Morgunblaðið - 28.02.1995, Síða 42

Morgunblaðið - 28.02.1995, Síða 42
42 ÞRIÐJUDAGUR 28. FEBRÚAR 1995 MORGUNBLAÐIÐ + Kristín Hall- dórsdóttir fædd- ist að Magnússkóg- um 7. desember 1901. Hún lést á Dvalarheimili aldr- aðra sjómanna, Laugarási, 19. febr- úar síðastliðinn. Foreldrar Kristínar voru Halldór Guð- mundsson, f. 3. október 1875, d. 13. júlí 1962, bóndi að Magnússkógum og kona hans, Ingi- björg Jensdóttir, f. 11. september'1876, d. 11. ágúst 1957. Kristín var næstelst 14 systkina, en 10 þeirra komust til fullorðinsára. Þau voru: 1. Elísabet, látin. 2. Magnús, látinn. 3. Guðmundur, látinn. 4. Sigríður. 5. Siguijens. 6. Salbjörg. 7. Snorri, látinn. 8. Jensina. 9. Jóhanna. 10. Alfons, HÚN elsku amma mín er búin að fá hvíldina. Það var ömurlegt þegar pabbi hringdi í mig og sagði mér að amma væri dáin, en innst inni fann ég til friðar því að ég vissi að núna liði ömmu mjög vel. Hún var búin að lifa langa og stórbrotna ævi og ég held að hvíldin hafi verið henni kærkomin. Amma var mér alltaf svo góð, það var svo mikil ró yfir henni og mikið öryggi. Ekki það að ég hafi verið öryggislaus eða eitthvað að, heldur var það bara þannig að þegar ég kom til hennar varð allt miklu rólegra. Það var eins og loftið í kringum hana væri annað en gengur og ger- ist og það smitaði út frá sér. Við systkinin kölluðum hana ömmu Flókó tog þegar ég var yngri var svo gott að koma til hennar á Flókagötuna og fá að sofa hjá henni. Þá svaf ég í barnarúminu hennar mömmu inni í svefnherberginu hjá ömmu og ég held að ég hafi verið komin á ferm- ingaraldur þegar ég var enn að reyna að troða mér í það. Amma söng líka alltaf fyrir mig og sagði mér sögur og svo átti hún svo mikið af heima- bökuðum kökum. Já, amma var hinn þesti kokkur. Hún var öll í heimilis- lega matnum. Það var alltaf nóg til en samt aldrei bruðlað. Mér fannst allt gott sem hún eldaði og bjó til. Það var allt svo vel gert og bragðg- ott. Á sumrin var ég oft, ásamt ömmu, hjá Jensu frænku á Laugar- vatni. Við spiluðum mikið tijámann, "yög þá oftast fleri en tvo eða þijá á kvöldin. Það var oft ansi kátt í Heimakletti hjá Jensu um verslunar- mannahelgina, þá vorum við þar fjöl- skyldan og vinir. Amma var alltaf fósturbróðir. Krist- ín giftist 13. júlí 1936 Guðjóni Krist- jánssyni, sjómanni, f. 1. júlí 1897, d. 26. febrúar 1967 og eignuðust þau 4 börn. 1. Ingvi, f. 2. júlí 1937, kvæntur Þóru Magnúsdóttur og eiga þau þrjú börn og tvö barna- börn. 2. Hólmfríður Kristín, f. 31. ágúst 1939,- gift Böðvari Valtýssyni og eiga þau þijú börn og fimm barnabörn. 3. Katrín María, f. 7. nóvember 1941, d. 30. apríl 1943. 4. Lovísa Ósk, f. 7. nóvember 1941, d. 28. apríl 1943. Útför Kristínar fer fram frá Háteigskirkju þriðjudaginn 28. febrúar og hefst athöfnin kl. 13:30. síðust í háttinn og svo með þeim fyrstu upp á morgnana ásamt pabba. Það varð miklu styttra á milli okkar þegar amma flutti í Álfalandið, þá var létt að skokka yfir. Mér fannst alltaf svo merkilegt, og finnst enn, hvað amma lifði margar breytingar. Að búa í bóndabæ með moldargólfi og búa að lokum í glæsilegri íbúð með parketi, teppi og öllum þægind- um. Já, amma