Morgunblaðið - 28.02.1995, Síða 60

Morgunblaðið - 28.02.1995, Síða 60
60 ÞRIÐJUDAGUR 28. FEBRÚAR 1995 UNGLINGAR MORGUNBLAÐIÐ Það er spurning Telur þú að reykingar hafi aukist meðal unglinga? Eyrún, 14 ára Já, ógeðslega. Elísabet, 14 ára, Já. Ingólfur, 14 ára Ég myndi segja það. Erna Björg, 14 ára Já, þær hafa aukist. mmmmmmmmmmmmmm Hvar eru þau og hvað eru þau að gera? Unglinga- lýðræði - hvað ernúþað? IÖLLUM félagsmiðstöðvum Reykjavíkur er viðhaft svokallað unglingalýðræði. Það tryggir að unglingamir hafi sem mest áhrif á starfsemina. Unglingamir setja hug- myndir sínar í hugmyndakassa. Unglingaráð, sem kosið er árlega í lýðræðislegum kosningum, fer síðan yfir hugmyndimar og kemur þeim í framkvæmd. Ef um veigamiklar hugmyndir er að ræða er boðað til stórfundar þar sem allir unglingar kjósa um afgreiðslu málsins. Unglingalýðræði verður þó að fylgja ákveðnum reglum og þær ákvarðanir sem unglingamir taka mega ekki fara út fyrir eftirfarandi ramma: Lög íslands, fjárhagsáætl- un félagsmiðstöðvarinnar, reglur borgarinnar og ábyrgð starfs- manna. Fyrir skemmstu hittust öll ungl- ingaráð Reykjavíkur í Árseli. Þar litu ráðin sameiginlega yfír farinn veg, skiptust á skoðunum um starf- ið og ræddu hvað fór vel og hvað illa í starfmu í vetur. í ljós kom að starfsemin hafði verið mjög fjöl- breytt og skemmtileg og höfðu unglingarnir frá mörgu að segja úr félagsmiðstöðinni sinni. Ætlar að skipta úr freestyle yf- ir í þolfimi ÝBAKAÐUR ís- landsmeistari í Free- stile, Sigríður Ragndís Hilmarsdóttir, segist vera orðin of gömul til að keppa í því og ætlar að fara að einbeita sér að þolfiminni. Hún er 16 ára og er nemandi á viðskipta- braut í Fjölbrautaskólan- um á Sauðarkróki. Hvað er freestyle? Það er dans, djass og þol- fimi í bland. Hvað ertu búin að æfa lengi? I um það bil 6 ár, ég er ekki með þjálfara heldur er ein í þessu og sem líka dansana sjálf. Hvernig gengur að semja dansana? Það gengur bara vel, ég stel smá, bara pínu, og svo veit ég ekki alveg. Mig dreymir þetta og alls- konar, og svo er allt í einu atriðið til. Hvað æfir þú mikið? Ég æfi fimm sinnum í viku. Ég er með aðstöðu í líkamsræktarstöð hér og æfi þar í þojfimisal. Af hveiju fórstu á fslandsmeist- aramótið? Mig langaði, eins og í fyrra og árið þar áður. Ég átti alls ekki von á að sigra, fannst það ekki smuga. Mér brá ekkert smá og trúði því varla að ég hefði unnið. Framtíðin í freestyle? Ég ætla að fara meira út í þolfim- ina, ég er orðin of gömul í free- style svo ég ætla bara að hætta í því og hella mér út í þolfimina, sagði hinn nýbakaði íslandsmeist- ari að Iokum. Er í unglinga- ráði í félagsmið- stöðinni Arseli * ASGERÐUR Ottes- en hefur stundað félagsmiðstöðina Ársel í nokkur ár og er nú í unglingaráði. Annars- staðar á opnunni er aðeins fjallað um ungl- ingalýðræði sem er við lýði í öllum félagsmið- stöðvum í Reykjavík og víðar. Unglingaráð er lýð- ræði sem við notum í félagsmiðstöðvunum svo starfsmennirnir ráði ekki öllu, við kom- um hugmyndum okkar á framfæri þar, þetta er auðvitað okkar fé- lagsmiðstöð þá eigum við líka að fá að ráða einhveiju um það hvað við gerum hérna. Ég er eiginlega allt- af hérna í Arseli og hef verið í unglingaráði í tvö ár. Á virkum dög- um erum við að spila, horfa á sjónvarpið, erum í billjard, dönsum og tölum saman og hittum hina krakkana. Ég tel félagsmiðstöðvar fyrir unglinga vera nauðsyn- legar, þar kynnist maður öðr- um unglingum og maður nennir ekki að vera heima hjá sér öll kvöld. Ég er líka í handbolta og fótbolta svo það er nóg að gera hjá mér, sagði Ásgerður að lokum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.