Morgunblaðið - 28.02.1995, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 28. FEBRÚAR 1995 39
mæði og hógværu stolti er spurn-
ingum mínum svarað um eiginleika
og getu jeppans. Ákveðið, en asa-
laust, er svo ekið af stað og horft
á myndina sem reynist af lakara
taginu. Á heimleiðinni æsi ég mig
yfir því rusli sem boðið er upp á
en eins og alltaf smitast ég af
hæglyndi Jóns og róast fljótt.
Þetta gerðist oft, en þó alltof
sjaldan. En svona mun ég minnast
hans.
Aldrei æsingur eða læti, alltaf
yfirvegun og prúðmannleg fram-
koma. Þannig komstu fram, Jón,
og þannig vannstu þér traust og
virðingu þeirra sem þú umgekkst.
Kynni okkar voru stutt — alltof,
alltof stutt. Gáfu mér þó miklu
meira en mörg önnur. Og óendan-
lega mikið höfum við öll misst sem
þekktum þig. En hver veit nema
við hittumst aftur, kannski í
Nangijala, og förum þá þrjú saman
í bíó á rauðum jeppa?
Takk fyrir allt, Jón!
Svala.
Ástkær vinur og félagi er faliinn
frá í blóma lífsins en minningin
um góðan dreng situr eftir í hugan-
um.
Mér verður hugsað til allra sam-
verustundanna sem við Jón áttum
saman inni á verkstæði hjá mér
við að laga bílinn hans, vetrarferð-
anna og veiðiferðanna í Veiðivötn
á sumrin sem voru orðnar að föst-
um punkti í tilverunni.
Ekki stóð á hjálpsemi hans þeg-
ar ég bað hann um að aðstoða
mig við að mála þegar ég flutti
verkstæðið mitt í eigið húsnæði í
ágúst síðastliðnum. Tók hann sér
þá oft daga af sumarfríinu sínu til
að hjálpa félaga sínum við þessi
tímamót en friið var einnig tekið
vegna þess að helgamar hjá honum
fóru oft í að taka þátt í siglinga-
keppnum. Lýsir það best hvað
hjálpin var veitt af góðum hug og
mörg urðu kvöldin og helgarnar
síðastliðið haust sem fóru í frágang
á verkstæðinu.
Handrit afmælia- og minningargreina
skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða
tölvusett. Sé handrit tölvusett er æski-
legt, að disklingur fylgi útprentuninni.
Auðveldust er móttaka svokallaðra
ASCII-skráa, öðru nafni DOS-texta-
skrár. Ritvinnslukerfin Word og Word-
perfect eru einnig auðveld í úrvinnslu.
Senda má greinar til blaðsins á netfang
þess Mbl@centrum.is en nánari upplýs-
ingar þar um má lesa á heimasíðum.
Það eru vinsamleg tilmæli að lengd
greina fari ekki yfir eina og hálfa örk
A-4 miðað við meðallínubil og hæfilega
línulengd — eða 3600-4000 slög. Höf-
undar eru beðnir að hafa skírnarnöfn
sín en ekki stuttnefni undir greinunum.
Vandaðir legsteinar
Varanleg minning
BAUTASTEINN
IBrautarholti 3,105 R
Sími 91-621393
Btómastofa
Friöfinm
SuöurlandsbrautlO
108 Reykjavik. Sími 31099
Oplð öll kvöld
til kl. 22,- einnig um helgar.
Skreytingar við öll tllefni.
MINNINGAR
í byijun febrúar sátum við félag-
arnir saman í kaffi inni á verk-
stæði að undirbúa veiðidagana
okkar næsta sumar í Veiðivötnum
og var Jón búinn að panta þá.
Verður veiðiferðin farin í minningu
hans.
Jón var mjög sterkur persónu-
leiki, hlýr og prúður í framkomu.
Aldrei leið mér illa eða varð hrædd-
ur þegar ég ferðaðist með honum
á fjöllum hvort sem það var að
vetri eða sumri því alltaf var farið
að öllu með ýtrustu gætni og yfir-
vegun. Með þessum fáu orðum
kveð ég kæran vin og félaga og
vona að hann hafi nóg fyrir stafni
þar sem hann er staddur núna.
Fjölskyldu hans og vinum sendi
ég mínar dýpstu samúðarkveðjur.
Þinn vinur og félagi,
Þorgeir Kjartansson.
í dag göngum við síðasta spölinn
með félaga okkar Jóni Harðarsyni,
sem starfaði með okkur í Hjálpar-
sveit skáta í Kópavogi. Er við setj-
umst niður og minnumst hans
renna upp okkar stundir saman í
starfi og leik, góðar og erfiðar.
Jón var okkur sem traust og
sterk fyrirmynd í björgunarstörf-
um og almennri fjallamennsku.
Kunnum við honum þakkir fyrir
alla þá hluti sem hann bjó að og
gat miðlað til okkar. Jón ber þann
heiður að hafa byggt mikið upp
hér í Hjálparsveit skáta í Kópa-
vogi. Hann ól af sér sterkan og
traustan bátaflokk og var ötull í
að byggja upp sleðaflokk eftir
miklar mannabreytingar þar.
Við þökkum Jóni fyrir uppbygg-
ingu okkar flokka, fyrir að hafa
verið okkur góð fyrirmynd og gert
okkur auðveldara með að verða
þeir björgunarmenn sem við erum
í dag.
Við vottum fjölskyldu og að-
standendum okkar dýpstu samúð.
Félagar sleða- og bátaflokks.
• Flciri minningargreinar um
Jón Harðnrson bíða birtingar og
munu birtast í blaðinu næstu
daga.
Erfidrykkjur
Glæsileg kaffi-
hlaðborð, fallegir
salir og mjög
góð þjónusta.
Upplýsingar
í síma 22322
FLUGLEIDIR
wim Mimniiiiii
lækkun á einni nóttu
Jeep Cherokee Turbo Diesel: Nú aðeins kr. 2.690.000
Það er okkur mikil ánægja að tilkynna
verðlækkun á Jeep Cherokee Turbo Diesel
upp á kr. 285.000 vegna breytinga á vörugjaldi
á diesel bifreiðum. Hann kostar nú aðeins kr.
2.690.000 (áður kr. 2.975.000).
Ríkulegur staðalbúnaður:
Fjarstýrðar samlæsingar, rafdrifnar rúður,
álfelgur, loftpúði í stýri, hnakkapúðar á aftursæti
o.fl. Auk jaess er hægt að fá mikið úrval
aukahluta.
Jeep Cherokee hefur sannað sig margfalt við
íslenskar aðstæður, hvort sem er við erfiðustu
vetrarskilyrði eða í þröngri bæjarumferðinni.
Tryggðu þér ekta amerískan jeppa á
fólksbílaverði.
Nýbýlavegur 2
Sími: 554 2600
Heimilisfang heimasíöu Jöfurs á Intemetinu: http://w.w.w./centrum.is/jofur