Morgunblaðið - 28.02.1995, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 28. FEBRÚAR 1995 19
ERLENT
Viðskiptastríði milli Bandaríkjanna og Kína afstýrt á síðustu stundu
Kínverjar féll-
ust á að virða
höfundarrétt
Peking. Reuter.
KINVERJAR og Bandaríkjamenn komu í veg fyrir viðskiptastríð milli
ríkjanna á sunnudag þegar samningar náðust um að uppræta brot á
einka- og höfundarrétti og jafnframt að opna Kína fyrir bandarískri
kvikmynda- og tónlistarframleiðslu.
Refsiaðgerðir Bandaríkjastjóm-
ar, sem Kínveijar ætluðu að svara
í sömu mynt, áttu að taka gildi á
sunnudag og fresturinn var raunar
liðinn þegar samningar tókust.
Fagnaði Bill Clinton, forseti Banda-
ríkjanna, samningnum mjög og Wu
Yi, utanríkisviðskiptaráðherra
Kína, sagði hann upphaf nýs tíma
í samskiptum ríkjanna.
Þjófnaður upprættur
Charlene Barshefsky, aðalsamn-
ingamaður Bandaríkjanna, sagði,
að samningurinn kæmi ekki aðeins
í veg fyrir þjófnað á bandarískum
kvikmyndum, tónlist og hugbúnaði,
heldur opnaði einnig fyrir banda-
rískri fjárfestingu í Kína. Bandarísk
fyrirtæki höfðu áður lofað miklum
fjárfestingum þar ef komist yrði
hjá viðskiptastríði.
Bandarískir embættismenn
segja, að saman hafi gengið þegar
Kínveijar féllust á að loka verk-
smiðju í borginni Shenzhen en það-
an hafa streymt milljónir ólöglegra
geisladiska um alla Asíu. Hafa Kín-
veijar þá alls lokað átta slíkum
verksmiðjum og gert upptækar
tvær milljónir geisladiska og ýmiss
konar hugbúnað. Að auki var sam-
ið um samstarf á tónlistar- og kvik-
myndasviði og fá bandarískir kvik-
myndaframleiðendur nú í fyrsta
sinn þóknun fyrir sýningarrétt á
myndum 'sínum.
Deilt um mannréttindi
Þrátt fyrir ánægjuna með þennan
samning er ekki allt fallið í ljúfa löð
í samskiptum ríkjanna. A sama
tíma og verið var að undirrita hann
fordæmdi talsmaður kínversku
stjórnarinnar þær fullyrðingar
Bandaríkjamanna, að í Kína væri
fólk fangelsað vegna skoðana sinna
einna og sagði, að margt mætti
finna að mannréttindamálum í
Bandaríkjunum.
Reuter
CHARLENE Barshefsky, aðalsamningamaður Bandaríkjanna,
flytur ræðu að lokinni samningsgerðinni um höfundarréttar-
mál, sem kom í veg fyrir viðskiptastríð við Kína.
Elsti biúg-
verpillinn
er pólskur
aðætt
Lundúnum. The Daily Telegraph.
ELSTI bjúgverpill (boomer-
ang) heims kemur ekki frá
Ástralíu, heldur Póllandi, og
hann hefur nú verið prófaður
í fyrsta sinn.
Kastkylfan bjúglaga
fannst í pólskum helli fyrir
tíu árum og rannsóknir leiddu
í ljós að hún er 20.300 ára
gömul, eða tvöfalt eldri en
elsti bjúgverpill sem fundist
hefur í Astralíu.
Astralir sárir
Fundurinn kann að hafa
sært þjóðarstolt Ástrala, en
þeim ætti að vera nokkur
huggun í niðurstöðum fyrstu
„flugprófunarinnar". Pólski
verpillinn reyndist ná góðu
flugi, allt að 70 metra, en
kom ekki aftur til þess sem
kastaði eins og áströlsku
vopnin.
Ekkitilbaka
Vísindamennimir sem
prófuðu vopnið segja það
mikinn misskilning að allir
bjúgverplar snúi til baka. Til
að mynda hafi Forn-Egyptar
og indíánar í Ameríku notað
bjúgverpla sem ekki hefðu
komið aftur til þeirra sem
köstuðu.
Við öllu
búnirí
Karachi
HER- og lögregla í Pakistan
hafa stóreflt viðbúnað við
moskur, verslunarmiðstöðvar
og aðra staði í höfuðborginni
Karachi vegna ofbeldisaðgerða
íslamskra bókstafstrúarmanna
í kjölfar þess að tveir kristnir
menn voru sýknaðir í síðustu
viku af að hafa lastað spámann-
inn frá Mekka. Var myndin
tekin á fjölförnu torgi þar sem
lögreglumenn höfðu reist sand-
pokavirki og voru við öllu bún-
ir.
Reuter
Mafíumorð
í Corleone?
Corleone. Reuter.
ÓTTAST er að vopnuð átök sik-
ileyskra mafíuhópa kunni að
blossa upp í bænum Corleone eftir
16 ára vopnahlé. Grunur leikur á
að morð á hjónum í bænum á laug-
ardagskvöld hafi verið liður í upp-
gjöri af því tagi.
Hjónunum Francesco Seporito
og Giovanna Giammona var gerð
fyrirsát. Þrír vopnaðir menn a.m.k.
gerðu harða skothríð að bifreið
þeirra, að sögn lögreglu.
Tveggja ára sonur þeirra, An-
tonino, slapp lifandi þar sem móð-
ir hans skýldi honum.
Tuttugu og tveggja ára gamall
bróðir hennar, Giusto, var myrtur
við störf sín í fataverslun í jan-
úar. Morðið varð til þess að hundr-
uð andstæðinga mafíunnar efndu
til mótmæla í bænum, sem var
gerður ódauðlegur í kvikmyndinni
Guðföðurnum. Lögregla kveðst
engar vísbendingar hafa sem
bendla Giammona-fjölskylduna við
mafíuna.
Við bjóðum
til flísaveislu
aðeins þessa
einu viku!
Komdu og
gerðu einstök
r„
nmm
TIL ALLT AÐ 36 MÁNAÐA
RAÐGREIOSLUR
VKA
TIL ALLT AÐ 24 MÁNAÐA
opiÐ LAUGARDAGA
FRÁ 10-14
kaup!
■ . . .
á verði frá kr.
,
7 J I
• • •
Teppaland
tp Parketland
Grensásvegi 13, sími 581 3577 og 588 1717