Morgunblaðið - 28.02.1995, Síða 30
30 ÞRIÐJUDAGUR 28. FEBRÚAR 1995
MORGUNBLAÐIÐ
AÐSENDAR GREIIMAR
Skiptimiða, takk!
Opið bréf til fulltrúa Röskvukynslóðarinnar
FYRIR ÁRI fenguð
þið, fulltrúar Röskvu-
kynslóðarinnar, umboð
hennar til forystu í
Stúdentaráði. Fögur
loforð ykkar um Hjarta
Háskólans, bjórkjallara,
Vínardansleiki og fiðlu-
böll tryggðu ykkur sig-
ur í kosningum. Þið vor-
uð málið. Við Vöku-
menn vorum þá bara
þurr og leiðinleg og
bentum á að meiri þörf
væri á lesplássum fyrir
nemendur og aðstöðu
fyrir deildarfélögin.
Hjartað er hins vegar
ekki enn byijað að slá, og hugmynd-
ir okkar eru komnar í stefnuskrá
Vaka hefur verið í
minnihluta í fjögur ár. Á
þeim tíma höfum við
þróað nýjar hugmyndir,
sem eru ferskar og í
takt við nýja tíma, segir
Olafur Teitur Guðna-
son. Vaka hefur eflst og
í dag er mikil hreyfíng
að baki félaginu.
ykkar, ári síðar. Þetta hlýtur að valda
ykkur nokkrum áhyggjum, sérstak-
lega þar sem þetta er ekki eins-
dæmi. Eða fannst ykkur það bera
ferskleika ykkar og frumleika gott
vitni þegar þið kynntuð nýlega hug-
mynd um Vildarvinafélag Háskól-
ans? Það krafðist allavega ekki mik-
illar undirbúningsvinnu, þar sem fyr-
ir liggur 70 blaðsíðna ítarleg skýrsla
um Hollvinasamtök Háskólans, unn-
in af fyrrum Háskólaráðsfulltrúa
Vöku og gefin út í apríl 1994.
Þröngsýni
Tillögur ykkar um sumarmisseri
skutu upp kollinum í fyrra, en urðu
aldrei að veruleika. Þær eru enn á
dagskrá, en nú er sú stefna tekin
að lofa engu. Ef sumarmisseri kemur
ekki næsta sumar, þá kemur það
sumarið þar á eftir, eða bara ein-
hverntímann. Spurningin er sú hvort
stúdentar séu ekki þeg-
ar búnir að átta sig á
þessum loforðaleik. í>að
vantar nefnilega allar
útfærslur á íjármögnun
hugmyndanna. Allir
peningar eiga að koma
frá ríkinu. Finnst ykkur
það engin bjartsýni, í
ljósi þess hve fjársjóðs-
leit ykkar í fjármála-
ráðuneytinu hefur
gengið treglega? Við
erum með nýjar hug-
, _ myndir um aukin tengsl
Olafur Teitur atvinnulífs og Háskóla,
Guðnason sem þegar fram líða
stundir munu auka
verulega við fjármagn skólans. Þið
hafið hins vegar lýst yfir mikilli tor-
tryggni á þessar hugmyndir og leið-
togi ykkar í þessum kosningum er
hræddur við að opna Háskólann.
Árangur ykkar í málefnum Lána-
sjóðsins er nær enginn. Þess vegna
kemur Vaka nú fram með tillögur
um að kannað verði hvort önnur lána-
sjóðskerfi henti betur hér á landi en
það sem nú er. Undirtektir óskast.
Úrelt sjónarmið
Vaka hefur lengi barist fyrir því
að skylduaðild að Stúdentaráði verði
afnumin. Þær hugmyndir eru í takt
við það sem er að gerast alls staðar
í heiminum. Þið hafið hins vegar
ekki meira sjálfstraust en það, að
þið þorið ekki að gefa stúdentum
færi á að segja sig úr ráðinu. Slíkt
er mat ykkar á eigin verkum. Eins
höfum við lagt til að kosið verði til
eins árs í stað tveggja, þar sem
þriggja ára nám gerir það að verkum
að margir sitja í stúdentaráði án
þess að vera í skólanum. Þið haldið
hins vegar fast í gamlar hefðir. Það
sem stendur eftir er að þið eruð
komnir í þrot. Stefnuskrá ykkar sam-
anstendur af brotnum loforðum und-
anfarinna ára í bland við hugmyndir
annarra. Frá ykkur kemur ekkert
nýtt. Eftir stendur einnig Röskvu-
kynslóðin. Vaka hefur verið í minni-
hluta í fjögur ár. Á þeim tíma höfum
við þróað nýjar hugmyndir sem eru
ferskar og í takt við nýja tíma. Vaka
hefur styrkst og eflst og í dag er
mikil hreyfing að baki félaginu. Það
er kominn tími til að þið takið ykkur
frí. Skiptimiða, takk!
