Morgunblaðið - 05.03.1995, Qupperneq 2
2 SUNNUDAGUR 5. MARZ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Vetrarstillur
ÍSSKÆNI hefur verið á Reykjavíkurhöfn undanfarið enda hefur
frost verið hart þótt stillur hafí verið miklar og veður fagurt.
Framkvæmdir við Landspítala fyrir 141 millj.
Fullkomnasta
skurðstofa lands-
ins tekin í notkun
TEKIN verður í notkun fullkomnasta skurðstofa landsins á Landspítalanum
á næstu dögum, að sögn Ingólfs Þórissonar framkvæmdastjóra tækni- og
rekstrarsviðs Ríkisspítalanna. Heildarkostnaður vegna skurðstofunnar er 30
millj. að sögn Ingólfs og verður hún einkum notuð fyrir bæklunaraðgerðir.
Stofan er keypt tilbúin í hólf og
ROBERT E. Peary og Fred-
erick Cook deildu um hvor
hefði fyrstur manna komist á
norðurpólinn.
Islendingar
á norður-
pólinn?
gólf frá Þýskaiandi og byggð. inn í
húsnæðið. í henni er gerð loftræst-
ingar, nefnd iðulaust loftstreymi,
sem minnkar sýkingarhættu, og sér-
stakar tækjasúiur. Er gert ráð fyrir
að skurðstofum verði fjölgað úr sex
í átta á deildinni og að heildarkostn-
aður vegna framkvæmda á skurð-
stofudeild verði tuttugu milljónir í ár.
Innrétting göngudeildar
Ingólfur segir að viðhaldsfé spítal-
ans sé 100 milljónir fyrir þetta ár
en með sérstökum fjárveitingum rík-
isstjórnarinnar verði það 141 milljón.
Tuttugu og fímm milljónir fengust
til stækkunar glasafijóvgunardeildar
í kjallara kvennadeildar sem mun
leiða til helmingsfjölgunar á aðgerð-
um á deildinni, eða í 500 á ári að
hans sögn. Fæst 21 milljónar króna
framlag á næsta ári að auki en einn-
ig er vænst aukins fjár til að inn-
rétta göngudeild.
Unnið er að ýmsum öðrum fram-
kvæmdum að auki að sögn Ingólfs.
Bráðamóttakan verði stækkuð veru-
lega og á döfínni er endumýjun einn-
ar legudeildar, annaðhvort deildar
fyrir sjúklinga eftir brjóstholsskurði
eða gjörgæsludeildar.
Sementsverksmiðjan
sneri tapi í hagnað
ARI Traustl Guðmundsson jarð-
eðlisfræðingur og Ragnar Th. Sig-
urðsson ljósmyndari gætu orðið á
meðal fyrstu, ef ekki fyrstu ís-
lendingarnir, sem stíga fæti á
norðurpólinn ef áform þeirra
verða að veruleika. Þeir félagar
hyggjast reyna að fara ásamt
Fimm öðrum og leggja af stað 28.
mars næstkomandi.
Um er að ræða tólf daga leið-
angur sjö manna og þurfa Ari
Trausti og Ragnar að bera veru-
legan kostnað af þátttöku sinni,
en hafa leitað til íslenskra fyrir-
tækja í von um stuðning. í næstu
viku skýrist endanlega hvaða fyr-
irtæki munu leggja sitt af mörkum
til að hugmyndir þeirra rætist.
Bresk-kanadískir aðilar skipu-
lögðu leiðangurinn.
Flogið yrði frá Lundúnum til
Kanada og þaðan stiklað flugleiðis
á eyjum við Kanada yfír á norður-
heimskautið, þar sem tæki við
ferðalag á hundasleðum og vél-
sleðum til norðurgólsins.
Fáir ef nokkur Islendingur hef-
ur komið á norðurpólinn svo vitað
sé, að sögn Ara Trausta, hugsan-
lega að Gísla Gestssyni kvik-
myndatökumanni undanskildum.
íslenskar vörur reyndar?
Hann lýsir ferðinni sem ógnar-
dýrum ævintýraleiðangri, en ef
af verði muni þeir gjörnýta þá
möguleika sem ferðin býður upp
á, þar með talið að reyna íslensk-
ar vörur á norðurpólnum.
„Þetta er ekki „bara“ ferð á
pólinn, heldur erum við að gera
ýmislegt annað í leiðinni og heil-
mikið í kringum leiðangurinn. Við
eigum eftir að rýna aðeins betur
í kortin og athuga betur hvernig
við komum því sem við sjáum og
heyrum á framfæri við þjóðina."