upplifði margar breyt- ingar á sinni löngu ævi. Amma var alltaf mjög heilsu- hraust fram undir það síðasta, en okkur ástvinum hennar fannst nú nóg komið þegar hún að nálgast ní- ræðisaldurinn var að príla upp á eld- húsborði til að þurrka eitthvað eða taka til. Já, amma var ekkert að slaka á. Hún var mikið fyrir að fara upp á gluggakistur og laga gardínur eða annan eins glæfragang. Hún stóð jafnvel stundum úti á svölum í frosti og snjókomu og viðraði sæng- ina sína. Það var allt í toppstandi hjá henni og það var ekki hægt að segja henni að hætta að stússa svona. Samt var mamma að þrífa hjá henni en amma varð að koma aðeins við. Amma var alltaf smart í tauinu eins og klippt út úr tískublaði. Ég vona svo sannarlega að ég eigi eftir að eldast eins vel og hún. Amma var líka svo skýr í kollinum eins og mað- ur segir. Oft kom það fyrir að ég mundi ekki eitthvað en hún mundi alltaf allt. Hún vissi hvenær allir áttu afmæli og mundi nöfn og ættir á öllum. Hún var eins og orðabók og það var alltaf eitthvað nýtt sem maður lærði. Það er sárt að amma skuli vera farin, mér finnst það ekki réttlátt. MINIMINGAR Hún var mér svo mikið og ég elsk- aði hana svo heitt. Mér fínnst ömur- legt að amma skyldi aldrei sjá hana Katarínu Sif dóttur mína sem er núna tveggja mánaða. En ég veit að amma fylgist með okkur núna og horfir stolt á bamabarnabarnið sitt, það sjöunda. Ég á yndislega mynd af ömmu í huganum og hún mun alltaf vera hjá mér. Jensína Kristín Böðvarsdóttir. í dag kveðjum við ástkæra ömmu okkar, Kristínu Halldórsdóttur frá Magnússkógum. Þegar við horfum til baka er margs að minnast og víst að við munum eiga þær minningar um ókomna framtíð. Þær minningar gera söknuð- inn léttbærari. Amma okkar sem við ávallt köll- uðum ömmu Stínu eða ömmu á Flókó var um margt merkileg kona. Alla tíð svo nett og falleg, létt á fæti og kvik í alla staði. Það var reisn yfir ömmu. Og þá var lundin alltaf létt. Amma Stína var aldamótabam og bar þess merki. Hún var af þeirri kynslóð sem þekkti ekki það að eyða um efni fram, henda nýtanlegum hlutum og sitja aðgerðalaus. Hún varð alltaf að gera eitthvað; hvort sem það var að baka kleinur eða kökur, sauma föt, pijóna lopapeysur, búa til kæfu, sjóða slátur eða hvað- eina. Hún var mikill dugnaðarforkur. Alltaf var hún fyrst á fætur og síð- ust til hvílu. Við munum eftir ömmu Stínu á Flókagötunni. Þar var alltaf gest- kvæmt, en það var ekkert mál að bæta við stólum við litla eldhúsborð- ið og kökum og öðru góðgæti á borð- ið. Alltaf var eins og hún byggist við stórveislu sem urðu reyndar ófá- ar því gestkvæmt var hjá ömmu á Flókó. Eftir vel útilátnar veitingar og skemmtilegt spjall var oftar en ekki gripið í spilin. Amma Stína hafði unun af því að spila og þá skipti engu máli hvort hún spilaði Ólsen við okkur börnin, eða bridds eða vist við þá eldri. Ófáa slagina tók hún í briddsinu og vistinni, enda var amma keppnismanneskja, en það var ekki einleikið hvað við börnin unnum hana oft í Ólsen. Við áttuðum okkur á „lánleysi" hennar I Ólsen löngu seinna. Það var líka svo gaman að fá að skoða í skápa og skúffur. Jafnvel sem börn