Höfundur er stjórnmálafræðinemi
og skipar baráttusætið á iista
Vöku til Stúdentaráðs.
Stúdentar! Takið þátt í að
móta framtíð Háskólans!
í DAG verður kosið
til Stúdentaráðs Há-
skóla íslands og Há-
skólaráðs. Þá munu
stúdentar velja milli
þess að heíja nýja sókn
í hagsmunabaráttu
stúdenta með Vöku í
fylkingarbijósti eða
hjakka í sömu gömlu
hjólförunum. Vaka hef-
ur sterka málefnastöðu
og býður fram ferskt
og dugmikið fólk til
starfa, sem er reiðubúið
að taka til hendinni.
Reiðubúið til að leiða
samstarf í baráttunni
fyrir bættum hag stúdenta.
Betri Háskóla
Vaka berst fyrir betri
Vandi Háskólans felst ekki
því fjármagni sem til er.
Sveinn H.
Guðmarsson
Háskóla.
í að eyða
Vandinn
Stúdentum gefst kostur
á að velja nýtt fólk til
að leiða Stúdentaráð
Háskóla íslands næstu
ár, segir Sveinn H.
Guðmarsson, sem hvet-
ur stúdenta til að nýta
sér það tækifæri, enda
er þörf fyrir nýtt afl og
nýja strauma í hags-
munabaráttu stúdenta.
felst í því að afla þess. Hugmyndir
Vöku gera ráð fyrir að Háskólinn
geri langtímasamning við ríkið, sem
er forsenda framfara í Háskólanum.
Háskólinn getur þá markað sér
stefnu til lengri tíma en nú er. Þá
gefst einnig færi á að leita nýrra
leiða til tekjuöflunar, sem tryggt
geta framtíð skólans. Þátttaka at-
vinnulífsins er þar lykilatriði. Tengsl
Háskólans við þjóðlífið er mikið hags-
munamál fyrir stúdenta, Háskólann,
atvinnulífið og þjóðfélagið í heild.
Hugmyndir Vöku fela í sér raunveru-
Tölvumál eru allra mál
Einar Skúlason
I HÁSKÓLA íslands
eru einungis um 80 tölv-
ur í tölvuverum til af-
nota fyrir 5.500 nem-
endur. Flestar þeirra
eru eldri en þriggja ára
og orðnar úreltar,
a.m.k. samkvæmt skiln-
ingi atvinnulífsins. Þær
eru það gamlar og afl-
Iitlar að ekki er hægt
að keyra nýjustu forrit-
in og því ekki hægt að
fylgja þeirri þróun sem
á sér stað. Nú er syo
komið að Háskóli ís-
Iands stendur langt að baki tölvuv-
æddum háskólum á Vesturlöndum.
Þetta er sú staðreynd sem stúdentar
þurfa að horfast í augu við.
Þref öldun á þremur árum
Röskva hefur sett sér það mark-
mið að fyrir mitt næsta haust hafí
Háskólinn samþykkt framkvæmdaá-
ætlun til þriggja ára um framþróun
í tölvumálum. Þar er gert ráð fyrir
að heildartölvukostur nemenda verði
þrefaldaður í þremur áföngum á jafn-
mörgum árum, allar byggingar Há-
skólans tengist háskólanetinu með
einum eða öðrum hætti og að tölvu-
verum verði að sama skapi fjölgað.
Þetta yrði bylting í tölvumálum nem-
enda og myndi skapa svigrúm til að
nýta tölvur við kennslu í fleiri deildum
en í dag. Það er t.d. mjög æskilegt
að bjóða upp á nám-
skeið í upplýsingatækni
tengdri tölvum fyrir
sem flesta nemendur
um leið og við keyrum
inn í upplýsingaöldina.