Um langferð er að ræða, eða alls
um 40 þúsund kílómetrar frá
London til London.
Norðurheimskautssvæðið,
Arktíka, er svæðið umhverfís
norðurpólinn og nær yfir Norður-
’íshafíð og nyrstu hluta Asíu, Evr-
ópu og Norður-Ameríku. Það er
um 26,5 milljónir ferkílómetra að
stærð og með sanni strjálbýlasta
svæði heims. Norðurskautið, eða
norðurpóllinn, er í Norður-íshafi
á 90. gráðu norðlægrar breiddar.
VERULEGUR bati varð á afkomu
Sementsverksmiðjunnar hf. á Akra-
nesi á sl. ári. Hagnaður af reglu-
legri starfsemi nam 53,5 milljónum
samanborið við 62,8 milljóna tap
árið áður. Tap af óreglulegum liðum
var í fýrra 11,5 milljónir og varð
því heildarhagnaður 36,3 milljónir
samanborið við um 111,5 milljóna
heildartap árið áður.
Þessi umskipti í rekstri má rekja
til ýmissa hagræðingar- og aðhalds-
aðgerða á árunum 1993 og 1994.
Telja forráðamenn fyrirtækisins að
tekist hafi að skapa viðunandi
rekstrargrundvöll að því gefnu að
sementssalan dragist ekki frekar
saman en orðið er og almennt verð-
lag og gengi haldist nokkuð stöð-
ugt. Salan á síðasta ári varð alls
RANNVEIG Guðmundsdóttir
félagsmálaráðherra hefiir ósk-
að eftir því við stjórn Atvinnu-
leysistryggingasjóðs að hún af-
greiði umsókn Reykjavíkur-
borgar um áframhaldandi
stuðning við átaksverkefni við
grunnskóla borgarinnar. Bragi
Guðbrandsson, aðstoðarmaður
félagsmálaráðherra, segir það
klúður í kerfinu að Reykjavík-
urborg hafi neyðst til að segja
upp um 100 starfsmönnum
átaksverkefnisins.
í lok síðasta árs komu
sveitarfélögin sér saman um að
stofna nefnd til að fara yfir
átaksverkefnin og móta nýjar
Staða viðskiptaaðila
hefur lagast
verulega gagnvart
fyrirtækinu
rösklega 83 þúsund tonn samanbor-
ið við 85.500 tonn árið áður.
Á þessu ári er gert ráð fyrir að
sementssalan verði um 80 þúsund
tonn eða um 3-4% minni en í fyrra.
Er reiknað með að botninum í sölu
verði náð á þessu ári og frá og með
árinu 1996 fari salan að hreyfast
upp á við. Þá segir í frétt frá fyrir-
tækinu að staða stærstu viðskipta-
aðila þess hafi lagast verulega
gagnvart því að undanförnu.
Fyrirtækið efndi tvívegis til
reglur um hvernig að þeim
skuli standa. Þessar reglur
liggja nú fyrir og undirritaði
félagsmálaráðherra þær í síð-
ustu viku.
Bragi sagði að meðan ekki
væri farið að vinna eftir nýjum
reglum giltu eldri reglur og
þess vegna hefði stjórn At-
vinnuleysistryggingasjóðs átt
að afgreiða umsókn Reykja-
víkurborgar án tafa.
Bragi sagðist vonast eftir að
þessu yrði kippt í liðinn strax
eftir helgi þannig að ekki komi
til þess að umræddur hópur
starfsmanna standi fyrirvara-
Iaust uppi atvinnulaus.
skuldabréfaútboðs á innlendum
markaði á sl. ári og notaði andvirði
þess til að greiða skuldir í erlendri
mynt.
Tilraunir með
hástyrkleikasteypu
Sementsverksmiðjan beitti sér
fyrir umfangsmiklum tilraunum og
rannsóknum á notkun steinsteypu
í vega- og gatnaslitlög á árinu 1994.
Gerðar voru tvær tilraunir með út-
lagningu á hástyrkleikasteypu í
samvinnu við steypustöðvarnar í
Reykjavík og íslenska aðalverk-
taka. Önnur tilraunin var gerð á
Keflavíkurflugvelli en hin á Suður-
landsvegi. Rannsóknarvinnu annað-
ist Rannsóknarstofnun byggingar-
iðnaðarins.