undruðumst við þá röð og reglu sem einkenndi ömmu. Allt var á sín- um stað; listilega raðað og vel um gengið. Ef við drösluðum svolítið til eins og bama er vani, fengum t.d. að máta föt og skó; þá var víst að allt settum við nákvæmlega á sinn stað aftur. Aldrei gengum við heldur frá dótakassanum öðmvísi en að allt væri komið í kassann og hann á sinn stað. Annað var óhugsandi. Við munum eftir ömmu Stínu þeg- ar hún kom og gætti heimilisins þeg- ar foreldrar okkar fóru í utanlands- ferðir. Þá fyrst gerðum við okkur grein fyrir dugnaðinum í konunni. Vel útilátinn morgunverður, hádegis- matur, síðdegiskaffi, kvöldmatur og kvöldkaffi var borið fram alla daga. Heimilið var síðan gert hreint marga daga í viku. Þá vakti amma alla í vinnu eða í skóla og sofnaði ekki fyrr en ró var komin á heimilið seint um kvöld. Þetta var henni eðlislægt og hún naut sín vel. Amma Stína fór ekki varhluta af erfiðleikum þessa heims og sorgum. Hún fékk að reyna misvinda lífsins þegar hún missti tvær dætur sínar; tveggja ára gamla tvíbura. Mann sinn, og afa okkar, missti hún síðan fyrir tæpum 30 árum. En með miklu æðruleysi og sáiarró stóð hún sterk. í sorg okkar gleðjumst við yfír endurfundum ömmu og afa og end- urfundum ömmu við stúlkurnar sínar tvær. Guð geymi þig elsku amma. Ég sá á sólarhæðum einn sumarfugl á kvist. Hann kunni margt af kvæðum og kyijaði þau af list. En svo kom haust, haust, haust, en svo kom haust með svalri raust, og söngurinn hvarf af hæðum. (Þórbergur Þórðarson) Kristín, Magnús og Katrín Lovísa. Mikið var allt grátt og tómlegt í hjörtum okkar sunnudaginn 19. febrúar er hringt var í okkur til Danmerkur og sagt að amma væri látin. Við vissum að hverju stefndi og höfðum hugsað að það væri nú gott ef amma fengi frið svo hress sem hún hafði alltaf verið andlega og Iíkamlega þar til fyrir ca tveimur árum er heilsu hennar fór að hraka, en það er nú svo að þegar sorgin kemur þá grípur hún okkur föstum tökum. Um hugann reika minningar frá því er ég var lítil, 4-5 ára, og var í pössun eða í heimsókn hjá ömmu og afa á Flókagötunni, hún sat með mig í kjöltunni, söng og strauk hendurnar mínar um leið. Eftir að Fríða Stína, elsta barn okk- ar, fæddist og ég sá ömmu gera það sama með hana fylltist ég værðartil- finningu og hugsaði hvað við værum hepjoin að eiga hana að. Arið 1981 fluttumst ég, Halli og Fríða Stína til Danmerkur í tvö ár vegna náms. Amma kom að heim- sækja okkur til Vejle þá 80 ára göm- ul og fannst vinum okkar það ótrú- legt því hún leit út fyrir að vera sextug. Það var yndislegt þá að hafa ömmu í heimsókn eins og þeg- ar hún og Jensína systir hennar komu til okkar fyrir fimm árum í heimsókn til Vejle en þá vorum við nýflutt aftur til Danmerkur. Þá lét hún sig ekki muna um það að reyta arfa í garðinum hjá okkur eða fara í tennis við Barða son okkar sem var þá tveggja ára. Á kvöldin spiluð- um við amma, Jensa, Halli og ég og var þá oft kátt við eldhúsborðið. Þessar minningar og ótal fleiri þökk- um við fyrir að eiga og varðveita. Guð blessi minningu hennar. Sigríður, Haraldur, Hólmfríður Kristín, Böðvar og Barði. Elsku langamma. Það er erfitt að