Morgunblaðið - 28.02.1995, Síða 24
24 ÞRIÐJUDAGUR 28. FEBRÚAR 1995
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Hjartagóða mellan
KVIKMYNPIR
Laugarásbíó
NESTISPENINGAR
„MILK MONEY“ ★
Leikstjóri: Richard Beiyamin. Aðal-
hlutverk: Melanie Griffith, Ed
Harris, Malcolm McDowell. Para-
mount. 1994.
BANDARÍSKA gamanmynd-
in„Milk Money“ er um mellu,
sem Melanie Griffith leikur, er
vingast við móðurlausan strák
úr nærliggjandi úthverfi en sá
er einmitt á höttunum eftir góðri
konu fyrir ekkjumanninn og sér-
vitringinn föður sinn (Ed Harr-
is). í ljós kemur að mellan hefur
gullhjarta svo ekki sé meira sagt
og býður uppá talsverða tilbreyt-
ingu í steindauðu úthverfinu.
Þetta er ekki slæmt efni en
höfundarnir með leikstjórann
Richard Benjamin í fararbroddi
fara afleitlega með það. Þeim
er svo mikið í mun að gera mell-
una að dýrlingi að það verður
hlægilegt. Hún skilur aldrei við
sig tímaritið „Scientific Americ-
an“, þekkir sigðnef á flugi og
reynist frábær móðir í hryllilega
væmnum og grátklökkum atrið-
um. Griffith hefur farið í megrun
og líkast til andlitslyftingu líka
en persóna hennar er svo vita
gallalaus að það er ekkert gaman
að henni. Ed Harris er skemmti-
legri þótt hlutverkið sé ekki
merkilegt því hann leikur hálf-
gerðan trúð og breski leikarinn
Malcolm McDowell leikur óþokka
án mikillar fyrirhafnar því það
nægir ekki að hafa þetta klisju-
kennda öskubuskusögu heldur
þarf að flækja mafíuna inní hana
án nokkurs sýnilegs tilgangs.
„Milk Money“ er auðvitað af-
brigði af metsölumyndinni
„Pretty Woman“ en stendur
þeirri ómerkilegu mynd langt að
baki. Sagan er full af tilfinninga-
vellu og samtölin rísa ekki hátt
(Harris finnur „spendýrslegar"
kenndir til Griffith) en einstaka
þætti má kalla spaugilega eins
og misskilninginn sem myndast
þegar Harris heldur lengst af að
konan sé stærðfræðikennari.
En þetta er í alla staði lítt
spennandi og klén smámynd sem
gerir þau mistök helst að ofbjóða
áhorfendum með sléttri og felldri
væmni. , ., T ,
Arnaldur Indriðason
PIONEER
49.900stgr
aiwa
J
59.900
stgr.
Raðgreiðslur:
til allt að 24 mán
Kringlan 8-12 Sími 681000
RaÖgrciðslur:
til allt að 36 mán.
'iillliii
I
■
'
I Heimskringlunni er úrvaliö mest og verðið lægst
AIWA NSX 380 á kr. 49.900*
*Sérstakur 10.000 kr
5Qstæ
AIWA NSX 380 stæðurnar kosta kr. 59.900 stgr. Fyrstu 50 stæðurnar
bjóðum við á einstöku fermingartilboðsverði.
Feluleikur
á þremur
borðum
MIÐVIKUDAGSKVÖLDIÐ 1. mars
nk. verður tíunda verk leikársins í
Kaffileikhúsinu í Hlaðvarpanum
frumsýnt. Það er Sápa tvö: Feluleik-
ur á þremur borðum eftir Ingibjörgu
Hjartardóttur og Sigrúnu Óskars-
dóttur. Sápa eitt var opnunarverk
Kaffileikhússins og var höfundur
hennar Auður Haralds. Þá strax
sýndi það sig að ástæða var til að
halda áfram með þetta form, sápu-
formið, segir í kynningu. Ennfrem-
ur segir:
„Efniviðurinn er sóttur í eina af
þjóðaríþróttum Íslendinga, þ.e.
