Morgunblaðið - 28.02.1995, Síða 64

Morgunblaðið - 28.02.1995, Síða 64
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN I, 103 REYKJAVÍK, SlMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBL@CF3ITRUM.IS / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTI 85 ÞRIÐJUDAGUR 28. FEBRÚAR 1995 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK 5 milljónum króna rænt af tveimur starfsmönnum Skeljungs .Víðtæk leit lögreglu enn árangnrslaus Hálfbrunnin sönn- unargögn fundust í Hvalfirði UMFANGSMIKIL leit fjölda lög- reglumanna að þremur mönnum, sem í gærmorgun rændu rúmlega 5 milljónum króna af tveimur starfs- mönnum Skeljungs hf., hefur ekki borið árangur. Maður var handtek- inn í tengslum við málið í gærkvöldi eftir að hafa stungið af frá ákeyrslu en vísbendingar um aðild hans að málinu þykja veikar, samkvæmt heimildum Morgunblaðsins. Lög- regla fann í gær hálfbrunnar upp- gjörstöskur merktar Skeljungi í flæðarmáli í Hvalfirði skammt frá Hvammsvík. Víðtækar aðgerðir lög- reglu sem setti upp vegartálma til að fylgjast með umferð að og frá bænum báru ekki árangur. Ránið er talið þrautskipulagt. Starfsmenn Skeljungs, tvær kon- ur á þrítugsaldri, voru á bílastæði íslandsbanka í Lækjargötu að leggja inn andvirði helgarsölu á helstu bensínstöðvum fyrirtækisins á höf- uðborgarsvæðinu þegar tveir grímu- klæddir menn réðust að þeim og börðu aðra þeirra í höfuðið með slökkvitæki. Þeir hrifsuðu af stúlkunni pen- ingatösku sem í voru allmargar upp- gjörstöskur með a.m.k. 5,2 milljón- um króna, þar af rúmum 3 milljónum í reiðufé. Sérstakur þjófavarnarbúnaður í peningatöskunni, sem sprengja átti ‘sérstakt hylki sem litaði innihald töskunnar, virkaði ekki þegar til átti að taka og komust ræningjarnir undan með feng sinn. Mennimir komust undan á stoln- um SAAB-bíl sem vitorðsmaður þeirra ók. Samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins er talið hugsanlegt að einn ræningjanna sé kona. Annar hinna er áberandi hávaxinn og var klæddur ljósbláum gallabuxum og grænum hermannajakka. Bíll ræningjanna fannst inni á lóð við Ásvallagötu og vom ræningjarn- .. Morgunblaðið/Júllus LOGREGLAN á vettvangi í Hvalfirði í gær að safna saman og leggja hald á sönnunargögnin sem reynt hafði verið að brenna í flæðarmálinu. Hjólför eftir bíl ræningjanna og fótspor fundust i snjónum. SPORHUNDUR var fenginn til að reyna að rekja slóð ræningj- anna frá flóttabílnum, sem fannst við Ásvallagötu. ir á bak og burt. Á stolinn bílinn reyndust hafa verið festar stolnar númeraplötur. Logandisönnunargögn Um klukkan 16 í gær sá maður sem var akandi í Hvalfirði eitthvað logandi í flæðarmálinu. Um reyndist vera að ræða uppgjörstöskur undir peninga og ávísanir merktar Skelj- ungi og einnig fatnað. Hellt hafði verið yfir þetta kveikjarabensíni og eldur borinn að. Eldurinn var slökktur og tók lög- reglan þessa hluti í vörslu sína. Leit lögreglu að ræningjunum í gær, vegartálmanir á Vesturlands- vegi og vegartálmanir og leit á Grandagarði var einhver víðtækasta lögregluaðgerð sem gripið hefur ver- ið til í Reykjavík undanfarin ár. ■ RániðíLækjargötu/10-11 Vegabréfs- eftírlit fyrir ESB í vestri FORSÆTISRÁÐHERRAR Norður- landanna telja bestu forsendur til þess að tryggja áframhaldandi fijálsa för Norðurlandabúa milli Norðurlandanna, þar með talið vega- bréfsfrelsi, þrátt fyrir aðild þriggja landanna að Evrópusambandinu, nást með þátttöku í eða aðlögun að Schengen-samkomulagi Evrópu- sambandsríkja. ísland og Noregur hafa lýst sig tilbúin að takast þær skyldur á herðar að hafa eftirlit á ytri landamærum, sem svari til krafna samkomulagsins. Þetta myndi leiða til þess að vegabréfs- skoðun myndi leggjast af að mestu leyti milli íslands og aðildarríkja Schengen-samkomulagsins, það er að segja allra ríkja ESB, annarra en Bretlands og írlands, auk Norður- landanna. Vilja geta sent fólk til baka Ólafur Walter Stefánsson, skrif- stofustjóri í dómsmálaráðuneytinu, segir ekki ljóst hvernig útvíkkuðu samstarfi þeirra Norðurlandaríkja sem verða utan Schengen-sam- komulagsins og aðildarríkja sam- komulagsins verður háttað. Hann bendir á að íslendingar og Norð- menn leggi áherslu á að gegn því að slakað verði á vegabréfsskoðun innan