Morgunblaðið - 28.02.1995, Síða 43

Morgunblaðið - 28.02.1995, Síða 43
MORGUNBLAÐIÐ MIIMIMIIMGAR ÞRIÐJUDAGUR 28. FEBRÚAR 1995 43 í Dölum í byrjun aldarinnar. Hún var næst elst fjórtán barna ömmu minnar og afa sem þar bjuggu. Tíu barnanna komust til fullorðinsára svo og einn fósturbróðir. Systkinin ólust upp á íjölmennu heimili þar sem samheldni og samhjálp var í fyrirrúmi. Þessi uppvaxtarár hafa mótað þennan stóra hóp því að alla tíð hefur ríkt einstakt kærleikssam- band á milli þeirra. Þegar við systkinin fórum að fara til Reykjavíkur héldum við til hjá Kristínu og hennar ijölskyldu. Heim- ili hennar stóð okkur alltaf opið eins og við ættum þar heima og móttök- urnar voru þannig að maður hafði á tilfinningunni að vera sá gestur sem hún hefði einmitt verið að bíða eftir. Kristín var mikil saumakona, saumaði allan fatnað bæði á konur og karla. Hún gerði miklar kröfur um að fatnaður færi vel hvort sem hann var heimasaumaður eða keypt- ur í búð. Ef Kristín lagði blessun sína yfir flík gat maður verið viss um að hún færi vel. Kristín sat aldr- ei auðum höndum. Á seinni árum pijónaði hún lopapeysur sem voru einstaklega vel gerðar og fallegar. Kristín hafði mikla sjálfsvirðingu og sjálfsaga. Aldrei fór hún út úr húsi ómáluð eða ótilhöfð. Erfitt var að fara með henni að versla, hún vandaði val sitt og keypti ekkert nema að grandskoðuðu máli. Hún var nýtin og fór vel með alla hluti. Aldrei henti hún matarafgöngum heldur bjó til úr þeim ljúffenga rétti enda mjög flink í matargerð og öllu húshaldi. Hún var svo sannarlega hin hagsýna húsmóðir. Sorgir lífsins fóru ekki hjá garði Kristínar þó ekki bæri hún þær á torg. Hún missti tvö börn, tvíbura- stúlkur á öðru ári, með tveggja daga millibili og ekkja var hún í tuttugu og átta ár. Gæfa hennar og gleði voru bömin hennar tvö, sem upp komust, og þeirra fjölskyldur. Þau báru hana á höndum sér sem og Guðjón, eigin- maður hennar, meðan hans naut við. Einnig var samhjálp og vinátta systranna Jensínu og hennar falleg og einstök. Við frænkumar náðum mjög vel saman þó aldursmunurinn væri tölu- verður. Um tíma bjó ég hjá henni og alltaf bar hún mikla umhyggju fýrir mér og íjölskyldu minni. Við áttum spilamennsku að sameigin- legu áhugamáli. Það var gaman að spila við Kristínu, hún hafði mikið keppnisskap og var ekki alltaf sátt við spilin sín, fannst hún reyndar alltaf fá vond spil þó svo annað kæmi í ljós. Ef á þetta var minnst svaraði fyrrum sveitakonan kímin: „Það er enginn búmaður sem ekki kann að beija sér.“ Langri og farsælli ævi er lokið. Við fjölskyldan þökkum órofa tryggð og vináttu. Aðstandendum sendi ég innilegar samúðarkveðjur. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) Ingibjörg Guðmundsdóttir. HERDÍS STRÖM AXELSDÓTTIR -I- Herdís Ström * Axelsdóttir fæddist í Reykjavík 7. júní 1927. Hún lést á Landspítalan- um 17. febrúar síð- astliðinn. Foreldr- ar hennar voru Axel Martin Ström frá Sölversborg í Svíþjóð og Herdís Guðmundsdóttir Ström frá Barta- koti í Selvogi. Systkini hennar voru fjögur, þar af tveir hálfbræður. Eina eftirlifandi systkinið er Helga. Þrjú eru látin, Guðný, Guðmundur og Viktor. Herdís giftist 20. ágúst 1949 Kristjáni Júlíussyni, f. 11. mars 1926. Börn þeira eru Soffía, f. 1953, Vilborg, f. 1955, og Guðmund- ur f. 1957. Útför Herdísar fer fram frá Bústaðakirkju i dag og hefst athöfnin kl. 13.30. NÚ þegar að kveðjustund er komið langar mig að minnast með fáein- um orðum ömmu Dísu. Herdís, eða amma Dísa eins og við kölluðum hana, var ein sú glaðlyndasta og geðprúðasta kona sem ég hef kynnst. Kristján Júlíusson bifvélavirkja- meistari sér nú á eftir ástríkri eigin- konu sinni eftir 46 ára farsælt hjónaband. Ég man vel síðasta sumar hvað hún hlakkaði til að verða 67 ára og geta loks komist á eftirlaun og geta gert allt það sem hana langaði til. Hún ætlaði aldeilis að fara að njóta lífsins. Hún ætlaði að fara nú í mars til Kan- arí, því henni leið alltaf best í mikl- um hita, en nú er hún farin á ann- an stað sem örugglega er bæði hlýrri og bjartari og er ég viss um að þar líður henni vel. Amma Dísa var ein af þeim sem allt vildi fyrir alla gera ef hún mögulega gat. Kom það best í ljós þegar eitthvað bjátaði á hjá ein- hveijum. Sérstaklega vil ég þakka henni fýrir ómetanlega hjálp og stuðning í gegnum erfið veikindi hjá okkur og fyrir það að hafa alltaf með sinni gæsku og glaðværð beint okkur á betri brautir. Söknuðurinn er sár, en margar góðar minningar sem maður á kom manni til góða og ætla ég að geyma þær fyrir mig og lítinn strák sem henni þótti svo vænt um, því þegar þar að kemur að hann skilur meir og betur, gef ég honum þær. Það mun örugglega gera hann að skiln- ingsrikari og betri manni, eins og okkur öll sem fengum að kynnast þér. Elsku Kristján, Soffía, Vilborg og Gummi, megi góður Guð gefa ykkur styrk á þessum sorgarstund- um. Steinar Kristjánsson. Enn er stórt skarð höggvið í vina- og ná- grannahópinn hér í Búlandinu. Er það í þriðja sinn á hálfu ári, sem við horfum á bak ástvina og vina okkar hér í raðhúsalengjunni, sem hefur verið sama- staður okkar í 25 ár. Það er alltaf sárt að sætta sig við að sjást aldrei aftur, a.m.k. ekki í þessu lífi, og við vinir og samferðamenn Herdísar horfum með söknuði á eftir henni, þessari góðu og glöðu konu. Ég minnist hennar sem sérlega hlýrrar manneskju, oftast með bros á vör, og þetta notalega viðmót, sem var svo einkennandi fýrir hana. Herdís var bæði lagleg og myndarleg, bauð af sér góðan þokka, svo notalegan öllum þeim, sem kynntust henni og manni leið vel í návist hennar. Aldrei sá ég hana skipta skapi, enda bar hún ekki tilfinningar sínar á torg, en þó veit ég að hún hafði sínar skoðanir á hlutunum og fylgdi þeim eftir, ef svo bar undir. Herdís var hæglát og æðrulaus kona, sem vann sín störf án hávaða og oflætis. Hún var manni sínum og bömunum bæði góð móðir og hjálparhella í blíðu og stríðu, því hún þurfti, eins og við flest öll, að taka ýmsu mótlæti í sínu lífi, og veit ég ekki betur en það hafi tek- ist farsællega. Þau hjónin voru að undirbúa utanlandsferð og ætluðu að láta sér líða vel á hlýjum og notalegum stað á suðrænum slóð- um. Hitinn átti vel við Dísu, en hún var búin að vera hjartasjúklingur í nokkur