hugsa sér að við eigum ekki eftir að sjá þig aftur; heimsækja þig og leyfa þér að dekra við okkur á alla lund. En minningarnar um þig lifa. Guð blessi þig elsku langamma. Þú áttir þrek og hafðir verk að vinna og varst þér sjálfri hlífðarlaus og hörð. Þú vaktir yfir velferð bama þinna. Þú vildir rækta þeirra ættaijörð. Frá æsku varstu gædd þeim góða anda, sem gefur þjóðum ást til sinna landa og eykur þeirra afl og trú. En það er eðli mjúkra móðurhanda að miðla gjöfum - eins og þú. (Davíð Stefánsson frá Fagraskógi.) Þóra og Birna Ýr. Kristín var næstelst 10 systkina sinna, þeirra sem upp komust og lærði hún því snemma að taka til hendinni við hin margvíslegustu störf sem til féllu á stóru og umsvifa- miklu sveitaheimili. Eftir að Kristín giftist og stofnaði sitt eigið heimili í Reykjavík með eiginmanni sínum, Guðjóni Kristj- ánssyni sjómanni frá ísafirði, varð heimili þeirra miðpunktur íjölskyld- unnar, þar sem tekið var á móti öll- um til lengri eða skemmri dvalar með annálaðri gestrisni og hlýhug. Kristínu kynntist ég í upphafí vega þegar leiðir mínar og yngstu systur hennar, Jensínu, lágu saman hér í Reykjavík, er við stunduðum nám í Húsmæðrakennaraskóla íslands. Mér er það minnisstætt þegar ég kom með Jensínu í fyrsta sinni á heimili þeirra Kristínar og Guðjóns, hve vinsamlega þau tóku á móti mér ásamt börnum sínum tveim, þeim Hólmfríði og Ingva, sem þá voru bæði innan við fermingaraldur, óvenju falleg og elskuleg börn. Þeg- ar við fyrstu kynni myndaðist vin- átta sem engan skugga hefur borið á í nær hálfa öld. Að námi loknu réðumst við Jens- ína til kennslustarfa að Húsmæðra- skóla Suðurlands á Laugarvatni, hún skólastjóri, ég kennari. Samstarf okkar Jensínu spannaði tæpa þrjá áratugi og á þeim árum kynntist ég náið ættmennum hennar, bæði for- eldrum, sem voru með göfugmann- legustu öldungum sem ég hefi kynnst, svo og systkinum hennar öllum, mökum þeirra, börnum og barnabörnum. Bæði var að frænd- fólk Jensínu kom í heimsókn að t Ástkær eiginkona mín, móðir, ami dóttir, systir og mágkona, HREFNA EINARSDÓTTIR, Berjarima 21, lést í Landspítalanum 25. febrúar. Einar Marteinsson, Sigurgeir Snæbjörnsson, Guðlaug Sigurjónsdóttir, Ólöf Einarsdóttir, Sigurlaug Einarsdóttir, Erna Einarsdóttir, Einar Örn Einarsson, Katrín Tanja Sigurgeirsdóttir, Einar J. Gíslason, Bogi Þórðarson, Gylfi Jónsson, Bergþór Einarsson, Hulda S. Haraldsdóttir. t Eiginmaður minn og faðir okkar, SÆMUNDUR JÓNSSON garöyrkjubóndi, Friðarstöðum, Hveragerði, lést á heimili sínu þann 23. febrúar. Jarðarförin fer fram frá Hveragerðiskirkju laugardaginn 4. mars kl. 14.00. Alfheiður Jóhannsdóttir, Jónina Sæmundsdóttir, Diðrik Sæmundsson. KRISTÍN HALLDÓRSDÓTTIR Laugarvatni og ég fylgdist með Jensínu þegar hún heimsótti fjöl- skylduna, bæði í Reykjavík og um dreifðar byggðir Dalasýslu. Hjá þessu sómafólki kynntist ég, sem hafði alist upp í litlu afskekktu eyjasamfélagi, gamalgróinni ramm- íslenskri sveitamenningu á sámvirku stórheimili. Allt sem að daglegu lífs- viðurværi laut, jafnt utan húss sem innan, var unnið við frumstæð skil- yrði eins og þá tíðkaðist. Samstillt orka allra var