svæðisins verði áfram svipaðar heimildir til eftirlits samkvæmt til- viljunarúrtaki og verið hefur milli Norðurlandanna. Einnig að gert verði samkomulag við aðildarríkin um heimildir til að senda ólögleglega innflytjendur aftur til þess lands sem þeir komu frá. í Schengen-sam- komulaginu er hins vegar gert ráð fyrir að það ríki sem vill vísa burt ólöglegum innflytjanda sjái sjálft um flutning hans til heimalands. Varðandi það hlutverk íslendinga og Norðmanna að annast landa- mæraeftirlit ESB, utan Bretlands og írlands, í vestri bendir Ólafur á að þjóðirnar séu ekki í tollabanda- lagi með ESB-ríkjunum. Því fari tollskoðun ekki fram hér heldur í fyrsta landi innan ESB. Sem dæmi um þetta má nefna flugvél sem milli- lendir á Keflavíkurflugvelli á leið frá New York til Lúxemborgar. Farþeg- arnir eiga að framvísa vegabréfum hér, en tollskoðun þeirra sem halda áfram fer fram í Lúxemborg. ■ Viðræður verði/32-33 Greiða ber erfðafjár- skatt af kvóta RÍKISENDURSKOÐUN telur að greiða skuli erfðafjárskatt af físki- kvóta. Að áliti stofnunarinnar hefur kvótinn umtalsvert fjárhagslegt gildi fyrir rétthafa og því beri erfíngjum að greiða erfðafjárskatt af kvóta við fráfall rétthafa eins og af öðrum eignum sem ganga til erfíngja. Ríkisendurskoðun tók málið til j«,mfjöllunar að beiðni sýslumanns- embættisins í Reykjavík, en ágrein- ingur var milli þess og erfingja út- gerðarmanns vegna skiptingar á dánarbúi hans. Að mati Ríkisendur- skoðunar myndar kvóti stofn til álagningar erfðafjárskatts. Bent er á að samkvæmt lögum beri að greiða erfðafjárskatt af öllum fjárverðmæt- um og fjármunaréttindum, sem við skipti á dánarbúi renni til erfíngja. Verð á pillaðri rækju hefur hækkað um 26% frá því í ágúst VERÐ á pillaðri rækju á mörkuðum í Evrópu er nú um 26% hærra en það var um mitt síðastliðið ár. Miðað við verð í SDR er rækjuverðið nú um 81% af því sem það varð hæst árið 1986. Sölu- horfur um þessar mundir eru taldar góðar. Áætl- að framboð helztu framleiðslulanda er talið verða í takt við þarfír markaðsins. Því er við því að búast að verð haldist hátt fram eftir þessu ári. Pétur Bjarnason, framkvæmdastjóri Félags rækju- og hörpudiskframleiðenda, varar þó við bjartsýni og telur frekari verðhækkanir líklegar til þess að draga úr eftirspurn eins og varð, þeg- ar verð náði hámarki 1986. Helztu framleiðendur á pillaðri kaldsjávarrækju funduðu nýlega í Tromsö í Noregi til að bera saman bækur sínar. Þessi lönd eru Island, Noreg- ur, Grænland og Færeyjar, en þau hafa bundizt samtök’um um sameiginlegt markaðsátak fyrir kaldsjávarrækju í Þýzkalandi, sem standa mun í þrjú ár. Helztu markaðslöndin fyrir pillaða kald- sjávarrækju eru Bretland, sem er langstærst, Danmörk, Þýzkaland og Svíþjóð. Alls er nú talið að eftirspurn eftir þessari rækju í Evrópu nemi um 50.500 tonnum í ár, en áætluð framleiðsla er um 45.000 tonn. Island er stærsti framleiðand- inn með áætlaðan útflutning inn á þennan mark- að í ár upp á 18.500 tonn. Grænland er í öðru sæti með 12.500 og áætluð framleiðsla í Noregi er 10.500 tonn. Verðið orðið of hátt? „Okkur sýnist að vægið milli framboðs og eftir- spurnar á þessu ári verði okkur hagstætt,“ segir Pétur Bjarnason. „Ég get hins vegar ekki leynt því að ég ber svolítinn ugg í bijósti um að þessi verðhækkun sem orðin er sé komin afar nærri þeim mörkum að kaupendur leiti annarrar vöru vegna þess hve verðið er orðið hátt. Frekari verð- hækkun leiðir að mínu mati ekki til góðs. Síg- andi lukka er jafnan bezt í markaðsmálum. Stað- an nú minnir um margt á stöðuna 1986 til 1987, sem leiddi af sér verulega fimm ára lægð í rækju- verði og mikla örðugleika í rekstri. Eg óttast einnig að þessi verðhækkun sem kemur eftir að framleiðendur margir hafa lapið dauðann úr skel, hafi leitt til þess að þeir hafí verið að borga of hátt hráefnisverð. Mér heyrist að menn hafi oftast verið að hækka hráefnisverð- ið út á væntanlega afurðaverðshækkun, en slíkt Ieiðir aðeins til skelfilegrar stöðu,“ segir Pétur. Pétur segir að menn séu vongóðir um að sam- starf í markaðsmálum muni skila sér. Ennfremur hafi hann komið með þá hugmynd að halda sér- staka ráðstefnu um kaldsjávarrækju.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.