Lesendaþjónusta
Morgunblaðsins
Spurt og svar-
að um tilvísun-
arkerfið
HEILBRIGÐISRÁÐHERRA hefur
gefið út reglugerð um tilvísunarkerfi
í heilbrigðisþjónustunni. Til að auð-
velda lesendum að átta sig á þessari
breytingu mun Morgunblaðið taka á
móti spurningum þeirra í síma
691100 milli kl. 10 og 11 árdegis,
mánudaga til föstudaga. Spurningun-
um verður komið á framfæri við heil-
brigðis- og tryggingaráðuneytið, svo
og Sérfræðingafélag íslenzkra lækna,
eftir því, sem efni þeirra gefur tilefni
til og verða svörin birt svo fljótt sem
unnt er. Lesendur geta beint spurn-
ingum sínum til annars hvors aðilans
éða beggja ef því er að skipta. Nauð-
synlegt er að nöfn og heimilisföng
fylgi spumingum lesenda.
Ráðherra vísar á Atvinnuleysistryggingasjóð
Klúður í kerfinu
Skuldir ríkissjóðs tvö'
faldast
►Þrátt fyrir þá staðreynd að ríkis-
stjóminni hafi tekist að stöðva
sjálfvirka útgjaldaaukningu ríkis-
sjóðs er viðvarandi vemlegur halla-
rekstur á sameiginlegum sjóði
landsmanna./lO
Maðurinn sem
sprengdi bankann
►Hver er þessi 28 ára verðbréfa-
snillingur sem einn síns liðs kné-
setti einn elsta og virtasta banka
Lundúna og olli skjálfta á peninga-
mörkuðum heimsins með því að
spá vitlaust í áhrif landskjálftans
íJapan?/12
lUútíminn má ekki
missa tengsl við sveit-
irnar
►Halldór Blöndal segist hafa tek-
iðvið erfiðu búi í landbúnaðarráðu-
neytinu en telur að viðhorf í garð
íslensks landbúnaðar séu að verða
jákvæðari og sóknarfæri liggi
meðal annars í sölu á hollystuvör-
um, hrossarækt og landgræðslu.
/14
Selir - auðlind við ís-
land
►Offjölgun sela er nú talið gríðar-
legt vandamál./18
Breyting - Þeyting
►í Viðskiptum og atvinnulífi á
sunnudegi er rætt við Ögnu Jóns-
son, stjórnarformann og aðaleig-
anda fyrirtækjanna Halldór Jóns-
son hf. ogLystadúns./24
B
► 1-36
Fjör í fjörunni
►Einari Egilssyni er sjómennskan
í blóð borin. Hann dró sinn fýrsta
fisk úr sjó við strendur íslands
snemma á öldinni en síðar barst
leikurinn suður á bóginn, frá Atl-
antsálumtil Kyrrahafsins./l
Hundrað sinnum
Hemmi
►Hermann Gunnarsson hefur
sópað að sér flestum sjónvarpsá-
horfendum og í næstu viku verður
hundraðasti þáttur hans sýndur./4
Hvað er hlægilegt við
handtöskur?
►Margir skopteiknarar virðast sjá
eitthvað hlægilegt við handtöskur
kvenna, um það vitna ótal myndir
í blöðum./lO
Dagbækur Leenu
►Finnski rithöfundurinn Leena
Leander, höfundur Heimilis svörtu
fiðrildanna, í viðtali./ 11
Svörtu riddararnir
►Saga 57. flugsveitarinnar frá
Keflavík./14
BÍLAR______________
► 1-4
Framtíðin á götunum
►Mercedes-Benz kynnir pallbíl,
sportbíl, stallbak og langbak í ein-
um og sama bílnum./l
Reynsluakstur
►Níu milljóna króna Audi A8 ál-
bíU, lipur, þægilegur og kraftmik- i
ill. /4
FASTIR ÞÆTTIR
Fréttir 1/2/4/6/bak Skák 42
Leiðari 28 Stjömuspá 43
Helgispjall 28 Fólk f fróttum 44
Reykjavikurbréf 28 Bíó/dans 46
Minningar 30 Útvarp/sjónvarp 52
Myndasögur 40 Dagbók/veður 55
Bréftil blaðsins 40 Mannlífsstr. 6b
tdag 42 Dægurtónlist 12b
Brids 42 Kvikmyndir 14b
INNLENDAR FRÉTTIR:
2—4—8—BAK
ERLENDAR FRÉTTIR:
1-6