ár. Við vitum aldrei hvað morgun- dagurinn ber í skauti sér, þannig er lífið og tilveran hjá okkur öllum. Með þessum fátæklegu orðum sendi ég og fjölskylda mín okkar innilegustu samúðarkveðjur til eig- inmanns, bama þeirra og afkom- enda allra, og þökkum samfylgdina öll árin. Við söknum öll Herdísar, þessarar ljúfu og góðu konu, og er minningin um hana björt og falleg eins og hún var sjálf. Asta Hauksdóttir. Sérhvert vinarorð vermir sem vorsólarljós. Sérhver greiði og góðvild er gæfunnar rós. Hvort sem leiðin þín liggur um lönd eða höf. Gefðu sérhveijum sumar og sólskin að gjöf. (Þorsteinn Þ. Þorsteinsson.) Með þessu ljóði langar mig að kveðja vinkonu mína, Herdísi Ax- elsdóttur Ström og einnig að minn- ast hennar með nokkmm orðum. Við vissum að Ðísa gekk ekki heil til skógar, en vonuðum samt að fá að hafa hana hjá okkur um GÍSLIÓLAFSON + Gísli Ólafson var fæddur 1. maí 1927. Hann varð bráð- kvaddur á heimili sínu á Sel- tjarnarnesi hinn 17. febrúar síðastliðinn og fór útför hans fram frá Dómkirkjunni 24. febrúar. OKKUR verður orða vant þegar lífsins dyrum er lokað svo skyndi- lega. Einum vinnudegi lýkur og við teljum sjálfsagt að annar taki við. Þannig kvöddumst við Gísli daginn fyrir andlát hans. Þegar Gísli réð mig til starfa sem einkaritara sinn hjá Tryggingamið- stöðinni haustið 1984 sá ég strax að þar fór mikill maður og sérstak- ur. Úr augum hans skein ákveðni, en einnig hlýja og góðmennska. Þarna fór maður sem ég átti eftir að bera mikla virðingu fyrir. Gísli reyndist mér í hvívetna afskaplega vel og samstarf okkar í gegnum árin var náið og gott. Hann var vinnuþjarkur og hreif mann með sér. Mannleg samskipti voru honum bæði eðlileg og eiginleg og fórust honum því vel úr hendi. Það var alltaf ánægjulegt þegar hann kom að borðinu til mín eða kallaði mig inn á skrifstofuna sína til að segja mér eitthvað persónulegt og skemmtilegt. Hann braut upp hinn hversdagslega vinnudag með létt- leika sínum og góðri kímnigáfu. Glettni hans og einlægni var einstök og með okkur tókst traust og góð vinátta. Við sem störfuðum með Gísla vissum þó að síðustu árin gekk hann ekki heill til skógar, en samt sem áður kom andlát hans sem reiðarslag. Hann var svo stór og sterklega vaxinn að engan grunaði að kallið væri komið og án þess að gera boð á undan sér. Gísli var í senn húsbóndi minn og mikill og kær vinur. Hans mun sárt saknað. Á kveðjustund drúpum við höfði og þökkum af hjarta góða vináttu og ógleymanlegar samverustundir. Missir okkar allra hjá Trygginga- miðstöðinni er mikill, en mestur er þó missir fjölskyldunnar. Elsku Inga mín, börn, tengdabörn og barnabörn, ég sendi ykkur öllum mínar innilegustu samúðarkveðjur. Guð gefi ykkur styrk í sorginni. Blessuð sé minning Gísla Ólafs- sonar. Sigurveig Alexandersdóttir. mörg ókomin ár. Ég tel mig lán- sama að háfa átt vináttu hennar, sem aldrei bar skugga á. Eftir að Dísa greindist með hjartasjúkdóm, reyndi mikið á fjölskylduna. Krist- ján, bömin og ekki síður tengda- synirnir, stóðu sem einn maður við hlið hennar og gerðu allt sem þau gátu til að gleðja hana og styrkja, Bamabörnin