Endurnýjun og
uppboð
Annar hluti af fram-
kvæmdaáætluninni er
að settar verði end-
umýjunarreglur um
búnaðinn, sem virki
þannig að þriðjungur af
tölvunum verði end-
umýjaður árlega og þar með öllum
búnaðinum skipt út á þriggja ára
fresti. Þannig yrði tryggt að úreltar
tölvur heyrðu sögunni til og Háskólinn
myndi vera nokkum veginn samstiga
atvinnulífinu. Hugmyndin er sú að
tölvumar verði síðan boðnar nemend-
um til kaups, framkvæmdin gæti t.d.
falist í árlegu uppboði fyrir nemendur.
Útboð
Við í Röskvu viljum að sem flestir
nemendur í skólanum geti eignast
sínar eigin tölvur. Þess vegna er ætl-
unin að hafa útboð á tölvum fyrir
nemendur í skólanum tvisvar á ári, á
vorin og á haustin, og þannig yrði
hægt að að fá verðið niður í krafti
fjölda stúdenta. Á næstu dögum verða
opnuð tilboð í útboði á tölvum sem
viðskiptafræðinemar munu eiga kost
Röskva hefur sett sér
það markmið, segir
Eínar Skúlason, að fyr-
ir mitt næsta haust hafí
Háskólinn samþykkt
framkvæmdaáætlun til
þriggja ára um framþró-
un í tölvumálum.
á að nýta sér. Mikilvægt er að allir
nemendur í skólanum fái tækifæri til
að nýta sér útboð sem þetta strax í
haust.
Frumkvæði nemenda
Það eru allar forsendur til staðar
fyrir því að stúdentar taki frumkvæði
í upplýsinga- og tölvumálum Háskól-
ans, samstaða stúdenta úr báðum
fylkingum og öllum deildum. Hags-
munir nemenda eru þeir sömu hvort
sem þeir eru vestan- eða austanmeg-
in við Suðurgötuna, það kemur öllum
til góða ef sem flestir möguleikar eru
ígrundaðir og samstaða næst um
skynsamar lausnir.
Höfundur er stjórnmálafræðinemi
í 6. sæti á lista Röskvu til
Stúdentaráðs.
legar lausnir á vandan-
um og með þeim er sleg-
inn nýr tónn í barátt-
unni fyrir betri Háskóla.
Baráttan fyrir hækk-
uðum fjárframlögum
frá ríkinu til Háskólans
stendur þó enn. Háskól-
inn þarf skilning stjórn-
valda. Menntun er besta
fjárfesting sem hugsast
getur fyrir ríkið. Vaka
skorar á stjórnmála-
flokkana að taka hönd-
um saman um að leggja
grunninn að framtíð-
inni. í þessum kosning-
um leggur Vaka áherslu
á víðtækt samstarf um nýjan lána-
sjóð. Skipaður verði starfshópur á
breiðum grundvelli til að ræða mögu-
legar breytingar á núverandi kerfí,
sem er óviðunandi fyrir námsmenn.
Við verðum að koma að því sam-
starfi með opnum huga og vera
reiðubúin til að ræða nýjar hliðar á_
vandanum.
Um hvað snúast kosningarnar?
Það er mikilvægt að stúdentar geri
sér grein fyrir því hvað Háskólinn
þarf. Um það snúast kosningamar til
Stúdentaráðs og Háskólaráðs. Stúd-
entar geta haft áhrif. Viljum við taka
frumkvæði í mótun framtíðarstefnu
Háskólans eða hafa óbreytt ástand.
Kosningamar á morgun snúast einnig
um fólk. Undanfarnar vikur hafa
frambjóðendur Vöku kynnt sig og sín
stefnumál. Stúdentum gefst kostur á
að velja þetta fólk til að lefða Stúd-
entaráð Háskóla íslands næstu ár.
Stúdentar verða að nýta sér það tæki-
færi. Það er þörf fyrir nýtt afl og
nýja strauma í hagsmunabaráttu
stúdenta. Við erum búin að vera í
hjólförunum of iengi. Hugmyndafræði
Röskvu er komin á endastöð. Við blas-
ir ný framtíðarsýn, með Vöku í broddi
fylkingar. Stúdentar! Takið þátt í að
móta framtíð Háskólans.
Höfundur skipar 1. sætiá lista
Vöku til Stúdentaráðs Háskóla
íslands.
Stúdentar!
STUDENTAR geta
haft áhrif. Með nýjum
vinnubrögðum og
breyttum áherslum
undanfarin ár hafa
stúdentar komið fjöl-
mörgu til leiðar og
gjörbreytt þeirri ímynd
sem loðað hefur við
háskólanema. Við höf-
um gert okkur grein
fyrir því að lausnirnar
koma ekki upp í hend-
urnar á okkur heldur
verðum við að bera
okkur eftir björginni.