lögð í að geta búið sjálfstætt, bæði til fæðis og skæða. Þannig ólst Kristín Halldórsdóttir upp með samheldinni stórfjölskyldu og áfram hefur hún eins og Magn- ússkógarsystkinin öll borið áfram menningararfmn til niðja sinna, því að frá þeim er kominn stór ættbogi dugnaðar- og framkvæmdafólks sem ber uppruna sínum fagurt vitni. Ekki fór Kristín varhluta af sorg og mótlæti í lífinu. Hún varð fyrir þeirri þungbæru lífsreynslu að missa tvö börnin sín, tvíburasystur, aðeins eins og hálfs árs og dóu þær úr mislingum með aðeins tveggja daga millibili. Ástkæran eiginmann sinn, Guðjón, missti hún þegar þau hjón voru ennþá á góðum aldri, árið 1967. Þessum þungbæru áföllum tók Kristín með stillingu, en þeir sem best þekktu hana vissu að hún varð aldrei söm á eftir. Kristín var hógvær í framkomu og fordómalaus með öllu. Mild reisn hennar og öguð framkoma einkenndi daglegt fas hennar. Allar samræður við Kristínu einkenndust af yfirveg- un og lagði hún jafnan gott eitt til allra mála. Hún talaði frekar lágum rómi fallegt íslenskt mál, hún þurfti aldrei að brýna raustina til þess að á hana væri hlustað. Barngóð var Kristín með afbrigð- um, enda hændust börn mjög að henni. Barnabörnin hennar og barnabamabörn voru henni mikill gleðigjafí og fylgdist hún grannt með framgangi þeirra og þroska. Frá Flókagötu 27 fluttist Kristín að Álfalandi 7, þar sem hún bjó í næsta nágrenni við börnin sín og tengdabörn og enn um skeið naut hún hins fallega nýja heimilis, því að Kristín var var alla tíð mikill fag- urkeri sem klæddist ævinlega vönd- uðum fallegum fötum og gladdist yfir því að hafa allt fallegt í kringum sig. Fljótlega eftir níræðisafmælið fór aldurinn að segja til sín í æ ríkari mæli, en áfram hélt hún þó að búa á sínu fallega heimili með síaukinni hjálp bama sinna og tengdabarna. Það var ekki að hennar skapi að gefast upp. En að því kom þó að hún fluttist að hjúkranarheimilinu Hrafnistu og dvaldist hún þar við sífellt þverrandi heilsu í rúmt ár. Þar naut hún góðrar umönnunar. Börnin henna'r, Fríða og Ingvi, vitj- uðu hennar hvern einasta dag ásamt mökum sínum og hjálpuðu henni að matast þegar kraftar hennar þratu til þess og gerðu allt sem í mann- legu valdi stóð til að létta henni elli- og sjúkdómsbyrðarnar. Eftir langt, farsælt og vel unnið ævistarf og erfitt sjúkdómsstríð er hvíldin kærkomin. Merk kona er gengin og skilur hún eftir sig tóm og söknuð hjá ástvinum sínum eldri sem yngri og mörgum góðum vinum. Far þú í friði, friður Guðs þig bléssi, hafðu þökk fyrir allt og ailt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) Guð blessi minningu Kristínar Halldórsdóttur. Gerður H. Jóhannsdóttir. Það er mikið lán að eiga stóra og samhenta fjölskyldu. Á æskuheimili mínu voru, auk foreldra minna og systkina, afi og amma sem áttu stór- an hóp afkomenda. Allur þessi hópur hafði mikið og náið samband við heimilið, voru m.a. árvissir sumar- gestir, og nutum við systkinin svo sannarlega góðs af því. Hér er kvödd ein úr hópnum, elskuleg föðursystir mín, Kristín Halldórsdóttir. Kristín var fædd í Magnússkógum

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.