir frá
Pakistan
TVEIR kristnir Pakistanar, sem
sýknaðir voru af guðlasti en
öfgafullir múslimar hóta að
drepa, eru komnir til Þýska-
lands. Er um að ræða Salamat
Masih, 14 ára gamlan, og Re-
hmat Masih, fertugan að aldri,
en þeir eru óskyldir þótt eftir-
nafnið sé það sama. Er það al-
gengt meðal kristinna manna í
Pakistan. Talsmaður þýska
sendiráðsins í Islamabad sagði
í gær, að mennirnir hefðu feng-
ið vegabréfsáritun til Þýska-
lands og Niels Helveg Petersen,
utanríkisráðherra Danmerkur,
sagði, að þeir gætu sótt um
hæli þar í landi.
Jeltsín gegn
fasistum
BORÍS Jeltsín, forseti Rúss-
lands, hyggst grípa til ýmissa
ráðstafana gegn uppgangi öfga-
hópa og fasista í landinu. Var
þetta haft eftir einum aðstoðar-
manni hans, Míkhaíl Krasnov,
en hann sagði, að Jeltsín væri
óánægður með hvemig tekið
væri á samtökum fasista og
áróðri þeirra. Koma þessar yfír-
lýsingar í kjölfar þess, að fyrir
nokkrum dögum hótaði leiðtogi
þjóðemissinnaðra samtaka af
þessu tagi, Alexei Vedenkín, að
skjóta tvo menn, sem gagnrýnt
hafa hernaðinn í Tsjetsjníju.
Samstarf í
varnarmálum
EISTLAND, Lettland og Lit-
háen hafa gert með sér samning
um samstarf í vamarmálum og
var hann undirritaður í gær.
Kváðust vamarmálaráðherrar
landanna vonast til, að samning-
urinn yki hemaðarlegt öryggi
landanna og auðveldaði inn-
göngu þeirra í vestræn vamar-
bandalög. Ekki verður um að
ræða sameiginlegan herafla en
náið samstarf hvað varðar þjálf-
un.
„Héldum hann
vera snilling“
London. Reuter.
STARFSFÉLAGAR og keppi-
nautar hins brotthlaupna Nicks
Leesons í Singapore segja að
hann sé vingjarnlegur en mjög
sjálfsöruggur, jafnvel montinn.
„Áður en þetta gerðist héldum
við að hann væri snillingur, ör-
uggasti verðbréfasali borgarinn-
ar“, sagði einn keppinauturinn.
„Hann virðist geta stjómað
hreyfingum á mörkuðunum. Við
fylgdumst með því sem hann var
að gera á hveijum degi.“
Leeson er 28 ára gamall,
.kvæntur og býr í dýru fjölbýlis-
húsi. Bera nágrannarnir þeim
hjónum vel söguna, þau eru
einkum sögð umgangast aðra
Breta í borgríkinu. Hann þétt-
vaxinn og hárið farið að þynn-
ast, er sagður njóta þess að
klæðast dýrum fötum en er þó
enginn glaumgosi.
„Hefur þrælað til að efnast"
Leeson er frá einni af sóða-
legri útborgum London, Wat-
ford, og ekki af neinu efnafólki
kominn.
Ættingjar hans veija hann
og segjast vita að hann hafi
ekki gert neitt af sér, þótt hann
hafi farið í felur. „Ég held bara
að hann sé mjög hræddur, hann
hafði ekki lengur neina stjórn á
því sem var að gerast", sagði
systir hans.
„Nick hefur þrælað til að efn-
ast og hann á það fyllilega skil-
ið. Hann var ekki einn af þessum
einkaskóla-náungum sem fæð-
ast með silfurskeið í munnin-
um.“
Ágætlega
launaður
Launakjör Leesons tóku
stakkaskiptum er hann hóf störf
í Singapore. Hann mun hafa
haft rúmlega tuttugu milljónir
króna í árslaun en þar að auki
hlaut hann ágóðahlut eins og
aðrir snjallir verðbréfasalar. Ef
marka má orðróm var ágóða-
hlutinn í fyrra einhvers staðar
á bilinu 1.4 - 4.1 milljónir
Bandaríkjadollara, 100 - 280
milljónir króna.
Reuter
ZHÍRÍNOVSKÍJ veifar til fréttamanna í Amman.
Vill bandalag gegn
vestrænum ríkjum