Morgunblaðið - 28.02.1995, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 28. FEBRÚAR 1995 25
LISTIR
Nú getur þú notað GSM
símann þinn í eftirfarandi
löndum:
Noregi
Svíþjóð
■ Finnlandi
Danmörku
Hollandi
Ef íslenskt GSM kort er notað í útlöndum er greitt
samkvæmt gjaldskrá I viðkomandi landi auk 15% álags.
Ef hringt er í íslenskan GSM síma í útlöndum, greiðir
rétthafi farsímans útlanda-símtalið.
Sviss
PÓSTUR OG SÍMI
Ingunn Jensdóttir leikstjóri hefur
mikla reynslu af að vinna með
áhugaleikfélögum (hún á dijúgan
þátt í því góða gengi sem Leikfélag
Hornafjarðar hefur átt að fagna upp
á síðkastið. Góð áhugaleikhús
spretta ekki upp á einni nóttu). Hér
hefur hún nýtt góðan efnivið þar sem
eru nemendur í ML og skapað sýn-
ingu sem flýtur vel áfram og er
haganlega fyrir komið á litlu sviði.
Hópatriðin eru einkar vei af hendi
leyst, dansar þokkafullir og heljar-
stökk afturábak og aðrar jafnvægis-
listir með þeim hætti áhorfendur
stóðu á öndinni. Þessi sýning er
nefnilega gríðarlega mikið „sjó“.
Ekki má gleyma tónlistinni sem
er mjög mikilvægur þáttur Fiðlar-
ans. Hilmar Örn Agnarsson, kantor
Skálholtskirkju stjórnar henni.
(Hans vinna er að láta Bach líða inn
Listamiðstöð-
in í Straumi
verði starf-
rækt áfram
STJÓRN Sambands íslenskra
myndlistarmanna sendir frá sér
eftirfarandi ályktun: „Á undan-
förnum árum hefur menningar-
starfsemi blómstrað í Hafnar-
firði. Má þar nefna stofnun
myndlistarskóla, kammer-
hljómsveit, sýningarsalinn
Portið, vinnuaðstöðu myndlist-
armanna í Straumi auk listahá-
tíðar. Frumkvæði að þessari
starfsemi hafa listamenn átt
undir forystu Sverris Ólafsson-
ar í góðri samvinnu við bæjaryf-
irvöld. Því miður hefur þessi
starfsemi lagst af að mestu
nema rekstur listamiðstöðvar í
Straumi.
Bæjarstjóm Hafnarfjarðar
hefur nú lýst því yfir að hún
hyggist endurskipuleggja
stjórnun og starfsemi Straums.
Stjóm Sambands íslenskra
myndlistarmanna beinir þeim
tilmælum til bæjarstjórnar
Hafnarfjarðar að listamiðstöðin
í Straumi verði starfrækt
áfram. í nýrri stjórn sitji fulltrú-
ar þeirra listgreina sem aðgang
hafa að Straumi og staðarhald-
ari verði ráðinn til fjögurra ára
í senn.“
SÓL RÍS
eyrun á sér og út um fingurna til
vitnis um fegurðina og Guð. Hvílík
forréttindi!). Undirspilið er dágott
og sama er að segja um sönginn.
Fjölmennur hópur leikara stendur
sig með prýði, en á engan er hallað
þótt þeim ívari Þormarssyni og
Kristjönu Skúladóttur sé hrósað sér-
staklega. Þau sýna leikræn tilþrif í
krefjandi hlutverkum sem Teyje og
Golda og hafa ágætis söngraddir. I
sýningarlok var leikhópnum fagnað
innilega. Það var gaman að því að
verða vitni að því hversu mjög menn-
ingarlegt framtak á borð við þetta
getur aukið reisn og hróður smárra
samfélaga. Mannlífið er bersýnilega
í lagi á Laugarvatni. Nú þyrfti staðar-
haldarinn að sjá til þess að Mennta-
skólabyggingin hætti að drabbast
niður eins austur-evrópskt gettó.
Guðbrandur Gísiason
Kvenna-
kórinn „á
léttu nót-
unum“
KVENNAKÓR Reykjavíkur
heldur tónleika á öskudag í
Víðistaðakirkju í Hafnarfirði kl.
20.30. Kvennakórinn varð
tveggja ára í janúar sl. Kórinn
hefur á leigu hluta húsnæðis
Blikksmiðjunnar JBP á Ægis-
götu 7 og þar njóta söngsins
um 200 konur og starfa í sex
mismunandi hópum.
I kynningu segir: „Hin ýmsu
tilbrigði sönglistarinnar eru æfð
og einnig stunda konur þar nám
í einsöng. Gestakennarar hafa
aðstoðað og má þar nefna
óperusöngkonurnar Ruth
Magnússon og Eugeniu Ratti,
auk kórstjórans og organistans
Sibyl Urbancic. Fastir leiðbein-
endur eru þær Björk Jónsdóttir
söngkona, Svana Víkingsdóttir
píanóleikari og Margrét Pálma-
dóttir söngkona.
Framundan hjá Kvennakórn-
um eru tónleikar sem nefnast
„Þú hýri Hafnarfjörður", en
söngstjórinn vill með þeim
minnast góðra söngstunda sem
hún átti með kórum bæjarins,
sérstaklega vill hún minnast
söngsystur sinnar, Berglindar
Bjarnadóttur, en hún lést úr
krabbameini fyrir rúmum átta
árum.“
EKKI veit ég hvort Tevje mjólk-
ursali leggur inn hjá Mjólkurbúi
Flóamanna en hitt er víst að hann
var hrókur alls fagnaðar á skóladegi
Menntaskólans á Laugarvatni í síð-
ustu viku, merarlaus og beitti sjálf-
um sér fyrir brúsavagninn, hefðinni
trúr. Enga japanska jeppa eða Mass-
ey Ferguson fyrir hann sem syngur
um von sína og örvæntingu, gleði
og sorg (er að furða: maðurinn á
fimm dætur. Konan hans er skass).
Þessi sýning var -einkar ánægjuleg
á að horfa og skemmtileg. Hún náði
því markmiði allra leiksýninga að
hrífa áhorfendur með sér.
HLÆJANDI kona eftir
Bror Hjorth.
Listasmiðja
verður ekki
LISTASMIÐJA fyrir börn og
unglinga sem vera átti í Hafn-
arborg 25. febrúar til 3. mars
í tengslum við sýninguna „Frá
prímitívisma til postmodern-
isma“ fellur niður vegna verk-
falls kennara.
Tilmæli stjórnar SÍM
LEIKLIST
Mcnntaskólinn aö
Laugarvatni:
Fiðlarinn á þakinu
Leikstjóri: Ingunn Jensdóttir, Tón-
listarstjórn: Hilmar Orn Agnarsson,
Aðalleikendur: ívar Þormarsson,
Kristjana Skúladóttir, Sonja Jó-
hannsdóttir, Elín Jónsdóttir, Hildur
Sveinsdóttir, Eva Hlynsdóttir, Hreið-
ar Þorsteinson, Hilmar Sævarsson.
Frumsýning á Laugarvatni 24.2.