Þegar stúdentar
ganga atvinnulausir á
Þóra
Arnórsdóttir
Arndís
Krisljánsdóttir
sumrin þýðir ekki að sitja með hend-
ur í skauti heldur verður að leita
nýrra lausna. Uppskeran er Nýsköp-
unarsjóður námsmanna sem gefið
hefur um 300 nemendum bæði sum-
arstarf og dýrmæta reynslu við rann-
sóknavinnu. Þegar Háskólanum er
haldið undir hungurmörkum í fjár-
framlögum er ekki annað að gera
en bretta upp ermarnar og hóa fjöld-
anum saman. Árangurinn af sam-
vinnu stúdenta og kennara er 80
milljóna króna aukning á framlagi
til skólans. Þegar bókakostur há-
skólabókasafns er algerlega óviðun-
andi hrinda stúdentar af stað þjóð-
arátaki. Niðurstaðan er peningar í
kassann, burðugra bókasafn og verð-
mætur stuðningur fjölmargra fyrir-
tækja við starfsemi Háskólans. Fyrir
átakið fékk Stúdentaráð menningar-
verðlaun Visa, þau verðlaun vill
Röskva að verði nýtt til að stofna
félag vildarvina Háskóla fslands.
Ólíkar hugmyndir og leiðir
í kosningum í Háskólanum geta
stúdentar haft áhrif á þa_ð starf sem
unnið er í Stúdentaráði. í ár er kos-
ið milli tveggja fylkinga sem báðar
leggja orð sín og verk í dóm. Við
kjósum um fylkingar sem eiga sér
gjörólíka sögu, hafa mismunandi
áherslur og velja misjafnar leiðir.
Þegar við gerum upp hug okkar
þurfum við bæði að líta yfir farinn
veg og horfa til framtíðar. Við þurf-
um að velta fyrir okkur verkum og
árangri þessara fylkinga og tillögum
og hugmyndum þess fólks sem býður
sig fram í nafni þeirra. Við erum að
velja þær áherslur sem við viljum sjá
í starfi stúdenta og þau vinnubrögð
sem við viljum að séu viðhöfð.
Höfuðið að veði
Röskva hefur tekið nýjan pól í
hæðina í þessum kosningum - við
höfum sett fram lista yfir þau verk-
efni sem við ætlum að hrinda af stað
fyrir mitt haust. Þar á meðal eru
stór mál á borð við átak í þátttöku
ungs fólks í rannsóknum og þróun,
áhlaup námsmanna til að gera
menntamál að stórmáli í alþingis-
kosningunum, þrýsting á formlegar
viðræður um nýtt námslánakerfi,
staðfestingu á réttindaskrá stúdenta,
byggingu nýs leikskóla, o.fl. Listinn
er lahgt frá því að vera tæmandi
upptalning þess sem vinna þarf að,
en þetta er það sem við treystum
okkur til að standa við á þessum
tíma.
Verkin segja meira
en nokkurt orð
Það er auðvelt að lofa, en það eru
verkin sem tala. Röskva hefur sýnt
að hún stendur við það sem hún lof-
Röskva hvetur alla stúd-
enta til að kynna sér
stefnu beggja fylking-
anna, segja Þóra Am-
órsdóttir og Arndís
Kristjánsdóttir, og taka
afstöðu í kosningunum.
ar. Við sem nú bjóðum okkur fram
í nafni Röskvu til að vinna að sameig-
inlegum hagsmunum stúdenta, trú-
um því að stúdentar geti haft áhrif.
Við trúum því að við getum nýtt
frumkvæði og kraft okkar stúdenta
til að tryggja menntamálum þann
sess sem þau skipa hjá nágranna-
þjóðunum. Við ætlum okkur að
leggja okkar af mörkum til að hér
geti menn stundað nám óháð efna-
hag við háskóla á heimsmælikvarða.
Röskva hvetur alla stúdenta til að
kynna sér stefnu og verk beggja
fylkinga í Háskólanum og taka af-
stöðu í kosningunum.
Höfundar Þóra Arnórsdóttir
líffræðinemi, í 1. sæti Röskvu til
Háskólaráðs, og Arndís
Kristjánsdóttir sagnfræðinemi, í
1. sæti Röskvu til Stúdentaráðs.