framhjáhald. Ekki er um neinn siða-
boðskap að ræða né heldur verið
að velta fyrir sér hvort flokka megi
framhjáhald sem listgrein. Reynt
að sjá speugilegu hliðina á þessu
fyrirbæri, tvöfeldnina, vandræða-
ganginn, blekkingarnar og feluleik-
inn. Sápa tvö segir frá einni klukku-
stund í lífi þriggja hjóna sem iðka
af kappi þennan „leik“. Sem fyrr
gerist leikurinn á kaffihúsi í Reykja-
vík.“
Leikendur eru Bessi Bjarnason,
Edda Björgvinsdóttir, Eggert Þor-
leifsson, Margrét Ákadóttir, Mar-
grét Guðmundsdóttir og Valgeir
Skagfjörð.
Frumsamin sönglög og textar eru
eftir Valgeir Skagfjörð og hefur
hann samið þau sérstaklega fyrir
þessa sýningu.
Leikstjóri er Sigríður Margrét
Guðmundsdóttir.
♦ ♦ ♦------
Ný tímarit
• ÚT er komið 1. tölublað Æsk-
unnarog abc. Tvö stærstu íslensku
barna- og unglingablöðin hafa með
því verið sameinuð í eitt. Stefnt er
að því að gefa út tvö blöð, hvort
fyrir sinn aldursflokk. í Æskunni
og abc verður vinsælasta efni úr
tímaritunum tveimur auk ýmissa
nýmæla - í samræmi við óskir les-
enda þeirra beggja en viðhorf þeirra
var kannað í fyrrahaust.
1. tbl. er 72 síður, fjölbreytt að
efni. Viðtöl eru við Þorgrím Þráins-
son rithöfund, Magnús Scheving
þolfimimeistara, Emilíönu Torrini
söngkonu. Sagt er frá úrslitum í
smásagna- og ljóðakeppni og birt
aðalverðlaunasagan eftir Þórgunni
Oddsdóttur 13 ára og viðtal við
hana. Einnig er lýst niðurstöðu
dómnefndar í teiknikeppni blaðsins
og birtast tvær af tíu verðlauna-
myndum. Greinar eru um „töfralið-
ið“ í körfuknattleik, Orlando Magic,
pg verðlaunaleikarann Tom Hanks.
íslandsmeistaramótið í þolfimi er
lýst með mörgum myndum og rætt
við Maríu Björk Hermannsdóttur,
meistara í einstaklingskeppni
stúlkna.
Ritstjóri Æskunnar og abc er
Karl Helgason. Útgefandi er Stór-
stúka íslands IOGT. Æskan kom
fyrst út 5. október 1897 - abc
haustið 1979. K-prent annaðist
umbrot, teikningar og filmuvinnu.
Prentsmiðjan Oddi hf. prentaði
blaðið.
Æskunni og abc fylgir að þessu
sinni lítill bæklingur. í honum er
bömum og unglingum kynnt að
þeim sé boðið að taka þátt í gerð
bókar um fortíð, núverandi stöðu
og framtíð Sameinuðu þjóðanna -
með því að yrkja ljóð, teikna og
mála myndir og semja ritgerðir.
Bókin verður gefin út í tilefni 50
ára afmælis samtakanna.
• LISTATÍMARITIÐ E/TTkemur
út á morgun miðvikudaginn 1.
mars. í tímaritinu, sem gefið er út
af nemendum í Myndlista- og hand-
íðaskóla íslands, er að finna greinar
um myndlist og hönnun, meðal ann-
ars viðtöl, þýddar greinar og mynd-
verk. Efnt verður til útgáfuteitis
að kvöldi útgáfudags á efri hæð
Sólon íslandus kl. 21. Allir 18 ára
og eldri eru velkomnir.