voru hennar líf og yndi og komu oft til ömmu og afa þegar tækifæri gafst og á þurfti að halda. Einar, eiginmaður minn, kynnt- ist Kidda þegar þeir vom við nám á Akureyri árin 1944-1948 og með þeim tókst vinátta. Árið 1947 kom til Akureyrar ung og glæsileg Reykjavíkurmær sem hóf störf í bókaverslun í bænum - þetta var Dísa. Hún og Kiddi felldu hugi saman og giftu sig sumarið 1949 í Laufáskirkju, en leiðin lá til Reykjavíkur. Þau byggðu sér fal- legt hús í Fossvogi og þar bjuggu þau síðastliðin 26 ár. Margs er að minnast eftir löng og góð kynni. Mér er sérstaklega í minni ferð sem við fómm með þeim hjónum norður og um æsku- slóðir Kristjáns, borgarbarnið naut sín og þekkti vel til allra staðhátta. Samfundir urðu ekki eins tíðir hin síðari ár. Tíminn líður fljótt í dagsins önn. Kiddi og Dísa glödd- ust þegar fjölskylda okkar stækk- aði og sýndu þau dætmm okkar og fjölskyldum þeirra mikla hlýju og velvild. Alltaf spurði Dísa mín um líðan móður minnar, sem býr í hárri elli hér í Kópavogi og hafði orð á, að nú hefði hún nægan tíma, svo upplagt væri að heimsækja gömlu konuna. Fyrir nokkmm árum eignaðist. Dísa fallegan reit með litlu sumar- húsi í Þrastarskógi. Þau höfðu end- urbætt litla húsið mikið, en draum- urinn var að byggja stærri bústað í framtíðinni. Síðastliðið sumar komu þau til okkar austur í bústað og gistu. Dísa var glöð og virtist vera nokkuð frísk. Með okkur vom tvö lítil barnaböm sem kunnu svo sannarlega að meta hlýja faðminn og bjarta brosið þessarar elskulegu konu. Herdís starfaði í eldhúsi Borgar- spítalans í fjöldamörg ár, og fannst mér hún ánægð í sínu starfi, rík réttlætiskennd hennar og velvilji kom sér vel, þar sem og annars staðar. Við biðjum guð að styrkja Krist- ján vin okkar, börnin þeirra og fjöl- skyldur, og vottum þeim innilega samúð. Verði ljós, vonarbjart ljós hjarta í sérhvers manns. Eyði þar kvíða en efli þar frið, unun og gleði minn lausnara við. Lýsi mér lífsorðið hans. (V. Briem.) Við Einar og börn okkar minn- umst góðrar konu með söknuði og virðingu og biðjum guð að varð- veita hana um alla eilífð. Sigrún S. Bárðardóttir. t Móðir okkar, tengdamóðir og systir, INGVELDUR ÓLAFSDÓTTIR, lést í Kaliforníu 26. febrúar. Ólafur Loftsson, Sveinbjörg Þ. Jónatansdóttir, Loftur Loftsson, Rannveig G. Ágústsdóttir, Rósa Loftsdóttir, Júlíus H. Loftsson, Gunther S. Stent, Huxley Ólafsson, Eggert Ólafsson. t Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar og afi, RAGNAR STEINBERGSSON hæstaréttarlögmaður, Espilundi 2, Akureyri, andaðist á hjúkrunarheimiiinu Seli sunnudaginn 26. febrúar. Sigurlaug Ingólfsdóttir, Guðbjörg Inga Ragnarsdóttir, Kristinn Tómasson, Soffía Guðrún Ragnarsdóttir, Steindór Haukur Sigurðsson, Ingibjörg Ragnarsdóttir, Axel Bragi Bragason, Ragna Sigurlaug Ragnarsdóttir, Guðfinnur Þór Pálsson og barnabörn. Anna Margrét Jónsdóttir, Magnús Þór Jónsson, Einar Már Jónsson. t Eiginmaður minn, GUÐBJARTUR BERGMANN FRANSSON, Sundlaugavegi 20, andaðist á Grensásdeild Borgarspítalans þann 24. febrúar sl. Guðrún Dagbjört Frímannsdóttir.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.